Morgunblaðið - 24.10.1993, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 24.10.1993, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1993 11 En það má halda því fram að félög- in hafi í fjáröflunarslagnum aukið stórlega framboð á fjárhættuspiium og þar með fjölgað freistingunum og aukið hættumar. Auk þess verður að gera þær kröf- ur til félaga af þessu tagi sem njóta mikils trausts að heilindi og sam- kvæmni séu í starfseminni. Hitt er annað mál að hörð samkeppni hefur lengi verið í fjáröflun og harka og útsjónarsemi reynst nauðsynleg. Fegrandi hugtakanotkun HHÍ ætlar á næstunni að taka í notkun 350 spilakassa. Þeir eru leigðir af bandarísku fyrirtæki sem heitir IGT og er stærsti spilakassa- framleiðandi heims. Ragnar Ingi- marsson forstjóri HHí segist ekki geta gefið nákvæmlega upp hvernig leigusamningurinn er en IGT fái mismunandi hátt hlutfall, á bilinu 10-20%, eftir því hvemig gengur. „Þessi samningar eru það góðir að það er ólíklegt að nokkrum öðrum takist að gera svona samning," segir Ragnar. Hver er munurinn á þessum áformum og þeim rekstri sem fram fer á vegum RKÍ? Fegrandi nafngift- ir þeirra sem hlut eiga að máli geta villt mönnum sýn. Tækin eru sams konar, hvort tveggja eru spilakassar, þótt þeir séu annars vegar kallaðir söfnunarkassar og hins vegar happ- drættisvélar. Viðmót tækjanna, ef svo má að orði komast, gagnvart viðskiptavininum er það sama. Hætt- an á ávanabindingu er síst minni við notkun HHÍ-kassanna en RKÍ-kass- anna. Munurinn er fólginn í því að HHÍ-kassarnir verða samtengdir í gegnum símakerfið. Þannig er hægt að bjóða mun hærri vinninga auk hinna venjulegu föstu sem tilheyra hveijum kassa fyrir sig. Það eru þessir háu vinningar úr potti, sem rennur í úr öllum landshomum, sem Ijá kössunum happdrættisblæinn. Rauðakrossmenn segjast geta tengt sína kassa saman með því að verða sér úti um miðstöðvartölvubúnað. En enginn tilgangur væri með slíku því þeir hafa enga heimild til að bjóða háa peningavinninga. Samtenging kassa af þessum toga hefur tíðkast í spilavítum erlendis en nýverið hefur orðið mögulegt að tengja saman verulegt magn spilakassa í gegnum símkerfið. Eftir því sem næst verður komist hefur þetta happdrættisform ekki verið leyft neins staðar í Evrópu ennþá, e.t.v. vegna þess hve tæknin er ný, en ákvörðun um það efni mun vera á döfinni í Svíþjóð. Nokkur ríki í Bandaríkjunum hafa leyft happ- drætti af þessu tagi en það vekur athygli að Nevada, þar sem Las Vegas, spilaborgin mikla er staðsett, er ekki í þeim hópi. Paul Dworin segir skýringuna þá að í Las Vegas vilji menn sjá seðladrífuna úr kassan- um en séu lítt spenntir fyrir miðum sem leysa þarf út eins og nýja tækn- in geri ráð fyrir. Ragnar Ingimarsson segir að vel verði fylgst með því að börn undir 16 ára spili ekki í Gullnámukössun- um. Ennfremur verði kappkostað að gera dagstofurnar bjartar og vistleg- ar þar sem menn geti fengið sér kaffisopa og tekið spil. Kraumar undir niöri Sumir háskólamenn eru lítt hrifnir af spilastofum HHI og má segja að kraumi undir yfirborðinu. En hvað má telja forsvaranlega fjáröflun fyrir Háskólann? í því sambandi þarf auð- vitað að hyggja að því hvers konar stofnun um er að ræða og hvaða stofnanir aðrar í þjóðfélaginu eru sambærilegar. Þætti mönnum óhæfa að þjóðkirkjan aflaði íjár með tölvuknúnum söfnunarbaukum þar