Morgunblaðið - 30.11.1993, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1993
11
Menntun sjómanna í eina öld
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Einar S. Arnalds.
Stýrimannaskólinn í Reykjavík í
100 ár.
Örn og Örlygur 1993. XXXII +
576 bls.
Haustið 1991 voru liðin 100 ár
frá því að formleg skólamenntun
skipstjómarmanna hófst á íslandi
á vegum hins opinbera. „Hinn 1.
október 1891 var Stýrimannaskól-
inn í Reykjavík settur í fyrsta sinn“
af skólastjóranum Markúsi F.
Bjamasyni.
Aldarafmælis var minnst með
veglegum og virðulegum hætti á
afmælisárinu, en alllöngu áður
hafði verið ákveðið að rita sögu
Stýrimannaskólans. Til þess verks
var Einar S. Amalds fenginn og
birtist nú sagan á bók hundrað
ámm eftir að fyrstu nemendur skól-
ans útskrifuðust.
Saga Stýrimannaskólans er ein-
staklega veglegt rit. Þar kemur
fyrst til að hún löng, mikið lesmál,
rúmar sex hundruð blaðsíður í stóm
broti. Myndir em mjög margar og
sumar hveijar glæsilegar. Loks er
öll „útgerð" ritsins afar vönduð,
t.a.m. er pappír af þeirri gerð að
maður tekur sér ekki þyngri bók í
hönd af sömu stærð.
í rauninni em hér fjórar sögur í
einni bók. Ein er sjálfur sögutext-
inn. Auk forsögu (66 bls.) þar sem
fjallað er um menntunarmál sjó-
manna til ársins 1891 er rakin saga
Stýrimannaskólans í annálsformi
frá ári til árs. Er það að sjálfsögðu
megintextinn (tæpar 350 bls.) Önn-
ur er saga sögð í myndum. Mér
virðist að öll „skólaspjöld" frá upp-
hafí séu hér saman komin, auk
geysilegs fjölda annarra mynda; af
kennuram, úr skólastarfinu, af
ýmiss konar tækjum, af skipstjóm-
armönnum, skipum, stöðum og úr
sjómannslífinu o.fl. Oft fylgja tals-
vert langir textar afar fræðandi.
Mikla sögu móttekur lesandinn því
í myndum og meðfylgjandi textum.
Þriðju söguna er svo að finna í fjöl-
mörgum innskotstextum. Þar kenn-
ir margra góðra grasa. Fróðleiks-
pistlar eru þar margir, en einnig
gamanmál sem lífga lesandann við
lestur þessarar alvörubókar. Loks
er að nefna fjórðu söguna, en það
er skrá yfir alla sem útskrifast hafa
úr Stýrimannaskólanum í Reykja-
vík, Vestmannaeyjum og Dalvíkur-
deildinni. Fæðingardags og -árs
hvers og eins er getið, útskriftarárs
og prófstigs.
Nýjar bækur
Skáldsaga eftir Guð-
rúnu Guðlaugsdóttur
Út er komin skáldsaga Guðrúnar
Guðlaugsdóttur blaðamanns, Nel-
likur og dimmar nætur, en þar
gerir hún upp örlagaríka atburði í
eigin lífi. Sagan segir frá konu sem
verður fyrir mikilli lífsreynslu og
er henni fylgt í meðbyr og mót-
læti, - gleði og sorgum.
í kynningu útgefanda segir:
„Nellikur og dimmar nætur er
hvort tveggja í senn; einlæg ástar-
saga og magnþrungin frásögn sem
vekur lesandann til umhugsunar
um áleitnar spurningar: Er nokk-
um tíma hægt að þekkja aðra
manneksju til fulls, skynja hugsan-
ir hennar, líðan og það sem býr
að baki gerðum hennar, - jafnvel
þótt um manns nánustu ástvini sé
að ræða?
Guðrún er landsmönnum að góðu
kunn fyrir viðtöl sín og greinar,
þar sem hún hefur fjallað um vand-
meðfarin mál af næmi og skilningi
og slegið á mannlega strengi.
Skáldsaga hennar ber sömu merki.
Hún skrifar af þekkingu og innsæi
um viðkvæmt efni. Atburðarásin
er grípandi og heldur lesandanum
föngnum allt til loka en í textanum
leynast átök og tilfinningar sem
höfundur miðlar á áhrifamikinn
hátt.“
Guðrún Guðlaugsdóttir
Vaka-Helgafell gefur út. Það
var G. Ben. prentstofa sem ann-
aðist prentun bókarinnar sem
er 238 blaðsíður að iengd.
