Morgunblaðið - 24.10.1993, Side 16

Morgunblaðið - 24.10.1993, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1993 Bletta-englar Leiklist Súsanna Svavarsdóttir Leikfélag Reykjavíkur - Borg- arleikhús ENGLAR í AMERÍKU Höfundur: Tony Kushner Þýðandi: Veturliði Guðnason Leikstjóri: Hlín Agnarsdóttir Leikmynd: Stígur Steinþórsson Búningar: íris Ólöf Sigurjóns- dóttir og Stígur Steinþórsson Lýsing: Elfar Bjarnason Hljóðmynd og tónlist: Þórólfur Eiríksson Dramaturg: Páll Baldvin Bald- vinsson Ástin hefur tvö andlit; andlit orða og andlit gerða og þau tvö andlit eru rauði þráðurinn í gegn- um þetta sérkennilega verk. Höf- undur stillir upp hliðstæðum; ann- ars vegar hjónabandi þar sem kona og karlmaður segjast elska hvort annað, en eru of sjúk af trúarlegum kreddum til að skilja hvað ást er í raun og veru, hins vegar sambúð tveggja karlmanna sem eyðniveiran sýkir. Einnig þeir segjast elska hvorn annan. Um leið eru þessi sambönd and- stæður. Hjónabandið er byggt á óheiðarleika frá upphafi; þau Joseph og Harper eru mormónar og líf svoddan fólks einkennist af hreinlífi, banni á tóbaki og áfengi, sannleiksást og vinnusemi. En líf þeirra Josephs og Harper er dálít- ið sérkennileg útfærsla á þessum einkennum; hann getur ekki snert konu sína, vegna þess að hann er „í skápnum," svo að segja má að hreinlífíð sé dálítið öfgakennt hjá þeim. Ekki eru tóbak og áfengi vandamálið, en frúin bryður pillur og líður best á ofskynjunarplan- inu. Á meðan allt lítur vel út á yfirborðinu, samkvæmt mormóna- reglum, er það þeirra sannleikur og vinnusemin — tja, frúin hefur verið í heilt ár að koma sér að því að mála svefnherbergið og eigin- maðurinn hefur mjög langa vinnu- daga — sem að vísu fela það í sér að fara í gönguferðir og skoða stráka. Samband þeirra er byggt á lygi. Samband karlmannanna, þeirra Louis og Priors, virðist hins- vegar byggt á heiðarleika. Þeir hafa þorað að horfast í augu við það sem þeir eru, samkynhneigð- ir, og eru færir um að sýna hvor öðrum einlæga ást og hlýju — allt þar til kemur í Ijós að Prior er smitaður af eyðni. Upp frá þeim degi verður falskur tónn í sam- bandinu á meðan Louis reynir að standa við ástaryfírlýsingar sínar. Honum verður það þó um megn og ást hans verður, eins og ást Josephs, aðeins til í orðunum. Samskipti þeirra við umheiminn markast af þessari gjá sem er á milli orða þeirra og athafna, en þó fáum við að sjá sýnu meira af veröld Josephs. Hann hefur hitt lögfræðinginn, Roy Cohn, sem er útsmoginn valdasukkari, sem býð- ur Joseph toppstarf í dómsmála- ráðuneytinu í Washington (Roy þarf á honum að halda þar), en Jospeh er tregur til að taka starf- ið og ber því fyrir sig að frúin vilji ekki flytja og síðar að hún bryðji töflur, en ástæðan er auðvit- að sú að hann þorir greinilega ekki að treysta á að hann geti leynt sínu rétta eðli. Roy er sjálfur samkynhneigður, en hefur tekist að leyna því og heldur áfram að hanga inni „í skápnum," jafnvel eftir að hann smitast af eyðni. Inn í veröld Lois og Priors kemur Belize, hommi sem er andstæða Louis og kann að sýna ást og umhyggju þegar hlutimir fara úr skorðum. Þrátt fyrir að vera af- skaplega „afbrigðilegur" í klæða- burði, talsmáta og hegðun er Belize eina persónan sem skilur orðið „ást“ og er alveg með það