Morgunblaðið - 14.11.1993, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1993
Alesscmdra Mussolini, sonardóttir Benitos Mussolini og þingmaóur
nýfasista, ó góða möguleika ó því að verða næsti borgarstjóri í Napólí
ÞEGAR sjö helstu iðnríki heims hittast í Napólí á næsta ári, kann
að vera að á móti þeim taki borgarstjóri sem ber nafn óafmáan-
lega skráð í sögu Evrópu. Alessandra Mussolini, þingmaður nýfas-
ista á ítalska þinginu og barnabarn einræðisherrans Benitos
Mussolinis, sækist eftir embætti borgarstjóra í Napólí og í nýj-
ustu skoðanakönnunum hefur hún 8% forskot á keppinauta sína.
Nafn hennar hefur hrifið þúsundir Napólíbúa, sem selja ekki
fyrir sig fátæklegan málatilbúning þessa upprennandi stjórnmála-
manns og afkomanda II Duce - leiðtogans.
Afinn- Benito Mussolini, einræóisherra Ital-
íu 1 926-1 945, er enn dáóur meóal margra
Napólíbúa.
Barnabarnió- nafn Aless-
öndru Mussolini hefur aflaó
henni mikils fylgis í Napólí. Hún
hefur hins vegar fengið nóg
af því að standa í skugga afa
síns, Benitos Mussolini.
rátt fyrir að Alessandra Mus-
solini hafi frá barnsaldri sóst
eftir frægð og frama, virðist hin
skyndilega velgengni hennar nú
hafa komið henni á óvart. Na-
pólíbúar hafa tekið henni opnum
örmun, í fyrsta skipti í fimmtán
ár hafa borgarbúar flykkst út á
götur til að taka í hendur fram-
bjóðanda. Þeir setja það ekki fyrir
sig þó að Alessandra sé ekki Na-
pólíbúi, heldur minna á hverra
manna hún sé.
Allur samanburður við afann
Benito er Alessöndru Mussolini
hins vegar í óhag. Jafnvel aðdá-
endur hennar viðurkenna að þegar
nafninu sleppi, búi hún yfir litlu
sem engu af þeim persónutöfrum
sem einkenndu hann. Auk þess sé
hún illa að sér í stjórnmálum, ekki
síst því er varðar atvinnu og lög-
gæslu, þeim málefnum sem brenna
heitast á Napólíbúum.
Hrifning borgarbúa á fasisman-
um á sér sögulegar og efnahags-
legar skýringar. Afstöðu Na-
pólíbúa er ef til vill best lýst með
slagorðinu „Napólí er ekki ítölsk“.
Allt fram til ársins 1860 var borg-
in undir stjóm annarra en ítala.
Borgarbúar hafa verið konungs-
sinnar og þar hefur verið áberandi
hin ríka þörf fyrir bjargvætt. Hún
á sér rætur í sögu borgarinnar og
hinni miklu fátækt sem hefur ver-
ið viðvarandi allt frá því að hún
var sameinuð Ítalíu árið 1860. í
augum margra borgarbúa tákna
þeir sem eru utanaðkomandi pen-
inga, velgengni og völd. Dæmi um
þetta er knattspyrnumaðurinn Di-
ego Maradona, sem var nánast
tekinn í guðatölu er hann lék með
liði Napólí. Drengirnir sem bera
nafn hans skipta nú þúsundum í
borginni.
Leikkona eins og frænka
Faðir Alessöndru, djasspíanist-
inn Romano, var eftirlætissonur
leiðtogans Benito Mussolini og
leikkonan Sophia Loren er móður-
systir hennar. Alessandra var ekki
nema fimmtán ára þegar hún lék
með móðursystur sinni í kvik-
mynd, sem var hörð árás á fasis-
mann. Árið 1980 urðu frænkumar
hins vegar ósáttar og voru litlir
kærleikar með þeim næsta áratug-
inn.
Tvítugri bauðst Alessöndru að
sitja fyrir hjá Playboy-tímaritinu,
sem hún þáði auk þess sem hún
vann sem sýningarstúlka. Frægðin
virtist innan seilingar árið 1985
er hún fékk hlutverk í bandarískri
kvikmynd, en eftirnafn hennar
stóð í framleiðendum myndarinnar
og hún var svipt hlutverkinu.
/Alessandra giftist Mauro Flor-
iani, fjármálastjóra hersins, árið
1989. Hún hélt áfram kvikmynda-
leik og sættist við Sophiu frænku
sína. A síðasta ári bauð hún sig
fram í þingkosningum, flestum að
óvörum, og situr nú á þingi fyrir
flokk nýfasista. Hún hugðist eigna
sér sæti það sem afi hennar sat í
áður en hann varð forsætisráð-
herra en mætti of seint á þingfund
og varð af stólnum.
Með þingstörfum stundar Aless-
andra nám í læknisfræði við
Rómarháskóla og tók sér fyrir
skömmu upplestrarfrí fyrir próf.
Hefur hún lagt kapp á að ljúka
námi svo hún geti snúið sér óskipt
að stjórnmálunum, svo hart að hún
var sökuð um að hafa falsað prófn-
iðurstöður á síðasta ári.
