Morgunblaðið - 30.11.1993, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NOVEMBER 1993
23
4 konur efstar í
miðstjómarkjöri
Formaður ABR baðst afsökunar á orðum sínum
KOSNINGAR ritara og gjaldkera landsfundar Alþýðubandalagsins
fór fram án átaka á landsfundinum á laugardag og tillaga kjörnefnd-
ar um kosningu 9 manna í framkvæmdasljórn var samþykkt sam-
hljóða á fundinum. Nokkur átök urðu aftur á móti fyrir kosningu
til miðstjórnar og kom fram hörð gagnrýni á formann Alþýðubanda-
lagsfélagsins í Reykjavík við utandagskrárumræður á sunnudag
vegna ummæla hans um hveija ætti að fella út af tillögu kjörnefndar.
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir og Elín
Björg Jónsdóttir voru kosnar ritari
og gjaldkeri flokksins en Anna Kr.
Sigurðardóttir og Unnur Kristjáns-
dóttir báðust undan endurkjöri.
Kvaðst Unnur hafa ákveðið að víkja
úr embætti til að stuðla að sam-
komulagi en hún var síðan kosin í
framkvæmdastjórn. Guðbjartur
Hannesson, formaður framkvæmda-
stjórnar, vék úr framkvæmdastjórn
en auk Unnar var Árni Þór Sigurðs-
son kosinn nýr fulltrúi í fram-
kvæmdastjórn.
„Ekki eitt óvarlegt orð“
Kjörnefnd gerði tillögu um 32
fulltrúa í miðstjórn og 16 tii vara.
Á fundi félaga í Alþýðubandalags-
félagi Reykjavíkur fyrir miðstjórn-
arkjörið á laugardag lýsti formaður
félagsins Einar Gunnarsson yfir
hverja hann teldi að ætti að kjósa
og sagði að óæskilegt væri að kjósa
Svein Allan Morthens Sauðárkróki
og Kjartan Valgarðsson formann
Birtingar sem kjörnefnd gerði tillögu
um sem aðalmenn og Björn Guð-
brand Jónsson félaga í Birtingu en
kjörnefnd stillti honum upp sem
varamanni í miðstjórn. Þegar úrslit
lágu fyrir síðdegis á sunnudag kom
í ljó.s að Sveinn Allan og Kjartan
náðu þó báðir kjöri til miðstjórnar
og Björn Guðbrandur sem varamað-
ur en Einar Gunnarsson sem einnig
var tilnefndur af kjörnefnd náði ekki
kosningu heldur var kjörinn vara-
maður.
Við upphaf landsfundar á sunnu-
dag kvaddi Sveinn Allan sér hljóðs
utan dagskrár og gagmýndi um-
mæli Einars og krafðist þess að
hann bæðist afsökunar. Einar kom
þá í ræðustól og bað Svein afsökun-
ar á ummælum sínum sem hann
sagði að hefðu verið mistök. Arthur
Morthens, fulltrúi í Birtingu, lét sér
þessa afsökunarbeiðni ekki nægja
og sagði að í raun og veru væri um
pólitíska yfirlýsingu að ræða af hálfu
Alþýðubandalagsfélagins í Reykja-
vík sem væri mjög alvarlegt vegna
þess samstarfs og undirbúnings
sem menn væru að fara í vegna
borgarstjórnarkosninganna í vor.
Svavar Gestsson kom þá í ræðu-
stól og sagði sagði ekki skrítið að
erfiðleikar í flokknum næðu hámarki
í Reykjavíkurfélögunum. Sagði hann
að hægt væri að ná samstöðu um
framboð vegna borgarstjórnarkosn-
inganna en þá mætti ekki eitt óvar-
legt orð falla sem gæti spillt þeim
möguleikum.
Fjórar konur urðu efstar í mið-
stjórnarkjörinu; Guðrún Ágústsdóttir
fékk flest atkvæði eða 223, Sigríður
Stefánsdóttir fékk 192 atkv., Stefan-
ía Traustadóttir 186 atkv. og Anna
Kristín Sigurðardóttir 183 atkv.
Næstir komu Benedikt Davíðsson
með 179 atkv., Guðbjartur Hannes-
son 179, Svanfríður Jónasdóttir 172
og Sveinn Allan Morthens 163.
