Morgunblaðið - 14.11.1993, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 14.11.1993, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1993 + Móðir okkar, RÓSA ERLENDÍNA ERLENDSDÓTTIR, áðurtil heimilis á Miklubraut 15, lést á Hrafnistu 9. nóvember, verður jarðsungin frá Fossvogs- kapellu mánudaginn 15. nóvember kl. 15.00. Erla Axelsdóttir, Pétur Axelsson, Hilmar A. Kristjánsson. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ JÖRGENSDÓTTIR, Hraunbæ 18Z, sem lést í Landspítalanum 5. nóvem- ber, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn 16. nóvember kl. 13.30. Pétur Hallgrímsson, Hallgrímur Pétursson, Áslaug Haraldsdóttir, Jörgen Pétursson, Guðrún Benjaminsdóttir, Jóhanna Pétursdóttir, Rafn Guðmundsson, Sólborg Pétursdóttir, Sturla Jóhannsson, Kristín Pétursdóttir, Þóroddur Gunnarsson, Sofffa Pétursdóttir, Pétur Pétursson, Anna Soffía Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐNÝJAR OTTESEN ÓSKARSDÓTTU R, Aflagranda 40, Reykjavík, verður gerð frá Dómkirkjunni miðviku- daginn 17. nóvember kl. 13.30. Theodóra G. Gunnarsdóttir, Viihjálmur B. Kristinsson, Óskar G.H. Gunnarsson. Eyrún Gunnarsdóttir, Gunnar H. Gunnarsson, Þorsteinn Þ. Gunnarsson, Hekla Gunnarsdóttir, Einar Gunnarsson, GunnarG. Smith, Sigurður Kjartansson, Þórunn Sigurðardóttir, Sigrún Jóhannsdóttir, Sævar Magnússon, Oddf riður Jóhannsdóttir, Ingibjörg Jensdóttir og barnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JAKOBÍNA BJARNADÓTTIR, Litlu-Grund, áðurtil heimilis á Hringbraut 105, sem andaðist í Landspítalanum laugar- daginn 6. nóvember sl., verður jarð- sungin í Dómkirkjunni þriðjudaginn 16. nóvember kl. 10.30. Páll Guðbjartsson, Guðbjartur Pálsson, Nita Pálsson, Inga Valdís Pálsdóttir, Jakobfna Ingibergsdóttir, Ásta Brynja Ingibergsdóttir, Kolbrún Ingibergsdóttir, Helena Pálsson, Kristfna Pálsson og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ÞÓRÐAR JÓHANNS ÞÓRISSONAR, Skólavörðustfg 29a, Reykjavfk. Vignir Jónsson, Ingibjörg Þórðardóttir, Þórir Jóhannsson, Ingibjörg Sveina Þórisdóttir, Georg Hauksson, Einar Björn Þórisson, Hafrún Sigurðardóttir, Anna Þórisdóttir, Ágúst Garöarsson, Ágústa Ruth Georgsdóttir, Kristín Erla Einarsdóttir, Karen Björk Einarsdóttir, Berglind Einarsdóttir, Erla Björk fvarsdóttir. Minning Pálína Guðlaugs- dóttir ljósmóðir Fædd 3. september 1898 Dáin 1. nóvember 1993 Ástkær Ljósa mín og ömmusyst- ir, Pálína Guðlaugsdóttir ljósmóðir, lést á Dvalarheimilinu Skjóli 1. nóv- ember síðastliðinn. Hún hafði fyrir skömmu notið þess þar, að halda upp á 95 ára afmæli sitt, við glað- værð og góða andlega heilsu meðal fjölskyldu og vina. Kallið var þó í nánd og gott að fá að kveðja að loknum starfsdegi. Pálína (Ljósa) var fædd að Þórð- arkoti í Selvogi, Árnessýslu, 3. sept- ember 1898. Hún var dóttir hjón- anna Guðrúnar Guðmundsdóttur og Guðlaugs Hannessonar, síðar bónda að Gerðarkoti í Ölfusi. Hún var ógift og átti engin böm. Örlögin réðu þó því, að hún var umvafin börnum allt sitt líf, þótt ekki væru hennar eigin. Árið 1919 lauk hún ljósmæðra- prófi frá Yfirsetukvennaskólanum í Reykjavík með fyrstu ágætisein- kunn. Nokkrum árum síðar hélt hún til Kaupmannahafnar til að afla sér frekari þekkingar við fæðingardeild Ríkisspítalans þar í borg. Góður árangur hennar kemur ekki á óvart, þar sem að skörp greind og afburða- gott lundarfar fóm