Morgunblaðið - 30.11.1993, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NOVEMBER 1993
45
fallegt par eins og Þóreyju og Bjart,
enda var alltaf talað um þau sem
eitt. Því er það svo erfitt og sárt
að sjá þau skilin að með svo sorgleg-
um hætti, sem og sú tilhugsun að
Bjartur sé horfinn okkur úr þessu
lífi.
Við viljum kveðja Bjart með því
að gera orð Tómasar Guðmunds-
sonar skálds að okkar:
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast ævinlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
Og skín ei ljúfast ævi þeirri yfir,
sem ung á morpi lífsins staðar nemur,
og eilíflega, óháð því, sem kemur,
í æsku sinnar tipu fegurð lifir?
Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki
um lífsins perlu í pllnu augnabliki.
Þannig verður minningin um
Bjart.
Elsku Þórey, missir þinn er mik-
ill og við óskum þess af heilum hug
að þér veitist styrkur i sorg þinni.
Foreldrum Bjarts, systkinum,
tengdaforeldrum, ættingjum og
vinum vottum við okkar dýpstu
samúð.
Þóra Björg, Sigurður og Sindri.
Kveðja frá íþrótta-
félagi stúdenta
Dagar koma og dagar líða, oft
án þess að við veitum þeim sérstaka
eftirtekt en með ótrúlegum hraða
gerast atburðir sem kollvarpa dag-
legu lífi okkar og fá okkur til að
hugsa um lífið og tilveruna. Eins
og hendi sé veifað skellur svart-
nættið á okkur af fullum þunga og
sorgin smýgur djúpt inn í hjarta
okkar og sest þar að. í kjölfarið
leitum við skjóls undan vágestinum
sem engu eirir, ristir djúp skörð í
raðir okkar og brýtur upp þá tilveru
sem við þekkum þegar lögmál lífs-
ins verða öfugsnúin.
Þegar út spurðist að vinur okkar
og félagi, iþróttamaðurinn Guð-
bjartur Magnason eða Bjartur eins
og hann var kallaður, væri allur
þá setti menn hljóða. Þeir dagar
sem áður var getið tóku við með
nístandi sársauka og biturleika. Við
félagar Guðbjarts í blakdeild
Íþróttafélags stúdenta höfðum
ávallt mikið af honum að segja
enda einn af föstum punktum í til-
veru okkar. Fyrst sem leikmaður
með félaginu og síðan sem stuðn-
ingsmaður og einstakur vinur, en
Guðbjartur tengdist félaginu einnig
órjúfanlegum böndum í gegnum
unnustu sína, Þóreyju Haraldsdótt-
ur, sem er leikmaður með kvenna-
liði félagsins. Síðustu ár kom hann
á flesta leiki félagsins og hvatti
sérstaklega vel kvennalið félagsins
og höfðu menn á orði að þar færi
margra manna maki.
Guðbjartur heitinn var vel kynnt-
ur innan blakhreyfingarinnar enda
fæddur og uppalinn á Neskaupstað
þar sem hann steig sín fyrstu skref
í blakíþróttinni en margir ungir og
efnilegir leikmenn íþróttarinnar
hafa einmitt komið þaðan. í svo lít-
illi félagshreyfingu sem blakið er
þekkja allir alla og ljóst er að það
tómarúm sem myndast við fráfall
Guðbjarts verður vandskipað.
Hvatningaróp og stuðningur munu
ekki lengur heyrast úr sæti hans
og sá ískaldi veruleiki minnir okkur
á hvernig lífsbrautin getur verið
þyrnum stráð. Ekkert er öruggt og
ekkert er gefið, nema tímahjólið
sem heldur áfram að snúast inn
óþekkta framtíðina.
Eitt er þó víst að við sem stönd-
um að Iþróttafélagi stúdenta mun-
um heiðra minninguna um Guðbjart
Magnason, hinn góða dreng, vin og
félaga sem mun eiga pláss í huga
okkar allra um ókomna framtíð. A
þessari sorgarstundu sendum við
foreldrum, ættingjum og Þóreyju,
unnustu Guðbjarts, okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur. Megi Guð
almáttugur varðveita ykkur og
styrkja um framtíð alla.
Guðmundur Helgi Þorsteinsson.
Fleirí greinar um Guðbjart
Magnason bíða birtingar og
munu birtast næstu daga.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
RAGNHILDUR I. SIGURÐARDÓTTIR,
Langholtsvegi 16,
Reykjavik,
lést í Landspítalanum 20. nóvember 1993.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þórdís Þórðardóttir, Guðmundur Jón Albertsson,
Ægir H. Þórðarson, Guðbjörg Sigurbjörnsdóttir,
Inga Hildur Þórðardóttir, Pétur Þorgrímsson,
Bjarni Þórir Þórðarson, Elín Katrín Rúnarsdóttir,
Kristín Guðný Þórðardóttir
og barnabörn.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SAMÚEL JÓNSSON
frá Snjallsteinshöfða,
verður jarðsunginn frá Skarðskirkju á Landi laugardaginn
4. desember kl. 14.00.
