Morgunblaðið - 14.11.1993, Síða 34
34
MoítGUNBLÁÐIÐ
MINNINGAR sM
14. NÓVEMBER 1993
4
Það kostar minna
en þig grunar að
hringja til útlanda
PÓSTUR OG SÍMI
*58 kr.: Verð á 1 mínútu símtali
(sjálfvirkt val) til Stokkhólms
á dagtaxta m.vsk.
26600
allirþurfa þak
yfir höfudid
Krummahólar
2ja herb. snyrtij. stúdíóíb. á 3.
hæð. Lyfta. Bflgeymsla. Verð
4,5 millj.
Þórsgata - bakhús
Nýstandsett lítið og snoturt sér-
býli. Verð 1,8 millj.
Engihjalli
Falleg 4ra herb. íb. á 8. hæð í
nýviðg. lyftuh. Parket. Útsýni.
Verð 7,5 millj.
Háaleitisbraut
Rúmg. 5 herb. vel skipul. ib. í
fjölbhúsi. Skipti mögul. Laus
fljótl.
Kelduhvammur
Góð 117 fm sérhæð í þríb-
húsi á fallegum stað. Verð
9,8 millj.
Hraunbær
4ra herb. íb. á 2. hæð. Sameign
endurn. og utanhússviðg. lokið.
Góð íb. Lausfljótl. Verð 7,3 millj.
Vesturbrún
Rúml. 100 fm hæð ásamt góð-
um bflsk. Hús í fyrsta flokks
ástandi. Fallegur garður. Laus.
Brekkugerði
Glæsil. 250 fm einbhús
ésamt 35 fm bilsk. Mikið
endurn. Einstaklíb. m. sér-
inng. á jerðh. Fallegur
garður. Verð 21,0 millj.
FASTEIGNAÞJÓNUSIAN
Skúlagötu 30 3.h.
Ixivísa Kristjánsdóttir
lögg. fast.sali.
-
Vilhjálmur Páls-
son - Minning
„Sjaldan hafa svo margir átt jafn
fáum svo mikið að þakka.“
Eitthvað á þessa leið mælti
Churchill forsætisráðherra Bret-
lands og átti þar við flugmenn þá
er vörðu England fyrir vágestinum
mikla í síðara stríðinu.
Stór orð.
Orð, sem í mínum huga gætu
eins vel átt við um hann Villa minn
og óþreytandi eljusemi hans við að
liðsinna íslenskum þegnum gegn
öðrum vágesti undanfama tvo ára-
tugi, eða áfengissýkinni. Vágesti
sem leikið hefur margan góðan
dreng illa og brugðið skýi sorgar
og erfiðleika á loft í lífi margra fjöl-
skyldna.
Ég er einn þeirra mörgu sem
naut leiðsagnar Villa og famaðist
betur fyrir vikið og fyrir það er ég
þakklátur.
Ég bið, að Guð geymi þig um
alla eilífð, elsku vinur minn, og
verði þínum nánustu styrkur í raun-
inni.
Jóhann Örn.
Æi, guð, láttu þetta ekki vera
satt, heldur bara að þetta hafi ver-
ið vondur draumur. Af hveiju að
taka frá okkur mann sem alltaf var
svo hress og kátur?
Afi var alltaf tilbúinn að hjálpa
öllum og átti auðvelt með að fá
fólk til að hlæja. Ég man aldrei
eftir því að hafa séð afa reiðan og
ég held að það hafi ekki verið til
reiði í honum. Aðeins gleði og
stríðni sem geislaði af honum og
átti hann til mikið af hvom tveggja.
Því veldur guð hvort maðurinn
hlær eða grætur (Sófókles).
Mér finnst ekki sanngjarnt
hvemig guð velur úr. Fyrst tók
hann frá mér móður mína í blóma
lífsins, svo þig, afi. Elsku afi, ég á
margar minningar við þig tengdar.