sem í stað litskrúðugra ávaxta birt- ust ritningarorð á skjánum? Og tíu þúsund krónur ynnust ef sama ritn- ingarorðið kæmi þrisvar fyrir í einni línu? Augljóslega. Siðbótin snerist ekki síst um að kaþólska kirkjan þótti ganga allt of langt í ijáröflun sinni er hún t.d. seldi syndaaflausn. Þjóðkirkjan á að vera hafin yfir það að afla fjár með því að notfæra sér gróðafíkn mannsins. Aftur á móti sýnist fátt athugavert við að sjoppu- eigandi á fjölförnum stað hafí eins og einn spilakassa úti í horni þar sem menn geta freistað gæfunnar á með- an beðið er eftir strætó. Hvaða máli gegnir um Háskólann sem er æðsta menntastofnun þjóðar- innar og ber höfuð og herðar yfir Hagnaður á happdrættismarkaðnum 1987-1993 Milljónir króna á verðlagi hvers árs, áætlun fyrir 1993 50C Rauðl krass íslands o.fl. 87 88 89 90 91 92 93 87 90 91 92 93 87 88 89 90 91 92 93 87 88 89 90 91 92 93 87 88 89 90 91 92 93 87 88 89 90 91 92 93 Rauöakrossmenn vió- urkenna samt fúslega núna aö þeirra eigin gullnóma hafi sin skúmaskot. Hugmyndir um aó þeir aóilar sem hafa tekjur af happdrætti, lottói og spilakössum taki höndum saman til aó hjálpa þeim sem ánetjast spilafikn. Tækin eru sams kon- ar, bæói eru spila- kassar, þótt þeir séu annars vegar kallaóir söfnunarkassar og hins vegar happ- drættisvélar. Erf itt er aó meta velt- una á markaónum sérstaklega i spila- kössunum. Ef reiknaó er út frá vinningshlut- fallinu þá var hún um þrir mill jaróar á sió- asta ári i kössunum og a.m.k. fimm millj- aróar i heild. SPILAMSSAR MTTULE6ASTA FJÁRHJETTUSPILIÐ AF ÝMSUM sökuin eru spilakassar varhugaverðasta tegund fjárhættu- spils samkvæmt því sem fram kemur í Sálfræðibókinni sem kom út hérlendis fyrr á þessu ári. Jakob Smári sálfræðingur, sem skrifaði kaflann um spilafíkn í Sálfræðibók- inni segir vanta rannsóknir á þessu sviði hérlendis en ef marka má reynslu annarra þjóða megi gera ráð fyrir að um 2.000 manns eigi við spilafíkn að etja hériendis. Þeir sem leiti hjálpar hjá meðferðarstofnunum séu yfírleitt einungis toppurinn af ísjakanum. I Sálfræðibókinni er munurinn á tegundum fjárhættuspils sagður allnokkur. Mismunandi eiginleikar happdrættis, knatt- spymugetrauna, lottós og spilakassa gera þessi fjárhættuspil mismunandi líkleg til þess að leiða til ánetjunar. Knattspyrnugetraunir og spilakassar eru þess eðlis að spilið byggist að einhveiju leyti á útsjónarsemi spilarans, a.m.k. er það gefið í skyn. Slíkt elur á þeirri hugsun spilarans að hann hafi úrsiitin í hendi sér. Úrslitin verða mælikvarði á hæfni hans og því er erfiðara að hætta fyrr en jákvæð niðurstaða er fengin. Það skiptir ennfrem- ur máli varðandi líkur á því að ánetjast hvort úrslit eða niðurstaða fæst að skömmum eða löngum tíma liðnum og hvort mögulegt er að spila aftur strax og úrslit liggja fyrir. Umbunin kemur strox „Þegar spilað er í spilakassa fást úrslit samstundis og spilarinn getur sömuleiðis lagt strax undir að nýju. Vitað er að umbun sem fylgir strax 5 kjölfar hegðunar er líklegri til þess að festa hana í sessi en umbun sem kemur síðar. Þetta ætti að leiða til þess að vinningur í spilakassa sé líklegri til þess að auka tíðni spilahegðunar en sambærilegur vinningur í lottóspili. Sá sem spilar í spilakassa getur jafnframt lagt undir aftur og aftur með stuttu millibili þannig að hegðunin verður honum fljótlega töm og