Morgunblaðið - 30.11.1993, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1993
Úr kvikmyndinni Launráð sem
nú er sýnd í Laugarásbíói.
Launráð í
Laugarásbíói
LAUGARÁSBÍÓ hefur hafið sýn-
ingar á frönsku grín- og spennu-
myndinni Max et Jeremie eða
Launráð eins og hún hefur verið
nefnd á íslensku. Myndin hefur
hlotið góða dóma víðsvegar um
heim, og með aðalhlutverkin fara
tveir fremstu leikarar Frakka,
þeir Christopher Lambert (High-
lander, Subway) og Philippe
Noiret (Cinema Paradiso).
í fréttatilkynningu segir: „Mynd-
in fjallar um leigumorðingjana Max
og Jeremie, sem kynnast á skringi-
legan hátt. Max er aldraður, vina-
laus og að verða útbrunninn, en
Jeremie er ungur og ákafur. Jer-
emie er falið að myrða Max, þar
sem hann getur verið hættulegur
þeim sem hafa ráðið hann til verka.
En þá gerir Max hinum unga leigu-
morðingja tilboð og heldur lífi.
Upphefst þar með sérkennileg og
gamansöm vinátta á milli þessara
mjög svo ólíku manna, sem eiga
ekkert sameiginlegt nema óvenju-
lega atvinnu.
það er hin franska Claire Devers
sem leikstýrir, en hún þótti breyta
mjög um stíl með þessari mynd
sinni, hafði áður einbeitt sér að list-
rænum myndum. Með þessari mynd
höfðar hún meira til fólksins, enda
hefur myndinni verið vel tekið í
Evrópu.
Danski dómarinn Gert Schryberg að loknu íslandsmeistaramóti í samkvæmisdönsum
„Greinilegt að dansinn
er á uppleið hér á landi“
____________Pans_______________
Jóhann Gunnar Arnarsson
„ÉG VAR hissa á því að sjá hve mik-
ið þið eigið af efnilegum ungum pör-
um,“ sagði Daninn Gert Schryberg,
einn þriggja dómara í íslandmeistara-
keppni í Suður-amerískum og stand-
ard-dönsum, með fijálsri aðferð, sem
fram fór í Laugardalshöllinni, sunnu-
daginn 28. nóvember. Keppnin var
mjög vegleg í alla staði og hart var
barist um hvert úrslitasæti. Keppend-
ur voru tæplega 500 manns á aidrin-
um 10 til 50 ára, og einnig var keppt
í riðli atvinnumanna og stóðu allir
keppendur sig með sóma.
Heiðar R. Ástvaldsson, forseti
Dansráðs íslands, setti keppnina kl.
14 og að því ioknu sýndu tvö pör
„vagg og veltu“. Það voru þau Árni
Traustason og Helga Þóra Björg-
vinsdóttir frá Dansskóla Hermanns
Ragnars og Jóhannes Bachman og
Sigurrós Jónsdóttir frá Dansskóla
Auðar Haralds. Þetta var mjög
skemmtilegt sjónarspil, þar sem
þarna voru á ferðinni minnsta og
stærsta „vagg og veltu“-par lands-
ins. Þar næst stigu á stokk stúlkur
úr Jazzballetskóla Báru, með smekk-
lega og vel uppfærða sýningu.
Loks var komið að fyrri hluta
fijálsu keppninnar og reið 14-15 ára
riðillinn á vaðið og síðan hver riðill-
inn á fætur öðrum. Aliir riðlarnir
voru geysilega spennandi og hefur
keppnin sjaldan verið svo hörð sem
nú. Augljóst er að mikið var búið
að leggja á sig og mikil og góð vinna
hefur verið innt af hendi. Því eins
og Daninn Gert sagði: „Það er ótrú-
legt hvað þið hafið náð langt í dans-
inum á svo stuttum tíma.“ Hann
sagði jafnframt: „Mér þótti sérstak-
lega gaman að sjá hve mikill áhugi
er fyrir dansinum á íslandi og hve
margir keppendur tóku þátt. Það er
greinilegt að dansinn er á uppleið á
Islandi!" Einn riðillinn var þó sérlega
skemmtilegur, að öðrum ólöstuðum,
en það var riðill 12-13 ára, þar var
margt frábærra og bráðefnilegra
para, sem mörg hver hafa náð mjög
langt á erlendri grundu. Einnig var
mjög gaman að sjá marga keppend-
ur, sem ekki hafa keppt hér heima
lengi. Keppendur voru dyggilega
studdir af'tæplega 1.300 áhorfend-
um, sem létu óspart í sér heyra.
