Morgunblaðið - 24.10.1993, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNA/RAÐ/SMA SLINNUDAGUR 24. OKTÓBER 1993
35
ATVINNUAí ■/ YSINGAR
Kerfisfræðingur
m
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Sérfræðingur
Laus er til umsóknar staða sérfræðings í
svæfingum og deyfingum við svæfinga- og
gjörgæsludeild Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 1. desember 1993.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf, sendist framkvæmdastjóra sjúkra-
hússins.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Kr. Péturs-
son, yfirlæknir.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Frá Háskóla íslands
og Landspítalanum
Prófessorsembætti í barnasjúk-
dómafræði ásamt yfirlæknastöðu á
barnadeild Landspítalans.
Prófessorinn veitir barnadeild Landspítalans
(Barnaspítala Hringsins) forstjórn sam-
kvæmt sérstöku samkomulagi milli Háskóla
íslands og Ríkisspítala.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsóknum
sínum rækilega skýrslu um námsferil,
kennslu, vísindastörf (ritsmíðar og rannsókn-
ir) svo og stjórnunarreynslu og önnur störf.
Ennfremur er óskað eftir greinargerð um
rannsóknir, sem umsækjendur hyggjast
beita sér fyrir verði þeim veitt staðan og
nauðsynlega aðstöðu fyrir þessar rannsókn-
ir. Æskilegt er að umsóknargögn séu á ensku
til að auðvelda dómnefndarstörf með erlend-
um aðila.
Laun skv. kjarasamningi Félags háskóla-
kennara og fjármálaráðuneytis.
Umsóknarfrestur er til 15. desember 1993
og skal umsóknum skilað til starfsmanna-
sviðs Háskóla íslands, Aðalbyggingu við
Suðurgötu, 101 Reykjavík.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
læknadeildar í síma 694880 á skrifstofu Rík-
isspítala í síma 602300.
BKltC I! ! ■ K
6SI1II1U
iBiieiiGi
tílEIIEIlIl
ÍBttHIIII
Frá Háskóla íslands
Við verkfræðideild er laus til umsóknar lekt-
orsstaða f fjarskiptafræði við rafmagns-
verkfræðiskor. Lektornum er ætlað að
stunda kennslu og rannsóknir á sviði fjar-
skiptafræði og skyldra greina. Áætlað er að
ráða í stöðuna til þriggja ára frá 1. janúar
1994 en um stöðuna gilda reglur um ráðning-
ar í sérstakar kennarastöður við Háskóla
íslands.
Umsækjendur um stöðurnar, skulu láta
fylgja umsóknum sínum rækilega skýrslu
um vísindastörf þau er þeir hafa unnið, rit-
smfðar og rannsóknir, svo og námsferil og
störf. Með umsóknunum skulu send eintök
af vfsindalegum ritum og ritgerðum um-
sækjenda, prentuðum og óprentuðum.
Ennfremur er óskað eftir greinargerð um
rannsóknir, sem umsækjandi hyggst
stunda verði honum veitt staðan. Laun
skv. kjarasamningi Félags háskólakennara
og fjármálaráðuneytis. Nánari upplýsingar
veitir Jón Atli Benediktsson, formaður raf-
magnsverkfræðiskorar, í sfma 694706.
Umsóknarfrestur er til 22. nóvember 1993
og skal umsóknum skilað til starfsmanna-
sviðs Háskóla íslands, aðalbyggingu við
Suðurgötu, 101 Reykjavík.
III
T E I K H U
Matreiðslunemi
óskast
Argentína steikhús getur ráðið til sín
matreiðslunema.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem
fyrst. Aldurstakmark er 20 ára.
Upplýsingar eru veittar á staðnum þriðjudag-
inn 26. október frá kl. 15.00-17.00 eða í
síma 19555.
Reykjavík
Aðstoðar-
deildarstjóri -
hjúkrunarfræðingur
Staða aðstoðardeildarstjóra á deild A-3 er
laus til umsóknar. Um er að ræða 80-100%
starf á hjúkrunardeild með góðri vinnuað-
stöðu. Unnið er eftir hjúkrunarskráningu.
Hjúkrunarfræðingur, með reynslu af hjúkrun
aldraðra, óskast, helst eigi síðar
en 1. desember nk.
Hjúkrunarfræðingar óskast á kvöldvaktir
(frá kl. 16-24, 16-22 og 17-23).
Upplýsingar um þessi störf veita ída Atla-
dóttir, hjúkrunarforstjóri, og Jónína Nielsen,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, í símum 35262
og 689500.
Framkvæmdastjóri
Óskum að ráða framkvæmdastjóra til starfa
hjá Hafnarfjarðarhöfn.
