Morgunblaðið - 21.10.1993, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF ’ FIMMTUDÁGUR 21. OKTÓBER 1993
Leirvara sem verður
seld á 399 krónur kílóið í Hagkaup
ÞESSA dagana er verið að taka
úr 40 feta gámi portúgalska
leirvöru hjá Hagkaup og vænt-
anlega verður varan komin í
verslanir um helgina. Leirinn
verður seldur í Skeifunni og á
Akureyri og verður kílóið af
leirnum selt á 399 krónur.
Hér er um að ræða bolla- og
matarstell, eldföst mót, stórar
skálar, blómapotta, vasa, skraut-
skálar og svo mætti áfram telja.
Um 80% leirsins verður seldur í
kílóavís á 399 krónur en einstaka
hlutir verða seldir á hærra kflóa-
verði. Ekki mun meira verða flutt
inn af þessari leirvöru. ■
Eftirréttaskeiðar
í framleiðslu á ný hjá Ernu hf.
ÁRIÐ 1954 teiknaði Eggert Guðmundsson listmálari dessertskeið
sem prýdd var mynd af Stekkjastaur. Framleiðsla lagðist af
nokkru síðar en var tekin upp aftur í fyrra.
Nú er komin ný skeið sem teikn-
uð var og er framleidd í Gull- og
silfursmiðjunni Ernu hf. Sam-
kvæmt jólasveinakvæði Jóhannes-
ar úr Kötlum er það Giljagaur sem
fylgir bróður sínum. Væntanlega
mun nýr sveinn bætast í hóipinn
fyrir hver jól. Skeiðarnar Stekkja-
staur og Giljagaur eru framleiddar
úr 925 sterling silfri með gylltu
blaði.
Gull- og silfursmiðjan Erna hf er
systurfyrirtæki Guðlaugs A.
Magnússonar og framleiðir ís-
lenska silfurborðbúnaðinn og ís-
lensku jólaskeiðina. ■
X æpaSt
i T^alin
i Oi?örf
I
og nærföt frá kr. 300,-
UUUVI61J0 SIMI624225
Ltikur iukkan vfó þigV
Hún gerir þab ef þú verslar vlb Eldhús og bab.
í október getur þú dottib í lukkupottinn og fengib
eldhúsinnréttinguna þína e&a Scholtes- heimilistækin frítt.
Þeir sem stabfesta pöntun í október fara í pott og einn
heppinn vibskiptavinur verbur dreginn út.
Hluti af ánæg&um vi&skiptavinum Eldhúss og ba&s á matrei&slunámskei&i.
A& auki fá allir 5% afslátt og frítt matrei&slunámskeib
hjá meistarakokkinum Sigur&i L. Hall, sem kennir réttu
handtökin á frábærum kvöldum í Eldhúsi og ba&i.
Vib tökum vib pöntunum
allt til áramóta, en fyrstu
afhendingar me& pöntun
nú geta or&i& um mi&jan
nóvember.
Hjá okkur
eru gæ&in í öndvegi.
Funahöfða 19, sími 685680.
UPPSKRIFT
VIKUNNAR
Ég vil endilega
hafa fólk í kringum mig
KAFFISTOFAN á Kjarvals-
stöðum tók umtalsverðum
breytingum fyrir u.þ.b. ári
síðan. Hún er ekki lengur á
ganginum í miðju húsinu,
heldur komin út í horn, þar
sem allt er fullt af blómum
og útsýni er yfir Klambratún,
sem nú heitir víst Miklatún,
og Öskjuhlíð.
Haustlitir eru nú allsráðandi
og þegar Daglegt líf heimsótti
Ámýju Hallvarðsdóttur sem hef-
ur umsjón með kaffistofunni, var
eins og Öskjuhlíðin logaði undir
Perlunni, svo sterkir voru haust-
litirnir. Gestir kaffistofunnar
sitja við borð innan um vel hirtar
friðarliljur og fíkjutré. Árný tek-
ur á móti þeim eins og þeir væru
vinir hennar og þegar þeir fara
kveður hún þá á sama hátt og
þakkar þeim kærlega fyrir kom-
una. „Mér finnst svo gaman að
hafa fólk í kringum mig,“ segir
hún.
Nýja kökuhúsið rekur kaffi-
stofuna og hefur Ámý unnið hjá
því fyrirtæki um nokkurt skeið.
Síðastliðið sumar vann hún til
dæmis á vegum þess í Dillons-
húsi í Árbæjarsafni. „Þá fór ég
aftur í aldir og hætti að ganga
með klukku. Ég þjónaði til borðs
í síðu svörtu pilsi, hvítri skyrtu
og með stóra hvíta blúndusvuntu.
Maður þarf að vera í stíl við
umhverfið."
Undir berum himni
Þegar vel viðrar er hægt að
opna út á stétt við Klambratún
og setjast jafnvel þar við borð.
Gestir geta skoðað farandsýning-
ar sem í boði eru hveiju sinni og
þegar Daglegt líf var á Kjarvals-
stöðum var til dæmis sýning með
ljóðum Hannes Péturssonar. Þeir
geta einnig tyllt sér í hæginda-
stóla í lítilli setustofu og litið í
Le Figaro, New York Times eða
önnur erlend blöð.
Árný segist smakka allt sem
boðið er uppá á kaffistofunni.
„Ég vil vita hvað ég er að selja
fólki,“ útskýrir hún, en auk kaffi-
veitinga er boðið upp á franskar
Árný Hallvarðsdóttir
Eplaterta með marengs er
bragðgóð en ekki of hátíðleg.
pönnukökur, súpu og brauð og
tvisvar í viku er salat á boðstóln-
um.
Nýlega var farið að bjóða upp
á eplatertu með marengs, sem
Ámý hefur bakað árum saman.
Nýja kökuhúsið bakar kökuna
fyrir kaffístofuna, en Árný var
fús að gefa lesendum Daglegs
lífs einnig uppskriftina.
Eplaterta Árnýjar
250 g hveiti
175 g smjörlíki
2 dl og 50 g flórsykur
_____________4 egg _____________
4 súr epli
2 msk. sykur
vatn
50 g súkkulaði
50 g smjör
1. Hveiti, smjörlíki, 2 eggjarauð-
ur og flórsykur hnoðað saman.
2. Deiginu þrýst í botn á eldföstu
fati eða springmóti og þrýst upp
á barmana.
3. Bakað við 150 gráður í 15-20
mínútur.
Fylling
1. 4 epli afhýdd og skorin í 4
bita hvert.
2. Epli soðin ásamt 2 msk. sykri
í 5 min. og vatn rétt látið fljóta
yfir.
3. Epli veidd upp úr og þeim
raðað í kökubotninn.
4. Súkkulaði og 50 g smjör brætt
saman.
5. 2 eggjarauðum hrært saman
við súkkulaðikremið og því síðan
hellt yfír eplafyllinguna.
6. Þá eru 4 eggjahvítur stífþeytt-
ar og 2 dl flórsykri bætt út í.
7. Eggjahvítum sprautað í toppa
yfir fyllingu.
8. Bakað við 75 gráður í 1 'fr-2
klukkustundir.
Að sögn Árnýjar er kakan góð
hvort sem hún er borin fram
heit eða köld og þeyttur ijómi á
vel við hana. ■
BT