Morgunblaðið - 24.10.1993, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1993
Í3
aða hópa rustamenna. Með þessu er
Gamsakhurdia að vísa til „Georgíu-
riddaranna" svonefndu (Sakartvelos
Mkhedrioni) en svo nefnist hópur sem
telur um nokkur þúsund vígamenn,
hefur sterk tengsl við „sovésku"
mafíuna og fór fremstur í flokki er
Gamsakhurdia var steypt. Þessi hóp-
ur, sem stutt hefur Shevardnadze,
kennir sig við þjóðernishyggju og
föðurlandsást en andstæðingamir
segja þetta vopnaðan og þokkalega
skipulagðan glæpalýð. Leiðtogi „ridd-
aranna“ er Jaba nokkur Ioseliani, sem
mun hafa verið þekktur undirheima-
foringi í tíð Sovétríkjanna sálugu. Á
stuðning þessa manns hefur She-
vardnadze m.a. þurft að reiða sig.
Skáldid reyndist harðstjóri
Stuðningsmenn Gamsakhurdia eru
á hinn bóginn ekki annálaðir fyrir
mannkærleika og víðsýni. Gamsak-
hurdia er frá héraðinu Mingrelíu í
vesturhluta landsins en þar nefnist
höfuðstaðurinn Zugdidi. Er hann var
kjörinn forseti í maímánuði 1991 lýsti
hann yfir sigri lýðræðisins í landinu.
Annað átti eftir að koma á daginn.
Gamsakhurdia barði miskunnarlaust
niður alla andstöðu. Blaðamenn sem
létu óvinsamleg orð falla um forset-
ann, framferði hans og persónu, lentu
á bak við lás og slá. Brugðið var á
það kunnuglega ráð að banna mál-
gögn stjórnarandstöðunnar í nafni
lýðræðisins. Ofsóknarhugmyndum
forsetans var gert hærra undir höfði
og svo fór loks að hann kvað upp
þann dóm að andstæðingar sínir
væru „njósnarar" á mála hjá útlend-
ingum. Hroll setti að stuðningsmönn-
um Gamsakhurdia á Vesturlöndum
er þær fréttir bárust að pyntingar-
tæki hefðu fundist í kjallara embætt-
isbústaðar skáldsins er það flýði land.
Þessir tveir menn berjast nú um
völdin í Georgíu en á meðan treysta
abkhazískir aðskilnaðarsinnar stöðu
sína. Talið er að um 150.000 manns
hafi neyðst til að flýja heimili sín
vegna átakanna. Margir hafast við í
fjöllum uppi, aðrir halda til í flótta-
mannabúðum og eru háðir neyðarað-
stoð Sameinuðu þjóðanna og alþjóð-
legra hjálparstofnana.
Áhugaleysi Vesturlanda
Er Edúard Shevardnadze kom til
íslands í september 1992 á leið sinni
til Bandaríkjanna sagði hann í sam-
tali við Morgunblaðið að hann vildi
nota þá virðingu sem hann nyti á
alþjóðavettvangi í þágu Georgíu og
leiða landsmenn sína út úr ógöngun-
um. „Það er hagsmunamál fyrir Vest-
urlönd að koma okkur til aðstoðar
eins og þau hafa hjálpað Rússlandi
og Úkraínu,“ sagði hann. „Frekari
spenna í Georgíu gæti skapað mörg
vandamál á Vesturlöndum.“ Bill
Clinton Bandaríkjaforseti hefur nú
lýst yfir stuðningi við stjóm She-
vardnadze en fram til þessa hafði
mat manna á Vesturlöndum á þeim
hagsmunum sem í húfi eru ekki
reynst í samræmi við væntingar hans.
