Morgunblaðið - 24.10.1993, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1993
43
eftir Elínu Pálmadóttur
ALLTERÞETTA
AFSTÆTT
Allt er afstætt, sagði vitur
maður fyrr á öldinni og
sannaði það með flóknum út-
reikningi. Einfaldari úrlausn og
skiljanlegri rak á okkar fjörur í
vikunni. Spilakassamir sem í
upphafi viku voru ósiðlegir, hrein-
ustu spilavíti, eru það ekki lengur
nú í vikulokin. Ekki sannað með
útreikningum heldur samkomu-
lagi. Svona geta málin verið af-
stæð. Hvort spilakassar á fullorð-
insstöðum séu ósiðlegri en spila-
kassar með opnum aðgangi fyrir
krakka var víst aldrei rætt, enda
er það líklega ekki síður afstætt
en hver eigi rétt á að hirða gróð-
ann. Fjarskalega er nú samt gott
að þessi ofsi allur er liðinn hjá,
maður verður hálf hræddur að
heyra í fjölmiðlunum misaugljós-
ar hótanir frá prúðasta fólki og
sjá heilum flota af bílatröllum
með einbeittum jökum í æsingi
stefnt að úr öllum áttum.
Það getur verið býsna erfítt
að átta sig á öllum þessum frétt-
um sem að berast í bútum. Sam-
kvæmt afstæðiskenningunni fer
það víst eftir því hvar maður
stendur sjálfur miðað við það sem
frá er sagt. Ætli margir eigi t.d.
ekki bágt með að greiða úr öllum
þessum opinberu kostnaðar- og
eyðslutölum sem streyma að nú
í þrengingunum. 400 þúsund
krónu maðurinn lítur eðlilega •
öðru vísi á tölurnar en 70 þúsund
krónu launakonan. Fer varla á
milli mála að þau sjá þær sitt frá
hvorum sjónarhólnum. Hvað verð-
ur þá lítilsvert og hvað stórmál?
Kannski má fínna einhvern
gjaldmiðil sem allir skilja - eða
geta a.m.k. komið sér saman um.
Aliir geta víst fundið til. í frétt
um verðlagningu bæklunarlækn-
inga í blaðinu nýlega var haft
eftir yfírlækni slysa- og bæklun-
arlækninga að þorri aðgerða í
bæklunarlækningum kosti undir
120 einingum ef svæfíngalæknir
deyfir sjúkling, en einingin sé
rúm 131 kr., sem mun þá vera
tæpar 4.000 kr., ef ég kann rétt
að reikna. Hann talar að vísu líka
um dýrari aðgerðir og ljóst er að
þarna vantar ýmislegt svo sem
sjúkrahúsleguna, ef um hana er
að ræða. En þegar hugsað er til
allra þeirra sem biða og finna
til, meðan skera verður niður
bæklunaraðgerðir í spamaðar-
skyni, þá mætti kannski lina æði
stóran skammt af sársauka og
þjáningu býsna margra fyrir upp-
hæð sem fer sjálftekið í annað.
Ekki svo vitlaust að hugsa í sömu
andránni til mannsins, sem sagt
var frá í blöðum, að legið hefði
í rúminu í heilt ár kvalinn í
mjöðmum meðan hann beið eftir
að komast að í uppskurð á spít-
ala og til þess sem er að taka
100 þúsund krónu aukahlunnindi
á mánuði. Hve margar bæklunar-
aðgerðir felast t.d. í einum fimm
milljón krónu bíl, 3 milljón krónu
bíl og svo framvegis. Þarf raunar
ekki bíla til. Þegar maður sér að
risnukostnaður ríkisins hefur
lækkað um 50 milljónir á síðasta
ári samanborið við árið á undan
þá gæti býsna mörgum bæklun-
araðgerðum verið borgið af því,
eða hvað? Og ef nú opinberi
ferðakostnaðurinn, sem stóð í
stað milli ára, lækkaði eitthvað
svipað á næsta ári, þá mætti það
bæta býsna dijúgan sársauka.
Jafnvel ein veisla eða opinber
heimsókn getur í þessu ljósi kom-
ið að gagni. Eitthvað í þá áttina
virðist Norma Major, forsætisráð-
herrafrú Breta, hugsa þegar hún
lætur hafa eftir sér: Eiginkonurn-
ar koma ekki til með að gera
neitt gagn eða skila einhveijum
árangri (achieve anything), til
hvers er þá verið að eyða skatt-
peningum í að senda okkur með?
Þetta kemur jú allt úr sama
sjóðnum. Þeim sem að hugsa
stórt finnst eflaust margt svodd-
an tittlingaskítur að ekki taki þvi
að vera að nefna það, meðan
þeir sem vanir eru smáskömmt-
unum sjá það í öðru ljósi. Það
er þetta sem kallast afstæðis-
kenningin. En eftir stendur
spumingin: hveiju á að varpa
fýrir borð, þegar einhveiju verður
að fóma til að komast af?