Eftir fyrri hluta fijálsu keppninn-
ar var einsdanskeppni, með grunn-
aðferð, sem setti skemmtilegan svip
á þessa miklu skrautsýningu. Þarna
var mikið af efnilegum dönsurum,
sem sumir hveijir voru að stíga sín
fyrstu skref í danskeppni. Þessi hluti
gekk hratt fyrir sig og var gaman
á að horfa.
Spennan magnaðist jafnt og þétt
er nær dró seinni hluta fijálsu
keppninnar og skyldi engan undra
því þarna var ijómi íslensks dans-
íþróttafólks saman kominn. Riðlarn-
ir voru geysilega jafnir, sem fyrr,
og hefðu sjálfsagt fáir viljað standa
í sporum dómaranna; þeirra Tom
Walker frá Englandi, Trudi Barr frá
Noregi og Gert Schryberg frá Dan-
mörku, sem stóðu sig mjög vel, að
flestra mati.
Loftið var sannarlega rafmagnað
er leið á úrslitin, en spennan náði
hámarki í keppni atvinnumanna. í
þeim riðli voru einungis þijú pör,
þar af eitt par að keppa í fyrsta sinn,
en það voru þau Ragnar Sverrisson
og Unnur Berglind Guðmundsdóttir
og eru þau fyrsta par til fjölda ára
Atvinnudansarar á verðlaunapalli. Frá vinstri: Esther Inga Níelsdótt-
ir, Haukur Ragnarsson, Kara Arngrímsdóttir, Jón Pétur Úlfljótsson,
Unnur Berglind Guðmundsdóttir og Ragnar Sverrisson.
sem keppir fyrir hönd D.S.Í. í at-
vinnumannariðli. Hin pörin Jón Pét-
ur Úlfljótsson og Kara Arngríms-
dóttir og Haukur Ragnarsson og
Esther Inga Níelsdóttir keppa fyrir
hönd F.Í.D. Öll stóðu þau sig mjög
vel, eru verðugir fulltrúar íslenskra
atvinnumanna.
Nýjar reglur er varða búninga
voru nýverið teknar í gildi og að
sögn keppnisstjórans Jóhanns Arnar
Olafssonar, gekk það nokkuð
hnökralaust fyrir sig, eins og í raun
keppnin öll. Skipulag keppninnar var
gott og ekki verður hjá því komist
að hæla „tölvufólkinu“ fyrir vel unn-
in störf.
Eitt var það þó sem hefði mátt
hugsa fyrir það er keppnisskrá. Á
svona stórri og veglegri keppni til-
heyrir að hafa góða og vandaða
keppnisskrá. Þrátt fyrir það verður
ekki annað sagt en að þessi keppni
sé ein skrautfjöðrin enn í hatt D.í.
Úrslit í frjálsu keppninni:
12 og 13 ára: suður-amerískir dansar:
1. Sigursteinn Stefánsson og Elísabet Sif Haraldsdóttir DJK
2. Brynjar Örn Þorleifsson og Sesselja Sigurðardóttir ND
TIL LESENDA
MORGVNBLAÐSINS
56 síbna sérblað um matargerð, skreytingar,
bakstur, föndur og fólk í jólaundirbúningi
fylgir Morgunblaðinu
miðvikudaginn 1. desember.
- kjarni málsins!
UR DAGBÓK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
Á föstudagsmorgun fundust
fimm tunnur er innihéldu eitur-
efni í geymslu fyrir ótollaðar
vörur. Eiturefni þessi eru notuð
af olíufélögunum við einhver
verkefni. Tunnurnar höfðu verið
geymdar innan um matvæli. Gat
hafði komið á eina tunnuna og
mun eitthvað af efninu hafa lek-
ið út. Slökkviliðið var hvatt á
vettvang og hreinsuðu starfs-
menn þess vettvang. Tunnumar
voru fluttar úr húsinu.
Skömmu eftir hádegi á föstu-
dag varð harður árekstur
tveggja bifreiða á Bústaðavegi.
