Morgunblaðið - 30.11.1993, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1993
Bókin um mennsku
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Francois Rabelais: Gargantúi og
Pantagrúll. Erlingur E. Halldórs-
son þýddi. Mál og menning 1993.
Gargantúi og Pantagrúll eftir
Francois Rabelais (1483-1553) er
verk sem hefur fyrir löngu verið
skipað í röð helstu afreka heims-
bókmenntanna og vegur þess er
enn mikill. Eins og fleiri slík verk
var það í upphafi umdeilt og for-
dæmt, einkum fyrir guðlast og
bersögli. Vera má að einhveijir
líti Gargantúa hornauga á okkar
tímum, en það er þá fólk sem
ekki vill láta segja sér sögur af
mergjaðra tagi.
Milan Kundera hefur minnt á
Gargantúa í athyglisverðri grein.
í henni ber hann saman sagna-
meistarana' Rabelais og Salman
Rushdie sem báðir guldu hugar-
flugsins og hinnar sérkennilegu
„fyndni“ sem er vissulega hrika-
leg. Þetta sýnir hve Gargantúi er
nálægur í samtímanum, stendur
okkur nærri þrátt fyrir aldirnar
sem skilja menn að.
Gargantúi og Pantagrúll er 907
blaðsíður í íslensku útgáfunni og
er þá allt talið, sagan eða sögurn-
ar (bækurnar), athugasemdir og
skýringar og fleira. Það er mikil
vinna sem hér liggur að baki.
Þýðandinn, Erlingur E. Halldórs-
son, hefur að dómi þeirra sem
gerst þekkja náð góðum tökum á
stíl og frásagnarhætti Rabelais.
Hann minnir sjálfur á það í eftir-
mála að Rabelais launi þeim vel
sem fara til móts við hann.
Án fræðilegs samanburðar sem
ekki er kostur á í þessari umsögn
má fullyrða að þýðandanum
heppnast að koma til skila þeirri
blöndu hátíðlegs orðfæris og
hversdagsmáls (slangurs á köfl-
um) sem einkennir Rabelais og
gerir verk hans kjammikið og
skemmtilegt aflestrar.
Í Gargantúa og Pantagrúl rúm-
ast margt. Sögumar um hina
mannlegu risa og ferðir þeirra
flokkast kannski helst undir ævin-
týri, en í þeim er umræða um ólík-
legustu efni. Þær era ádeila á flest
það sem gerir manninn hégómleg-
an, ekki síst þá sem hátt era sett-
ir eða vilja láta líta á sig sem slíka.
í sumum þeirra svarar Rabelais
fyrir sig, m.a. árásum guðfræðing-
anna í Sorbonne sem bannfærðu
Gargantúa og Pantagrúl oftar en
einu sinni.
Rabelais sendi verk sitt frá sér
í nokkram bókum og hafði því tíma
til að gaumgæfa „glópsku" heims-
ins og húðfletta samtíðina. Það
má reyndar þakka honum fyrir að
hann gerði það í anda þeirrar
skynsemi sem kallar á vopn gam-
anseminnar og kætinnar. Ævin-
týrin urðu eins konar dæmisögur
sem þeir skildu sem til þekktu, en
flest þeirra eru sígild vegna þess
að þroski háir mönnum ekki að
marki.
í formálum hverrar bókar nýtur
háðfuglinn sín. Algengt ávarp er
drykkjuraftar, stór-ágætu
drykkjumenn, óþreytanlegu
drykkjumenn og fleira í líkum
anda. ísmeygilegur stíllinn leiðir í
ljós tilgang höfundar.
Ég býst við því að Rabelais
höfði til flestra lesenda þegar hann
gengur hvað lengst í ýkjusagna-
gerð sinni. Af nógu er að taka í
þeim efnum. Nefna má Hvernig
Francois Rabelais
Gargantúi launaði Parísingum
góðar móttökur, og hvernig hann
tók stóru klukkurnar úr Vorrar-
Frúar kirkju, Hvernig Gargantúi
át sex pílagríma með salati,
Hvernig. Panúrg drekkir kaup-
manni og kindum hans í sjónum,
einnig öll ferðalögin og framandi
slóðir sem lesandinn kynnist.
Sérstaklega áhrifarík er frá-
sögnin af því þegar þeir hittast
fyrst Pantagrúll og Panúrg, ekki
er þar aðeins leikið á strengi marg-
víslegra tungumála og orðaleikja
heldur verður umræðan um hvort
Panúrg eigi að kvænast eða ekki
ein hin skoplegasta sem finna má
í sögum.
ESSO
ímyndaðu þér, að þú sért nú að taka fyrstu
sporin út í lífið, -eða, að þú fáir einn þessara
stórgóðu vinninga f
endurhæfingar-
happdrættinu.
Spennandi, ekki satt?
NISSAIM
NISSAN
Sjálfsbjörg
Landssamband fatlaðra
^Heimilistæki
Heimsborgir
Flugleiða flugleiðirfmr
Helgarferðir
Flugleiða flugleiðir/mr
Bensínúttekt hjá
Olíufélaginu hf.
risana
Rabelais var mjög upptekinn af
tungumálum og orðaleikjum,
kjarnyrtu máli fyrst og fremst.
