Morgunblaðið - 30.11.1993, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1993
Nýdönsk heldur tónleika
í Þjóðleikhúsinu í kvöld
Nýdönsk
Hljómsveitin Nýdönsk, Stefán Hjörleifs-
son, Olafur Hólm, Björn Jörundur Frið-
björnsson, Jón Olafsson og Daniel Har-
aldsson.
HLJÓMSVEITIN Nýdönsk ætti
að vera flestum að góðu kunn,
enda hefur hún verið í fremstu
röð íslenskra rokk- og popphljóm-
sveita síðustu ár. Með tímanum
hefur Nýdönsk sótt í sig veðrið
og þó hljómsveitin sé komin á
þann aldur að teljast ráðsett,
rúmra sex ára, vex vegur hennar
enn og meðal verkefna síðustu
mánaða eru annir við að semja lög
og taka upp fyrir nýútkomna
hljómplötu, Hunang, æfa fyrir
tvenna stórtónleika Megasar í
MH, þar sem Nýdönsk lék stórt
hlutverk, semja ríflegan klukku-
tíma lagabunka fyrir leikritið
Gauragang sem frumsýnt verður
í Þjóðleikhúsinu eftir áramót og
undirbúa af kappi og kostgæfni
útgáfutónleika Hunangs, sem
verða í Þjóðleikhúsinu í kvöld.
Það hlýtur að teljast meira en
viðeigandi fyrir Nýdanska að halda
útgáfutónleika í leikhúsi, eins og
hljómsveitin gerir í kvöld, ekki síst
þegar um er að ræða Þjóðleikhúsið,
þar sem hljómsveit hefur ekki haldið
tónleika í á annan áratug. í spjalli
við þá Stefán Hjörleifsson og Olaf
Hólm kemur og fram að þeir félagar
eiga gott innhlaup í Þjóðleikhúsið
þar sem er'þátttaka þeirra í leikriti
Olafs Hauks Símonarsonar, Gaura-
gangi, en Nýdanskir voru fengnir
til að semja sönglög við texta Ólafs,
aukinheldur sem þeir daðra við Þalíu
meðfram því að leika undir á hverri
sýningu og koma fram í hópatriðum.
Stefán segir efláust mega skrifa
það á Gauragang að þeir félagar
hafi fengið inni í Þjóðleikhúsið með
útgáfutónleikana, enda nánast
ógjörningur fyrir hljómsveitir að
komast þar inn til að halda hljóm-
svditartónleika, enda leikhúsið bókað
frá morgni til kvölds við leikhús-
vinnu.
„Okkur hefur lengi langað að
halda tónleika í Þjóðleikhúsinu,"
3M
Eyrnatappar
segir Stefán, „enda er það glæsilegt
hús og eftirsóknarvert að vera ekki
þar sem allir eru. Okkur langar að
hafa þessa tónleika virðu- og leik-
húslega, með númeruð sæti og láta
þá hefjast á leikhústíma, ki. 20.00,
taka hlé og ámóta. Við leikum öll
lög af nýju plötunni og svo tíu lög
til viðbótar eða svo. Tónleikarnir
verða allir teknir upp og myndritað-
ir fyrir sjónvarpsþátt."
Hrátt Hunang
Þó Nýdanskir séu uppteknir af
Gauragangi og vinnunni í kringum
hann, leggja þeir eðlilega mesta
áherslu á Hunang um þessar mund-
ir og sú plata er aðalatriði tónleik-
anna í kvöld. Ekki segjast þeir bú-
ast við miklum erfiðleikum við að
spila efni plötunnar á tón-
leikum, enda hún tiltölulega
gróf. Þeir hafa reyndar lýst
því áður í viðtölum að ætl-
unin hafi verið hafa hljóm
á henni sem einfaldastan;
að það sem spilað væri inn
skilaði sér sem skýrast.
Stefán segir að þeir hafi
unnið plötuna í snörpum
lotum og tekið sér frí inn á
milli, sem skili vissulega
vissum skýrleika, en ekki
síst spennu sem gæði plöt-
una lífi, því menn vissu ekki
vel hvort þeir tónar sem
slegnir voru hveiju sinni
myndu skila sér á plötuna.