Ökumaður og einn farþegi kvört-
uðu yfir eymslum í hálsi. Síðdeg-
is á föstudag varð stúlka fyrir
bifreið á Reykjavegi í Mos-
fellsbæ. Ekki er vitað hvers eðlis
meiðslin voru, en stúlkan kvart-
aði yfir eymslum í öxlum og í
höfði. Á laugardagsmorgun lenti
bifreið á umferðarmerki við
gatnamót Miklubrautar og
Skeiðarvogs. Bifreiðin valt við
áreksturinn. Flytja þurfti öku-
mann og farþega úr bifreiðinni
á siysadeild, en meiðsli þeirra
munu hafa verið minniháttar.
Alls var tilkynnt um 33 umferð-
aróhöpp um helgina. Þar af voru
meiðsli á fólki í 5 tilvikum.
Fátt fólk var á ferli í miðborg-
inni á föstudagskvöld og aðf-
ararnótt laugardags enda hið
versta veður. Þó komu upp tvö
meiðingamál, en í báðum tilfell-
um náðust slagsmálahundarnir.
í öðru tilvikinu veittist ölvaður
17 ára piltur skyndilega að ung-
um manni um tvítugt og sló
höfði hans við stöðumæli svo
meiðsli hlutust af. Einn ölvaður
sparkaði í rúðu, en sá var hand-
tekinn við það sama. Menn á
sjónpóstum hafa að jafnaði
ágæta yfirsýn yfir það sem er
að gerast á svæðinu og náðist
til nefndra aðila fyrir tilverknað
þeirra. Alls þurfti að handtaka
8 einstaklinga vegna ölvunar-
háttsemi í miðborginni aðfara-
nótt laugardags.
Á laugardagskvöld og aðfara-
nótt sunnudags var fjölmennast
í miðborginni um það leyti er
vínveitingastöðunum var lokað,
eða 6-8 hundruð manns. Veð-
ur var leiðinlegt svo fólk var
fljótt að koma sér í bíla og hverfa
til síns heima. Ekkert var af
unglingum á svæðinu og ölvun
á því fólki sem leið átti um var
ekki áberandi.
Tilkynnt var um innbrot í fyr-
irtæki á Granda. Þar hafði verið
stolið tölvu ásamt fleiru.
Skömmu síðar handtók lögregl-
an mann í íbúð í austurborginni.
Þar fannst tölvan og annað það
sem saknað hafði verið. Maður-
inn var vistaður í fangageymsl-
unum.
Aðfararnótt laugardags var
tilkynnt um yflrstandandi inn-
brot í verslun við Seijabraut.
Tveir menn, sem voru á staðnum,
reyndu að hiaupa undan lög-
reglumönnunum og fela sig þar
innan dyra, en fundust eftir
stutta leit. Annar mannanna
hefur margítrekað komið við
sögu afbrotamála.
Um nóttina þurftu lögreglu-
menn að hafa afskipti af öku-
manni þar sem hann ók um Snor-
rabraut. Sá var grunaður um að
hafa ekið undir áhrifum áfengis,
færður á lögreglustöðina og
blóðsýni tekið úr honum, en síð-
an fékk hann að fara fijáls ferða
sinna. Bifreið mannsins var kyrr-
sett. Tveimur klukkustundum
síðar þurftu lögreglumenn að
hafa afskipti af ökumanni á
Geirsgötu. Þar reyndist sami
ökumaðurinn vera kominn á ný,
nú á annarri bifreið. Aftur var
hann færður á lögreglustöðina
og blóðsýni dregið úr honum, en
síðan var hann vistaður í fanga-
geymslunum þar sem eftir lifði
nætur.
Á laugardagsmorgun fundust
lyf utan dyra við Laugarnesveg.
Um var að ræða töluvert magn
af lyfinu Taffel, en það mun
vera nokkuð sterkt róandi lyf.
Lyfið hafði verið tekið úr bifreið
í nágrenninu.
Sunnudagsmorguninn var ró-
legur. Þó var ungur maður hand-
tekinn við innbrotstilraun í sölut-
urn við Langholtsveg snemma
morguns. Honum hafði tekist að
skemma dyraumbúnaðinn tölu-
vert áður en hann var handtek-
inn.
Næstu helgar verður ungl-
ingaathvarfíð í miðborginni opið
og þangað munu allir þeir ung-
lingar sem sjást á ferli í eða við
miðborgina verða færðir.
Kvartað hefur verið yfír því
að gestir beri með sér áfengi út
af veitingastöðum að næturlagi
um helgar. Slíkt er með öllu
óheimilt og á leyfishafi að fylgj-
ast sérstaklega með því að það
gerist ekki.