Ég mun ávallt minnast þess þegar
ég, pabbi, Daði bróðir, þú og amma
bjuggum öll saman. Það vom bestu
ár lífs mins. Þú komst og vaktir
mig á morgnana og keyrðir mig í
skólann, í staðinn fyrir að láta mig
taka strætó.
Manstu einn morguninn þegar
þú keyrðir mig í skólann óg ég
datt þegar ég steig út úr bílnum
og buxumar mínar blotnuðu dálítið.
Þu heimtaðir að fá að keyra mig
aftur heim svo að ég gæti skipt um
föt, þótt þú værir að verða seinn í
vinnuna og ég gleymi aldrei hvað
þú sagðir: Ásta mín, ég get ekki
látið bamið mitt vera blautt og þar
að auki er fjölskyldan ávallt númer
eitt.
O, afí, elsku afi, þetta er svo
skrýtið því þú varst svo hress í af-
mæli Daða og Hönnu fýrir mánuði
og nú ertu dáinn.
Ég veit að það var gott fyrir þig
að hafa fengið að fara því að þú
kvaldist svo. Samt sakna ég þín svo
mikið að ég gæti dáið. Ég veit að
þú ert hjá mér, en ég get ekki séð
þig né snert þig. Afí, ég á eftir að
sakna hringinganna frá þér þar sem
þú þóttist vera lögreglan eða þess
háttar, en ég þakka þér fyrir allar
góðu stundimar sem við áttum sam-
an, elsku afi. Ég veit að amma
bjargar sér. Hún er svo sterk, þann-
ig að þú þarft ekki að hafa áhyggj-
ur af henni. Við hjálpum henni líka.
Blómin þín sem þú elskaðir af
öllu hjarta em einnig í góðum hönd-
um hjá ömmu.
Ég mun ávallt varðveita síðustu
fallegu orðin sem þú sagðir við mig
áður en þú dóst og þau voru: Ásta
mín, ekki vera reið þótt ég vakni
ekki aftur í fyrramálið, það var
gaman að lifa með þér og mundu
að ég mun ávallt elska þig.
Mig langar til að skrifa ljóð í
lokin sem ég las og hef varðveitt.
Þetta ljóð hefur hjálpað mér mikið
í gegnum sorgina þegar móðir mín
dó og nú þína. Elsku afi, yndislegi
afi minn, ég kveð þig með þessu
ljóði og megi guð blessi þig og varð-
veita. Afi, þú ert hetja.
Þó ég sé látinn
harmið mig ekki með tárum, ^ ’
hugsið ekki um dauðann
með harmi og ótta.
Ég er svo nærri
að hvert ykkar tár
snertir mig og kvelur
þó látinn mig haldið.
En þegar þér hlæið og
syngið með glððum hug
lyftist sál mín upp í mót
til ljóssins.
Verið glðð og þakklát
fyrir allt sem lífið gefur
og ég, þó látinn sé,
tek þátt í gleði ykkar
ýfir lífrnu.
(Höfundur ókunnur.)
Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir.
í október 1981 gengum við hjón-
in eitt af okkar mestu gæfusporum.
Við fórum inn í Langholtskirkju á
mánudagskvöldi, á opinn AA-fund.
Og þar var hann Villi, sem bauð
alla nýliða sérstaklega velkomna
með hlýju handtaki og brosi, sem
honum var svo eiginlegt.
Fyrir allar samverustundirnar vil
ég.nú að leiðarlokum þakka þér,
Villi minn, þakka samveru á fund-
um, á skemmtunum hjá Bata, sam-
veru í Bataferðum til Vestmanna-
eyja, í Þórsmörk og margt, margt
annað, ekki hvað síst fyrstu utan-
landsferð Bata til Rimini 1983. Það
var ógleymanleg ferð.
