Morgunblaðið - 24.10.1993, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1993
29
12. júní 1943) hinn 12. júní 1968.
Stofnuðu þau heimili sitt á Fram-
nesvegi 16 og bjó Jóhannes hjá
þeim alla tíð. Þau eignuðust fjögur
mannvænleg börn, en eitt þeirra
er látið. Lára varð bráðkvödd 7.
apríl 1993.
Samheldni ijölskyldunnar á
Framnesveginum var einstök, bæði
heima og heiman, en þau iðkuðu
mjög útilíf, veiðiferðir, skíðaferðir
og önnur ferðalög og útivist.
Við systkinin biðjum góðan Guð
að vaka yfir afabörnunum, tengda-
syni Jóhannesar og öðrum ættingj-
um og vinum og gefa þeim styrk í
sorg þeirra við fráfall Jóhannesar,
um leið og við þökkum þeim fyrir
frábæra umönnun í veikindum Jó-
hannesar, en hann lést 16. október
sl. á Elli- og hjúkrunarheimilinu
Grund.
Systkinum Jóhannesar og öðrum
ættingjum færum við innilegar
samúðarkveðjur.
María Eggertsdóttir,
Guðmundur Ó. Eggertsson.
------» ♦ ♦------
Barðaströnd
Gottog
gjöfult sum-
ar kveður
Barðaströnd.
NÚ ER senn á enda eitt af bestu
sumrum sem komið hefur hér
vestra um áratuga skeið. Hey-
skapur gekk mjög vel og eru næg
hey allstaðar.
Beijaspretta var mjög góð og
kom fólk úr öllum landshlutum til
að tina ber og njóta góðs veðurs í
hinum fögru dölum Barðastrandar.
Óhætt er að fullyrða, þó mikið hafi
verið týnt af beijum, að þó nokkur
hafi orðið frostinu að bráð.
Sauðfjárslátrun er lokið. Þurftu
Barðstrendingar nú í fyrsta skipti
að fara með féð í annan landshluta,
þ.e. til Búðardals, og kýrgripi vítt
og breitt um landið. Hvers vegna
svo er komið ræði ég ekki. Féð kom
mjög vænt af fjalli og er að kjöt
af lömbum héðan er eftirsótt og
þykir gott á pönnuna.
Nýja fyrirtækið Fanney hf. á
Bijánslæk hóf skelveiðar nú í haust.
Binda Barðstrendingar miklar vonir
við þetta fyrirtæki.
- S.J.Þ.
-------» ♦ ♦-----
Kynningar-
bæklingur um
stjórnsýslulög
UM þessar mundir er dreift á öll
heimili í landinu kynningarbækl-
ingi um stjómsýslulög, sem ráðu-
neytið hefur gefið út í tilefni af
gildistöku þeirra hinn 1. janúar
nk.
Útgáfa bæklingsins markar upp-
haf umfangsmikillar kynningar á
lögunum fyrir almenning og starfslið
stjómsýslunnar. Um næstu mán-
aðarmót eru lögin ásamt greinargerð
þeirri, sem frumvarpið að þeim
fylgdi, væntanleg í handbókaformi
og um áramót kemur út ítarlegskýr-
ingarit um nánari útfærslu laganna.
Jafnframt mun ráðuneytið á
næstu vikum og mánuðum standa
fyrir námskeiðum fyrir starfslið
stjórnsýslunnar til undirbúnings að
gildistöku laganna.
-------»-■» ♦-----
■ BÚNAÐARSAMBAND Borg-
arfjarðar boðar til almenns bænda-
fundar um landbúnaðarmál í Hótel
Borgarnesi þriðjudaginn 26. okt.
kl. 21. Frummælendur á fundinum
verða Sigurgeir Þorgeirsson, að-
stoðarmaður landbúnaðarráðherra,
Gunnlaugur Júlíusson, hagfræð-
ingur Stéttarsambands bænda og
Þórólfur Sveinsson, varaformaður
Stéttarsambandsins. Þeir munu fjalla
um landbúnaðinn frá sjónarhóli
stjórnvalda, markmið og leiðir og
stöðu hans í tengslum við alþjóðlega
viskiptasamninga. Einnig ræða þeir
um landbúnaðarkerfið, framleiðslu-
stjórnun og sameiginleg verkefni
bænda. Fundurinn er öllum opinn.
FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA
OG HAGFRÆÐINGA
Nýjar hugmyndir
um þróun sveitar-
stjórnarstigsins
verða til umræðu á morgunverðarfundi Félags
viðskipta- og hagfræðinga á Hótel Holiday Inn
miðvikudaginn 27. október kl. 8.00-9.30. Sigfús
Jónsson, formaður nefnda um sameiningu sveitar-
félaga, mun flytja erindi og svara fyrirspurnum um:
- Hugmyndir um sameiningu
sveitarfélaga.
- Breytta verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga.
- Breytta fjármögnun.
- Stofnun reynslusveitarfélaga.
Félagar í FVH og aðrir áhugamenn
um umræðuefnið eru velkomnir.
L .
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Laufásvegi 2 - sími 17800
Námskeið í nóvember
Skráning stendur yfir
★ Ásaumur í vél (applíkering) 2.-23. nóv.
★ Myndvefnaður 2. nóv.-25. jan.
★ Prjóntækni 3.-24. nóv.
★ Tauþrykk, blokkprent 3.-24. nóv.
★ Brúðugerð 4. nóv,- 2. des.
★ Útskurður 8.-29. nóv.
★ Fatasaumur 8.-29. nóv.
★ Tuskumottur (vefnaður) 11. nóv.-2. des.
★ Dúkaprjón 16. nóv.-7. des.
y
i
Heigarnámskeið
★ Útskurður 13.-14. nóv.
★ Spunnið á rokk 13.-14. nóv.
★ Sauðskinnsskór 20. og 27. nóv.
Skrifstofan er opin mánudaga-fimmtudaga kl. 10-12 og 13-15.
Skráning i síma 17800.
Námsmannalína Búnaðarbankans er
fyrir alla námsmenn frá 16 ára aldri.
100% lánshlutfall
Allt að 100% lánshlutfall af væntanlegu láni frá LÍN
1 % lægri vextir
1 % lægri vextir af framfærsluláni, ekkert lántökugjald
iYfirdráttarheimild
Yfirdráttarheimild, allt að 50.000 kr. án viðskiptagjalds
iSkipulagsbók
Skipulagsbók, einföld og þægileg
Námsstyrkir á hverju ári
klámslokalán
Lánsréttur á lokaári
iGjaideyrisþjónusta
Gjaldeyrisþjónusta á námsmannakjörum
flutningalán
Lán vegna búslóðaflutninga
NAMS
>
LINAN á
BÚNAÐARBANKINN
- Tmustur banki