Margt hjá honum er hvað það
varðar brautryðjandastarf í rit-
mennsku. Sumt getur minnt á
súrrealískt ljóð eða ranu, annað
er ekki fjarri absúrd leikritagerð.
Þiðnuð orð og frosin orð eru með-
al þess sem Rabelais leikur sér að.
Lofstafir um fíflið Triboulet og
þátturinn um orðtæki hins mæta
Pantagrúls eru meðal þeirra
skringilegu uppátækja sem höf-
undurinn tekur upp á ölvaður af
orðum. Álíka dæmi era mörg.
Rabelais var munkur, læknir og
prestur og svo margt annað. Hann
gekk fram af kristnum mönnum
og kirkjuhöfðingjum með grótesk-
um skrifum sínum þar sem hið
lága var metið til jafns við hið
háa. Að því hafa verið leiddar lík-
ur að fyrirmyndin sé karnívöl mið-
alda. Vissulega þekkti Rabelais
einnig gamlar furðusögur og nýtti
sér þær.
Rabelais fann gleðina í mót-
sögnum lífsins sjálfs þar sem menn
gátu gert það sem þeim datt í
hug, það sem þeir vildu í raun og
veru. Sú hugmynd er hans trúar-
brögð og boðun. Hann átti því
ekki aðeins hlut í að benda mönn-
um á fegurð óskapnaðarins heldur
varð hlutverk hans ekkert minna
en að opna skáldsögunni dyr, evr-
ópsku skáldsögunni sem við freist-
umst til að kalla svo samkvæmt
skilgreiningu fræðimanna. Sú
skáldsaga sýnir okkur á skemmt-
inn hátt flækjur lífsins og dæmir
ekki þótt hún kryfji heldur lifir
sjálfstæðu lífi í frásögninni, text-
anum sem stendur fyrir sínu.
Nýjar bækur
Afmælisdagabókin, afmælis-
dagar, brúðkaupsafmæli og
minnisstæðir dagar.
Afmælisdagabókin er komin
út, uppflettibók, sem skrá má í
afmæli, brúðkaupsdaga og aðra
merkisdaga. í hverri opnu eru ljós- ^
myndir af blómu, vöndum og
skreytingum. Þar að auki eru upp-
skriftir að hátíðarréttum, sætind- |
um og drykkjum.
í bókinni er sér kafli um kín-
verska stjörnuspeki, ásamt skrá
yfir heiti brúðkaupsafmæla og
táknmál eðalsteina. Þá er og lyk-
ill yfir hvernig megi segja saman
skilaboð með blómum, ásamt orða-
lykli að baki hveiju blómi.
í bókinni er íslenskur málshát-
urr við hvern dag og skýrt frá
minnisstæðum atburðum er tengj-
ast ákveðnum dögum.
Útgefandi er Krydd í tilver-
una. Bókin er 160 bls og er
bókin sett í Prentsmiðjunni (j
Odda og prentuð í Singapore.
Þórdís Bachmann þýddi. Bókin
kostar 2.450 krónur.
Svona er líkaminn, ferð_ um vefi
og líffæri. Þýðing Örnólfur f
Thorlacius.
í kynningu útgefanda segir:
„Einstæð kynning á mannslíkam-
anum. í þessari „gegnsæju" bók
er hann kynntur á óvenjulegan
hátt. Líffæri mannsins birtast
hvert af öðru eftir því sem bókinni
er flett. Litglærur sem leggjast
hver yfir aðra veita ásamt prentuð-
um myndum og glöggum texta
greinargott yfirlit um gerð og störf
mannslíkamans. “
Setberg gefur út. Bókin kost-
ar 1.395 krónur.
Nýjar bækur
Barnabók eftir Guð-
rúnu Helgadóttur
Komin er út ný barnabók eftir
Guðrúnu Helgadóttur og nefnist
hún Litlu greyin.
Litlu greyin er fímmtánda bók
Guðrúnar Helgadóttur, en fyrri
bækur hennar hafa notið vinsælda
barna og einnig fullorðinna. Margar
bækur Guðrúnar hafa komið út á
erlendum málum. Undan illgresinu
kom nýlega út í Noregi og er vænt-
anleg innan skamms í Danmörku.
Fyrir hana fékk Guðrún Norrænu
barnabókaverðlaunin. Leikrit Guð-
rúnar, Óvitar, verður sett upp í
Þrándheimi næsta haust.
I kynningu útgefanda segir:
„í bókinni Litlu greyin segir frá
þremur systkinum, þeim Trausta,
Tobbu og Tinnu, sem fara í sumar-
bústað ásamt móður sinni. Þar ger-
ist margt sögulegt. Amma kemur
í heimsókn og týnist - Trausti kemst
í kynni við dularfullan draug - og
ýmislegt kemur í ljós sem engan
hefði órað fyrir.“
Útgefandi er Iðunn. Gunnar
Karlsson myndskreytti bókina
Guðrún Helgadóttir
sem prentuð er í Prentbæ hf.
Bókin kostar 1.590 krónur.
EUROBATEX
PIPU-
EINANGRUN
í sjálflímandi rúllum,
plötum og hólkum.
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 - REYKJAVÍK - SÍMI 38640
<