Morgunblaðið - 24.10.1993, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.10.1993, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT ERLEIMT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1993 INNLENT Raimvextir lækki í 5% DAVÍÐ Oddsson forsætisráð- herra telur forsendur vera fyrir hendi fyrir raunvaxtalækkun niður í 5% og að Seðlabanki íslands geti notað það svigrúm sem hann hefur til þess að flýta fyrir slíkri lækkun. Deilt um spilakassa HARÐAR deilur voru milli Háppdrættis Háskóla íslands og fjögurra landssambanda vegna áforma happdrættisins að setja upp spilavélar. Einnig kom til orðaskipta milli formanns Rauða krossins og dómsmála- ráðherra vegna áforma ráð- herra um að skrifa undir reglu- gerð vegna vélanna og málið var rætt á Alþingi. Deilan leyst- ist síðan með samkomulagi. Færri þingmenn DAVÍÐ Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í setningarræðu á landsfundi flokksins á fimmtudag að eitt biýnasta verkefnið framundan væri að vinna að breytingum á kosningalögum og kjördæma- skipan í samræmi við yfírlýstan vilja stjórnarflokkanna. Stefna ætti að fækkun þingmanna um 10-15 og fækkun ráðherra að sama skapi. Landsfundinum lýkur í dag með kosningu for- manns og varaformanns og hafa Davíð og Friðrik Sophusson gefíð kost á sér til endurkjörs. Ævilangt fangelsi ÞÓRÐUR Jóhann Eyþórsson, 36 ára, hefur verið dæmdur í ERLENT Gagnsókn stjórnar- hersins í Georgíu STJÓRNARHERINN í Georgíu hóf á miðvikudag gagnsókn gegn uppreisnarmönnum og stuðningsmönnum Zviads Gamsakhurdia, fyrrverandi for- seta. Fer tvennum sögum af sigrum stjómarhersins, sem sagt var að hefði náð hafnar- bænum Poti á sitt vald. Hét Shevardnadze á Rússa að veita stjómarhemum aðstoð. Þeir neituðu því en útilokuðu ekki að að her frá samveldisríkjunum myndi taka að sér að veija mik- ilvægar samgönguleiðir í land- inu. Vilja ekki fleiri í NATO í bráð LES Aspin, varnarmálaráðherra Bandarflíjanna sagði á fundi vamarmálaráðherra Atlants- hafsbandalagsins (NATO) á miðvikudag, að Bandaríkja- stjóm væri andvíg því að Aust- ur-Evrópuríki fengju aðild að bandalaginu í bráð. Hann lagði ennfremur til að NATO semdi hernaðaráætlun um hvemig bregðast ætti við „nýju kjam- orkuvánni, þ.e. hættunni á út- breiðslu kjarnorkuvopna í kjöl- far hruns Sovétríkjanna. Neyðarskattur á Færeyinga FÆREYSKA landsstjórnin lagði til á fimmtudag að lagður ævilangt fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fýrir að hafa af ásetningi orðið Ragnari Ólafs- syni, 33 ára, að bana á heimili þess síðamefnda við Snorra- braut í Reykjavík aðfaranótt 22. ágúst. Sameining spítala STEFNT er að sameiningu Borgarspítala og Landakots- spítala um áramót eftir að St. Jósefssystur tilkynntu að þær stæðu ekki lengur í vegi fyrir sameiningunni. Þreföld orkusala JÓHANNES Nordal, stjórnar- formaður Landsvirkjunar, telur fullkomlega raunsætt að gera ráð fyrir að með nýju álveri á Keilisnesi og frekari fram- kvæmdum í Straumsvík og á Grundartanga megi þrefalda orkusölu til stóriðju á næstu tíu ámm, en væntanlega þurfi enn- þá að bíða í að minnsta kosti tvö ár eða svo áður en búast megi við að verulegur áhugi á orkukaupum vakni á nýjan leik. Námslánþegum fækkar FÆKKUN lánþega hjá Lána- sjóði íslenskra námsmanna í kjölfar breytingar á lögum og reglum um sjóðinn hefur leitt til þess að á nýbyijuðu skólaári er áætlað að 42,5% námsmanna í lánshæfu námi við íslenska