á hreinu hver hann er. Það má segja að bæði Joseph og Louis svíki þær persónur sem þeir segjast elska — en spumingin er bara hvort sambönd þeirra við Harper og Prior vom ekki svik frá upphafí; Joseph þurfti að hafa hjónabandið til að leyna því hver hann er til að komast áfram í henni veröld og því voru forsendur hans sjálfselska. Louis þurfti á ást Priors að halda, en þegar Prior getur ekkert gefið lengur segist Louis þurfa að hugsa um sjálfan sig — og forðar sér. Hans forsend- ur er einnig sjálfselska. En þótt draga megi út úr verk- inu áhugaverða fleti á ástinni og fylgikvillum hennar finnst mér þetta leikrit ekki nógu vel skrifað. Það er dálítið yfírborðslega fjallað um þá mannlegu þætti, sem verk- ið snýst um, og persónunum hætt- ir til að verða að einhvers konar klisjum. Þær skortir dýpt og marg- ræðni og eru of fyrirsjáanlegar. Umfjölluninni um samskipti par- anna er of mikið drepið á dreif í alls kyns þjóðfélagsumræðu og sérkennilegum „karakterum" sem birtast. Atriði sem hefðu vel mátt missa sig vom Harper á Suður- skautslandinu, símtal Josephs við móðurina, sala hennar á húsinu Salt Lake City og ferð hennar til New York — að ég tali nú ekki um senurnar þar sem forfeður Priors heimsækja hann. Þessir þættir gerðu leikritið ruglingslegt, persónurnar hlægilegar og drógu máttinn úr þeim mannlega harm- leik sem verið er að fjalla um í verkinu. Ég get ekki sagt að leikurinn hafi hrifið mig — og kenni þar fyrst og fremst gölluðu verki um. Bestu senumar vom á milli þeirra Louis og Priors; ást þeirra og hlýja var einlæg og falleg og fannst mér þeir Arni Pétur Guðjónsson (Louis) og Magnús Jónsson (Prior) fara mjög vel með þau atriði. Mér fannst líka Magnús sýna góða vinnu í þróun sjúkdómsins hjá Prior; frá því að vera glæsilegur, hár og grannur, ungur maður yfír í tært og sjúkt gamalmenni um þrítugt. Elva Ósk Ólafsdóttir er mjög góð í hlutverki drafandi pillu- gleypisins Harpers, en því miður er það hlutverk skrifað þannig að hún verður „kómísk týpa“ og það er mun auðveldara að hlæja að henni, en að hafa einhveija samúð með þeim óbærilegu aðstæðum sem hún býr við. Jakob Þór Ein- arsson skilaði texta sínum skýrt og skilmerkilega; það var ekki að sjá að Joseph ætti í neinni innri baráttu með að „koma út úr skápnum", bara lyfti augabrúnun- um undrandi og ofurlítið argur, þegar fólk fór að ýja að því að hann væri ekki gagnkynhneigður, áttaði sig svo á því að það var satt, datt í það og hringdi í mömmu. Jón Hjartarson leikur Roy Cohn og skilar þeim hijúfa skúrk ágætlega; hann er einhliða grimmur, vanur að geta lyft sím- tóli til að snúa veröldinni eins og honum sýnist og heldur jafnvel að hann geti haldið því áfram til að sjúkdómur hans heiti eitthvað annað en eyðni. Hótar jafnvel að koma lækninum, sem birtir hon- um sjúkdómsgreininguna, á kald- an klaka. Ellert Ingimundarson leikur Belize, sem er fyrrverandi draggdrottning, kærleiksríkur og afar kvenlegur hommi og er hæfí- lega „affekteraður" í hlutverkinu. Önnur hlutverk eru smá og auk fyrmefndra fara þær Steinunn Ölafsdóttir og Margrét ólafsdóttir með þau og gerðu það eins vel og kostur var á. Leikmyndin fannst mér ekki nógu góð. Hún grundvallast á hægum hreyfanleika, sem dró mjög úr framvindu og hraða sýn- ingarinnar, og ég