„Upphaflega fórum við af
stað og ætluðum að gera
poppplötu, með strengjum
og tilheyrandi,“ segir Stef-
án, „en á meðan við vorum
að vinna hana skiptum við
um skoðun.“ Ólafur tekur
undir þessi orð Stefáns og
segir að upphaflega hafi átt
að semja lög á plötuna í
sameiningu og breyta þann-
ig út frá þeirri venju að
hver semdi sitt' sem allir
sæju svo um að úsetja. „Það
fór svo langt að um tíma
hittumst við reglulega til
að semja saman, en það
skilaði ekki nógu miklu og
þá fórum við í gamla farið
að semja hver í sínu horni
og síðan steyptum við öllu
saman. Það er kannski ekki
nógu mikill poppandi í okkur.“ „Mér
fannst og finnst það að mörgu leyti
skemmtileg hugmynd að gera popp-
plötu,“ segir Stefán, „og við sömdum
til að mynda saman í vor lagið Foss,
sem varð lítil poppsinfónía. Það var
bara ekki tími til að gera það að
þessu sinni, þó ég efist ekki um að
við eigum eftir að gera það einhvern-
tímann seinna.“ „Það er líka ekki
gott ef fimm manna hópur ákveður
að hittast á ákveðnum stað og. stund
að semja,“ áréttar Ólafur, „Það er
frekar að einhver situr einn heima
yfir kaffibolla og þá allt í einu flýg-
ur honum í hug lag.“ „Við erum
miklir andans menn,“ segir Stefán
hátíðlega.
Viðtal: Árni Matthíasson
k AP Pr sPurn‘n u'Ka sPurn!"9Hvað£
Á t>etta i.nflpa- ... tv/rir seuoims
sig
eða
í JÓLé' °°
Zspurninf^purrfng. %d é **
P®tta . dag^ita fVrir,S®„i, .. 0 pX#*'8
-a6
trið'
síðu
s
f/í 600 "Jlbóldnni,
,B* **
brer
FJOLVIS,
Kleppsmýrarvegi 8, pósthólf 8055, sími 681290, fax. 683290.
Brauð handa hungruðum heimi
HJÁLPARSTOFNUN kirkjunnar leitar til íslendinga eftir fjárframlög-
um. Verkefni stofnunarinnar hafa flest verið meðal fólks sem hefur
liðið mikla nauð erlendis en starfið innanlands hefur einnig aukist.
Landssöfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar
Margl smátt
gerir eitt stórt
JÓLASOFNUN Hjálparstofnunar kirkjunnar er að fara af stað. Stofn-
unin sendir nú upplýsingabækling, gíróseðil og söfnunarbauk, allt á
einu bretti og beinir þeim tilmælum til fólks að það klippi út söfnun-
arbaukinn og lími hann saman. Hjálparstofnun leggur áherslu á að
allir geti hjálpað — það muni um hvert framlag, einnig smápeningana
úr bauknum. Verkefni Hjálparstofnunar kirkjunnar hafa flest verið
meðal fólks sem hefur liðið mikla nauð erlendis, svo sem vegna hung-
urs og stríðsátaka. Síðustu ár hefur einnig verið lögð æ meiri áhersla
á svokallaða þróunarhjálp en þá er verið að hjálpa fólki til að bjarga
sér sjálft. Erfiðar efnahagsástæður hafa einnig orðið til þess að hjálp-
arstarf mnanlands hefur aukist
félagasamtaka.
Á liðnu starfsári veitti stofnunin
neyðaraðstoð í fyrrverandi lýðveld-
um Júgóslavíu og stóð fyrir fatasöfn-
un í samvinnu við Rauða kross ís-
lands.
Hjálparstarf í Sómalíu hefur
gengið vel þrátt fyrir erfiðar aðstæð-
ur. Skrifstofa Lútherska heimssam-
bandsins í Nairóbí hafði yfirumsjón
með hjálparstarfinu. Mörg þúsund
tonn af hjálpargögnum hafa verið
flutt til Sómalíu og hefur langmestur
hluti þeirra komist til skila.
