Morgunblaðið - 30.11.1993, Blaðsíða 56
Snjóflóð
í lið með
skuldugum
SNJÓFLÓÐ á Breiðadalsheiði
'~Jí!oin skuldugum bíleigendum á
Flateyri og Þingeyri til aðstoðar
í gær, en lögreglan á ísafirði
hugðist þá klippa númer af bílum
þeirra sem enn skulda bifreiða-
gjöld.
Að sögn lögreglunnar stóð til að
fara á þessa staði síðdegis í gær og
í gærkvöldi, en horfið var frá því
þar sem varasamt þótti að fara
Breiðadalsheiðina vegna snjóflóða
úr Kinninni. Var því aðgerðum lög-
reglunnar frestað að sinni og hafa
hinir skuldseigu því enn svigrúm til
að ganga frá sínum málum og koma
í veg fyrir að númerin verði klippt
af bílum þeirra.
---» ♦ «--
-->
Agætur
síldarafli
ÁGÆTUR afli fékkst á sildarmið-
unum í Berufjarðarál um helgina.
Um 83 þúsund tonn af sild hafa
borist á land á vertíðinni en rúm-
lega 27 þúsund tonn eru óveidd
—af síldarkvótanum.
Að sögn Þórðar Sigurðssonar
stýrimanns á Þórshamri GK var
ágætis afli á síldarmiðunum á
sunnudag eftir brælu í síðustu viku.
Hann sagði að síldin væri væn og
virtist mikið af henni en brælur hafa
hamlað veiðum að undanförnu. Um
tylft báta stundar nú síldveiðarnar
og fer allur aflinn í vinnslu.
Morgunblaðið/Júlíus
Kranabóman brotin
BÓMAN liggur ofan á mastrinu skömmu eftir óhappið og reyndist mastrið vera stórskemmt þegar ástand þess var kannað.
Loftnet við Gufimesstöðina stórskemmdist
LOFTNET fyrir gervihnattaviðskipti við fjarskiptastöðina í
Gufunesi stórskemmdist þegar bóma í 40 tonna krana sem
notuð var til að færa loftnetið úr stað féll yfir Ioftnetið síðdeg-
is í gær.
Loftnetið var talið 7-8 tonna
þungt, að sögn kranastjórans, en
uppgefin lyftugeta bómunnar 8
tonn. Að sögn Stefáns Arndal,
stöðvarstjóra fjarskiptastöðvar-
innar, er loftnet þetta ekki í dag-
legri notkun á fjarskiptastöðinni
og veldur það tjón sem á því varð
ekki röskun á fjarskiptum lands-
manna. Hins vegar var loftnetið,
sem var starfrækt hér fyrir þýsku
geimvísindastofnunina á árunum
1969-1975 og var fyrsta gervi-
hnattajarðstöðin sem Islendingar
starfræktu, í fullkomlega not-
hæfu ástandi, að sögn Stefáns.
Flutningur nauðsynlegur
Ástæða þess að kraninn var
fenginn til að lyfta loftnetinu var
sú að eftir að fjarskiptastöðin
afsalaði sér hluta af landi sínu
til Reykjavíkurborgar lenti loft-
netið utan athafnasvæðis stöðv-
arinnar og þurfti því að flytja það
til. Stefán vildi í gær ekki meta
tjónið á loftnetinu til fjár og hann
vildi heldur ekki fullyrða að ráð-
ist yrði í viðgerðir og endurbætur
á því.
Fundaðí
Herjólfs-
deilunni
GUÐLAUGUR Þorvaldsson rík-
issáttasemjari átti fund með deilu-
aðilum í Herjólfsdeilunni í Vest-
mannaeyjum í gær, en undirmenn
á skipinu hafa boðað verkfall frá
og með næstu áramótum. Að sögn
Guðlaugs hefur ekki miðað í sam-
komulagsátt, en hann mun funda
áfram með deiluaðilum í dag.
Guðlaugur sagði í samtali við
Morgunblaðið að á fundinum í gær
hefði verið farið yfir stöðu mála.
„Það er búið að skýra ýmislegt í
málinu, en það er ómögulegt að segja
nokkuð um þetta á þessari stundu,“
sagði hann.
„Við vorum að horfa á sjónvarps-
þáttinn Neyðarlínuna (Rescue 911)
á Stöð 2 þegar við voru kallaðir í
venjulegan fæðingarflutning ein-
hvern tíma uppúr klukkan hálf tíu.