hafði það ein- hvem veginn á tilfinningunni að þetta verk nyti sín betur á mun minna sviði í meira návígi við áhorfendur. Búningar voru frem- ur hlutlausir. Leikstjórnin takmarkaðist nokkuð af þessum stöðuga, hæga hreyfanleika leikmyndarinnar og hreyfíngin á persónunum var of lítil í því flæmi sem stóra sviðið er. Þar fyrir utan fannst mér ekki nást að koma örvæntingu þeirra til skila; hún varð að öskri og ósköpum. Þeir þættir sem sneru að hlýju, einlægni og væntum- þykju voru hins vegar vel unnir. Mér fannst því skorta jafnvægi í sýninguna, þótt ég viðurkenni að verkið býður ekki beinlínis upp á það. Það er synd, því hér er að hluta til verið að fjalla um eyðni, málefni sem kemur okkur öllum við. í verkinu er sjúkdómurinn tileinkaður hommum sem undrar mig vegna þess að hann leggst einnig á gagnkynhneigða; hann er eins raunverulegur og aðrir þættir lífsins og ég held að þrátt fyrir annmarka verksins höfum við öll gott af því að sjá þetta stykki. Það fjallar um sjúkdóm, sem við erum viss um að muni aldrei henda okkur — en vitum aldrei nema hann geti hent okkar nánustu. Ólöf Erla Bjarnadóttir Fjármálaráðherra um skipasmiðasamkeppm Gagiirýnir útgerðir fyrir útboðsaðferðir FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra sagði á Alþingi á mánudag að íslenskir útgerðarmenn hefðu ekki hlutað í sundur útboð þeg- ar þeir væru að bjóða út skipasmíðaverkefni. „Þess vegna hefur það gerst hér á landi, að þeir sem framleiða tæki og tól fyrir skipin, hafa ekki getað boðið í skipin, heldur hefur allt verkefnið farið til útlanda. Lánasjóðirnir gera mun á því hvort skip eru byggð hér á landi eða annars staðar og ég tel að við ættum að koma þeim tilmælum til útgerðarmanna hér landi, að þeir geri það að skilyrði, þegar þeir láta byggja skip annars staðar, að það séu keypt tól og tæki sem eru þróuð hér á landi,“ sagði ráðherra. Ovænt litbrigði Ólöf Erla Bjarna- dóttir sýnir í Stöðlakoti í FLJÓTU bragði getur virst örðugt að átta sig á hvað Bænda- skólinn á Hvanneyri og Gallerí Stöðlakot í Reykjavík eiga sam- eiginlegt — en ef vel er að gáð kemur í Ijós að á Hvanneyri hafa tvær leirlistarkonur hreiðrað um sig á gömlu hlöðulofti, þar sem þær vinna að Iist sinni. Önnur þeirra, Ólöf Erla Bjarnadóttir, sýnir þessa dagana í Stöðlakoti, kertastjaka, staup, skálar og trog; allt úr leir, en áferðin þann- ig að augað blekkist og heldur stundum að þetta sé tré. Svo kemur í ljós að strengurinn sem leirinn er skorinn með rifflar hann og þegar við bætist, brennsluaðferðin — sem er holu- brennsla — fær leirinn á sig lit og áferð sem gefur öðruvísi mynd en maður á að venjast við venjulega ofnbrennslu. „Ég er að reyna ýmis brennslu- form,“ segir Ólöf Erla. „Eitt af þeim er holubrennsla, þar sem munimir eru brenndir í jörðu.“ - Hvemig þá? „Fyrst hrábrenni ég hlutinn í þúsund gráðum, gref síðan holu í jörðu, set skálina, stjakann eða staupið ofan í, þek það með heyi, sagi og spýtukubbum og kveiki í. Þegar komið er svolítið bál þek ég þetta með steinull eða torfi og læt það malla í um það bil sólarhring — eða þar til ég sé að allur reykur er horfínn. En áður en ég hrá- brenni set ég litarefni og lágbrennd- an glemng utan á. Þetta er gömul brennslutækni sem er ekki mikið notuð í dag — hún er ekki mjög