Morgunblaðið - 30.11.1993, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.11.1993, Blaðsíða 21
lenskir útgerðarmenn fara til út- landa með verkefnin. A næstu árum munu koma til aukin verkefni hér á landi við endur- bætur, viðgerðir og smíði fiskiskipa og tæknibúnaðar við fiskveiðar og vinnslu. Fyrirtækin í málm- og skipaiðnaði hafa jafnframt unnið að öflun verkefna erlendis frá. Við höfum ekki efni á að missa þessi verkefni út úr höndunum á okkur til annarra þjóða. Ef íslenskur skipaiðnaður á að lifa, verður að gera ráðstafanir til að halda íslenskum verkefnum hér heima. Beinast liggur við að grípa til jöfnunaraðgerða, til dæmis með jöfnunar- eða undirboðstollum. Þar er aðeins um að ræða sanngjarnar aðgerðir til að gefa mikilvægum iðnaði hér á landi tækifæri til að standa jafnfætis öðrum. Ef ekki verður gripið til jöfnunar- aðgerða til að halda verkefnum hér í landi, sjáum við einfaldlega fram á dauða ipálm- og skipaiðnaðarins. Hann er þegar kominn að fótum fram og þolir ekki meira. Því verð- ur ekki trúað að stjórnvöld og aðrir sem hlut eiga að máli vilji í raun þau endalok. En það er mjög skammur tími til stefnu. Við verðum að segja „ís- lenskt, já takk“ við málm- og skipa- iðnaðinn án tafar. Höfundur er formaður Félags járniðnaðarmanna og varaformaður Samiðnar — sambands iðnfélaga. skóla. Aðalmarkmiðið er að fyrirtæk- in taki fleiri nema til formlegrar starfsþjálfunar. Þetta hefur með öðru skilað Dönum miklum árangri í starfsmenntakerfi þeirra. Nostur þeirra og umhyggja fyrir starfs- menntakerfinu kemur trúlega til vegna þess hversu fátækir Danir eru af náttúruauðlindum. A sama hátt höfum við íslendingar trúlega verið kærulausir um uppbyggingu al- mennilegs starfsmenntakerfis vegna þess að við höfum ausið um langt árabil af auðlindum okkar, sem við héldum að væru ótæmandi. Lofrullur stjórnmálamanna á tylli- dögum um góða menntun íslensku þjóðarinnar hafa slegið ryki í augu okkar. Því verður ekki á móti mælt að mikill fjöldi íslendinga hefur orðið sér úti um mikla menntun, en því miður er hún lítil á sviði starfsmennt- unar, en því meiri á sviði ýmiss kon- ar bóknáms. Góðir námsmenn verða einnig að finna hæfíleikum sínum viðnám í starfsnámi ef þetta á að breytast. Það verður að hafa snör handtök og auka vægi og gæði starfsmennta- kerfísins ef ekki á illa að fara. Sú mikla áhersla sem lögð hefur verið á bóknám á síðustu árum er komin í þvílíkar ógöngur, að með ólíkindum er. Samtök atvinnurekenda og laun- þega verða að taka höndum saman um að snúa þeirri þróun við. Sér- stakan hvatningarsjóð til að fjölga fyrirtækjum sem taka nema tel ég skref í rétta átt. Höfundur er framkvæmdastjóri Prenttæknistofnunar. ------♦ ♦ ♦ Fyrirlest- ur um fjöl- skylduna DR. SIGRÚN Júlíusdóttir félags- ráðgjafi flytur opinberan fyrir- lestur fimmtudaginn 2. desember í boði Rannsóknarstofu í kvenna- fræðum við Háskóla íslands. Fyr- irlesturinn nefnist Islenskar fjöl- skyldur — hvað heldur þeim sam- an? Rannsókn um lífsmynstur og menningararf. í fyrirlestrinum mun dr. Sigrún Júlíusdóttir segja frá rannsókn sinni um lífshætti og félagslegar aðstæður 123 ijölskyldna í Reykjavík á árunum 1986-1988. í rannsókninni er leitast við að skilja hvernig ákveðinn hópur fjölskyldna nær tökum á ytri og innri aðstæðum sínum. Fyrirlesturinn verður í stofu 101 í Lögbergi og er öllum opinn. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1993 21 Búðardalur Sláturtíð lokið í Afurðastöðinni Búöardal. SAUÐFJÁRSLÁTRUN á vegum Afurðarstöðvarinnar hf. í Búðardal lauk um síðustu mánaðamót. Á vegum Afurðastöðvarinnar var slátrað rúmlega 35.000 fjár þetta haustið. Slátrað var í tveimur sláturhúsum, þ.e. 26.500 í Búðardal og 8.500 fjár í Saurbæ. Nú var í fyrsta sinn tekið til slátr- unar fé vestan af Barðaströnd og úr Arnarfirði, um 2.600 fjár, og var það engum vandkvæðum bundið þótt vegalengdin sé nokkur. Nú er því slátrað hjá Afurðastöðinni fé af stóru svæði, þ.e.a.s. norðanverðu Snæfells- nesi, Dalasýslu, Barðaströnd og Arn- arfírði. Meðalvigt dilka þetta árið var 16,2 kg sem verður að teljast mikið. Þetta orsakar nokkurn vanda í sölu þar sem erfítt er að selja þyngri skrokkana. Minna seldist bæði af slátri og kjöti í haust en áður og hafa menn áhyggjur af því að ólög- leg framhjásala bænda sé farin að taka stóran hlut af sölunni á haustin og er það óheillavænleg þróun. - Kristiana. Hið rótnaða Shúla Hansen Verð: í hádeginu kr. 1.695, Á kvöldin kr. 2.395,- Verið velkotniti á Matreiðslumeistarar: Skúli Hansen og Jóhann Sveinsson, Skólftbrú Veitingahús við Austurvöll Pantanir í síma 62 44 55 Haukur Vilhjálmsson, Félagi heyrnarlausra Við höldum utanum allt sem viðkemur félaginu t.d. yfirlit og reikninga Félagasjóðsmöppunni Innheimta félagsgjalda Greiðsluþjónusta Yfirlit yfir félagsgjöldin Rekstrarreikningur árlega Bókhaldsmappa jj / kaupbæti Landsbanki íslands Banki allra landsmanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.