Morgunblaðið - 24.10.1993, Side 21

Morgunblaðið - 24.10.1993, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1993 21 á mann í tvíbyl'. Allir skattar innifaldir. Fjögurra nátta ferðir 31.okt. og 7. nóv. á mann í tvíbýli. Allir skattar innifaldir. 15 sæti í hvora ferð! Fimm nátta ferð 4. - 9. nóv. á mann i tvibýli. Allir skattar innifaldir. ' Heimflug um Glasgow. Ungt félagshyggjufólk í Reykjavík Sameiginlegs framboðs krafist Fundur fulltrúaráðs Alþýðuflokksfélaganna samþykkir að kanna vilja til samstarfs UNGT fólk krefst árangurs er yfirskrift auglýsingar sem 54 ein- staklingar hafa ritað nafn sitt undir. Þar er krafist sameiginlegs framboðs félagshyggjufólks fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Fundur fulltrúaráðs Alþýðu- flokksfélaganna í Reykjavík sam- þykkti í fyrrakvöld að fela stjórn fulltrúaráðsins að kanna hug fé- lagshyggjufólks til sameiginlegs framboðs fyrir næstu borgar- sljórnarkosningar. „Þetta er óformlegur hópur fólks úr öllum áttum sem hefur fátt annað sameiginlegt en þá ósk að vilja sjá meirihlutann í borgarstjórn falla í hendur félagshyggjufólks og telur að þetta sé eina leiðin til þess. Það lítur þannig á að kosningamar sem Stjórn Alþýðu- flokksfélagsins í Hafnarfirði Vilja slíta stjórnar- samstarfi STJÓRN og varastjórn Alþýðu- flokksfélagsins í Hafnarfirði sam- þykkti á fundi í vikunni ályktun þar sem ráðherrar Alþýðuflokks- ins eru hvattir til að slíta stjórnar- samstarfi vegna þess að stefna ríkisstjórnarinnar sé í mótsögn við jafnaðarstefnu. í ályktuninni segir að ráðherrar Alþýðuflokksins hafí flestir staðið fyrir aðgerðum sem ekki miða að jöfnuði heldur þvert á móti ójöfnuði. Stjórnarstefnan sé svívirða við jafn- aðarstefnuna og hafi ekkert með þá stefnumörkun að gera sem kjósend- um Aiþýðuflokksins hafí verið boðið upp á fyrir síðustu kosningar. Sam- kvæmt fjárlögum næsta árs skuli haldið áfram á sömu braut og lagðar auknar byrðar á launafólk. „Það er því ömurlegt að sjá á eftir góðum mönnum með miklar jafnaðarhug- sjónir inn í þessa íhaldshringiðu ríkis- stjórnarinnar þar sem einkahags- munir og fijálshyggjuárátta ræður ríkjum. Sé einhver snefill af jafnaðar- stefnu enn lifandi hjá ráðherrum Alþýðuflokksins hvetjum við þá ein- dregið til að slíta stjórnarsamstarfínu og hefja á ný baráttu fyrir bættum kjörum þeirra sem minna mega sín, alþýðu þessa lands,“ segir orðrétt í ályktuninni. „Stjómin, sem í eru fimm manns, og tveggja manna varastjóm standa fyrir þessari samþykkt en ekki flokk- urinn en ég tel að hún endurspegli skoðanir launafólks. Þetta er fyrst og fremst ábending um það að við viljum meiri jöfnuð," sagði Erlingur Kristensen, formaður stjórnarinnar. Ekki beint gegn Guðmundi Arna „Ég vil taka það fram að þessari samþykkt er ekki beint gegn Guð- mundi Arna Stefánssyni, eins og sumir hafa viljað láta liggja að, þótt hann komi hér úr bænum. Hann sit- ur í erfiðu ráðuneyti þar sem þarf að takast á við viðkvæm mál og það eru skiptar skoðanir um hvemig skuli leysa þau,“ sagði Erlingur. Önnur félög í kjölfarið Ólafur Sigurðsson, varamaður í stjóm Alþýðuflokksfélags Hafnar- fjarðar lagði í samtali við Morgun- blaðið áherslu á að öll stjórn og