Morgunblaðið - 24.10.1993, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1993
IÍFRÓDUR
SHEVARDNADZE
Blóðug borgarastyrjöld ríkir í Georgíu og hættan er sú að allt Kóka-
sus-svæðið logi í ófriði fari uppreisnar-menn með sigur af hólmi
HRAKFARIR I ABKHAZIU
Abkhazi gætir georgískra hermanna sem teknir voru til fanga er varnir stjórnarhersins hrundu í Abkhazíu-héraði.
eftir Ásgeir Sverrisson
GEORGÍA er við að klofna í
þrennt og óvissa ríkir um póli-
tíska framtíð Edúards A. She-
vardnadze, leiðtoga landsins. I
þessu fyrrum sovétlýðveldi ríkir
borgarastyijöld og Shevardnadze
hefur ekki tekist það ætlunarverk
sitt að endurreisa efnahag lands-
ins með því að tryggja friðinn og
vinsamleg samskipti við Rússa.
Staða forsetans gagnvart þjóð-
ernissinnum hefur versnað í réttu
hlutfalli við sigra aðskilnaðar-
sinna í Abkhazíu-héraði og fram-
rás uppreisnarmanna undir stjórn
Zviads K. Gamsakhurdia, fyrrum
forseta, til austurs í átt til höfuð-
borgarinnar, Tbilisi. Snögg um-
skipti og miklar tilfinningasveifl-
ur einkenna stjórnmál í Georgíu.
Sigrar aðskilnaðarsinna í vestur-
hlutanum hafa orðið til þess að
ýta enn frekar undir þjóðernis-
heiftina en Shevardnadze hefur
sagt að föðurlandinu verði aðeins
bjargað með því að tryggja hern-
aðaraðstoð erlendis frá. Reynist
þessi fullyrðing á rökum reist
mun afstaða Rússa ráða úrslitum
um framtíð landsins en þá stað-
reynd munu þjóðernissinnar og
liðsmenn Gamsakhurdia aldrei
sætta sig við.
Tilfinningaþrungin ávörp Edú-
ards Shevardnadze hafa orð-
ið til þess að vekja athygli
umheimsins á harmleiknum
í Georgíu. Forsetinn hraktist
í fyrra mánuði frá Súkhúmi,
höfuðborg Abkhazíu, eftir
að hafa lýst yfir því að borgin yrði
varin til síðasta manns. She-
vardnadze gaf til kynna að hann
væri tilbúinn til að láta iífið í nafni
einingar föðurlandsins og fréttir um
að forsetinn hefði eitur meðferðis þar
sem hann dvaldist í byrgi sínu í borg-
inni vöktu athygli og ugg á Vestur-
löndum. í vestri nýtur Shevardnadze
mikillar virðingar fyrir þátt sinn í að
binda enda á kalda stríðið er hann
var utanríkisráðherra Sovétríkjanna
í valdatíð Míkhaíls S. Gorbatsjovs.
Hugrekki hans er og annálað; það
var Shevardnadze sem knúði fram
merkustu tilslakanir Sovétmanna í
óþökk herafla landsins, öryggislög-
reglunnar og forréttindastéttarinnar.
Víst er að framganga hans á því
sviði hefur síst verið ofmetin en í
Georgíu eru þeir margir sem minnast
hans fyrir vægðarleysi er hann var
flokksleiðtogi kommúnista þar í landi
áður en hann var hafinn til vegs og
virðingar í Moskvu.
Upplausn í röðum
stjórnarhersins
Á mánudag í fyrri viku lýsti She-
vardnadze síðan yfir því í enn einu
sjónvarpsávarpi að stjómarherinn
væri ófær um að vetja Georgíu. Tug-
þúsundir manna væru á flótta frá
átakasvæðunum í vesturhluta lands-
ins og hungursneyð vofði yfir hunds-
aði umheimurinn þetta ákall um
hjálp. Forsetinn kvað algjöra upp-
lausn ríkjandi innan stjórnarhersins
og óhugsandi væri að aftur yrði unn-
ið það land sem þjóðernissinnar í
vesturhlutanum og aðskilnaðarsinnar
Abkhaza hefðu náð á sitt vald. Rúm-
um sólarhring áður, á sunnudag,
hafði borgin Samtredia, ein mikil-
vægasta samgöngumiðstöð Georgíu,
fallið í árás hersveita Zviads Gamsak-
hurdia, sem hrakinn var frá völdum
í blóðugri uppreisn. Shevardnadze
lýsti yfir því að Georgíubúar neydd-
ust því til að biðja Samveldi sjálf-
stæðra ríkja - og þá átti forsetinn
einkum við Rússland, Azerbajdzhan
og Armeníu - um aðstoð. Það er til
marks um samhengisleysið og ör-
væntinguna í yfiriýsingum forsetans
að aðeins fáeinum mínútum eftir að
hann hafði látið þessi orð falla lýsti
hann yfir því að Kutaisi, næsta
stærsta borg Georgíu, sem er í aðeins
30 kílómetra fjarlægð frá Samtredia,
myndi aldrei falla.
