Morgunblaðið - 21.10.1993, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.10.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1993 17 Samkomulag um rekstur söfnunarkassa og happdrættisvéla Aðilar skipta með sér ágóða og takmarka fjölda spilavéla mannaeyjum, Hveragerði og á Kefla- víkursvæðinu. Aðgangur að Gullnámunni verður takmarkaður við 16 ára og eldri og leggur Happdrættið áherslu á að strangt eftirlit verði með því að þær reglur verði virtar. Þrír vinningsmöguleikar Fjórir mismunandi leikir verða í vélunum. Vinningslíkur verða um 90%. Hægt er að spila fyrir minnst 50 krónur og mest 150 kr. og mögu- leiki er að vinna allt að 25 þúsund kr. og greiðir vélin vinningana sam- stundis út. Þeir sem spila fyrir 150 kr. í einu eiga einnig möguleika á að vinna úr stærri pottum sem tæm- ast þegar þeir hafa náð fyrirfram ákveðinni upphæð. Áætlað er að vinningur úr Silfurpottinum geti náð um 250 þúsund krónum og er þá reiknað með að hann tæmist á viku eða tíu daga fresti. í Gullpottinn safnast hærri fjárhæðir, eða allt að 5,5 milljónir kr., og tæmist hánn sjaldnar, jafnvel á nokkurra vikna fresti. Happdrættisvélamar eru sam- tengdar með símalínum. Stjórnstöðin er í húsnæði HHÍ við Tjarnargötu og þaðan er fylgst með hverri hreyfingu vélanna allan sólarhring- inn. Morgunblaðið/Júlíus Grafið í Gullnámunni Happdrættisvélar Háskólans voru kynntar í gær. Þær gefa möguleika á þrenns konar vinningum og sést jafnóðum á skjá í vélinni þegar hækkar í stóru pottunum sem kenndir eru við gull og silfur. Þingmenn fjögurra stj órnmálaflokka Vilja af- nema verð- tryggingu SJÖ alþingismenn hafa lagt fram frumvarp til laga á Alþingi um afnám verðtryggingar fjárskuld- bindinga frá næstu áramótum og að lánskjaravísitalan verði þá lögð niður. Frumvarpið er lagt fram í sjöunda sinn á Alþingi en flutn- ingsmenn þess eru Eggert Haukd- al og Matthías Bjarnason, Sjálf- stæðisflokki, Steingrímur Her- mannsson og Páll Pétursson, Framsóknarflokki, Kristín Ást- geirsdóttir, Kvennalista, og Jó- hann Ársælsson og Kristinn H. Gunnarsson, Alþýðubandalagi. Vilja þingmennirnir að óheimilt verði að verðtryggja fjárskuldbind- ingar, þar með talin inn- og útlán í bankakerfinu, skuldabréf og verð- bréf þar sem enginn grundvöllur sé lengur fyrir verðtryggingu hér á landi. Happdrætti Háskóla íslands kynnti nýju happdrættisvélarnar í gær Vinningar geta farið í 5,5 millj. HAPPDRÆTTI Háskóla íslands sýndi í gær hvernig happdrættisvélar Gullnámunnar starfa en þær verða teknar í notkun í næsta mánuði. Settar verða upp 400 slíkar vélar á alls 22-24 stöðum á landinu, þar af 10-12 á höfuðborgarsvæðinu og síðan þrjár í hveijum landsfjórð- ungi. Að jafnaði verða því 15-20 vélar á hverjum stað. Vélarnar verða staðsettar á vín- veitinga- og skemmtistöðum og hót- elum og fyrst um sinn í þremur sér- stökum spilastofum. Tvær þeirra verða í Reykjavík og ein á lands- byggðinni. Ekki er búið að ganga endanlega frá því á hvaða stöðum úti á landi happdrættisvélamar verða en reiknað er með að það verði að minnsta kosti á Akranesi, ísafírði, Akureyri, Egilsstöðum, Höfn, í Vest- Torgeirs- staðir end- urnýjaðir NORDMANNSLAGET, _ Félag Norðmanna búsettra á íslandi, minnist um þessar mundir 60 ára afmælis síns. Við þessi tímamót tekur félagið i notkun nýjan bústað í Heiðmörk sem áhugamenn hafa komið sér upp á undanförnum mánuðum. Þar stóð áður bústaður í hefð- bundnum norskum stil en hann gereyðilagðist eftir íkvekju fyrir tveimur árum og hafa félagsmenn lagt mikið kapp á að koma sér upp nýjum bústað. Gamli bústaðurinn, Torgeirs- staðir, var reistur fyrir fjörutíu árum og bar nafn Torgeirs And- ersen Rysst sem lengi var