vara- stjórn félagsins stæði á bak við álykt- unina og fjöldi fólks utan stjórnar hefði þegar lýst stuðningi við hana. Þá sagðist hann þess fullviss að stjórnir annarra Alþýðuflokksfélaga ættu eftir að samþykkja sambærileg- ar ályktanir á næstunni. í vændum era séu ekki til neins nema félagshyggjufólk taki sig saman um framboð,“ sagði Hrannar B. Amar- son, einn þeirra sem rita nafn sitt undir kröfuna. Ekki of seint fyrr en framboðsfrestur rennur út „Við munum reyna að fylgja þessu máli eftir til enda eins fast og við getum. Næsta skref er að leita eftir þvi að þeir flokkar sem enn hafi ekki tekið ákvörðun um framboð hitt- ist og fari yfir málin sameiginlega. Síðan hugsum við okkur líka að ræða við þá aðila sem hafa nú reyndar tekið ákvörðun um að bjóða fram hvort það séu ekki einhveijar aðrar leiðir skynsamlegri til í því. Við lítum á þetta sem verk sem verði ekki of seint að vinna fyrr en framboðsfrest- ur fyrir næstu kosningar er útrunn- inn. Þangað til munum við gera allt sem við getum til að fá þessa niður- stöðu,“ sagði Hrannar. Hugur félagshyggjuafla kannaður Fulltrúaráð Alþýðuflokksfélag- anna í Reykjavík samþykkti á fundi sínum í fyrrakvöld að fela stjóm full- trúaráðsins að kanna hug félags- hyggjuaflanna til sameiginlegs fram- boðs fyrri næstu borgarstjómarkosn- ingar og gaf fundurinn stjóminni fjórar vikur til starfans. Ef tilraunin reynist árangurslaus að þeim tíma loknum skuli stefnt að A-framboði og hraða undirbúningi kosninga. Til- lagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum eftir miklar umræður, margir tóku til máls og þurfti að fresta öllum öðrum málum sem fyrir fundinum lágu. Ólína Þorvarðardóttir, fulltrúi Nýs vettvangs í borgarstjóm, var á fund- inum og sagði hún að niðurstaðan væri jákvæð. „Ég held að allir hafi UNGTFOLK KREFST ÁRANGURS Við Imfnum vinstrigiundroða gamlu túuans við rittwtu borgarsljórnttrkasningnr og krcfjumsl kröttugs, samdjpnlcgs IVnmboðs fclagshy gj* j ufólks. unað mjög sáttir við þessa niðurstöðu og kannski ekki síst talsmenn Nýs vettvangs sem voru mjög ánægðir sem að flokkurinn skyldi vilja kanna þetta mál,“ sagði Ólína. > m -' .* dwrt-w > mmmism SPRENGHLÆGILEGT TILBOÐSVERÐ VIÐBOTARSÆTI iw'i: a* i I NOKKUR SÆTI ADCIMC TIL EDINBORGAR rtr*öllVO aðeins fyrir handhafa VISA-korta! s...a b Þriggja nátta ferð 28. - 31. okt. Tveggja nátta ferð 4. - 6. nóv. á mann í tvíbýii. Allir skattar innifaldir. Heimflug um Glasgow. 10 sæti V/SA 4 SKOTABRANDARINN SLÓíGEGN! Örfá viðbótarsæti í eftirtaldar ferðir: 24. okt. uppselt 28. okt. 9 sæti 31.okt. 15 sæti 4. nóv. uppselt í 3ja nátta ferö 10 sæti í 2ja nátta ferö 10 sæti í 5 nátta ferö 7. nóv. 15 sæti Skotheldur aukabrandari! Raðgreiðslur VISA gefa þér kost á að dreifa greiðslum á allt að 8 mánuði. Það gera aðeins um 3.000 kr. á mánuði með öllu. Gist á glæsihótelinu King James Thistle**** Innifalið í verði: Flug, ferðir til og frá flugvelli erlendis, gisting með morgunverðarhlaðborði, forfallatrygging og íslensk fararstjórn. Eitt verð fyrir alia. mmw- r; ww n mimmsmi m m ÚRVALÚTSÝM RVAL-UTSÝN, VISA-ísland og King James Thistle hótelið opna þér Edinborg upp á gátt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.