Nýjar bækur
Ljóðabók
eftir Krist-
ján Þórð
Hrafnsson
LJÓÐABÓKIN Húsin og göturnar
eftir Kristján Þórð Hrafnsson er
komin út.
Ljóðin í bókinni eru 37 talsins.
Höfundurinn sem er fæddur árið
1968 hefur áður sent frá sér eina
ljóðabók, í öðrum skilningi, 1989 og
birt ijóð og þýðingar á erlendri ljóð-
list í blöðum, tíma- og safnritum.
Hann yrkir jöfnum höndum hátt-
bundið og í fijálsu formi.
Útgefandi er Almenna bókafé-
lagið. Bókin er prentuð hjá Prent-
stofu G. Ben. og kostar 1.780 kr.
Kristján Þórður Hrafnsson
TELIGRAM
TELEPATIC LOVESTORY PATHON
LÁRUS ÞORLEIFSSON
Einar S. Arnalds
Til viðbótar þessu efni eru birt
lög o g reglugerðir, vígsluræða bisk-
ups 1891 og setningarræða skóla-
stjóra við fyrstu skólasetningu og
hátíðarræða skólameistara á 100
ára afmælishátíð skólans. Skrá er
yfir skólastjóra, fasta kennara,
stundakennara og prófdómara. Þá
er atriðsorðaskrá, mannanafna-
skrá, staða- og stofnanaskrá, heim-
ildaskrá yfir prentaðar, óprentaðar
og munnlegar heimildir og loks er
mikil skrá yfir alla þá mörgu sem
lagt hafa til myndefni.
í sem stystu máli sagt er þetta
mikla rit gríðarleg fróðleiksnáma
um, að ég hygg, allt sem viðvíkur
Stýrimannaskólanum frá upphafi.
Manni virðist að sem stofnun hafi
skólinn lengst af verið allfastur í
sniðum; traust og nokkuð fastheldin
stofnun. Að nokkm helgast það af
því að mannaskipti í kennaraliði
hafa ekki verið tíð. Skólastjórar
hafa einungis verið fimm og fastir
kennarar tuttugu og sjö. Virðast
menn hafa unað sér vel í skólanum
og verið hófsamir og stílfastir
menn, sem ósýnt var um að gera
miklar kröfur til annarra en sjálfra
sín. Enda munu fáir skólar hafa
verið léttari á fóðrum hins opin-
bera. Er þó ósannað að árangur
hafi þar verið lakari en annars stað-
ar. Annállinn ber þó með sér að á
seinni ámm fer mikilla breytinga
að gæta. Tækniöldin hefur þar haf-
ið ferð sína fyrir fullum seglum,
enda annað vart gjörlegt.
Höfundi bókar hefur tekist vel
að skipa niður miklu efni og bera
það fram á aðgengilegan hátt fyrir
lesendur. Texti er skýr og lipur,
sums staðar hressilegur þar sem
efnið leyfir. Uppsetning er smekk-
leg og vönduð og prófarkir hafa
verið einstaklega vandlega lesnar.
Myndir hafa prentast ágæta vel
með örfáum undantekningum.
Eins og hæfir í afmælisriti hefst
það á heillaóskaskrá, sem er óvenju
löng, 20 tvídálka blaðsíður. Ber hún
með sér að Stýrimannaskólinn á
marga velunnara.
Enginn vafi er á því að eldri og
yngri nemendur skólans auk fjöl-
margra annarra munu taka þessari
glæsilegu bók fagnandi hendi. Hún
er öllum til sóma sem að henni
hafa staðið.
911 91 97fl L^RUS Þ' VALD.MARSSON framkvæmdastjori .
L I I JU'LIO/U KRISTINN SIGURJ0NSS0N, HRL. loggiltur frsteignassli
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
í Laugardalnum - endurnýjuð sérhæð
Glœsil. 5 herb. 2. hæð i fjórbhúsi um 130 fm. Nýtt parket, gler o.fl.
Rúmg. forstherb. m. sér snyrtingu. Tvennar svalir. Sérhiti. Góður bilsk.
Mikil og góð langtlán.
Nýendurbyggð við Hraunbæ
glæsil. 4ra herb. íb. á 1. hæð. Nýtt parket, gler o.fl. Stórt og gott eldh.
Vélaþvottahús í kj. Ágæt nýstandsett sameign. Ákv. sala.
Endaíbúð - sérþvottahús - bílskúr
Mjög góð 5 herb. íb. á 2. hæð v. Stelkshóla. Sameign nýendurbætt.
Mjög gott verð. Útsýni.