------» ♦ ♦----
Kj ördæmamálið
Persónu-
bundið val
eða forval
„LANDSFUNDUR Alþýðubanda-
lagsins vill árétta nauðsyn þess
að skoða þarf kjördæmamálið sem
hluta af heildarumræðunni um
stjórnsýslu landsins. Kanna þarf
hvernig gefa má kjósendum kost
á að hafa aukin áhrif á það hverj-
ir kosnir eru, annað hvort með
persónubundnu vali eða sam-
ræmdum ákvæðum um forval,“
segir í ályktun landsfundar.
Sérstök umræða fór fram um kjör-
dæmamálið og í ályktun sem sam-
þykkt var segir að mikiivægt sé að
um leið og stefnt sé að því að jafna
atkvæðisrétt og gera úthlutunarregl-
ur einfaldari verði áfram tryggður
jöfnuður milli flokka. Er forystu
flokksins falið að hafa frumkvæði
að umræðum um breytingar á kjör-
dæmaskipan.
Ólafur Ragnar að loknum landsfundi
Dýrmætur stuðning-
ur við mína vinnu
„ÉG ÆTLA ekki að njeta mína eigin stöðu innan flokksins, en ég
kvarta ekki undan því hver hún er,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson,
formaður Alþýðubandalagsins, í samtali við Morgunblaðið að loknum
landsfundi. „Þvert á móti fagna ég því að geta í samvinnu við flokk-
inn átt hlut að því að móta nýjan grundvöll umræðunnar um efna-
hags- og atvinnumál á íslandi. Að fá þá staðfestingu á fundinum við
þeirri meginstefnu er dýrmæt stuðningsyfirlýsing við þá vinnu sem
ég hef lagt í það verk. Öll atburðarás hér á fundinum sannar, að
fullyrðing mín í setningarræðu um að armaskipting í Alþýðubandalag-
inu heyrði sögunni til, er rétt,“ sagði Ólafur Ragnar.
„Ég er mjög ánægður með niður-
stöðu fundarins um útflutningsleið-
ina. í sérstakri ályktun er lýst yfir
stuðningi við þá meginstefnu sem
kemur fram í útflutningsleiðinni.
Landsfundurinn fagnar þeirri um-
ræðu sem farið hefur fram um hana
og í stjórnmálaályktuninni er kynnt
rækilega að Alþýðubandalagið muni
á næstunni boða útflutningsleiðina
sem grundvöll nýrra hugmynda í
hagstjórn á Islandi," sagði hann.
„í skjalinu sem við lögðum fram
upphaflega voru nær 300 sjálfstæð-
ar hugmyndir sem mynda ákveðna
heild og við báðum flokkinn um að
ræða þær og koma með tillögur og
athugasemdir og það var gert.
Margar þeirra eru mjög góðar við-
bætur. Nú munum við vinna að nýrri
útgáfu sem verður grundvöllur víð-
tækrar umræðu í þjóðfélaginu á
næsta ári. Og við ætlum okkur að
mæta með þennan efnivið til við-
ræðna um nýja landsstjórn á ís-
landi," sagði Olafur Ragnar.
... i
ASTRA
OPEL AS'
þf metsöIubUH Evrópu, frafmleiddur í Þýékalandi,
VERÐ FRA KR. 1.497d)00.- /
CTRA
Fosshóisi 1, Reykjavi
ySÍmi 63400Q/
OPEJ/CORSA er/faanlegur megf vökvastýri og sjálfskiptin
/ a4rð FRA KR. 899.000/ y
er vel búinn bíll með s^mlæsingum ng þjófavörn.
VERÐ FRÁ KR. k095.000.- / /
VECTRA
<«»:»
SENNILAGA ERU HVERGI BETRþVERÐ Á OPEL BÍLUM ENÁTSLANDI.
GÓp/jÓNUSTa/g MIKiyBNDING TRY^GJA GÓÐA EKÍDURSÖLiy
r/nsluakid' opel ogpínnið mumnn, kíkið SÉÐAN á VERÐIN.
PEL - KQMINN TIL AÐ VERA O0 TIL1
Munid
úrvaln
no