brúkleg, miðað við þá tækni sem nú er og ég veit hreinlega ekki hversu marga muni ég eyðilagði á meðan ég var að vinna að þessari sýningu. En nú er ég komin upp á lagið og fínnst hún mjög skemmti- leg og ætla að halda henni áfram. Síðan er ég með stjaka og staup þar sem ég nota venjulega stein- leirsbrennslu í rafmagnsofni og þriðja aðferðin er saltbrennsla. Elísabet Haraldsdóttir, sem deilir vinnustofu með mér á Hvanneyri, fór utan á námskeið í saltbrennslu- tækni og ég lét hana taka staupin með til að brenna.“ - En hvað er svona spennandi við holubrennsluna? „Það sem er mjög spennandi er að koparinn sem ég set í glerunginn — og verður alltaf grænn í raf- magnsofni — verður stundum rauð- ur í holubrennslunni. Annað er að heyið og hálmurinn hefur áhrif á áferðina, sem og sótið, þannig að maður veit aldrei nákvæmlega hvaða litbrigði verða í hlutnum." - Það er gaman til þess að vita að fleiri og fleiri íslenskir listamenn eru að snúa sér að nytjalist, það er að segja nothæfum hlutum sem um leið eru listaverk, en hvers vegna heldur þú að þeir hafí verið tregir til þess hingað til? Nú eru til dæmis Finnar annálaðir fyrir nytjalist sína. „Já, það er mjög sérkennilegt. Ég veit ekki hvort það er bara tregða í listamönnum. Myndlistin er ung listgrein hér á landi og það er ekki fyrr en nýlega að farið er að virða nytjalist sem listgrein. En það fást margir myndlistarmenn við þessa grein. Það vantar ekki lista- mennina. Það sem vantar núna er nytjalistasafn.“ ssv Umræðurnar fóru fram vegna fyrirspurnar Jóhanns Ársælssonar Álþýðubandalagi til fjármálaráð- herra um hvort til stæði að grípa til 'undirboðs- eða jöfnunartolla til að jafna samkeppnisaðstöðu inn- lends skipasmíðaiðnaðar gagnvart erlendri samkeppni. Ámi Mathie- sen Sjálfstæðisflokki beindi einnig þeirri spumingu til fjármálaráð- herra hvort athugað hefði verið hver ágóði útgerðarinnar væri af undirboðum erlendu skipasmíða- stöðvanna og hvort sá ávinningur væri meiri en ef íslenskar skipa- smíðar hefðu jafna samkeppnis- stöðu gagnvart erlendum skipa- smíðum. Skipasmíðar verði hluti EES-samnings Fram kom í máli ráðherra að í undirbúningi væri nefndarskipan sem ætti að gera úttekt á fjárhags- stöðu skipasmíðaiðnaðarins og var sú tillaga iðnaðarráðherra sam- þykkt á ríkisstjórnarfundi í síðustu viku. Jafnframt var utanríkisráð- herra falið að fylgjast með þróun þessra mála í Noregi og mótmæla harðlega styrkjum sem skipa- smíðaiðnaðurinn þar í landi nyti, á grundvelli EFTA-samningsins, EES-samningsins og í ljósi yfír- standandi GATT-viðræðna. Ný- lega bárust upplýsingar um um- fangsmiklar fjárfestingarstyrki til skipsmíðastöðvar í Norður-Noregi að upphæð 1.850 millj. ísl. kr. sem koma til viðbótar miklum fram- leiðslustyrkjum í norskum skipa- iðnaði, sem nema 13% af nýsmíði þar í landi og hafa farið hækk- andi, að sögn ráðherra. Verður sérstök áhersla lögð á það af hálfu ísiands í samningaviðræðum EFTA og EB á næstu vikum að tryggt sé eins og kostur er að skipasmíðar verði hluti EES- samningsins, að hans sögn. Þingmenn sem til máls tóku töldu úrbætur í málefnum íslensk- um skipaiðnaði ekki þola bið og að beita ætti jöfnunar- og undir- boðstollum til endurreisnar skipa- smíðaiðnaðinum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.