Hins vegar efast fáir um pólitíska
hæfileika Shevardnadze og hann hef-
ur oflega reynst sannspár á stjórn-
málasviðinu. Hann sagði af sér emb-
ætti utanríkisráðherra Sovétríkjanna
vorið 1991 í mótmælaskyni við aukin
áhrif harðlínumanna í kommúnista-
flokknum og spáði því þá að þeir
myndu reyna að ræna völdunum, sem
gekk eftir. Hann lýsti og yfir þyí
áður en Súkhúmi féll í hendur Abk-
haza að svo kynni að fara að Georg-
ía myndi liðast í sundur yrði sókn
aðskilnaðarsinna ekki brotin á bak
aftur. Nú þegar Kutaisi, önnur
stærsta borg Georgíu, stendur ein
eftir í vesturhluta landsins blasir við
að þessi spádómur forsetans er við
það að rætast. Spádómsgáfa og inn-
sýn Shevardnadze hefur hins vegar
ekki náð að hafa afgerandi áhrif á
vígstöðuna og snúist stríðsgæfan
ekki snögglega á sveif með stjórnar-
hernum mun forsetinn tæpast halda
velli.
f tíð Sovétríkjanna voru lífskjör
Georgíumanna þau bestu í ríkjasam-
bandinu en nú stendur Shevardnadze
frammi fyrir klofningi landsins, gífur-
legum flóttamannavanda og algjöru
hruni efnahagslífsins. Beiðni forset-
ans um erlenda hemaðaríhlutun felur
í sér viðurkenningu á því að sjálf-
stæði ríkisins heyri sögunni til. Nái
sveitir Gamsakhurdia borginni Kuta-
isi verður klofningnr Georgíu stað-
festur og þá mun Edúard She-
vardnadze hrökklast frá völdum.
NORDMENDE
Okkur tókst að semja sérstaklega um heilan gám af þessum vönduðu
Nordmende 29" sjónvarpstækjum. Nú getur þú gengið inn í þessi magn-
innkaup okkar við Nordmende-framleiðendurna í Þýskalandi og tryggt þér
29" stereo-litsjónvarpstæki á lægra verði en þekkst hefur áður hérlendis.
Spectra SC 72 NICAM er með 29" flötum giampalausum
Black Matrix Super Planar-skjá, S-VHS-tengi, 40W Nicam stereo-
magnara, 4 hátölurum, Stereo Wide, Surround hljómi (tengi fyrir
Surround-hátalara), tengi fyrir heyrnartól, 60 stöðva minni,
sjálfvirkri stöðvaleit, Pal-Secam-NTSC-video, fullkominni fjarstýr-
ingu, aðgerðastýringu á skjá, innsetningu á stöðvanafni á skjá,
tímarofa, 16:9 breiðtjaldsmóttöku, barnalæsingu, íslensku
textavarpi, 2 scart-tengi, tengi fyrir 2 auka hátalara o.m.fl.
Nordmende-sjónvarpstækin eru vönduð þýsk gæðaframleiðsia og
hafa um áraraðir verið í notkun á íslandi við góðan orðstýr.
Ath!
Samskonar
sjónvarpstæki
kosta u.þ.b.
130.000,- til
150.000,- kr.
hér á landi,
en þessi bjóðast
ódýrari vegna
magninnkaupa.
VISA-raðgreiðslu
7.200,
EURO-raðgreiðslur: t
11.437,-
Munalán: 27.450,- kr. útborgun og
3.845, - kr. á mán. í 30 mánuði
yiSA-raöjjrejðslur: Engin útborgun og u.þ.b.
kr. á mán. í 18 mánuði
EURO-raðgreiðslur: Engin útborgun og
kr. á mán. í 11 mánuði
Verð aðeins 109.900,- kr. eða
foz
Frábær greibslukjör vib allra hæfi
MUNALÁN Öaöað 30
sssaa,*
SKIPHOLTI 19
SÍMI 29800
■ ■
Við erum með sýningartæki í versluninni,
en von er á sendingunni til landsins eftir
u.þ.b. eina viku. Það er um takmarkað magn
að ræöa og við erum þegar byrjuð aö taka á
móti pöntunum. Því er best að hafa hraðann
á til að komast inn í þessi magninnkaup.
Komdu strax, það margborgar sig !
■..
'‘■'s l'
SOPTEXT
PR'
NICAM
DICITAL
STERRO