framhaldsskóla taki námslán. Á árunum fyrir breytingu á regl- um LÍN var þetta hlutfall um og yfir 60%. Námsmönnum í þessum framhaldsskólum fjölg- ar um 660 í haust og verða í vetur fleiri en þegar náms- mannafjöldinn náði hámarki fyrir breytingar á lánareglum LÍN. verði á neyðarskattur í ár og næsta ár til að ná inn helmingn- um af niðurskurðinum sem Dan- ir fara fram á. Skatturinn leggst á innistæður í bönkum, verðbréf og sambærilegar eignir innan- lands og utan. Rússar sökkva geislavirkum úrgangi RÚSSAR losuðu um síðustu helgi lággeislavirkan úrgang í Japanshaf. Mótmæli Japana urðu til þess að Rússar frestuðu frekari losun kjamorkuúrgangs í hafíð og tilkynntu að hafin yrði frumrannsókn á byggingu stöðvar til að hreinsa og eyða geislavirkum efnum. Bronsaldarsverð í kartöflugarði TVÖ böm fundu átta bronsaldar- sverð í kartö- flugarði á Jót- landi á mánu- dag. Sverðin vom heilleg þrátt fyrir að þau hafí legið í jörðu í um 3.500 ár. Þetta er talinn fom- leifafundur aldarinnar í Dan- mörku. Viðskiptabann á Haítí VIÐSKIPTABANN Sameinuðu þjóðanna á Haítí tók gildi á mánudag en það felur í sér að bannað er að flytja inn vopn, hergögn, lögregluútbúnað og olíu til landsins. Tillaga Bobs Dole, leiðtoga rebúblikana í öld- ungadeild Bandaríkjaþings, um að takmarka völd Bills Clintons, Bandaríkjaforseta, sem yfír- manns heraflans var felld á þingi á miðvikudag. Reuter Skólastarf í Sarajevo ÞRÁTT fýrir allar hörmungamar, sem dunið hafa yfír íbúana í Sarajevo í Bosníu, er reynt að halda uppi skólum og eru þeir þá hafðir þar sem óliklegast þykir, að sprengjurnar falli. Hér em þær stöllur, Berina, sex ára, og Aldina, sjö ára, að glugga í námsbækumar í frímínútum en eins og sjá má hefur skólinn þeirra ekki sloppið við skothríðina frekar en önnur mannvirki í borginni. Vaxandi gagnrýni á Heit- mann meðal kristilegra Bonn. The Daily Telegraph. HELMUT Kohl, kanslari Þýskalands, reynir nú allt hvað hann getur til að afla Steffen Heitmann, forsetaefni kristilegra demókrata, stuðn- ings. Heitmann sætir nú vaxandi gagnrýni úr öllum áttum og er óánægjan með valið á frambjóðanda í eigin flokki jafnvel farin að grafa undan Kohl sjálfum. Á miðsljórnarfundi á dögunum knúði hann í gegn stuðningsyfirlýsingu við Heitmann en margir þeir, sem fundinn sátu, segja að öll gagnrýni á Heitmann hafi verið bæld niður af kansl- aranum. Margt hefur verið tínt til til að sýna fram á að Heitmann sé óheppi- legur frambjóðandi. Meðal annars hafa margir efasemdir um að hann geti, sem forseti verið hlutlaus í sam- skiptum við Rússa, sem búist er við Sænsk kjarnorkuver Umhverfis- ráðherrann villþjóð- aratkvæði Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdótt- ur, fréttaritara Morgunblaðsins. SJÖ af tólf kjarnorkuverum í Svíþjóð hafa þurft að loka að öllu eða einhveiju leyti vegna viðhalds og bilana. Eitt af þeim er Barsebáck, þrettán kílómetra frá Kaupmannahöfn. Vegna bil- ananna hefur Olof Johansson umhverfisráðherra farið fram á þjóðaratkvæðagreiðslu um kjarn- orkunotkun, ef stjórnin hugi ekki að hvernig eigi að vinda ofan af notkuninni og loka verunum, sem eru orðin tæplega tuttugu ára sum hver. Olof Johansson kemur úr Miðju- flokknum. Hann bendir á að sænsku kjamorkuverin séu nú orðin svo gömul að nauðsyn sé að huga að lokun þeirra, þar sem viðhaldið sé orðið dýrt og þá ræða hvað eigi að koma í stað þeirra. Tillaga hans hlýt- ur litlar