sendi- herra Norðmanna á Islandi og náinn vinur Hákonar Bjarnason- ar, skógræktarstjóra, og jnikill áhugamaður um íslenska skóg- rækt. Norðmenn á íslandi nýttu bústaðinn tii margvístegrar starfsemi og stunduðu mikið skógræktarstarf í samvinnu við Skógræktarfélag Reykjavíkur. í október 1991 var kveikt í bústaðnum og reyndis ógerning- ur að endurbyggja hann. Var þá brugðið á það ráð að byggja nýtt hús samkvæmt teikningum Rolfs I. Larsen_, arkitekts, sem búsettur er á Islandi og hefur hann haft yfirumsjón með verk- inu. Framleiðandi er norska fyr- irtækið Norske fjellhus A/S í Flesberg í Noregi en umboðs- maður þess er Stein Hvasshovd. Húsið var tekið í notkun 16. október sl. að viðstöddu fjöl- menni. í athugasemdum frumvarpsins segir að gera verði ráð fyrir að inn- lánsstofnanir taki upp þá reglu að greiða vaxtaauka á bundin spari- innlán til eins árs eða lengur ef gildandi vextir séu lægri en nemur verðbólgu. SAMKOMULAG náðist í fyrrakvöld fyrir milligöngu dómsmálaráðherra milli Happdrættis Háskóla íslands (HHÍ) annars vegar og Rauða kross íslands, Samtaka áhugafólks um áfengisvandann (SÁÁ), Slysavarnafé- lags íslands (SVFÍ) og Landsbjargar, landssambands björgunarsveita, hins vegar um rekstur söfnunarkassa og happdrættisvéla. Samkomulag- ið felur í sér að fjöldi söfnunarkassa og happdrættisvéla verði takmarkað- ur og að ágóðanum af rekstri þeirra verði skipt á milli fyrrgreindra aðila. DAS o g SIBS vilja fá að reka spilakassa HAPPDRÆTTI DAS og SÍBS hafa í sameiningu sótt um leyfi til rekst- urs spilakassa til dómsmálaráðuneytisins. Forsvarsmenn happdrætt- anna höfðu lýst áhuga á að vera með í viðræðum Happdrættis Háskól- ans og Rauða krossins og samstarfsaðila hans um rekstur spiiakassa en deilan sem reis á milli þeirra leystist í fyrradag án þátttöku flokka- happdrættanna. Sigurður _ Ágúst Sigurðsson, forstjóri happdrættis DAS, harmar að DAS og SÍBS skuli enn einu sinni hafa orðið útundan og segist te(ja nauðsynlegt að lög þau sem happdrættin starfa eftir verði endurskoðuð. Sigurður óskar þeim aðilum sem að samkomulaginu stóðu til ham- ingju en harmar jafnframt að flokka- happdrættin skyldu hafa orðið út- undan enn einu sinni því forsvars- menn þeirra höfðu látið í ljós áhuga á að vera með í viðræðunum. Sigurð- ur segir það versta sem komið geti fyrir happdrætti sé neikvæð umræða eins og farið hafí fram að undan- fömu. Hann hafi verulegar áhyggjur af þessu og þeir sem aðild eigi að henni eigi að vita að afleiðingamar geti orðið afdrifaríkar. Sigurður segír að þetta sé í þriðja sinn sem DAS sæki um leyfi fyrir spilakassa. Þeir hafi fyrst gert það árangurslaust 1970 og síðan endur- tekið umsóknina 1990. Þá hafí SÁÁ, Slysavarnafélagið og Landsbjörg gengið til samstarfs með Rauða krossinum en þeim hafi verið sagt að halda sig við flokkahappdrættið og reyna ekki fyrir sér á þessum markaði. Þeir hefðu sæst á það og ekki verið með neinar hótanir. Sjúklingarnir út á lóð Hann sagði í fjörutíu ára sögu happdrættisins hefði það ekki notið skilnings yfirvalda á að fá qð þróa happdrættið í samræmi við breyttan tíðaranda. Það væri enn bundnið af lögum um vöruhappdrætti og það væri löngu tímabært að fella niður þá kvöð að þurfa að bjóða upp á búvélar og búpening í happdrætti. Einkaleyfí HHI á peningahappdrætti standist eingöngu gegn SÍBS og DAS, því jafnvel erlendar þjóðir séu komnar inn á markaðinn og borgi vinninga út i peningum. „Lögin standa í vegi fyrir að við getum þró- ast eðlilega. Þeim þarf að breyta því þau setja okkur í algera spenni- treyju," sagði Sigurður. Sigurður vildi leiðrétta tölur um afkomu sem vom birtar í Morgun- blaðinu i fyrradag og fengnar í