nánast ósjálfráð. Af þessum sökum má e.t.v. segja almennt að spilakassar (og spil sem þeim líkjast að þessu leyti) séu varhugaverðastir allra fjárhættuspila, þótt þær upphæðir sem þar er spilað um í hvert skipti séu að jafnaði ekki háar,“ segir í Sálfræðibókinni. Jakob Smári sagði í samtali við Morgunblað- ið að það hefði einnig gleymst í umræðunni hérlendis að það getur ekki verið æskilegt að komið sé inn þeirri hugsun hjá bömum og unglingum að lífið stjómist af heppni. Hvaó er spilafikn? Eftirfarandi viðmið eru gjarnan notuð til að afmarka spilafíkn sem alvar- legt vandamál. • Viðkomandi eða fjölskylda hans er farin að líta á spilamennskuna sem vandamál. • Hann finnur til ómótstæðilegrar löngunar til að spila eða er stöðugt að hugsa um fjárhættuspil og fmnur til spennu í því sambandi. • Hann upplifir að hann geti með engu móti hætt að spila þegar hann er byrjaður á því, þrátt fyrir að hann geri sér grein fyrir afleiðingunum. • Spilamennskan er farin að hafa margháttaðar alvarlegar afleiðingar fyr- ir hann og hans nánustu. Slíkar afleiðingar geta verið skuldir, þjófnaður, brottrekstur úr starfí, skilnaður, þunglyndi eða sjálfsvígstilraunir. Af hverju byr jar fólk? Hvað ræður því hvort fólk byijar að spila fjárhættuspil? Það eru sam- kvæmt Sálfræðibókinni fyrst og fremst félagslegir þættir svo sem það hvort vinir eða kunningjar spila, hvemig litið er á spilamennsku af þeim sem þetta fólk tekur mark á, en e.t.v. fyrst og fremst möguleikar til spilamennsku í umhverfí þess. Þar sem víða eru áreiti sem tengjast þvi að spila eða minna á spil eru meiri líkur á að illvig spilafíkn nái að festa rætur. Þar sem stöðugt er minnt á spilamennsku í fjölmiðlum, þar sem vart er hægt að versla í sölut- umum án þess að komast í návígi við spilakassa eða í verslun án þess að sjá skafmiða er slíkum hættum boðið heim. Bandarískar rannsóknir benda til þess að þeir sem eru ungir, atvinnulausir eða hafa lágar tekjur spili helst íjárhættuspil og ánetjist spilafíkn. Þetta eru einstaklingar sem hafa nægan tíma til að láta freistast og hafast gjaman við þar sem fjárhættuspil em nærtæk. Þetta em líka einstaklingar sem em auð- veld bráð fyrir óraunsæja drauma um betra líf. Sumar rannsóknir benda til að tengsl séu á inilli taumlausrar spilamennsku og takmarkaðrar hvatastjórnar. Einnig virðast. tengsl milli almennrar tilhneig- ingar til að taka áhættu og spilafíknar. Loks er depurð algengari meðal spilaf- íkinna en gerist og gengur, en óvist er hvort depurð er orsök eða afleiðing spilamennskunnar. Þetta skýrir e.tv. þá staðreynd að sjálfevígstilraunir em sex sinnum algengari hjá taumlausum spilamönnum en gengur og geri9t. aðra skóla á háskólastigi? Hann gegnir miklu menningar-, mennta- og uppeldishlutverki. Hann hefur notið mikils velvilja þjóðarinnar og þar hafa helstu fræðimenn starfað. Eðlilegt má telja að háskóli sé fjár- magnaður með skólagjöldum, með því að taka að sér verkefni fyrir ríki og atvinnulíf og með ríkisframlögum ekki síst hér á landi þar sem hann er einstakur í sinni röð. Áratuga hefð er fyrir því að Háskólinn reki happdrætti. Vissulega er happdrætti ein tegund fjárhættuspils og þótt einhveijir hafi spilað með sökum gróðavonar létu margir féð af hendi rakna vegna þess að háskólinn stóð fyrir happdrættinu. Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar árið 1989 sögðu 42% þeirra sem spiluðu í HHI vinningsmöguleikanna ráða mestu um að skipt væri við happ- drættið en 27% sögðu styrk við mál- efnið ráða mestu þar um. Vinnings- möguleikinn virtist ráða meiru eftir því sem fólk var yngra og styrkur við málefnið meiru hjá eldra fólki. Ef flokkahappdrættið er eðlileg fjáröflunarleið sem sátt ríkir um er þá nokkuð við það að athuga að háskólinn færi sér nýjustu tækni í nyt og starfræki spilakassa? Eins og fram kemur í rammanum hér á síð- unni eru spilakassarnir taldir var- hugaverðari en aðrar tegundir fjár- hættuspils vegna meiri hættu á að menn verði spilafíkn að bráð. Það sýnir að munur er á þessum tegund- um fjárhættuspils og kassarnir hafa sínar skuggahliðar sem ekki fylgdu happdrættinu og hugsjónablænum sem umlék það. Menn hljóta a.m.k. að velta því fyrir sér hvort sjálfgefið sé að háskól- inn standi í þessu harki um aldur og ævi. Tekjulind fyrir rikid? í Háskólanum er það gjarnan kennt að lagareglur verði þannig til að Alþingi samþykki frumvörp um tiltekin efni þar sem stefnan er mörk- uð. Síðan setur ráðherra reglugerð um nánari útfærslu Iaganna. Borgar- arnir laga sig svo að þessum reglum. Raunveruleikinn getur verið annar. Fjendurnir í spilakassadeilunni sömdu um skiptingu markaðarins, ráðherra lýsti yfír fögnuði sínum og er að vinna að reglugerð á grund- velli samningsins, Alþingi mun svo einhvem tíma síðar leggja blessun sína yfir allt saman með lagasetn- ingu. Ýmsir kostir hafa þó verið til at- hugunar í ráðuneytinu. Ljóst er að það er brýnt að setja löggjöf um þetta gráa svæði tilverunnar. Kom það t.d. fram fyrir nokkru er ekki var klárt hvort reka mætti einka- spilavíti. Þegar hefur verið minnst á bamaverndina en annað eftirlit mætti einnig vera meira í þágu neyt- enda eins og að fylgst sé með reikn- ingsskilum óg að auglýsingar séu sanngjamar. Við heildarrlöggjöf um happdrættismarkaðinn koma einkum tvær leiðir til álita. í fyrsta lagi að líta á reksturinn eins og hveija aðra heiðarlega atvinnustarfsemi sem væri öllum heimil. Ríkið gæti selt eða leigt einkaleyfi og skattlagt inarkaðinn. Hagnaður á markaðnum hefur verið um milljarður króna á ári. Ef lagður yrði 22% virðisauka- skattur á veltuna fengist inn ríflega milljarður. Því fé mætti auðvitað veija til góðgerðarmála. Og er þá eftir að reikna með einkaleyfagjaldi, tekju- og eignaskatti. Erfitt er þó að meta hver veltan er sérstaklega I spilakössunum. Ef reiknað er út frá vinningshlutfallinu þá var hún um þrír milljarðar á síðasta ári í kössun- um og a.m.k. fimm milljarðar i heild. í öðru lagi mætti hugsa sér að ríkið sæi um happdrættisreksturinn eða fæli örfáum aðilum hann. Þessi skipan tíðkast víða erlendis og eru happdrætti dijúg tekjulind fyrir rík- ið. Það þekkist vart að þau séu alger- lega skattfijáls og vinningar einnig , eins og hérlendis. Ef horft er á stöð- una í dag virtist koma til álita að þijú fyrirtæki, eitt í flokkahapp- drætti, eitt í talna- og íþróttaget- raunum og eitt í spilakössunum fengju einkaleyfi. Þau lytu ströngu opinberu eftirliti og ágóðinn rynni til góðgerðar- og líknarmála. Þessi leið hefði þann kost að góðgerðar- og mannúðarstofnanimar væru ekki settar í þá stöðu að þurfa að heyja harkalegt stríð um spilaþrælana þar sem tilgangurinn helgar meðalið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.