undirtektir í hinum stjórnar- flokkunum. Barsebáck-verinu var lokað skyndilega í vikunni vegna tæringar I stál- og steypumötli. Rekstur versins hefur verið skryk- kjóttur undanfarið ár, þar sem geng- ið hafa á lokanir vegna bilana og eftirlits. Meðan verin eru í lamasessi kaupa Svíar raforku frá Danmörku og Noregi. að verði grundvöllur Austur-Evrópu- stefnu Þjóðveija í framtíðinni. Ástæða þessa efasemda eru æskuár Heitmanns. Náinn samstarfsmaður hans, sem vill ekki láta nafns síns getið segir: „Hann viðurkennir djúp- stæðan ótta við Rússa, allt frá æskuárum hans í Dresden þar til hemámi Sovétmanna var aflétt. Móður hans var nauðgað sjö sinnum af rússneskum hermönnum í stríðs- lok, systur hans rétt tókst að sleppa við sömu örlög og faðir hans lét lífíð í rússneskum fangabúðum." Heitmann hefur einnig verið sak- aður um kynþáttafordóma og kven- fyrirlitningu vegna ummæla sinna um útlendinga og konur. Hann hefur að undanförnu reynt að útskýra stefnu sína og segist vilja leggja mesta áherslu á að sameina Þjóð- veija í austur- og vesturhluta lands- ins, efla tengsl við ríki Austur-Evr- ópu, stækka Evrópubandalagið, draga úr umsvifum ríkisins og styrkja stöðu fjölskyldunnar sem félagslegrar einingar. Þetta er mjög í anda kosningastefnuskrár kristi- legra demókrata en samt sem áður er mjög óvíst að það dugi til að bjarga honum. Sumir forystumenn Kristilega demókrataflokksins, þar á meðal Rita Sussmuth þingforseti, eru tekn- ir að gagnrýna hann harðlega og einnig hefur yfirlýstur stuðningur hægriöfgamanna við hann komið sér illa. Sjö milljónir króna hundur bíður aftöku Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins. HUNDURINN Taro frá New Jersey á ekki sjö dagana sæla. Hann hefur nú setið í fangelsi og beðið dauða sins í tæp þrjú ár, eða allt frá því að hann meiddi litla stúlku í jólaboði árið 1990. Hafa eigendur Taros, Japansstjórn og umhverfisverndar- sinninn Brigitte Bardot beðið yfirvöld í New Jersey að þyrma lífi hundsins. Foreldrar stúlkunnar sögðu að hundurinn hefði bitið hana í vör- ina og fengu dómstóla til að kveða upp dauðadóm yfír honum. Eigendur hundsins héldu því hins vegar fram að Taro hefði aðeins klórað hana og þar með upphófst hinn mesti darraðardans, sem nú hefur farið um öll þijú dómstig fylkisins. Á meðan hefur málið kostað um 100 þúsund dollara (sjö milljónir króna). Yfírvöld í bænum Haworth, þar sem atvikið átti sér stað, hafa að sögn eytt 60 þúsund dollurum (4,2 milljónum króna) í að lögsækja hundinn, eigéndurnir kostað 25 þúsund dollurum (1,75 milljónum króna) í að veija hann og vistin í dýraprísund hins opin- bera hefur kostað 18 þúsund doll- ara (1,2 milljónir króna). Fáránlegur dómur Mjög ströng lög eru í gildi í New Jersey til að stemma stigu við árásum vígahunda og var Taro dæmdur á grundvelli þeirra. Hann er af tegundinni japanski bjarnhundur og fullyrða eigendur hans að hann sé afar gæfur. Flestir sem að málinu hafa komið viðurkenna að dómurinn sé fárán- legur, meira að segja forvígis- maður þess að lögin voru sett. Um þessar mundir er málið fyrir áfrýjunardómstóli í New Jersey og hafa eigendur Taros sagst mundu biðja Jim Florio rík- isstjóra um að náða hundinn verði dauðadómurinn staðfestur þar. Dugi það ekki má vænta þess að náðunarbeiðni verði send inn á borð til Bills Clintons Bandaríkja- forseta áður en yfír lýkur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.