Einbýlishús við Barðavog
vel byggt og vel með farið steinh. ein hæð um 165 fm auk bílsk. Glæsi-
leg lóð. Skipti mögul. á 3ja-4ra herb. ib. m. bílsk.
Byggingarlóð óskast
Fjársterkur kaupandi óskar eftir byggingarlóð f. einbhús. Æskil. stað-
ur Vesturborgin, Skerjafjörður, Seltjarnarnes. Skipti mögul. á glæsil.
sérhæð miðsvæðis í borginni.
AIMENNA
Fjöldi fjársterkra kaupenda.
Margs konar eignaskipti. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
Langagerði
Mjög fallegt einbýlishús sem er kjallari. hæð og ris.
Húsið er 215 fm ásamt mjög stórum bílskúr. 3 stofur,
parket, 4-6 svefnherb. Fallegur garður. Steinhús í
mjög góðu hverfi, í mjög góðu ástandi, mikið rými og
fallegt umhverfi.
FASTEIGN ER FRAMTID
FASTEIGNA /ff'
SVERRIR KRISTJANSSON LÖGGILTUR FASTEIGNASALI
SUDURLANDSBRAUT 12, 108 REYKJAVÍK, FAX 68 7072
MIÐLUN
SÍMI68 77 68
GÆÐAFLÍSAR Á GÓÐU VERÐI
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
súni 67 48 44
51500
Hafnarfjörður
Hjallabraut
- þjónustuíbúð
Góð 2ja herb. þjónustuib., fyrir
Hafnfirðinga 60 ára og eldri, á
4. hæð ca 63 fm. Áhv. byggsj.
ca 3,2 millj. Verð 7,8 millj.
Álfaskeið
Góð ca 100 fm 4ra herb. íb. á
1. hæð í þríbýlishúsi.
Klettagata
Til sölu tvær 4ra-5 herb. íb. í
tvíbýlishúsi auk bílskúrs. Geta
selst saman.
Arnarhraun
Góð 5 herb. íb. á 3. hæð í þríb-
húsi ca 136 fm. Sérinng. Áhv.
ca 1,5 millj.
Lindarhvammur
Glæsil. efri sérhæð ásamt risi
ca 140 fm. Mikið endurn.
Æskil. skipti á einbhúsi í Hafn-
arfirði ca 200-300 fm.
Trönuhraun
Til sölu og/eða leigu efri hæð
ca 350 fm. Hentugt sem
kennsluhúsnæði, verslunar-
og/eða skrifsthúsnæði. Nánari
uppl. á skrifst.
Árni Grétar Finnsson hrl.,
Stefán Bj. Gunnlaugss. hdl.,
Linnetsstíg 3, 2. hæð, Hfj.,
símar 51500 og 51601.
v
26600
allir þurfa þak
yfir höfudid
Hlíðarvegur - Kóp.
2ja herb. 60 fm íb. á 1. hæð í
tvíb. Sérhiti. Laus. Verð 5,2 millj.
Hraunbær
Góð 2ja herb. íb. á 1. hæð. Litið
áhv. Verð 5,0 millj.
Laugavegur
2ja herb. íb. á jarðh. Sér bíla-
stæði. Verð 3,9 millj.
Vífilsgata
Rúmg. 74 fm íb. á 2. hæð í 6-íb.
húsi. Þarfn. stands. Laus. Verð
6,2 millj.
Garðabær
Gullfalleg nýl. ca 90 fm íb.
á 4: hæð i 6-ib. blokk.
innb. bílak. á jarðh.
Þvherb. í ib. Verð 8,5 millj.
Hólmgarður
3ja herb. íb. á 2. hæð í nýl.
húsi gengt þjóníb. aldraðra.
Verð 5,5 millj.
Njálsgata
3ja herb. 67 fm íb. á 1. hæð í
steinh. Nýtt eldh. Lagt f.
þvottav. Laus. Verð 5,5 millj.
Háaleitisbraut
Rúmg. 5 herb. vel skipul. íb. í
fjölbh. Skipti mögul. Mikið áhv.
Laus fljótl.
Engihjalli
Falleg 4ra herb. íb. á 8. hæð í
nýviðg. lyftuh. Parket. Fallegt
útsýni. Verð 7,5 millj.
Hraunbær
4ra herb. ib. á 2. hæð. Sameign
endurn. og utanhússviðg. lokið.
Góð ib. Laus fljótl. Verð 7,3 millj.
Æsufell
5 herb. íb. á 2. hæð í nýstands.
fjölbhúsi. Verð 7,5 millj.
FASTEIGNAÞJÓNUSTAN
Skúlagötu 30 3.h.
Unisa kristjánsdóttir
lögg. fast.sali.