Morgunblaðið - 15.12.1993, Síða 1
64 SIÐUR B/C
286. tbl. 81.árg.
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bill Clinton um samkomulag Bandaríkjanna og EB um GATT
Sögnlegnr signr hinnar
frjálsu heimsverslunar
Genf. Reuter.
Þreyttir en ánægðir
samningamenn
MICKEY Kantor (t.h.), viðskiptafull-
trúi Bandaríkjanna, og Sir Leon
Brittan, fulltrúi Evrópubandalags-
ins, á blaðamannafundi í Genf í
gær. Kantor hrósaði Brittan, hann
væri einstakur samningamaður og
gáfumenni. Bretinn galt í sömu
mynt, sagði að undanfarið ár hefði
stundum kastast í kekki en það
væru varla ýkjur að segja að samn-
ingar hefðu vart tekist í tæka tíð
ef ekki hefði komið til gagnkvæm
virðing sem nú væri orðin vinátta.
SAMNINGAMENN Bandaríkjanna og Evrópubandalagsins, EB,
ruddu í gær úr vegi einni af síðustu hindrununum fyrir nýjum
GATT-samningi um aukið frelsi í alþjóðaviðskiptum. Tókst það eftir
stanslaus fundahöld í alla fyrrinótt og voru þeir Mickey Kantor,
viðskiptafulltrúi Bandaríkjanna, og Sir Leon Brittan, viðskiptafull-
trúi EB, þreyttir en afar ánségðir þegar þeir skýrðu frá niðurstöð-
unni á fréttamannafundi í gærmorgun. Síðustu forvöð til að ljúka
Úrúgvæ-lotu GATT-viðræðnanna höfðu verið ákveðin á miðnætti
aðfaranótt fimmtudagsins vestur í Washington. Sérfræðingar fjár-
málastofnana segja, að þótt samningurinn taki ekki formlega gildi
fyrr en um önnur áramót, muni hann strax hafa uppörvandi áhrif
á öllum mörkuðum. Telja þeir, að á tíu árum muni heimsviðskiptin
aukast um allt að 300 milljarða dollara.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
sagði í gær að landsmenn sæju nú
fram á „sögulegan sigur“ fijálsrar
heimsverslunar en varaði við því að
enn væri eftir að útkljá erfið deilu-
mál. Peter Sutherland, fram-
kvæmdastjóri GATT, sagði ánægju-
legt að EB og Bandaríkin hefðu náð
samkomulagi en hann kvaðst hafa
lært það, að dag skyldi að kveldi
lofa og því ætlaði hann að bíða með
húrrahrópin þar til síðasti fulltrúi
aðildarríkjanna 117 hefði undirritað
samnihginn. Hann sagðist þó ekki
sjá, að neitt ætti að geta komið í
veg fyrir nýjan GATT-samning.
30% tollalækkun
Almennt er miðað við, að tollar
lækki um 30% að minnsta kosti.
Þeir Brittan og Kantor náðu ekki
samkomulagi um skiptingu tekna
af kvikmyndum og hljóm- og mynd-
böndum en ákváðu að láta það ekki
standa í vegi fyrir nýjum samningi.
Ekki er þó alveg Ijóst hvort EB hef-
ur náð fram „undanþágu í menning-
armálunum" eins og Frakkar halda
fram. Bandaríkjamenn hafa samt
gefið eftir á þessu sviði en EB hins
vegar hvað varðaði styrki til fiug-
vélaiðnaðarins.
Norður-Irland
Vladímír Zhírínovskíj kveðst reiðubúinn að vinna með hvaða flokki sem er
Ógiiun víð hagsmuni Rússa
kaliar á efnahagsþvinganir
Kemur þróunarríkjunum vel
GATT-samningurinn nýtur mikils
stuðnings flestra þróunarríkja og
kommúnistaríkjanna fyrrverandi
enda opnast þeim með honum að-
gangur að nýjum mörkuðum. Enn
er eftir að semja um kröfur Indveija
og Pakistana um aukinn markaðsað-
gang fyrir vefnaðarvöru og kröfur
S-Ameríkuríkja um aukinn aðgang
fyrir landbúnaðarvöru og ávexti.
Auk deilu Bandaríkjanna og EB
var helst beðið eftir ákvörðun Japana
og Suður-Kóreumanna um að binda
enda á lokun hrísgijónamarkaðarins
í löndunum. Suður-Kóreustjórn
ákvað um síðustu helgi að opna
hann og Morihiro Hosokawa, forsæt-
isráðherra Japans, gerði það í gær.
Sjá frétt á bls. 25
Reuter
Segist fylgjandi heimkvaðningu rússneska hersins frá Eystrasaltsríkjunum
Moskvu, Kiev, Bonn. Reuter.
