Morgunblaðið - 24.10.1993, Side 27

Morgunblaðið - 24.10.1993, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1993 27 DialdsfLokknum spáð fylgishruni í kosningunum í Kanada á mánudag Þingkosiiingamar gætu flýtt aðskilnaði Quebec ÍHALDSFLOKKI Kim Campbell, forsætisráðherra | 'y^' •' , | i" Kanada, er spáð fylgishruni í þingkosntngunum 1 landinu á mánudag og þetta gætu orðið afdrifarík- ustu kosningarnar í sögu landsins. Skoðanakannan- ir benda til mikils kosningasigurs þjóðernissinna í Quebec, eina frönskumælandi fylkinu í Kanada. Kosningarnar gætu því orðið til þess að flýta fyrir sjálfstæði fylkisins. Talið er að Quebec geti orðið sjálfstætt ríki um aldamótin, eða eftir sjö ár. Kennt um fylgishrunið KIM Campbell, forsætisráðherra Kanada og leiðtogi íhaldsflokks ins, ávarpar kjósendur. Campbell þykir hafa staðið sig illa í kos- ningabaráttunni og er fyrirsjáanlegt fylgishrun flokksins m.a. rak- ið til þess. Nær forsætisráðherra- efnið kjöri? Samkvæmt skoðanakönnun, sem birt var á dögunum, verður það Fijálslyndi flokkurinn sem myndar næstu stjórn Kanada, þótt hann nái að líkind- um ekki meirihluta. Þótt flest bendi til þess að flokkurinn fari með sigur af hólmi í kosningun- um er líklegt að leiðtogi hans, Jean Chrétien, nái ekki kjöri í kjördæmi sínu, St. Maurice í Quebec. Forsætisráðherraefni sigurvegaranna kann því að þurfa að bjóða sig fram í auka- kosningum utan Quebec. Fijálslyndi flokkurinn nýtur stuðnings 40% kjósenda, ef marka má könnun- ina. Fylgi íhaldsflokksins, sem hefur verið við völd í Kanada í níu ár, er hins vegar komið niður í 22%. Helstu ástæðumar fyrir þessari hraklegu útkomu flokks- ins eru efnahagsþrengingamar í landinu og léleg frammistaða nýja leiðtogans, Kim Campbell, í kosningabaráttunni. Nýr hægriflokkur, Umbóta- flokkurinn, er skammt undan, með um 16% fylgi. Flokkurinn er þjóðernissinnaður og leggur megináherslu á að minnka fjár- lagahallann. Hann lofar að forð- ast í lengstu lög að hækka skatt- ana og hyggst beijast gegn sóun ríkisfjármuna. 52% fylgi í Quebec Samkvæmt könnuninni nýtur flokkur frönskumælandi þjóð- ernissinna, Bloc Quebecois, stuðnings 13% kjósenda á lands- vísu sem þýðir að fylgi flokksins í Quebec er um 52%. Því hefur verið spáð að Bloc Quebecois fái 40-60 af 75 þingsætum Quebec- fylkis, sem hefur um ijórðung allra þingsætanna. íhaldsflokk- urinn fékk flesta þingmenn kjörna í Qu- ebec í síðustu þingkosning- um, eða 56, en er nú þriðji stærsti flokk- urinn í fylkinu, með ívið minna fylgi en Fijáls- lyndi flokkurinn. Talið er að um 25% kjósend- anna í Quebec séu harðir stuðn- ingsmenn algjörs aðskilnaðar frá Kanada. Stærri hluti, eða um 45%, vilji að fylkið verði fullvalda ríki í sambandi við Kanada; ríkin hafi til að mynda sameiginlegan gjaldmiðil og ef til vill sameigin- legan her. Hinir, eða um 30%, séu hins vegar hlynntir laus- tengdara sambandi og að Quebec verði áfram hluti af Kanada. Gæti skapað ótrú á sambandsríkinu Bloc Quebecois var stofnaður árið 1988 og þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn býður fram til kanadíska þingsins. Leiðtogi flokksins, Lucien Bouchard, er gæddur miklum persónutöfrum, þykir fádæma mælskur og mál- flutningur hans minnir á Ross