Nágrannaríkjunum er vissulega
vandi á höndum. Fyrir Rússa jafnt
sem Armena og Azera er mikilvægt
að tryggð verði birgðaleiðin sem ligg-
ur í gegnum höfuðborgirnar Bakú í
Azerbajdzhan og Jerevan í Armeníu,
til Georgíu í gegnum Tbilisi og til
vesturs að Svartahafsborginni Poti
sem verið hefur á valdi uppreisnar-
manna. Andrei Kozyrev, utanríkis-
ráðherra Rússlands, sagði á þriðjudag
að mikilvægt væri að halda járn-
brautarlínu þessari opinni en lét jafn-
framt í ljós að Rússar hefðu engan
hug á því að hafa afskipti af borgara-
styijöldinni í Georgíu. Daginn eftir
kom rússnesk bryndeild, skriðdrekar
og brynvarðir liðsflutningabílar, sem
haldið hafði til við Svartahaf, óvænt
til Kutaisi. Talsmenn rússneskra
stjórnvalda kváðu þetta gert til að
flytja Rússa frá borginni en sökum
liðstyrksins veltu margir vöngum yfir
því hvort ráðamenn í Moskvu vildu
með þessu hvetja uppreisnaröflin til
að sýna stillingu. Síðar var skýrt frá
því að ákveðið hefði verið að rúss-
neskar, armenskar og azerskar her-
sveitir tryggðu að flutningaleiðin
mikilvæga í gegnum Georgíu yrði
opin.
Áhyggjiir Rússa og hagsmunir
hersins
Líklegast fara hagsmunir herafla
Rússa og stjórnvalda i Moskvu ekki
saman í þessu efni. Greinilegt er að
rússneskir stjórnmálamenn hafa nú
komist að þeirri niðurstöðu að She-
vardnadze geti reynst mikilvægur
bandamaður á þessu svæði þótt enn
séu þeir ekki tilbúnir til að hafa bein
afskipti af átökunum.
Á hinn bóginn kann það að reyn-
ast hættulegt fordæmi að hundsa
með öllu átökin í Georgíu. Sá hluti
þessa svæðis sem tilheyrir Rússlandi
er trúlega sá viðkvæmasta í landinu.
í norðurhluta fjallanna, sem skilja
að Kákasuslýðveldin þijú og Rúss-
land er að finna aragrúa þjóða og
þjóðarbrota, sem margar hveijar
beijast fyrir aðskiinaði frá Rússum,
sem yfirbuguðu þær á síðustu öld.
Þessar þjóðir hafa myndað með sér
svonefnt Samband ijallaþjóða og það
eru hermenn og málaliðar frá þessu
svæði sem meðal annarra hafa stutt
Abkhaza í- Georgiu í bardögum við
sveitir Shevardnadze og fengið að
launum herfang sem til hefur fallið
í borgum þeim og bæjum sem aðskiln-
aðarsinnar hafa brotið undir sig.
Yfirmenn heraflans fá á hinn bóg-
inn ekki séð ástæðu þess að senda
hersveitir á vettvang til að freista
þess að binda enda á blóbaðið í Georg-
íu. Rússneski herinn hefur ávallt litið
svo á að verkefni hans sé að veija
föðurlandið og tryggja einingu þess.
Þá er Shevardnadze tæpast ofarlega
á vinsældalista herforingja þar sem
hann stýrði utanríkisráðuneytinu er
lögð voru drög að brottflutningi her-
afla Sovétríkjanna úr fyrrum leppríkj-
um kommúnista.
Takist aðskilnaðarsinnum að halda
Abkhazíu-héraði og takist georgíska
stjómarhernum ekki að hefta sókn
þjóðemissveita Gamsakhurdia er
hættan því sú að allt Kákasus-svæðið
logi í ófriði innan skamms tíma. Þá
munu magnast kröfur um að öryggi
Rússa í þessum suðupotti þjóðabrot-
anna verði tryggt. Þessa staðreynd
geta hin pólitísku yfirvöld í Moskvu
ekki leitt hjá sér og því hafa ráða-
menn þar komist að þeirri niðurstöðu
að óbeinn stuðningur við She-
vardnadze þjóni hagsmunum þeirra.
Stjórnvöldum í Moskvu er jafnframt
ljóst að hefðbundin „diplómatísk"
milliganga mun ekki reynast haldgóð
á þessu eldfima svæði. Það er með
tilliti til þessa sem afstaða Rússa og
viðbrögð hersins munu skipta sköpum
í Georgíu.
Ósk um aðild að samveldinu
Á þetta féllst Shevardnadze í raun
fyrr í þessum mánuði er hann lýsti
yfir því eftir að hafa átt fund með
Borís Jeltsín Rússlandsforseta að
Georgía myndi ganga í Samveldi
sjálfstæðra ríkja, samband fyrrum
sovétlýðvelda. Sagði Shevardnadze
að með ákvörðun sinni leitaðist hann
við að koma í veg fyrir frekari átök
og hrun efnahagsins. Þetta var ör-
væntingarfull tilraun forsetans til að
halda landi sínu saman. Að auki fólst
í þessu viðurkenning hans á því hve
efnahagur Georgíu er tengdur Rúss-
landi.