saman. Lækn- amir Jón Nikulásson og Kristín Ólafsdóttir lýsa henni með þessum orðum í bréfum: „Ljósmóðurstörfin hafa henni farið vel úr hendi, svo betur get ég ekki á kosið,“ „... hún er hvort tveggja afbragðs vel kunn- andi og samviskusöm Ijósmóðir". Þá má geta þess að margt er líkt með skyldum. Langamma Pálínu var Vatnsenda-Rósa, eða Skáld- Rósa, sem einnig var ljósmóðir, þótt minna bæri á því hlutverki hennar en skáldskapnum. í bók Rósu Blöndal „Skáld Rósa“ segir, „... að Rósa Guðmundsdóttir hafí verið heppin ljósmóðir ... væri ljós- móðir með afbrigðum". Margt ann- að virðist einnig hafa verið líkt með þessum gefandi konum, svo sem óstöðvandi ósérhlífni og góðvild til samferðamanna sinna. Pálína stundaði ljósmóðurstörf af fullum krafti þar til hún var 73 ára gömul og varð að hætta vegna aldurs. Ekki settist hún þó í helgan stein, eins og vænta mátti. Tók hún að sér að leysa af sem matráðskona hjá Blindrafélaginu í nokkrar vikur. Þessar vikur urðu þó að 14 árum. Var hún því orðin 87 ára þegar hún hætti störfum að fullu. „Hún var matráðskona með miklu meiru," var einatt sagt um hana, alltaf tilbúin að hjálpa og gefa góð ráð. Á hálfr- ar aldar afmæli Blindrafélagsins, í ágúst 1989, var hún síðan kjörin heiðursfélagi fyrir mikið og óeigin- gjarnt starf í þágu blindra. í nóvember 1968 gerðist það, að systurdóttir hennar, Rósa Guð- mundsdóttir sem blind var frá bam- æsku, missti eiginmann sinn, Einar Halldórsson blindrakennara. Stóð Rósa nú ein uppi með Helgu dóttur þeirra, þriggja ára. Þá var það enn einu sinni að Pálína brást skjótt við, á sinn hægláta hátt, aðstoðaði hún þær mæðgur og reyndist þeim styrk hjálparhella í gegnum tíðina. Helga naut sérstaklega aðhlynning- ar hennar á uppvaxtarárum sínum. Kenndi Ljósa henni þau verk sem blind móðir hennar réð ekki við. Þegar Helga og Jakob maður henn- ar síðan eignuðust böm var Ljósa enn mætt til aðstoðar og fræðslu. Þá naut hún þess til hins ýtrasta og hafði ánægju af því að fylgjast með uppvexti bamanna Rósu og Páls. Ljósa mín hefur haft djúp áhrif á afstöðu mína til lífsins og tilver- unnar. Persónuleiki hennar og framkoma öll var með þeim hætti, að hún auðgaði umhverfi sitt; menn urðu betri menn í návist hennar. Á ég fjöldamargar minningar um hana frá bamsaldri, þar sem hún var tíður gestur á æskuheimili mínu í Vogatungu. Natni hennar við mig og önnur börn á þessum árum, gleymist ekki. Hún var yndisleg manneskja, yfirveguð en kát, greind og skemmtileg. Þoldi engan veginn sút né volæði. Sem fullorðnar manneskjur nutum við, ég og eigin- maður minn, Karl T. Esrason, sér- staklega návistar hennar. Höfðum við það fyrirkomulag á þegar hún gerðist fullorðnari að vera bílstjórar hennar. Hún átti farkostinn, en við nutum góðs af og höfðum bíl fyrir okkur í staðinn. Oft var glatt á hjalla í þessum ökutúram, allir ánægðir, jafnt farþegar sem öku- þórar. Á heimili hennar 1. nóvem- ber 1985 giftum við Karl okkur. Einhvem veginn fannst okkur það vel við hæfí, eftir allar okkar ánægjulegu samverustundir á liðn- um áram. Við fráfall Ljósu minnar verður stórt skarð fyrir skildi. Sanngjam- ari manneskju hef ég ekki kynnst um ævina. Fyrir hennar hönd vil ég færa heimilisfólkinu, 6. hæð á Skjóli, svo og öllu starfsfólki, inni- legustu þakkir fyrir frábæra umönnun og elskulegheit, svo og öðram sem styrktu hana og studdu á erfiðri stundu. Elsku