Morgunblaðið - 30.11.1993, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1993
15
Nýjar bækur
■ Er allt að verða vitlaust?
eftir Iðunni Steinsdóttur. Ný ungl-
ingabók eftir Iðunni Steinsdóttur
sem nefnist Er allt að verða vit-
laust? Þetta er saga úr umhverfi
sem allir unglingar þekkja. Iðunn
Steinsdóttir hefur áður sent frá
sér fjölda barna- og unglingabóka
sem notið hafa vinsælda. I kynn-
ingu útgefanda segir: „Hér segir
frá vinunum Flóka, Hildu, Arnari
og Olgu sem eru ýmsu vön, en
stendur þó sannarlega ekki á sama
um yfirganginn í töffaraliðinu í
níunda bekk, sem lætur þau alls
ekki í friði.“ .
Útgefandi er Iðunn. Bókin er
prentuð I Prentbæ hf. Bókin
kostar 1.580 krónur.
■ Bara vinir eftir Janet
MacLeod Trotter. Út er komin
unglingabókin Bara vinir eftir Jan-
et MacLeod Trotter. í kynningu
útgefanda segir: „Lulu hefur alltaf
haft mestan áhuga á fótbolta og
verið eins og ein af strákunum, en
þegar bestu vinir hennar, Sid og
Sally, fara að vera saman verður
hún fyrir meiriháttar áfalli. Hún
ákveður að bregðast við með því
að breyta ímynd sinni og skipta um
hárgreiðslu, fatastíl og félaga. Og
þá kemst hún í kynni við Vince og
klíkuna hans.“
Útgefandi er Iðunn. Sigríður
Rögnvaldsdóttir þýddi bókina,
sem er prentuð í Prentbæ hf.
Bókin kostar 1.280 krónur.
■ Palli var einni í heiminum
eftir danska rithöfundinn Jens
Sigsgaard með teikningum eftir
Arne Ungermann er kominn út á
íslensku í 5. útgáfu. Þýðandi bókar-
innar er Vilbergur Júlíusson. Palli
var einn í heiminum kom fyrst
út hjá Gyldendal í Kaupmannahöfn
1942 og hefur síðan verið gefinn
út á nær 40 tungumálum í milljón-
um eintaka í öllúm heimsálfum.
Bókin kom fyrst út á íslensku 1948.
Útgefandi er bókaútgáfan
Björk. Bókin kostar 741 krónur.
■ Þrjár bækur í bókaflokknum
Skemmtilegu smábarnabækurn-
ar eru komnar út; Kolur í leik-
skóla er nánast framhald af bók-
inni, Þegar Kolur var lítill sem
kom út 1991. Höfundar eru hinir
sömu, Lucille Hammond og teikn-
ari Eugine Fernades. Bókin segir
frá því þegar Kolur tregðast við að
fara í leikskóla en eftir að skólavist-
in hófst undi hann sér vel.
Útgefandi er bókaútgáfan
Björk. Bókin er prentuð í Prent-
verki Akraness hf. og kostar 170
krónur.
Geiturnar þrjár. Hún kemur nú
út í 2. útgáfu. Höfundur hennar er
Ellen Rudin og teiknari Lilian
Obligado.
Útgefandi er bókaútgáfan
Björk. Bókin er prentuð í Prent-
smiðjunni Odda. Bókin kostar
170 krónur.
Gettu hver ég er. Hún kemur
nú út í 2. útgáfu. Höfundur hennar
er Ruth Leon og teiknari Mamuro
Funai.
Útgefandi er bókaútgáfan
Björk. Bókin er prentuð í Prent-
smiðjunni Odda og kostar 170
krónur.
Stefán Júlíusson íslenskaði
þessar þijár bækur.
$■ .fu
■ ' - si
mím I
agnadeild Hallar
ími. 813211 oe 81!
!fNt s - * -.ig|
ERO 722
Stóllinn er búinn einstökum stillimöguleikum
s.s. ó hæð, setudýpt og örnuim, fjöörun á baki og
sérhæíðum veltibúnaði á setu.
Við hönnun stólanna var lögð mikil áhersla á
samvinnu viö lækna, sjúkraþjálfara og arkitekta
til þess að ná sem bestum árangri. með
heilsuvernd, fállegt útlit og notagildi í huga.
ERO 722 hlaut hönnunarverölaun Norska
% útflutningsráðsins 1992.
f. . r'"\.„&*$&?** v;-;’’Vv;
* l
Vegna magninnkaupa og
hagstæöra samninga býðst nú
FJÓRTÁN þúsund
KRÓNA AFSLÁTTUR
Verð aðéms
kr. 39.873,
Verðáður 53.873.-
VERÐLAUNASTOLLINN