VLADÍMÍR Zhírínovskíj, leiðtogi þjóðernisöfgamanna, sem unnu
sigur í þingkosningunum í Rússlandi á sunnudag, sagði á blaða-
mannafundi í Moskvu í gær að hann væri reiðubúinn til sam-
starfs með hvaða flokki sem væri. Hann lýsti og yfir því að hann
væri tilbúinn til að vera í „ábyrgri stjórnarandstöðu“. Zhír-
ínovskíj, sem einkum hefur vakið athygli fyrir öfgafullar yfirlýs-
ingar, þótti koma fram af hógværð og yfirvegun er hann ræddi
við erlenda blaðamenn og lagði áherslu á að hann væri miðjumað-
ur í rússneskum stjórnmálum. Litlar breytingar höfðu orðið á
fylgi landslista flokkanna í rússnesku þingkosningunum í gær-
kvöldi en fyrstu tölur úr einmenningskjördæmum bentu til að
óháðir frambjóðendur og umbótasinnar hlytu meirihluta atkvæða
í þeim.
Friður
ínánd?
Lundúnum. Rcuter.
JOHN Major forsætisráðherra
Bretlands og Albert Reynolds,
forsætisráðherra Irlands hittast
á fundi í dag til að leggja loka-
hönd á friðaráætlun um Norður-
írland sem vonast er til að geti
leitt til friðar í landinu. Töluðu
háttsettir breskir embættismenn
um tímamót í viðræðunum.
Embættismennirnir sögðu að for-
sætisráðherrunum hefði tekist að
yfirstíga stærstu hindranirnar er
þeir ræddust við í síma í gær. Neit-
uðu þeir hins vegar að gefa upp
efnisatriði yfirlýsingarinnar, sem
vonast er til að verði til þess að
Irski lýðveldisherinn og öfgasinnað-
ir mótmælendur leggi niður vopn.
Zhírínovskíj kom sér hjá því að
svara spurningum um kynþáttafor-
dóma og gyðingahatur. Sagðist
hann telja að Rússar ættu að halda
áfram brottflutningi hermanna frá
Eystrasaltslöndunum. Hins vegar
ætti ekki að hika við að beita efna-
hagsþvingunum, yrði gengið á rétt
rússneska minnihlutans í ríkjunum
þremur. Rússar ættu ekki að leiða
hugann að innlimun fyrrverandi
lýðvelda Sovétríkjanna nema ljóst
væri að sjálfstæði þeirra leiddi af
sér hörmungar og þau óskuðu að-
stoðar.
Zhírínovskíj kvaðst reiðubúinn
til samvinnu með hvaða flokki sem
væri og nefndi fyrst Konur Rúss-
lands. Hvað núverandi stjórn varð-
aði gæti hann ekki sætt sig við
Jegor Gajdar, efnahagsmálaráð-
herra, Andrej Kozyrev, utanríkis-
ráðherra, og Anatólíj Tsjúbaís, ráð-
herra einkavæðingar.
Óháðir og umbótasinnar í
meirihluta
í gærkvöldi lágu tölur fyrir úr
83 af 225 einmenningskjördæmum
og var yfir helmingur sigurvegar-
anna óháður, 46 frambjóðendur.
Af flokkunum hafði Valkostur
Rússlands hlotið mest fylgi, 11
sæti, en Frjálslyndi lýðræðisflokk-
urinn 4 og Bændaflokkurinn 8.
Aðrir höfðu hlotið minna. I kosn-
ingum til efri deildar þingsins,
Sambandsráðsins, benti allt til þess
að það yrðu fyrst og fremst ráða-
menn héraðanna sem næðu kjöri.
Kommúnistar lýstu í gær yfir
sigri í kosningunum, spáðu sér
70-80 þingsætum af 450 í neðri
deild, dúmunni. Athygli vakti að
kommúnistar sögðu að til greina
kæmi að styðja menn Zhírínovskíjs
i einstökum málum en formlegt
samstarf væri útilokað.
Rússneskir gyðingar hafa lýst
áhyggjum sínum vegna hylli Zhír-
ínovskíjs en hann hefur lýst því
yfir að hann vilji gera þá brott-
ræka. Þá hefur ísraelsstjórn einnig
lýst vanþóknun sinni á fylgi þjóð-
ernissinna. Bauð Shimon Peres,
utanríkisráðherra landsins öllum
gyðingum að setjast að í ísrael,
þar ættu þeir heima. Leoníd Kravt-
sjúk, forseti Ukraínu, kvaðst sleg-
inn vegna uppgangs þjóðernissinna
og sagði hugmyndir þeirra geta
orðið hættulegar ef þær hefðu
áhrif á stefnu stjórnarinnar.
Sjá fréttir á bls. 24 og miðopnu