Morgunblaðið - 14.11.1993, Page 48

Morgunblaðið - 14.11.1993, Page 48
varða i i m Landsbanki Mi íslands JLB Banki allra landsi argunfrljifrife allra landsmanna FORGANGSPÓSTUR UPPLÝSINGASÍMI 63 73 00 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓl ILF 3040/ AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 SUNNUDAGUR14. NOVEMBER1993 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK. ATLOT VIÐ DRAUM Morgunblaðið/RAX Háskólinn og Vestmannaeyjar gera samkomulag um rannsóknir Stærsta verkefnið verður rannsóknir á djúpslóðinni Prófessor í fiskifræði við Háskólann fær aðstöðu í Vestmannaeyjum Fangageymslur lögreglustöðvar- innar við Hverfisgötu. Gæslufang- ar silja nú í Hverfisteini ^TVEIR menn sitja nú í gæsluvarð- haldi í fangageymslum lögreglu- stöðvarinnar við Hverfisgötu vegna plássleysis í Síðumúlafang- elsinu. Annar þessara manna er 26 ára síbrotamaður sem í fyrra- dag var úrskurðaður í gæsluvarð- hald til 9. desember vegna sí- brota. Vonir standa til þess, að sögn Sigríðar Friðjónsdóttur, lög- fræðings hjá RLR, að unnt verði að Ijúka málum mannsins þannig að ákæra verði gefin út og dómur kveðinn upp áður en varðhalds- iíminn rennur út. Vegna rannsóknar umfangsmikils fíkniefnamáls sem greint hefur verið frá í Morgunblaðinu sitja nú fjórir menn í gæsluvarðhaldi í Síðumúla- fangelsi, en fimmti maður málsins er einnig vistaður, samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins, í fanga- geymslum lögreglunnar við Hverfis- götu. HÁSKÓLI Islands og Vestmannaeyjabær hafa gert með sér samkomu- lag um samstarf á sviði rannsókna og þróunar einkum á vettvangi sjávarútvegs. Samkomulagið felur í sér að í Vestmannaeyjum verði komið á fót aðstöðu til margskonar rannsókna. Stærsta fyrirhugaða verkefnið á næstu árum verða rannsóknir á tegundum og magni fiska á djúpslóð en einnig er í undirbúningi forathugun á eðli og tíðni sjúkdóma í sjávarfiskum við Island áuk fleiri verkefna. Skipuð hefur verið sérstök stjórn um þetta samstarf Háskólans og Vestmannaeyjabæjar og er Þor- steinn I. Sigfússon prófessor for- maður hennar. Þorsteinn segir að Vestmanneyingar hafi verið leið- andi í umræðunum um samstarfið og athyglisvert að fulltrúar þeirra í bæjarstjórn og atvinnulífi hafa lagst á eitt um að hrinda verkefn- inu í framkvæmd. Áhersla verði lögð á að tengja þekkingu Háskól- ans og stofnana hans við reynslu og aðstöðu hins fjölþætta umhverf- is útgerðar, fiskvinnslu og hags- munamála sjómanná í Vestmanna- eyjum. Þá er gert ráð fyrir að pró- fessor í fískifræði við Háskólann fái aðstöðu í Vestmannaeyjum til rannsókna sinna. Þróunarsetur Að sögn Þorsteins munu útibú Hafrannsóknarstofnunar og Rannsóknastofnunar fiskiðnaðar- ins tengjast þessu samstarfi mjög náið og er ætlunin að mynda eins konar þróunarsetur þar sem þess- ar stofnanir og Háskólinn ásamt sjómönnum og fiskverkendum geti stillt saman strengi sína. Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur samþykkt að veita fé til þessa og er óskað eftir að ríkisvaldið komi á móti með svipaða fjárfestingu en í heild er verið að ræða um 20 milljónir króna. Menntamála- og sjávarútvegsráðherra hafa Rétt stafsetning kennd með aðstoð tölvutækni NEMENDUR Verslunarskólans munu eiga kost á því á næstu dögum að læra rétta stafsetningu með aðstoð tölvu. í undirbún- ingi er að taka upp reglulegar stafsetningaræfingar með þessum hætti að sögn Baldurs Sveinssonar kennslustjóra skólans. Baldur sagði hugmyndina þá um leið og æfingunni er lokið. að krakkarnir rituðu texta eftir upplestri inn á tölvu. Síðan væri úrlausn hvers og eins borin saman við skrá sem innihéldi umræddan texta, rétt stafsettan. Með þessum hætti sér nemandinn villuíjölda og hvaða orð eru vitlaust stafsett Einnig getur kennarinn prentað úrlausn hvers og eins til nánari athugunar. Þessi aðferð gerir mögulegt að auka fjölda stafsetn- ingaræfinga og gerir kennaranum einnig kleift að nota tíma sem annars hefði farið í yfirferð til þess að sinna öðrum þáttum kennslunnar betur. Stafsetningarforritið er út- færsla á forriti sem notað hefur verið við hraðapróf í vélritun í skólanum til margra ára og bygg- ir á sömu hugmynd, þ.e. að bera saman tvær skrár, úrlausn nem- andans og hinn rétta texta. Búist er við að stafsetningarkennsla með þessum hætti hefjist í næstu viku. tekið jákvætt í þessar hugmyndir. Hvað varðar rannsóknir á djúp- slóð segir Þorsteinn að gert sé ráð fyrir að þær verði fjármagnaðar að hluta úr sjóðum Evrópubanda- lagsins. „Nokkurn tíma mun taka að undirbúa þetta verkefni en haft hefur verið samband við embættis- menn í rannsókna- og þróunarkerf- inu í Brussel varðandi þátttöku evrópskra vísindamanna og hlut- afjármögnun úr sjóðum Evrópu- bandalagsins," segir Þorsteinn. Hann segir ennfremur að gert sé ráð fyrir að sérfræðingar Hafrann- sóknarstofnunar taki virkan þátt í mótun og vísindalegri forystu þessa verkefnis. -------» ♦ ♦ Spólaði þar tíl kviknaði í dekkjunum UNGUR maður, sem fest hafði bíl sinn í snjóskafli í Safamýri á laug- ardagsmorguninn, spólaði árang- urslaust í snjónum um langa hríð eða þar til kviknaði í dekkjunum svo kalla þurfti til slökkvilið. Atburðurinn átti sér stað upp úr klukkan sjö þegar íbúar í Safamýri kvörtuðu til lögreglu vegna hávað- ans. Skömmu síðar var aftur hringt í lögreglu og slökkvilið og tilkynnt að nú væri kviknað í hjólbörðum bíls- ins. Fór slökkvilið á staðinn og var þá nokkur éldur kominn upp í bíln- um, sem skemmdist talsvert.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.