Morgunblaðið - 30.11.1993, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1993
47
MEISTARAKOKKAR
Gísli o g Stefán
elda fyrir þjóðhöfðingja
Veislur þjóðhöfðingja eru yfirleitt með þeim allra
veglegustu sem um getur og það sama á einnig
við um þær, sem forseti íslands, frú Vigdís Finnboga-
dóttir, býður til í opinberum heimsóknum. í veislum
af þessu tagi er reynt að flagga því besta, sem land
og þjóð hefur upp á að bjóða í mat. Þeir kokkar, sem
fyrst og fremst hafa séð um matargerð í veislum for-
setans á undanförnum árum, eru þeir Gísli Thoroddsen
og Stefán Sigurðsson.
Maturinn vakti mikla athygli
Nú síðast héldu þeir með forsetanum út til Noregs
og sáu um matinn í tæplega tvö hundruð manna
matarboði, sem forseti íslands efndi til á Grand Hotel
í Osló. Maturinn í þeirri veislu vakti vægast sagt mikla
hrifningu allra viðstaddra og í kjölfarið ritaði Eiður
Guðnason, sendiherra íslands í Noregi, bréf til þeirra
Gísla og Stefáns þar sem sagði m.a.: „Mér er sérstök
ánægja að koma því til skila að allir gestirnir, sem
ég talaði við um kvöldið, og þeir voru margir, voru
dolfallnir yfir matnum, ekki aðeins hve góður hann
var, heldur og ekki síður hve listilega og frumlega
hann var fram reiddur. Tveir hringdu sérstaklega í
sendiráðið daginn eftir til að þakka fyrir og lýsa ánægju
með matinn. Veisluvanir menn úr kerfinu sögðu slíkar
veislur ekki gerast betri né glæsilegri. Allt hefur þetta
vakið okkur stolt og við svörum því jafnan til að íslenskt
hráefni sé frábært og íslenskir kokkar fagmenn og
listamenn á heimsmælikvarða."
Þeir Gísli og Stefán eru engir nýgræðingar í
matargerð og hafa verið viðloðandi hana í fjölmörg
ár. Undanfarin ár hafa þeir starfað saman á Hótel
Óðinsvé og í Perlunni. Báðir hafa þeir verið í föruneyti
forsetans í opinberum heimsóknum í fjölmörg skipti
og séð um matinn annað hvort í veislum forseta eða
Utflutningsráðs. „Við reynum að gera okkar besta og
að hafa matseðilinn eins íslenskan og kostur er á. Oft
höfum við fengið góð viðbrögð en aldrei jafn góð og
í Osló,“ segja þeir Gísli og Stefán.
Undirbúningur mikils virði
Aðspurðir um hvernig þjóðhöfðingjaveislur væru
undirbúnar sögður þeir þá aðstöðu, sem þeir fengju
til umráða erlendis, vera mjög misjafna og því yrðu
þeir ávallt að fara mjög vel undirbúnir. „Það má segja
að eftir að matseðillinn hefur verið ákveðinn tekur það
um fjóra daga að undirbúa förina og þar af heill dagur
í að pakka niður. Þá er ekki heldur hægt að pakka
niður viðkvæmasta hráefninu fyrr en á allra síðustu
stundu.“
Þeir sögðu að þó að aldrei væri sami matseðillinn
í tveimur veislum væri sumt sem þeir ættu sameigin-
legt. Ef um hádegismat væri að ræða væri alltaf fisk-
ur en í kvöldverðarboðum væri boðið upp á lamb.
I veislunni í Osló var boðið upp á laxahreiður í for-
rétt, lambahrygg með lerkisveppasósu í forrétt og
skyr með blábeijakrapi í súkkulaðikörfu í eftirrétt.
„Við reynum alltaf að nota þau íslensku hráefni sem
við getum og vorum þarna að reyna að koma skyrinu
á framfæri á annan hátt en venjulega,“ segja þeir.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Meistarakokkarnir Gísli Thoroddsen og Stefán
Sigurðsson.
Þá má geta þess að Stefán týnir ávallt sjálfur lerkisvep-
pina, sem hann notar við matreiðslu.
Mitterrand lauk lofi á Iaxinn
Þeir Gísli og Stefán hafa í gegnum árin eldað ofan
í marga ráðamenn og þjóðhöfðingja, jafnt innlenda sem
erlenda, en á árum sínum á Oðinsvé og í Perlunni
hafa þeir meðal annars séð um mat fyrir ráðherrabú-
staðinn og borgarstjóraembættið. „Þegar Mitterrand
kom hingað til lands í fyrsta skipti var hann svo hrif-
inn af graflaxinum, sem hann fékk að við gáfum hon-
um persónulega bakka af graflaxi. Þegar hann kom
svo næst til landsins bað hann um að fá humar og
graflax á ný.“
Matargerð á íslandi segja þeir hafa tekið miklum
framförum á undanförnum árum ekki síst vegna þess
að kokkar séu í auknum mæli famir að sækja reynslu
til útlanda. „Áður fóru menn bara til Danmerkur en
nú eru þeir farnir að fara mun víðar sem er mjög
gott. Sjálfir reynum við að fará út að minnsta kosti
annað hvert ár. Það er nauðsynlegt að halda sífellt
áfram að endurmennta sig.“
Stefán Hilmarsson flytur
m.a. allt efni fyrstu sólóplötu
sinnar „LÍF"
Aðeins þessir einu tónleikar.
FRAM KOMA:
Guðmundur Jónsson
Friörik Karlsson
Sigurður Gröndal
Stefán Hjörleifsson
Eðvarð Lárusson
Eyjólfur Kristjánsson
Ruth Reginalds
Friðrik Sturluson
Gunnlaugur Briem
Jón Ólafsson
Kjartan Valdimarsson
Einar Bragi Bragason
Ingólfur Guðjónsson
Ingólfur Sigurðsson
Eva Ásrún Albertsdóttir
Magnús Þór Sigmundsson
Erna Þórarinsdóttir
FORSALA:
MÚSÍK S MYNDIR:
AUSTURSTRÆTI 22
ÁLFABAKKA 14 Mjódd
REYKJAVÍKURVEGI 64 H.fj.
SKÍFAN:
KRINGLUNNI
LAUGAVEGI 26
ÁRITANIR:
4. des. Skífan Kringlunni kl.14
10. des. Hljómar ísafirði kl.17
18. des. Eyjakaup Vestm. kl. 15