Það var alltaf svo gaman í þess-
um ferðum, og af hverju? Jú, það
voru allir svo kátir og glaðir, lausir
við fjötra Bakkusar og hann Villi
lét sitt ekki eftir liggja til að
skemmta fólki. Það var ótrúlegt
hvað honum gat dottið í hug að
sprella og þá ekki síst með börnin
í huga, á þeim hafði hann mikið
dálæti.
Ég minnist þess eitt sinn í Þórs-
merkurferð að þá átti að gera eitt-
hvað börnunum til gamans. Villi
hvarf og birtist aftur eftir smástund
í náttkjól af Valgerði og gretti sig
og geiflaði, og mikið hlógu börnin
dátt, þeir fullorðnu líka. Villi var
svona, vildi gleðja aðra og það tókst
honum svo sannarlega.
Þeir eru ófáir sem hann hefur
aðstoðað við að ná fótfestu í lífinu
að nýju. eftir að hafa barist við
Bakkus. Villi sagði oft: „Fyrst ég
gat hætt að drekka, getur þú það
líka.“
Vilhjálmur og Valgerður stofn-
uðu ferðafélagið Bata ásamt fleira
fólki. Bati hefur farið margar ferð-
ir og þær hafa átt drjúgan þátt í
að stofna til vináttusambanda, sem
eru mjög traust og oft treyst fjöl-
skyldubönd.
Ég var svo lánsöm að lenda í
stjórn Bata með Villa og Valgerði
um tíma. Fyrir þær ánægjustundir
vil ég nú þakka, og ekki síst vil ég
þakka þér, Villi minn, fyrir að hafa
stofnað fyrstu opnu AA-deildina á
Islandi. Það er framtak sem aldrei
verður metið til fulls.
Guð styrki þig, Valgerður mín,
börnin ykkar og barnabörn. Þið
hafið öll misst svo mikið. Ég er
sannfærð um, að þegar hérvistar-
dögum okkar lýkur, þá mætir hann
Villi okkar aftur með bros á vör
eins og hann gerði svo oft í dyrum
Langholtskirkju.
Guð geymi ykkur öll.
G.B.
OPIÐ HÚS OPIÐ HÚS OPIÐ HÚS OPIÐ HÚS
OLl
BORGARTÚNI 18, 3. H. ?? 10090
Allar eignir sem hér eru auglýstar getur þú skoöað frá
kl. 13.00-17.00 í dag, sunnudag. Settu keðjurnar undir
bílinn og taktu þátt í opnu húsi með okkur á Hóli!
Góða skemmtun!
Fannafold nr. 158 - syðra hús
Vcrum að fá (sölu þetta fallega 112 fm parhús m. innbyggðum bílskúr.
Húsið, sem er tæplega fullbúið, hefur m.a. að geyma 3 svefnherb. og stóra
stofu m. mikilli lofthæð. Áhv. byggsj. 5,0 millj. o.fl. samtals 7,2 millj.
Verð aðeins 9,8 millj. Opið hús í dag - Gakktu í bæinn!
Grenibyggð nr. 19 og 21 - Mosfellsbæ
Tvö glæsileg og fullbúin 109,5 fm nýbyggð raðhús á einni hæð. Húsin
skiptast m.a. í tvö rúmgóð svefnherbergi m. skápum, stóra stofu með
gróðurskála, vandað eldhús, rúmgott þvotttahús og flísalagt baðherb.
Verð aðeins 10,3 millj. Opið hús í dag - gakktu í bæinn!
Laufengi nr. 2, 3. hæð t.v. - Frábært verð
í þessu fallega húsi ertil sölu glæsileg 125,5 fm íbúð á 2. hæð t.v. sem
verður afhent fullbúin mjög fljótlega. í íbúðinni eru 3 rúmgóð dúklögð
svefnherbergi auk stórrar stofu með suðursvölum. Vandaðar innréttingar
og skápar í öllum herbergjum. Þú verður að skoða þessa.
Verð aðeins 8,5 miilj. Opið hús í dag - líttu inn!
Opið í dag á Hóli frá kl. 14-17 — Hafðu samband!