Að vera öðruvísi
Napólíbúar hafa tekið málefn-
afátækt Alessöndru með ro og
vanþekking hennar á stjórnmálum
hefur raunar komið henni til góða,
nú þegar alda spillingarmála hefur
riðið yfir ítölsk stjórnmál. Fyrr á
árinu voru til dæmis 17 borgarfull-
trúar í Napólí sakaðir um að tengj-
ast skipulagðri glæpastarfsemi og
borgarráðinu var vikið frá vegna
óhóflegrar skuldasöfnunar. Hefur
Alessandra lýst því yfir að það
eina sem hún hafi lært af stjórn-
málaþátttöku sinni, sé að hún vilji
ekki líkjast stjórnmálamönnum á
nokkurn hátt. Alessandra sættir
sig ekki lengur við að standa í
skugga afa síns. Er hún sóttist
eftir þingsæti fyrir hálfu öðru ári,
átti hún ekki til nógu sterk orð
til að lýsa ágæti hans. Nú biðst
Alessandra hins vegar undan því
að ræða um „Leiðtogann“, segir
enga ástæðu til að velta sér upp
úr minningum um löngu liðna tíma
Á veggjum aðalstöðva nýfasista
hanga fjölmargar myndir af Ben-
ito Mussolini en barnabarninu þyk-
ir ekki nóg að gert. „Þetta er svo
sem gott og blessað, en hvar eru
myndirnar af mér?“
(Byggt á The European.)
heili Lenms
í 31 .ooo
SNEIÐUM
Ekkert
sérstakur
Heilinn á bak-
vió valda-
rán bolsje-
vikka í Rúss-
landi.
ÞÓTT svo kunni að fara að lík
Vladímírs Leníns verði látið
rotna í kirkjugarði í Péturs-
borg verður heilinn hans að
öllum líkindum varðveittur um
alla eilífð. Heilinn í Lenín hefur
verið skorinn í 31.000 sneiðar
og er geymdur í herbergi 19 í
Heilastofnuninni í Moskvu. Til
að komast inn í þetta herbergi
þarf að opna þrennar læstar
dyr úr hertu stáli.
Sneiðar af heila Stalíns eru
geymdar á sömu-hæð. Hlutar
af heila Vladímírs Majakovskíjs,
byltingarskáldsins sem skaut sig,
enr í næsta herbergd. Og verið er
að skera heila eðlisfræðingsins og
andófsmannsins Andrejs Sak-
harovs niður í hæfílega stóra bita
svo hægt verði að rannsaka hann
til hlítar í smásjám.
Ekkert sérstakur!
Stolt stofnunarinnar er þó heil-
inn í Lenín. „Enginn heili hefur
verið rannsakaður svo gaumgæfi-
lega,“ segir yfírmaðurinn, Oleg
Adríanov, sem er sjötugur og hef- •
ur starfað hjá stofnuninni í 32 ár.
Hann er með mynd af Lenín, lif-
andi og íbyggnum, á veggnum.
Mikil leynd hefur hvílt yfir
stofnunni frá því henni var komið
á fót árið 1926 til að afhjúpa
leyndardóminn á bak við „snilli-
gáfu Lenfns“. Eftir allan þennan
tíma var fyrsta ritgerðin umradn-
sókniraar birt n'ýlega. Hetsta nið-
urstaðan var: Heiii Leníns er e.kk-
ert sérstakur.
„Enginn snillingur"
Pjárskortur hamlar mjög starf-
semi stofnunarinnar. Sérhönnuð
smásjá með myndskjá, keypt í
Austurríki, er biluð. Heilaskerinn
. - sem er sérhannaður eh ktemi
, að góðuip notum í hvaða-kjötbúð
sem er - er illa farinn. Starfs-
menn stofnunarinnar snæða há-
degisverðinn með heilabú í heilu
lagi eða í sneiðum á borðinu fyrir
framan sig.
Heili Leníns er
geymdur í
stórum viðar-
skápum í her:
bergi 19. í
skápunum eru
skúffur, vand-
lega merktar.
(A einni þeirra
stendur:
„Hægra heila-
hvel, sam-
stæða 1-18,
hlutar 1-35.)
Um 1.000
sneiðar hafa
verið litaðar
fjólubláar og
svartar svo
hægt verði að
rannsaka þær
í smásjá.
Stærsti hluti
þeirra er þó ólitaður, mjólkurgrár
og bíður þess að fram komi nýjar
aðferðir til að afhjúpa hugsanlega
leyndardóma heilans.
í herberginu er annar skápur
með 14 þykkar bækur, bundnar
inn í grænt leður með áletrun-
inni: LENÍN. í þessum bókum er
eitt af viðkvæmustu leyndarmál-
um Sovétríkjanna fyrrverandi -
nákvæm kortlagning á heila Len-
íns.
Heilinn sjálfur er visinn og
smár. Stór hluti vinstra heila-
hvelsins skemmdist af völdum
heilablóðfalls. Adríanov vísar hins
vegar á bug sem „reginfirru"
sögusögnum um að hluti heilans
hafi étist upp af völdum sárasótt-
ar.
Ekki fleiri stjórnmálalieila
takk!
Það var þýskur taugafræðing-
ur, Oskar Vogt, sem var fenginn
til að koma heilastofnuninni á
fót. Vogt taldi að bein tengsl
væru á milli lögunar eða stærðar
heilans og gáfna, en fáir vísinda-
menn leggja trúnað á þá kenningu
nú orðið.
Adríanov segir að hægt verði
að geyma heilasneiðarnar úr Len-
ín „til eilífðar“ og kveðst vona að
vísindamerm fínni nýjar aðferðir
til að rannsaka.þær í framtíðmm.
Hann hpfur þó engan hug á að
fá heila úrfíeiri etjórnmálamönn-
um, af þeiin hefur hann fengið
nóg. „Þeirra eru ekkl áhugáverð-
ustu heilarnir."
Heimild: The Independent.