Morgunblaðið - 14.11.1993, Blaðsíða 1
80SIÐURB/C
STOFNAÐ 1913
260. tbl. 81. árg. SUNNUDAGUR14. NÓVEMBER1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins
„Svínsleg sam-
þykkt“ í Ohio
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara
Morgunblaðsins.
BANDARÍKJAMENN finna sér víða
gæludýr. Haft hefur verið á orði að
kakkalakkar dragi úr einmanaleika
New York-búa og um skeið drógu Kal-
iforníu-búar steinvölur á eftir sér í
bandi. Nú hefur fjölskylda ein í þorpinu
Piqua í Ohio bundist svíninu sínu slík-
um tryggðarböndum að hún hefur sett
húsið sitt á sölu og hyggst flytja brott
eftir að þorpsbúar samþykktu í at-
kvæðagreiðslu að svínið skyldi burt.
Ibúar Piqua voru þeirrar hyggju að
þorpið myndi fyllast af geitum og naut-
gripum ef svínið yrði leyft. „Við ætlum
að flytja vegna þess að við viljum flytja,
af því að okkur finnst við ekki hafa
gert neitt rangt,“ sagði Cynthia Gast-
on. „Við ætlum að standa með sannfær-
ingu okkar.“ Gaston-fjölskyldan hefur
30 daga til að forða sér með svínið
Roxie.
Reynt að banna
Dr. Martens-skó
DEILA hefur blossað upp i unglinga-
skóla í Texas um hvort banna eigi Dr.
Martens-skó, sem eru í tísku meðal
bandarískra ungmenna. Lögregluyfir-
völd höfðu skýrt skólanefndinni frá því
að hópur nýnasista í héraðinu gengi í
slíkum skóm og nefndin brást þá skjótt
við. „Við umberum ekki kynþáttahatur
af nokkru tagi í skólanum okkar,“ sagði
aðstoðarskólastjórinn, Leslie Cantrell,
og skórnir voru því bannaðir á mánu-
dag. Daginn eftir ríkti glundroði í skól-
anum, því nemendurnir harðneituðu
að skilja skóna eftir heima. „Ég er
þeirrar skoðunar að við verðskuldum
tjáningarfrelsi," sagði einn nemend-
anna. Dr. Martens-skór hafa verið
framleiddir í Englandi í rúm 30 ár og
komust í tísku í Greenwich Village í
New York fyrir tveimur árum. í fyrstu
voru það aðallega hommar og harðir
femínistar sem gengu í skónum.
Útsýnisflug yfir
Moskvu með MiG
ÞEIM sem vilja öðruvísi útsýnisflug
yfir Moskvu býðst nú flugferð i aftur-
sæti rússnesku orrustuþotunnar MiG-
23. Japönsk ferðaskrifstofa býður upp
á pakkaferð með slíku flugi ásamt
stuttri kynningu á þotunni og læknis-
skoðun sem er skilyrði fyrir því að fá
að fara í útsýnisflugið. Farþegarnir
mega ekki vera yngri en 15 ára eða
eldri en 55 ára.
Morgunblaðið/RAX
LITILL SMALI OG HUNDURINN HANS
600 sjúklingar í Bosníu
í hættu vegna bardaga
Serbar viðurkenna í fyrsta sinn „stríðsglæpi“ hermanna sinna
Visoko, Belgrad. Reuter, The Daily Telegraph.
UM 600 sjúklingar á tveimur sjúkra-
húsum í Mið-Bosníu, þeirra á meðal
mörg börn, eru sagðir í mikilli hættu
vegna harðra sprengjuárása serb-
neskra og króatískra hersveita. Serb-
neskir embættismenn og ríkisfjölmiðl-
ar hafa nú í fyrsta sinn skýrt frá því
að serbneskir hermenn hafi framið
ýmis óhæfuverk í stríðinu í Bosníu
og orðrómur er á kreiki í Belgrad um
að serbneska sljórnin kunni að fallast
á að framselja meinta stríðsglæpa-
menn svo sérstakur dómstóll Samein-
uðu þjóðanna geti yfirheyrt þá.
Sjúkrahúsin eru í bæjunum Bakovici og
Fojnica, sem eru í fjallahéraði vestur af
höfuðborginni, Sarajevo. Harðir bardagar
geisa nú milli múslima og Króata á þessu
svæði. Um 135 króatískir borgarar kúldr-
ast í kjallara í Fojnica og þora ekki út
vegna ótta við að múslimar refsi þeim.
Króatískar hersveitir, með fulltingi Serba,
hafa hafið mikla sókn á þessum slóðum til
að tengja tvö yfirráðasvæði sín í Bosníu.
Talsmaður friðargæslusveita Sameinuðu
þjóðanna sagði að sjúkrahúsið í Fojnica
væri í svo mikilli hættu að kanadískum og
dönskum hermönnum hefði verið fyrirskip-
að að vera viðbúnir því að koma fólkinu
til bjargar þá og þegar.
Sprengjum hefur verið skotið á lóð
sjúkrahússins í Bakovici. Starfsmenn
sjúkrahúsanna tveggja mættu ekki til vinnu
í gær, laugardag. Rafmagnslaust er á báð-
um sjúkrahúsunum og hörgull á eldiviði.
Stríðsglæpamenn framseldir?
Embættismenn og fjölmiðlar í Belgrad
eru nú farnir að ræða opinskátt „stríðs-
glæpi“ serbneskra hermanna í fyrsta sinn
frá því stríðið í Bosníu hófst fyrir um tveim-
ur árum. Serbneska stjórnin hefur hingað
til neitað að eiga samvinnu við stríðsglæpa-
dómstól Sameinuðu þjóðanna, sem fjallar
um meinta stríðsglæpi í fyrrverandi lýðveld-
um Júgóslavíu í Haag á næstu dögum.
Líkur eru taldar á að serbneska stjórnin
hafi nú breytt afstöðu sinni og sé jafnvel
reiðubúin að framselja meinta stríðsglæpa-
menn.
Serbnesku embættismennirnir beina að-
allega spjótum sínum að Vojislav Seselj,
sem var áður skjólstáeðingur Slobodans
Milosevics forseta en stóð fyrir vantrausts-
tillögu gegn forsetanum sem leiddi til þess
að þingið var leyst upp í síðasta mánuði.
Lögreglan hefur handtekið 40 stuðnings-
menn Seseljs og sakað þá um nauðganir,
morð, rán og hryðjuverk. Embættismenn
sögðu að þeir kynnu að verða ákærðir fyr-
ir stríðsglæpi.
HAGSM
OG
é
Qrrahríð
Mafnamanns
Jtk 18
. v 4 %
LOUVRE
SURTSEY
ÞRÍTUG