Allt virtist vera í góðu lagi þegar
komið var á staðinn, um fimm mín-
útur voru milli hríða hjá konunni,
en aðeins örstuttu seinna sagði hún
okkur að barnið væri að koma. Ég
stöðvaði þá strax bílinn, bað um
neyðarbíl, fór afturí og tók uppúr
svokölluðum fæðingarböggli. Hann
var ekki fyrr tilbúinn en höfuðið
var komið. Maður náði varla að
gera sig kláran til að taka á móti.
En sem betur fer gekk allt vel og
um fimm mínútum eftir fæðinguna
kom neyðarbíllinn," sagði Þórir
Karl Jónasson sjúkraflutningamað-
ur sem tók á móti barninu. Hann
sagðist aldrei hafa tekið einn á
móti barni fyrr.
Mikið álag
Að sögn Guðrúnar Bjargar Sig-
urbjörnsdóttur, yfirljósmóður á
fæðingardeild Landspítala, hefur
álagið á deildinni verið mikið þetta
árið. Þá hafi þrengsli verið gífurleg,
konur hafi legið sængurlegur inni
á setustofum og aukarúm verið
sett inn á stofur á sængurkvenna-
göngum. Guðrún Björg segir að
fæðingar komi alltaf í bylgjum en
þetta mikla álag hafi engu að síður
verið nokkuð viðvarandi alit árið.
Að sögn Guðrúnar Bjargar er
Morgunblaðið/Sverrir
Tóku á móti
SVEINN Logi Björnsson og Þór-
ir Karl Jónasson.
fjölgun fæðinga á milli ára meiri
en sem nemur lokun Fæðingar-
heimilis. Hún segir að opnun þess
um nk. áramót sé á stefnuskrá Rík-
isspítala en enn vanti fjárveitingu
til að af því geti orðið. Meðan fjár-
veiting fáist ekki sjái starfsfólk
fæðingardeildar Landspítala því
fram á óbreytt ástand eða jafnvel
verra, þar sem fæðingum virðist
enn vera að fjölga.
Sinubrunar og vatns-
skortur í Eyjafirði
Yl ri-Ijiirnum, Eyjafjarðarsveit.
SVÖRÐUR er nú orðin mjög
þurr víða á Norðurlandi eftir
nær stanslausa þurrka í þrjá
mánuði og í gær varð sinubruni
í Eyjafjarðarsveit sem teljast
verður óveiyulegt á þessum
árstíma. Þá var orðið vatnslaust
á öðrum bæ.
Slökkvilið Akureyrar og Bruna-
varnir Eyjafjarðar voru kallaðar
út á sjötta tímanum í gær að
bænum Uppsölum í Eyjafjarðar-
sveit. Bóndinn á bænum hafði
kveikt í rusli í skurðenda í nokkuð
kyrru veðri en síðan hvessti af
suðaustri og læsti eldurinn sig í
sinulubba og breiddist út á
skömmum tíma.
Þar sem skógarplöntur, skjól-
belti og girðingar voru í hættu var
kallað í slökkviliðið. Þrír menn frá
Slökkviliði Akureyrar og fimmtán
frá Brunavörnum Eyjafjarðar
mættu á staðinn og börðust við
eldana í 2-3 tíma og tókst að verja
skjólbeltin að mestu en girðingar
og skógarplöntur skemmdust.
Farið að bera á vatnsskorti
Farið er að bera á vatnsskorti
á nokkrum bæjum í Eyjafjarðar-
sveit og þurfti Jóhann Benedikts-
son bóndi á Eyrarlandi nýlega að
sækja vatn til Akureyrar í tvo
sólarhringa. Fékk hann vatnstank
hjá Mjólkursamlagi KEA og dældi
vatninu inn á kerfið með raf-
magnsdælu. Jóhann hefur vatn
eins og er en bjóst við að allt yrði
vatnslaust á ný þegar frysti.
Benjamín
Sjúkraflutningamaður tók á móti barni í sjúkrabíl
„Ég náði varla að
gera mig kláran“
Mikil fjölgun fæðinga frá í fyrra
UNGUM íslendingi lá heldur betur á að komast í heiminn og
fæddist í sjúkrabíl aðeins um einn kílómetra frá heimili foreldra
sinna í vesturbæ Reykjavíkur á tíunda tímanum í gærkvöldi.
Sjúkraflutningamaður tók á móti barninu. Eftir fæðinguna var
móður og barni, stúlku, ekið á kvennadeild Landspítalans og heils-
ast báðum vel. Fæðingin var sú 2.868, ef miðað er við fæðingar
á kvennadeildinni, á þessu ári. Um er að ræða 210 fleiri fæðingar
en á sama tíma í fyrra. Fjöldi fæðinga nú samsvarar á bilinu 3.100
til 3.200 fæðingum allt árið.