Perot, óháða frambjóðandann í síðustu forsetakosningum í Bandaríkjunum. Honum hefur tekist að gera sér mat úr óánægju almennings með efna- hagsþrengingarnar og afla sér stuðnings þeirra Quebec-búa sem ekki teljast til hörðustu sjálfstæðissinna. Flokkurinn boðar svipaða efnahagsstefnu og Umbótaflokkurinn, vill minnka fjárlagahallann án þess að hækka skattana. Þótt Bloc Quebecois fái mikið fylgi í kosningunum leiðir það ekki eitt og sér til þess að Qu- ebec öðlist sjálfstæði. Fylkis- kosningar, sem ráðgerðar eru í Quebec á næsta ári, verða mun þýðingarmeiri fyrir framtíð fylk- isins. Móðurflokkur Bloc Qu- ebecois í Quebec, Parti Quebeco- is, sem var stofnaður árið 1968, hefur lofað að efna til þjóðarat- kvæðagreiðslu um sjálfstæði fylkisins innan árs fái hann meirihluta í fylkiskosningunum. Verði Bloc Quebecois öflugur á kanadíska þinginu gæti flokkurinn hins vegar stuðlað að auknum stuðningi við sjálfstæði Quebec í fylkinu sjálfu þegar kosningarnar og síðan þjóðarat- kvæðagreiðslan nálgast. Flokk- urinn gæti til að mynda lagt fram kröfur sem næsta stjóm Kanada gæti ekki orðið við þar sem hún þarf að taka tillit til vilja hinna fylkjanna líka. Þetta gæti orðið vatn á myllu sjálfstæðissinna, skapað mikla óánægju með sam- bandsríkið á meðal almennings í Quebec, sem er orðinn þreyttur á áratuga þrefi um stöðu fylkis- ins. Stefnir í átök við Umbótaflokkinn Umbótaflokkurinn nýtur stuðnings þjóðernissinna úr röð- um enskumælandi Kanada- manna, er einkar sterkur í vest- urhluta landsins, og er mun harðari í andstöðu sinni við kröf- ur Quebec-búa en gömlu flokk- arnir tveir. Verði hann jafn sterkur á kanadíska þinginu og horfur eru á dregur það úr lík- unum á samkomulagi um mála- miðlun. Afstaða Umbótaflokks- ins er sú að Quebec eigi að fá sömu meðhöndlun og öll hin fylk- in níu. Haldi Quebec-búar kröf- um sínum um sérstök réttindi til streitu eigi að leyfa þeim að segja skilið við kanadíska sambands- ríkið. Þegar þessum tveimur and- stæðu fylkingum úr austri og vestri lýstur saman á þinginu skapast meiri hætta á klofningi sambandsríkisins en nokkru sinni fyrr. Bouchard hefur talað um að Quebec fái í framtíðinni aðild að Sameinuðu þjóðunum, reki sín eigin sendiráð, verði í efnahags- bandalagi með Kanada og í Breska samveldinu og gangi í nýtt bandalag frönskumælandi þjóða. Verði þjóðemisflokkur hans öflugur á kanadíska þing- inu kann þetta ekki að vera svo fjarlægur draumur. Heimild: The Independent, The New York Times og Fin- ancial Times. BAKSVIÐ eftir Boga Arasott /////S4S SAS á íslandi - valfrelsi í flugi! Keflavík - Tokyo...... 93.000,- Bókunarfyrirvari 14 dagar. íslenskur flugvallarskattur 1.310 kr. Hámarksdvöl 1 mánuður, lágmarksdvöl 6 dagar. Barnaafsláttur er 50%. Hafðu samband við ferðaskrifstofuna þína eða söluskrifstofu SAS. Laugavegl 172 Sími 62 22 11 ” 'gið í austur með SAS! Kynnist töfrum Asíu og dveljið á glæsilegum hótelum. SAS hefur gert sérsamninga við fjölmörg hótel um hagstætt verð á gistingu. Nánari upplýsingar eru í SAS hótelbæklingnum. Keflavík - Bangkok .... 79.000,- Keflavík - Hong Kong ... ... 89.000,- Keflavík - Singapore ... 89.000,- Keflavík - Peklng ... 93.000,-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.