Morgunblaðið - 24.10.1993, Síða 1
72 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1918
242. tbl. 81. árg. SUNNUDAGJJR 24 .OKTÓBER1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Finnska stjómin lokar
öllu sparisjóðakerfinu
Helsinki. Frá Jan-Erik Andeiin, fréttaritara Morgnnblaðsins.
Segir Thatcher
hafa verið sem
einræðisherra
London. Reuter.
GEOFFREY Howe, fyrrverandi að-
stoðarforsætisráðherra Bretlands,
segir í viðtali, sem birtist í gær í breska
blaðinu The Financial Timés, að Marg-
aret Thatcher hafi verið farin að
hegða sér eins og einræðisherra á síð-
ustu árum sínum sem forsætisráð-
herra og litið á gagnrýni sömu augum
og föðurlandssvik. „A síðustu árum
Thatchers í forsætisráðherraembætt-
inu gerði hún engan greinarmun á
sinni eigin persónu, ríkisstjórninni,
flokknum og sjálfri þjóðinni og að
gagnrýna hana jafngilti að bregðast
föðurlandinu," segir Howe lávarður í
viðtalinu, sem eru viðbrögð hans við
bók Thatchers, „Arin í Downing-
stræti“, en þar hefur hún ýmislegt að
segja og ekki allt gott um fyrrverandi
samstarfsmenn sína. Howe segir, að
Thatcher hafi verið meðal mikilhæf-
ustu forsætisráðherra í Bretlandi
fyrstu átta árin en þriðja kjörtímabil-
ið, sem hófst 1987, hafi einkennst af
mistökum og ástríðufullri löngun
hennar til að ráða öllu. „Það, sem
varð henni að falli, var þessi krafa
um, að allir beygðu sig fyrir skoðunum
hennar, sem hún reiddi gjarna fram
sem spurningu um fullveldi þjóðarinn-
ar,“ segir Howe.
„Refsivöndur“
gegn hraðakstri
ÞAÐ nýjasta í hraðahindrunum er
„refsivöndurinn", sem svo má kalla,
enda er honum aðeins brugðið á loft
þegar ástæða er til. Veiyulegar hraða-
hindranir eru vissulega mjög árang-
ursríkar en gallinn við þær er sá, að
þær gera engan greinarmun á réttlát-
um og ranglátum. Þær fara illa með
höggdeyfa í bílum og strætisvagna-
sljórar í Bretlandi kvarta sáran undan
þeim. Stundum eru hindranirnar allt
að 50 á áætlunarleiðinni og oft kemur
fyrir, að fólk fellur við þegar farið
er yfir þær. Alec James þjá fyrirtæk-
inu Speedalerte í Birmingham hefur
nú ráðið bót á þessu en hraðahindrun-
in hans felst í tveimur 30 sm breiðum
stálbrettum, sem felld eru ofan í ak-
reinina og er bilið á milli þeirra 38
sm. Ef ekið er á löglegum hraða yfir
það fyrra, gerist ekkert með það síð-
ara, en sé farið of hratt skýst það upp
um fimm sm. Búnaðurinn, sem stjórn-
ar þessu, er sagður mjög einfaldur og
kostnaður við hraðahindrun af þessu
tagi er ekki nema 10-15% meiri en við
venjulegar hindranir.
SPARISJÓÐIR i Finnlandi heyra brátt sög-
unni til. Á föstudag ákvað rikisstjórnin að
skipta þeim og einni milljón viðskiptavina
þeirra á milli fjögurra stórbanka. Kemur
þessi ákvörðun í kjölfar lokunar EKA-
sparisjóðanna nú í vikunni en til hennar
var gripið eftir að viðskiptavinir þeirra
tóku út allt sitt fé af ótta við, að þeir
væru að verða gjaldþrota.
Stærstur hluti fínnsku sparisjóðanna, sem
eiga sér 150 ára langa sögu, var raunar kom-
inn í eigu ríkisins en 1991 tók það að sér
SKOP, eins konar seðlabanka sparisjóðanna,
til að koma í veg fyrir, að hann yrði gjald-
þrota. Á síðasta ári tók það svo undir sinn
verndarvæng 650 útibú Sparbanken.
Greiða 70 milljarða fyrir
Það eru Postbanken, sem er í ríkiseigu, og
stórbankarnir OKO, KOP og Unitas-SYP, sem
skipta sparisjóðunum á milli sín og greiða
fyrir þá um 70 milljarða ísl. króna. Hefur
þessi ákvörðun sætt gagnrýni á þingi en Esko
Aho forsætisráðherra segir, að með henni séu
FÁTT virðist geta komið í veg fyrir, að
Ftjálslyndi flokkurinn í Kanada komist til
valda að loknum kosningum á mánudag og
bindi enda á niu ára stjórn Ihaldsflokksins.
Samkvæmt síðustu skoðanakönnunum nýt-
ur Fijálslyndi flokkurinn fylgis 43-44%
þeirra, sem gert hafa upp hug sinn, en íhalds-
flokkurinn fær ekki nema 16% eða minna en
Siðbótarflokkurinn, sem kannanir gefa 19%
hagsmunir skattgreiðenda best tryggðir.
I þeirri kreppu, sem nú er í fínnsku fjár-
mála- og efnahagslífí, verður ríkið að styðja
við bankakerfíð í landinu með næstum 370
milljörðum ísl. króna árlega.
atkvæða. Verði úrslitin þessu lík verður Jean
Chretien, leiðtogi Fijálslynda flokksins, næsti
forsætisráðherra Kanada. í kosningabarátt-
unni hefur hann lofað aukinni atvinnu og að
skerða í engu velferðarkerfið, heilbrigðisþjón-
ustu, s_em er ókeypis, og mjög örlátt lífeyris-
kerfí. íhaldsmenn segja, að í raun sé verið
að lofa ófarnaði og jafnvel þjóðargjaldþroti.
Sjá „Þingkosningamar ...“ á bls. 27.
Kanadamenn að kjörborðinu
Ottawa. Reuter.
SOKNARHUGUR &
SAMTAKAMÁTTUR
TILGANGURINN
HELGAR MEÐALIÐ
mmi
sól
Sean
Connery
18
Viótal við Aðalheiði
Spans, stofnanda Sóknar