Hlíf Samúelsdóttir, Þórir Guðmundsson,
Gunnur Samúelsdóttir, Pétur Kristjánsson,
Guðjón Samúelsson, Guðrún Friðriksdóttir,
Auður Samúelsdóttir, EggertWaage,
Katrín Samúelsdóttir, Ólafur Helgason
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskulegur faðir okkar, sonur og tengdasonur,
GUÐMUNDUR JÓNSSON,
Hamarsbraut 10,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 2. des-
ember kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Hjálparsveit skáta,
Hafnarfirði.
JónTrausti, Jökull, Ásgeir,
Halldóra Sigurðardóttir, Jón E. Guðmundsson.
Stella Vilhjálmsdóttir, Jón Valur Tryggvason.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SKAFTI JÓSEFSSON,
Heiðmörk 39,
Hveragerði,
lést í Landspítalanum sunnudaginn 28. nóvember.
Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju föstudaginn 3. desember
kl. 14.00.
Margrét Jónsdóttir,
Jóhannes Finnur Skaftason, Hulda Sigurðardóttir,
Jósef Skaftason, Elín Guðmundsdóttir,
Hólmfríður Skaftadóttir, Gísli J. Gíslason,
Auður Skaftadóttir, Þröstur Sigurðsson
og barnabörn.
t
Ástkær dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG HJÖRLEIFSDÓTTIR,
Egilsbraut 9,
Þorlákshöfn,
andaðist í Landspítalanum aðfaranótt laugardagsins 27. nóvember.
Útförin ferfram frá Þorlákskirkju föstudaginn 3. desember kl. 14.
Rútuferð frá BSl' kl. 12.45.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Orgelsjóð Þorláks-
kirkju.
Ingveldur Ámundadóttir,
Magnús Brynjólfsson, Edda Rfkharðsdóttir,
Hjörleifur Brynjólfsson, Gróa S. Erlingsdóttir,
Vigdís Brynjólfsdóttir,
Sigurbergur Brynjólfsson, Kolbrún Skúladóttir
og barnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
RÓSA PETRA JENSDÓTTIR,
Bárugötu 37,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunnunni
í dag, þriðjudaginn 30. nóvember,
kl. 13.30.
Ingibjörg S. Karlsdóttir, Sigfús Guðmundsson,
Sigurbjörg K. Karlsdóttir, Valdimar Runólfsson,
Svanhildur Karlsdóttir, Þórður Jónsson
og barnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR KRISTJÁNSSON,
áðurtil heimilis
í Lönguhlíö 13, Reykjavik,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju á morgun, miðvikudaginn
1. desember, kl. 13.30.
Guðrún Þ. Ólafsdóttir,
Jón Kr. Ólafsson, Guðlaug Steingrfmsdóttir,
Jóna G. Ólafsdóttir, Guðmundur Þ. Björnsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
útför föðurbróður míns,
GUNNLAUGS KRISTJÁNSSONAR
frá Lambanesi í Fljótum.
Haraldur Árnason.
t
Alúðarþakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför
HALLDÓRU ÓSKARSDÓTTUR
Einar Sigurðsson,
Erna G. Einarsdóttir, Dóra G. Einarsdóttir,
Þuríður Einarsdóttir, Guðrún Einarsdóttir,
tengdasynir, barnabörn og barnabarnabarn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
SIGFÚSAR SVEINSSONAR,
Furugrund 48,
Kópavogi.
Guðrún Gissurardóttir,
Sigrún Sigfúsdóttir, Ásgeir Ámundsson,
Guðrún Ásgeirsdóttir, Hörður Erlendsson,
Björn Ásgeirsson, Jóhanna Jónsdóttir
og barnabarnabörn.
t
Alúðarþakkir sendum við öllum þeim,
sem sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför föður okkar, tengda-
föður, bróður og afa,
MAGNÚSAR ÁRMANNS
MAGNÚSSONAR
framfærslufulltrúa,
Háaleitisbraut 54.
Rebekka Magnúsdóttir, dr. Alexander Olbrich,
Kristján Magnússon,
Ester Magnúsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát eiginkonu, dóttur, systur,
mágkonu og frænku,
HELGU JÓHÖNNU
SVAVARSDÓTTUR.
Einar Friðfinnsson,
Arnbjörg Markúsdóttir, Ingvar Brynjólfsson,
Svavar Guðmundsson, Guðmundur Svavarsson,
Sævar Svavarsson, Unnur Þórðardóttir,
Guðrún Sævarsdóttir.
t
Þökkum af alhug öllum þeim, er sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
HJÁLMARS KRISTINS
HELGASONAR,
Hofsvallagötu 17,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Elín Sumarliðadóttir,
Guðbjörg Hjálmarsdóttir, Baldur Aðalsteinsson,
Helgi Hjálmarsson, Sesselja G. Pálsdóttir,
Auður Hjálmarsdóttir, Rúnar Eiríksson,
barnabörn og barnabarnabörn.