Starfssvið framkvæmdastjóra:
★ Stefnumótun, skipulagning og dagleg
framkvæmdastjórn.
★ Yfirumsjón og framkvæmd kynningar og
markaðssetningar.
★ Mótun heiidarstefnu um skipulag, land-
nýtingu, tæknimál, flutninga og þjónustu-
stig í samvinnu við bæjarstjóra og hafnar-
stjórn.
★ Gerð rekstrar- og greiðsluáætlana og
dagleg fjármálastýring.
★ Efla tengsl við núverandi viðskiptavini og
styrkja viðskiptasambönd hafnarinnar,
greina þarfir þeirra um betri/aðra þjón-
ustu.
★ Auka samstarf við núverandi þjónustuað-
ila á hafnarsvæðinu og afla nýrra ef nauð-
syn krefur.
Kröfur til umsækjenda:
★ Verkfræði/tæknimenntun æskileg ásamt
menntun og/eða þekkingu á sviði stjórn-
unar, markaðs- og fjármála.
★ Reynsla af fyrirtækjarekstri og stjórnun
nauðsynleg.
★ Vera sjálfstæður í starfi, en eiga jafngott
með að starfa með öðrum.
★ Hafa frumkvæði, framtakssemi og góða
skipulagshæfileika.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningaþjónustu Hagvangs hf. merktar:
„Framkvæmdastjóri 271 “ fyrir 5. nóvember nk.
Hagvangurhf
Skeifunni 19
Reykjavík
Sími 813666
Ráðningarþjónusta
Rekstrarráðgjöf
Skoðanakannanir
NÝHERJI
SKAFTAHllÐ 24 • SlMI 69 77 00 & 69 77 77
Alltof skrejt á undan
óskar að ráða kerfisfræðing tii starfa í
tæknideild vegna nýrra verkefna deildar-
innar.
Leitað er að drífandi einstaklingi, sem hefur
reynslu af AS/400 hugbúnaði. Starfið fer
að mestum hluta fram hjá viðskiptavinum
fyrirtækisins. Viðkomandi þarf að geta unnið
sjálfstætt, hafa trausta framkomu, vera þjón-
ustulipur og tilbúinn að vinna þó nokkra auka-
vinnu. Farið verður með allar umsóknir sem
trúnaðarmál.
Allar nánari upplýsingar og umsóknareyðu-
blöð fást á skrifstofu Guðna Jónssonar,
Tjarnargötu 14, og skal umsóknum skilað
á sama stað fyrir 1. nóv. nk.
GUÐNT ÍÓNSSON
RAÐCJÖF &RAÐNINCARNONUSTA
TIARNARGÖTU 14. 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Gæðastjóri
Kjötsölufyrirtæki, sem er í eigu margra slát-
urleyfishafa og rekur auk þess eigin kjöt-
vinnslu, óskar eftir að ráða gæðastjóra frá
15. nóvember 1993, eða sem fyrst.
Helstu verkefni gæðastjórans eru að hafa
umsjón með gæðamálum í kjötvinnslu fyrir-
tækisins, vera tengiliður við opinbera eftir-
litsaðila, sinna ráðgjöf og fræðslu varðandi
fyrirkomulag og búnað sláturhúsa, meðferð
sláturdýra, slátrun, meðferð á kjöti, sláturaf-
urðum og kjötvinnsluvörum.
Viðkomandi þarf að hafa frumkvæði, geta
unnið sjálfstætt og vera laginn í mannlegum
samskiptum.
Óskað er eftir umsækjendum með próf í
dýralæknisfræði eða matvælafræði.
Umsóknir, með ítarlegum upplýsingum um
menntun og fyrri störf, sendist til Ráðningar-
þjónustu Hagvangs hf., merktar: „Gæða-
stjóri“, fyrir 1. nóvember 1993.
Hagvaj ngurhf
Skeifunni 19 Reykjavík 1 Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Verkfræðingur -
tæknifræðingur
Opinber aðili í verklegum framkvæmdum
óskar að ráða byggingarverkfræðing eða
byggingatæknifræðing.
Starfið: Hönnun og eftirlit í tengslum við
jarðvinnuframkvæmdir.
Við leitum að sjálfstæðum aðila sem á auð-
velt með samskipti og samvinnu.
Starfsreynsla er æskileg.
Nánari upplýsingar veitirTorfi Markússonfrá
kl. 9-12 í síma 679595.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs merktar: „Hönnun - eftirlit" fyrir
30. október nk.
RÁÐGARÐURhf.
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17 105 REYKJAVÍK SÍMI 686688