Morgunblaðið - 21.10.1993, Page 36
36
félk f
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1993
r
STÓRAFMÆLI
Hugsaði mönnum
þegjandi þörfina
Vinir Sveins M. Sveinssonar kvik-
myndagerðarmanns óskuðu
honum til hamingju með afmæli sitt
á heldur óvenjulegan hátt þegar hann
varð fertugur sl. föstudag. Þeir
mættu að heimili Sveins um klukkan
hálfsjö um morguninn og sprengdu
50.000 kínveija fyrir utan svefnher-
bergisgluggann hjá honum. Sveinn,
fjölskylda hans og nágrannar voru í
fastasvefni og vissu ekki hvaðan á
sig stóð veðrið þegar ósköpin dundu
yfir.
„Maður rauk upp og hélt að væri
kominn jarðskjálfti eða loftárás.
Börnin komu fljúgandi í fangið á
okkur og við stóðum frosin í eina
og hálfa mínútu. Mig fór þó fljótlega
að gruna ástæðuna fyrir látunum og
hugsaði ákveðnum mönnum þegjandi
þörfina. Ég hef þegar útvegað mér
kennitölur nokkurra vel valinna
manna til að vita hvenær ég geti náð
mér niður á þeim,“ sagði Sveinn að
kvöldi afmælisdagsins.'
— En þótti þér ekki pínulítið vænt
um uppátækið?
„Jú vissulega. En konan mín varð
Húsráðandi, afmælisbarnið
Sveinn M. Sveinsson, kemur til
dyra, heldur illilegur á svip.
að halda aftur af mér um stund og
ef vatnsslangan hefði ennþá verið
tengd síðan í sumar þá hefði ég lát-
ið vaða úr henni á þá alla saman.
Svo komu hinar tilfinningarnar. Það
er náttúrulega mikið á sig lagt hjá
þessum drengjum að koma svona
saman fyrir allar aldir til að gera
mér daginn eftirminnilegan. Sumir
hafa átt erfitt með að mæta í vinn-
una fyrir níu en það er kannski auð-
veldara að rífa sig á lappir þegar
kvikindisskapur er annars vegar.
Nágrannarnir hafa verið að gefa mér
auga í dag og ég athugaði með aldr-
aða nágranna mína sem búa hérna
á efri hæðinni hvort það væri allt í
lagi með þá. Það virðast allir hafa
tekið þessu ágætlega. Hér í kring
eru þrjár háar blokkir og þegar læt-
in stóðu sem hæst sá maður ljósin
kvikna í gluggunum svona eins og í
ævintýramynd. Ég kann strákunum
blendnar þakkir fyrir athæfið," sagði
Sveinn M. Sveinsson fertugur.
íbúar hrukku upp af værum
svefni þegar sprengingarnar
hófust.
Vinimir sungu afmælissönginn hárri raust. Frá vinstri: Jón Karl
Helgason, Ari Magnússon, Ámi Johnsen, Ingi R. Ingason, Einar
Sveinsson og Júlíus Kemp.
ÍÞRÓTTIR
Morgunblaðið/Frosti Eiðsson
Karatemeistari hjá Þórshamri
Japanski karatamaðurinn Sensei
Kawasoe dvaldi hér á landi í
. vikunni í boði Karatefélagsins Þórs-
hamars. Kawasoe er einn af þeim
bestu í heiminum í shotokan stíln-
um. Hann er tæplega fimmtugur
og hefur gráðuna 7. dan í svarta
beltinu en örfáir karatemeistarar
hafa hlotið 8. dan að sögn forráða-
manna Þórshamars. Myndin er tek-
in á æfingu hjá félaginu en Kaw-
asoe kenndi öllum flokkum.félags-
ins, þar á meðal barnaflokknum
sem hér sést með karatemeistaran-
um.
m ■ Æ k| f ■
mm m €18 \ r WM .
Ari Magnússon (t.v.) og Ingi R. Ingason tilbúnir með kínverjabeltin.
Sveinn með dætrum sínum þegar ósköpin voru liðin hjá. Vinstra
megin við Svein er yngsta dóttirin Elísabet Birta og hægra megin
eru Elsa og Guðrún Tara.
FRAMTÍÐ
Moore kaus trompettið
Hinn gamalkunni leikari Roger
Moore, sem er þekktastur
fyrir hlutverk sín sem „Dýrlingur-
inn“ í samnefndri sjónvarpsþátta-
röð og sjálfur James Bond, á son
einn, Geoffrey Moore. Sá er nú
28 ára gamall og þykir nauðalíkur
föður sínum. Roger hefur löngum
haft áhuga á því að Geoffrey feti
í fótspor sín á hvíta tjaldinu og
sjónvarpsskermum og drengurinn
hefur látið það ganga eftir og
afgreitt talsvert af minni háttar
hlutverkum sem hafa talist hvert
fyrir sig vera skref í átt að ein-
hverju bitastæðara. Samhliða hef-
ur hann hins vegar ævinlega lagt
mikla rækt við tónlistarnám með
sérstakri áherslu á trompetleik.
Nú hefur Geoffrey Moore hins
vegar tekið stóra og mikla ákvörð-
un. Að hætta að gera það sem
aðrir vilja og einbeita sér fremur
að því sem hann vill sjálfur.
Þ.e.a.s. að leggja fyrir sig tónlist-
arbrautina. „Eg er í raun ekki
leikari. Tónlistin á hug minn allan
og ég væri að brjóta gegn eðli
mínu að hlusta ekki á hjartað
þegar það segir mér að sleppa
leikarastússinu. Pabba vegna
þykir mér það leiðinlegt, en þetta
er jú mitt líf,“ segir Geoffrey.
Hann segir jafn framt að hann
muni leggja djass fyrir sig og eft-
irlætistónlistarmenn sínir hafi
ævinlega verið Marvin Gaye, Ste-
ely Dan og Jimmy Hendrix. Geof-
frey vinnur þessa daganna hörð-
um höndum að því að koma út
sínum fyrsta geisladiski. Á diskin-
um eru að hans sögn frumsamdar
djassballöður.
Geoffrey Moore með trompettið.