Georgíubúar neituðu að ganga í
samveldið árið 1991 og beittu hefð-
bundnum rökum þjóðernissinna. Þá
hafði skáldið og menntamaðurinn
Zviad Gamsakhurdia, einn þekktasti
andófsmaður landsins á sovét-tíman-
um, verið kjörinn forseti í fyrstu lýð-.
ræðislegu kosningunum í sögu Ge-
orgíu. Miklir fiokkadrættir og blóðug
stjórnmálaátök urðu til þess að hann
varð að flýja land í ársbyijun 1992.
Gamsakhurdia ásakaði Rússa um að
ætla að grafa undan sjálfstæði lands-
ins. Samskipti ríkjanna bötnuðu er
Shevardnadze tók við en vegna átak-
anna í Abkhazíu reyndist sú þíða
skammlíf. Eftir fall héraðsins sagði
VIRTUR LEIÐTOGI
Edúard Shevardnadze, forseti
Georgíu, nýtur mikillar virðingar
á Vesturlöndum vegna fram-
göngu sinnar á vettvangi alþjóða-
mála á lokastigum kalda stríðs-
ins. Það var Shevardnadze miklu
fremur en Míkhaíi S. Gorbatsjov
Sovétleiðtogi.
Shevardnadze Rússa hafa svikið Ge-
orgíu.
Með inngöngu Georgíu munu 12
af hinum 15 lýðveldum fyrrum Sov-
étríkjanna heyra samveldinu til. Að-
eins Eystrasaltsríkin, Eistland, Lett-
land og Litháen, eru utan þess. Gömlu
sovétlýðveldin flykkjast nú í faðm
Rússa og er það til marks um árang-
ursríka utanríkisstefnu í samræmi
við nýja skilgreiningu þeirra á áhrifa-
svæði sínu.
Sú ákvörðun Shevardnadze að
ganga í samveldið féll í grýttan jarð-
veg í Tbilisi og margir stuðnings-
manna forsetans, sem kalla má hóf-
sama þjóðernissinna, mótmæltu opin-
berlega þessum umskiptum í utanrík-
isstefnu Georgíu. í þessu fólst vissu-
lega uppgjöf og ekki varð það til að
auka vinsældir forsetans er hann lét
að því liggja að Georgíubúar gætu
fallist á að Rússar fengju að halda
herstöðvum í landinu. Þar með hafði
forsetinn í raun farið þess á leit við
Rússa að þeir héldu herafla sínum í
Georgíu þrátt fyrir að gengið hafi
verið frá samkomulagi, sem kveður
á um að brottflutningi rússneska
hersins eigi að vera lokið fyrir árslok
1995.
Ólgan hefur því farið vaxandi í
höfuðborginni á sapia tíma og yfirlýs-
ingar forsetans hafa orðið til þess
að herða Zviad Gamsakhurdia í þeim
ásetningi sínum að sameina Georg-
íubúa á ný undir merkjum þjóðernis-
hyggjunnar. Boðkerfi stjórnarhersins
er hrunið, birgðaleiðir rofnar og bar-
áttuandinn í röðum hermanna hefur
tæpast getað talist sannfærandi. Á
miðvikudag hermdu þó óstaðfestar
fréttir að hersveitir ríkisstjórnarinnar
hefðu náð þremur bæjum í vestur-
hluta landsins á ný á sitt vald. Þar
sem stuðningur við stefnu She-
vardnadze fer ört minnkandi í landinu
og hinir hófsömu í röðum þjóðernis-
sinna gerast nú blendnir í trúnni er
það forsetanum nauðsynlegt að fleiri
slíkar fregnir berist frá vígstöðvun-
um. Reynist fregnir af óbeinni íhlutun
Rússa, Armena og Azera réttar má
ætla að það verði einnig til þess að
efla baráttuþrekið í röðum stjórnar-
hersins.
Sættir útilokaðar
Nú er svo komið að Georgíubúum
verður ekki hlíft við frekari blóðsút-
hellingum og hryllingi nema að sætt-
ir takist með þeim Shevardnadze og
Gamsakhurdia. Slíkt má telja nánast
óhugsandi. Gamsakhurdia sem sneri
heim úr útlegð þann 24. fyrra mánað-
ar er barist var um Súkhúmi, hefur
raunar hafnað þeim möguleika að
samningaviðræður verði teknar upp.
Gamsakhurdia lítur á sig sem hinn
réttkjörna forseta Georgíu og telur
því stjórn Shevardnadze ólöglega.
Forsetinn fyrrverandi segir She-
vardnadze ábyrgan fyrir upplausninni
í landinu og hefur fullyrt að hann
hafi enga stjórn á sveitum þeim sem
undir fána stjórnarhersins beijist. Því
sé ekki um raunverulega valdabar-
áttu að ræða í Georgíu heldur bar-
áttu hins réttkjörna forseta við vopn-