Þróunaraðstoð
Verulegur árangur hefur náðst í
að bæta kjör barna í Andra Pradesh-
héraði á Indlandi með því að styðja
þau til náms. Þar hefur einnig verið
reist 40 rúma sjúkrahús, hið eina
fyrir 200 þúsund manna byggð, sem
breytir aðstöðu til lækninga á ríkj-
andi sjúkdómum á svæðinu, sérstak-
lega augnsjúkdómum. Svipaða sögu
er að segja frá Suður-Eþíópíu þar
sem sjúkraskýli var byggt meðal
tsemai-manna í Voitó-dalnum og
þjónar það um 12 þúsund manna
svæði.
Ný verkefni
Á nýbyrjuðu starfsári verða tekin
upp ný verkefni í Mósambik og Eþí-
ópíu. I Mósambik fer í hönd marg-
háttuð uppbygging eftir áratuga
borgarastríð. Hjálparstofnun kirkj-
unnar hefur tekið að sér að kosta
byggingu nýrra vatnsbóla og endur-
verulega, bæði til einstakhnga og
byggingu annarra í Tete-héraði í
norðurhluta landsins. Kostnaður
verður kringum 5 milljónir króna. í
Eþíópíu verður kostuð gerð vatns-
tanka fyrir sjúkraskýli í Konsó þar
sem koma 40 þúsund sjúklingar á
ári. Á nokkrum stöðum í Suður-Eþí-
ópíu verður einnig kostuð endur-
bygging heimavistarhúsnæðis fyrir
grunnskóla- og framhaldsskólanem-
endur. Verkefnin í Eþíópíu munu
kosta kringum 4-5 milljónir króna
og dreifast þau á tvö ár.
Innanlandsaðstoð
Innanlandsaðstoð er vaxandi þátt-
ur starfsemi Hjálparstofnunar kirkj-
unnar og varði stofnunin um 3 millj-
ónum til hennar á síðasta starfsári
eða um 10% af heildarsöfnunarfé
ársins. Aðstoðin skiptist í tvennt,
annars vegar aðstoð við félaga- og
líknarsamtök og hins vegar við ein-
staklinga. Á síðasta ári hlutu Vernd,
Miðstöð fólks í atvinnuleit, Stíga-
mót, Geðhjálp og Alnæmissamtökin
fjárstyrki frá stofnuninni.
Umsóknir einstaklinga um aðstoð
hafa aukist mjög verulega. Aðstoð
stofnunarinnar hefur að mestu verið
í formi úttektarheimilda á matvöru
fyrir ákveðna upphæð. í einstaka
tilvikum eru mál leyst með beinum
fjárstuðningi. Aðstoð við einstakl-
inga gengur alltaf í gegnum presta.
Til þeirra leita einstaklingar og þeir
koma umsóknum til Hjálparstofnun-
ar kirkjunnar á framfæri.
PHOENIX-námskeiðið
LEIÐIN TIL ÁRANGURS
Taktu ákvörðun núna um að gera
þínar æðstu vonir að veruleika!
Brlan Tracy
Á PHOENIX-námskeiðinu lærir þú það sem til þarf til
að ná árangri og skara fram úr. Þú lærir hin heillandi
mynstur yfirburða, sem gera venjulegu fólki kleift að
ná framúrskarandi árangri... í vinnunni og einkalífi.
Síðustu PHOENIX-námskeiðin fyrir jól;
Helgarnámskeið; 3. desember kl. 15.00—22.00,
4. og 5. desember kl. 10.00—16.00,
7., 8. og 9. desember kl. 16.00—22.00.
PH0ENIX byggir á fyrirlestrum Brian Tracy,
myndböndum, vinnubók og umræðum undir
stjórn Fannýjar Jónmundsdóttur, sem jafnframt
er leiðbeinandi námskeiðsins.
Námskeiðið er haldið í húsnæði
Stjórnunarfélagsins.
Skráning er hafin!
Nánari upplýsingar í síma 621066.
Stjórnunarfélag
Islands
Ánanaustum 15 Sími: 621066