Um þetta snúast nú allar um-
ræður. Ekki aðeins hér á landi
heldur líka í öðmm Evrópulönd-
um og víðar. Og það er gott! Ef
maður leggur við eyra fer vart á
milli mála að veröldin er á vega-
mótum. í umræðum þeirra sem
hæst ber má orðið greina að flest-
ir em búnir að átta sig á því að
nú verður ekki hjá jiví komist að
velja nýjan veg. A þeim beina
framundan er stór hindmn, að
þvl er sýnist óyfirstíganleg. Þarna
munu vera næstu stóm krossgöt-
umar síðan iðnbyltingarvegamót-
in. Og til að velja brúklega götu
verða menn á öllum hólum auðvit-
að að leiða saman hesta sína, ríf-
ast og ræða. Líklega ekki svo
vitlaust að fá inn alla gallana,
sanngjama og ósanngjama, og
varpa þeim í púlíuna.
Þannig ku í lýðræðisríki vera
aðferðin til að slípa af broddana.
Sú aðferð gafst vel á sínum tíma
hjá Richelieu kardinála, æðsta
valdamanni Frakklands á tímum
Loðvíks 13. á 17. öld. Sagt er að
í tíðum veislum hans hafi ógeð
hans á gestum sem stönguðu úr
tönnunum með oddinum á hnífn-
um sínum, orðið til þess að prelát-
inn skipaði svo fyrir að allir hnífs-
oddar borðtólanna skyldu sorfnir
af. Allar götur síðan hafa borð-
hnífar verið hin brúklegustu og
geðfeldustu tól. Og vita skaðlaus-
ir. Þessa sögu má lesa í bók sem
nefnist Þróun gagnlegra hluta
eftir Henry Petroski. Vonandi eru
hlutirnir að þróast hjá okkur í
gagnlega átt í öllum þessum lát-
um.
ENSKA ER OKKAR MAL
SÉRMENNTAÐIR ENSKIR KENNARAR • LIFANDI NÁMSKEIÐ
Ný 7 vikna námskeið
Áhersla á talmál
10 kunnáttustig
Hámark 10 nem. í bekk
Enskuskólinn
TÚNGATA 5 - SÍMI 25330
Linda P.
Bertha
BETRISTOÐ ■ BETRIPJONUSTA!
MEIRIHÁTTAR TÆKJASALUR - ÞJÁLFUN ÖLL KVÖLÐ
Einn best búni tækjasalur landsins, nýlega stækkaður og yfirfarinn. Mikið af nýjum tækjum frá
Competition Line í Svlþjóð. Ef þú vilt æfa á afslöppuðum stað, með toppþjálfara við hendina og
fjölbreytt æfingatæki er Ræktin rétti staðurinn fyrir þig. Láttu sjá þig og við tökum vel á móti þér -
því fyrr því betra. ,_ ,
NYTT FITUBRENNSLUNÁMSKEIÐ
Nýtt 8 vikna námskeið hefst miðvikudaginn 27. okt. fyrir byrjendur og þé sem vilja taka vel á.
Við leggjum áherslu á að fræða þig um ástæðu offitu og hvernig á að ná varanlegum árangri.
Útbýti meö greinum, skýringum og næringarfræði. Fyrirlestrar um mataræði og hreyfingu.
Vigtun, fitumæling o.fl. Þolfimi þrisvar í viku. Tækjasalur tvisvar í viku. Þeir sem missa 8 kíló
eða fleiri fá frítt mánaðarkort hjá Ræktinni. Takmarkaður fjöldi kemst að. Skráið ykkur strax!
TÍMATAFLAN f RÆKTINNI:
Mónudagur Þriöjudagur Ftmmtudagur Föstudagur Laugardagur
10; 30-11:30 MRL ♦ Pallar MRL + Pallar i j 11Æ0 Fitubr. opin
12.-00 Kariatímar Kariatímar Kartatímar | Kariatímar I MRL + Pelar
14:00-15.-00 MRL + Pafar MRL + Pallar 13:00 PaNar + æf.
16:30-17:» PaHar + æf. Pallar aef. Pallar + Jrf.!ftubr-°^n
17:30-18:30 Þrek MRL + Pallar Þrek MRL + PaHar MRL + Pallar
18:30-19:30 MRL + Pallar Prekhringur MRL + PaHar t-. i ' Fitubrennsla Prennnngur ^ j öyrjenaat.
19:3020:30 Fitubrennsla Byrjendat. MRL Fttubrennsla Byrjendat. MRL
20:3021:» Fitubr. opin Framhaldst. Pallar + æf. Fitubr. opin Framhaldst Pallar + æf.
Fullkominn tækjasalur.
Vatnsgufa.
Fjölbreyttir þolfimitímar
á dýnulögöu
æfingagólfi.
Þrautreyndir kennarar.
Fjölskyldutilboð.
DÚNDUR STÖÐ
Gíldir frá 1. sept.
FROSTASKJÓLI 6
SlMAR 12815 & 12355
FASTEIGNIR
Á SPÁNI
Verð frá fsl.
kr. 1.500.000,-
Glæsilegt úrval, við strönd
eða fjær, eftir óskum.
____________________
tstl H
Metsölublað á hverjum degi!
ABYRGIR AÐILARIARATUGI
INtehhationa~l umboðið á íslandi, sími 91 -44365.
7ár á íslandi
Fjöldi einstaklinga, fjölskyldna
og fyrirtækja eiga nú
íbúðir/raðhús/einbýlishús frá
þessu trausta fyrirtæki.
Mánaðarlegar skoðunarferðir.
Vinsamlegast leitið
upplýsinga og fáið
myndabækling.