dóms- málaráðuneytinu. Heildarsala á síð- asta reikningsári hefði verið 186,3 milljónir, útgreiddir vinningar 109,1 milljón og hagnaður 28,9 milljónir. Þá væri gert ráð fyrir að hagnaður á þessu ári yrði 35-40 milljónir en samkvæmt gögnum dómsmálaráðu- neytisins var sameiginlegur hagnað- ur happdrætta SÍBS og DAS á þessu ári álitinn verða 50-60 milljónir. Þeir greiddu út 60% af allri innkomu í vinninga, 10% væru greidd í umboðs- laun og síðan kæmi rekstur fyrirtæk- isins, sem væri mjög hagkvæmur, þó auðvitað væri hann hagkvæmari hjá happdrætti Háskólans þar sem veltan væri meiri. í framhaldi af samkomulaginu mun dómsmálaráðuneytið gefa út reglugerð þar sem HHÍ er heimilaður rekstur samtengdra peningahapp- drættisvéla og einnig beita sér fyrir því að lagaíeg staða reksturs söfnun- arkassa RKI, SÁÁ, SVFÍ og Lands- bjargar verði tryggð. Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð- herra sagðist vera ánægður með lausn málsins. „Hún felur í sér að hagmunir allra þeirra aðila sem þarna eiga hlut að máli eiga að vera vel tryggðir. Ég er mjög ánægður með þessa lausn og þakklátur for- ystumönnunum fyrir að hafa tekið minni ósk um að setjast aftur að samningaborði vel og náð saman um þessa niðurstöðu," sagði Þorsteinn. Hreinum tekjum skipt Samkomulagið gerir ráð fyrir að hreinum tekjum af rekstri söfnunar- kassa og happdrættisvéla verði skipt þannig að í hlut RKÍ, SÁÁ, SVFÍ og Landsbjargar komi fjórir hlutar á móti tveimur hlutum HHÍ. Pjöldi kassa verður takmarkaður við að RKÍ og samstarfsaðilar reki mest 500 kassa, þar af 50 á vinveitinga- stöðum og HHÍ reki mest 400 kassa, þar af 65 á almennum spilastofum sem yrðu á 3 stöðum og þar af 2 í Reykjavík. Samkomulagið gildir í þijú ár eða til ársloka 1996 og framlengist um eitt ár verði því ekki sagt upp með 6 mánaða fyrirvara. Snörp og erfið barátta Sigrún Árnadóttir, framkvæmda- stjóri Rauða krossins, sagði að bar- áttan hefði verið snörp og erfið. „Við erum mjög ánægð með að dóms- málaráðherra skyldi hafa beitt sér fyrir samkomulagi í málinu og ánægð með samkomulagið sjálft. Það ver okkur fyrir því áfalli sem annars hefði án efa orðið,“ sagði Sigrún. Samkomulagið ásættanlegt „Við erum fegnir því að samkomu- lag náðist og þakklátir formanni stjómar happdrættisins og formanni Rauða krossins sem tóku lokalotuna. Ég held að samkomulagið sé ásætt- anlegt fyrir báða aðila," sagði Svein- björn Björnsson rektor Háskóla ís- lands um samkomulagið. Háskólarektor sagði að Happ- drætti háskólans fengi að koma með nýja tækni inn í happdrættisrekstur- inn. Spilakassamir yrðu aðallega settir upp á vínveitingahúsum og hótelum en einnig á örfáum almenn- um spilastofum. Þeir sem rækju söfn- unarkassana hefðu óttast að það myndi stórskaða tekjur þeirra. „Samningurinn tryggir að þeir verði ekki fyrir því. Það er kannski mikil- vægast í þessum samningi að við setjum upp samstarfsnefnd sem ræð- ir ágreiningsefni og gætir þess með menn brjóti ekki rétt hver annars. Nefndin fær aðgang að reiknings- uppgjömm beggja aðila og gætir samræmis. Við ætlum að skipta svo- kölluðum hreinum tekjum á milli okkar og því verður að vera fullur trúnaður á milli,“ sagði rektor. Erfitt að áætla tekjur Sveinbjörn sagði erfítt að áætla tekjurnar. Rauði krossinn og sam- starfsaðilar hans hefðu áætlað að fá 500 milljónir í tekjur af sínum köss- um á næsta ári. Háskólinn reiknaði með 200 milljónum af sfnum kössum og ef heildartekjur af kassarekstrin- um myndu aukast sem því næmi myndu báðir halda sínu. Ef svo færi að markaðurinn inyndi ekkert aukast við nýju tæknina myndi háskólinn alltaf fá í sinn hlut 140 milljónir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.