Morgunblaðið - 30.11.1993, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1993
53
VELVAKANDI
NIÐJAR OLAFS
JÓNSSONAR
DANNEBROGS-
MANNS
ÓLAFUR Jónsson dbrm. og þing-
maður Húnvetninga og kona
hans, Oddný Ólafsdóttir, fæddust
1811. Þau fluttu að Sveinsstöðum
í Þingi árið 1844 eða fyrir hálfri
annarri öld. Síðan hafa afkom-
endur þeirra búið á Sveinsstöðum
í beinan karllegg. Afkomendur
þeirra eru beðnir að hafa sam-
band við Magnús Ólafsson, bónda
á Sveinsstöðum, í síma 95-24495
eða Ásrúnu Ólafsdóttur, hótel-
stjóra á Blönduósi, í síma
95-24126 eða 24545.
SKILABOÐA-
SKJÓÐAN FRÁBÆR
GUÐRUN hringdi og vildi lýsa
ánægju sinni með leikritið Skila-
boðaskjóðuna. Þau hjónin fóru á
frumsýninguna sl. fimmtudag
með böm sín og þeim fannst allt
verkið hreint út sagt frábært.
Sérstaklega létt var yflr leikmynd
og búningum og öll önnur vinnu-
brögð voru einstaklega vönduð.
Allir voru mjög ánægðir, fullorðn-
ir jafnt sem börn, og að sýningu
lokinni brutust út mikil fagnaðar-
og húrrahróp.
GÓÐ ÞJÓNUSTA
ÉG MÁ til með að þakka fyrir
góða þjónustu sem mér var veitt
í verslun Skífunnar á Eiðistorgi
í síðustu viku. Ég kom inn í versl-
unina á lokunartíma og bað um
að fá að skjótast inn og velja
hljómdisk sem ég hugðist gefa í
afmælisgjöf sama kvöld.
Afgreiðslumaðurinn, ungur
síðhærður maður, sagði mér að
taka þann tíma sem ég þyrfti og
svo hjálpaði hann mér við að finna
disk við hæfi. Það er skemmst
frá því að segja að diskurinn hitti
beint í mark hjá afmælisbarninu
pg mér var þakkaði í bak og fyr-
ir. Þessum þökkum vil ég koma
áleiðis til Skífunnar fyrir frábæra
þjónustu sem ég mun að sjálf-
sögðu halda áfram að nýta mér.
Mættu aðrar hljómplötuverslanir
taka sér þetta til fyrirmyndar.
R.Ó.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Týnt hjól
GYLLT 24“ BXM-hjól með svört-
um dekkjum, brettum og sæti,
rauðu statívi og stöng (fyrir plast-
flösku) tapaðist frá Laugardal í
sumar. Viti einhver um hjólið er
hann vinsamlega beðinn að
hringja í síma 672283.
Gleraueru töpuðust
mgu
jLOTT
KRINGLOTT kvenmannsgler-
augu í gylltri umgjörð töpuðust
á leiðinni frá Verslunarskólanum
að Stigahlíð sl. miðvikudag.
Finnandi vinsamlega hringi í síma
76523.
Lyklakippa fannst
TVÆR lyklakippur á einum hring
fundust fyrir nokkru. Toyota-lyk-
ill er á annarri kippunni ásamt
tveimur húslyklum, en Subaru-
lykill og tveir húslyklar á hinni.
Upplýsingar í síma 625762.
Gleraugu töpuðust
ÉG tapaði gleraugunum mínum
annaðhvort í Gunnarssundi eða
við gatnamót Álfaskeiðs og Arn-
arhrauns í Hafnarfírði föstudag-
inn 19. nóvembersl. Hugsanlegur
fínnandi er vinsamlega beðinn að
hringja í síma 50474.
Týndur gullkross
GULLKROSS á keðju, útskorinn
í miðju, tapaðist laugardaginn 20.
nóvember sl., annaðhvort á
Kringlukránni eða þar í kring eða
í leigubíl. Krossinn hefur mikið
tilfinningalegt gildi fyrir eigand-
ann. Finnandi vinsamlega hringi
í síma 673007. Fundarlaun.
Týnd gleraugu
GLERAUGU í brúnyrjóttri um-
gjörð töpuðust á Hressó eða í
miðbæum föstudaginn 5. nóv-
ember. Finnandi vinsamlega
hringi í síma 654918.
GÆLUDÝR
Týndur köttur
SVARTUR og hvítur fressköttur,
með svart skott með hvítri týru
í endanum, með bláa hálsól, átta
mánaða gamall, fór frá Sæbóls-
braut í Kópavogi sl. þriðjudag.
Hafi einhver orðið ferða hans var
er hann vinsamlega beðinn að
hringja í síma 642044.
Týndur köttur
BLÁGRÁ læða fór að heiman frá
sér, Hjallabraut 68, Hafnarfirði,
sunnudagskvöldið 21. nóvember
sl. Hún var ómerkt. Hafí einhver
orðið ferða hennar var er hann
vinsamlega beðinn að hringja í
síma 50879.
Pennavinir
Átján ára finnskur piltur með
margvísleg áhugamál:
Hemmo Virtanen,
Kaisankatu 1,
15610 Lahti,
Finland.
Tvítug þýsk stúlka með áhuga á
hestum og útivist:
Manuela Krimmer,
Kernerstrasse 11,
71672 Marbach am Neckar,
Germany.
Frá Lettlandi skrifar 39 ára frí-
merkjasafnari sem vill eignast ís-
lenska pennavini:
Ludvik Lasovski,
Str. 18. November 45-3,
LV-5403 Daugarpils,
Latvia.
Tvítug Ghanastúlka með áhuga
á tónlist, bréfaskriftum, íþróttum,
ferðalögum o.fl.:
Rosemond Aggrey,
P.O. Box 30,
55 Methodist Road,
Apam,
Ghana.
ítalskur 28 ára frímerkjasafnari
vill komast í samband við íslenska
safnara:
Luca Leonardi,
Via Tespi 102,
00125 Roma,
Italy.
LEIÐRETTIN G
Nafn misritaðist
í grein Ásgeirs Jakobssonar sl.
laugardag misritaðist nafn konu
Ólafs Kjartanssonar. Hún hét Þór-
unn Þórðardóttir en ekki Kristín
Jónsdóttir eins og stóð í greininni.
Hlutaðeigandi eru beðnir velvirð-
ingar á þessum mistökum. .
12S2SSS: 30-nóv- laaa-
1. 5af5
3.
4.
FJtXDI
VINNNGSHAFA
87
2.824
UPPHÆÐÁHVERN
VINNINGSHAFA
1.988.258
345.390
6.848
492
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
4.318.832 kr.
UPPlVSINGAR: SÍMSVARI91 -681511 lUKKUllNA991002
SÉRBLANDAÐ FYRIR ÍSLENDINGA
5 Continents kaffið er sérblandað og kemur
á. borð vandlátra íslendinga í umbúðum sem
tryggja að einstök bragðgæði blöndunnar
haldist óskert alla leið í bollann.
5 Continents
100% ARABICA KAFFI
Metsölublad á hvetjum degi!