Ljósa: Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. (Skáld-Rósa) Þakka þér fyrir að taka á móti mér í þennan heim. Megi ljósið ávallt lýsa þér. Hvíldu í friði. Helga Magnúsdóttir. Pálínu Guðlaugsdóttur, „Ljósu“, kynntist ég skömmu eftir að ég + Elskulegur unnusti minn og faðir, NIELS PETER KNUDSEN, Kirkjutorgi 6, verður jarðsunginn frá Landakotskirkju miðvikudaginn 17. nóvem- ber kl. 13.30. Elísabet Hjaltested, Þráinn Emmanúei Kim Knudsen. LOKAÐ Lokað verður á morgun, mánudaginn 15. nóvem- ber, frá kl. 10.00-13, vegna jarðarfarar RÍKHARÐS GUÐJÓNSSONAR. Ræsir hf. kynntist konunni minni, Helgu Magnúsdóttur, 1976. Ljósa tók á móti henni Helgu auk þess að hafa tekið á móti tengdamóður minni, Gyðu Guðmundsdóttur, á sínum tíma. Það má því segja, að þótt hún hefði aldrei gert meira fyrir mig, þá veitti hún mér ómælda birtu og yi- Strax og við kynntumst, tókst með okkur góður vinskapur, þrátt fyrir hálfrar aldar aldursmun. Hún hafði þá látið af ljósmæðrastörfum. Hún var þó ekki sest í helgan stein, því að eftir að hún hætti þeim störf- um, tók hún að sér annað mikið og fórhfúst starf; hún sá um mötu- neyti og matseld fyrir Blindraheim- ilið í Hamrahlíð. Þar matreiddi hún alla virka daga fyrir u.þ.b. 30 manns, þar til hún var komin á níræðisaldur og þótti maturinn allt- af frábær. Ljósa var hógvær merkiskona og börn hændust að henni mjög. Hún þótti framúrskarandi ljósmóðir og lét sér ekki allt fyrir bijósti brenna. Áður en bifreiðar komu mikið til sögunnar á íslandi, stundaði hún sín störf og fór ríðandi til sængur- kvenna. Meðal annars 'fór hún á hesti í blindbyl yfír Hellisheiði til að taka á móti barni í Ölfusinu og gekk allt vel. Hún var ein af fyrstu konum til að eignast og aka bifreið hér á landi og ók hún allt fram á níræðisaldur- inn. Það var um það leyti sem ég kynntist henni. Við urðum góðir vinir og höfðum mikið samband, því Helga og hún höfðu alltaf verið mjög nánar. Svo náið og gott var okkar samband, að hún sýndi okkur Helgu þann heiður að vera vottur að giftingu okkar á heimili sínu 1. nóvember 1985. Það er mikill missir að Pálínu Guðlaugsdóttur. Hún átti við lélega heilsu að stríða síðustu árin, sem gerði henni lífið erfítt, þótt hún kvartaði aldrei og dró heldur úr ef aðspurð. Ég votta öllum vinum og vandamönnum djúpa samúð. Minnig hennar mun lifa í hjörtum okkar, sem hana þekktu. Hvíli hún í friði. Karl T. Esrason. Pálína Guðlaugsdóttir lést á hjúkranarheimilinu Skjóli 1. nóvem- ber. Þar tók hún á móti gestum á 95 ára afmæli sínu 3. september síðastliðinn af alkunnum rausnar- skap. Pálína (Ljósa okkar) var fædd í Þórðarkoti í Selvogi. Foreldrar hennar vora þau Guðlaugur Hann- esson (fæddur 3. september 1858, dáinn 20. febrúar 1941), bóndi í Þórðarkoti í Selvogi og síðar í Gerðakoti í Ölfusi og kona hans Guðrún Guðmundsdóttir (fædd 5. desember 1863, dáin 4. ágúst 1940). Foreldrar Guðlaugs voru þau Hannes Guðmundsson (fæddur 20. júlí 1800, dáinn 8. mars 1888, bóndi í Björk í Flóa 1826-1828, Arnar- hóli 1828-1835, Hlíðarenda í Ölf- usi 1835-1851, Króki í Hjalla- hverfi 1851-1860 og síðast á Hjalla í Ölfusi) og þriðja kona Hannesar, Herdís Helgadóttir, húsfrú á Hjalla í Ölfusi (fædd á Þurá 26. október 1831, dáin 31. júlí 1872). Foreldrar Guðrúnar, móður Pálínu, voru þau Guðmundur Ólafsson, bóndi í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.