Morgunblaðið - 15.12.1993, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Ufsaklettur kominn úr Selsvör
UFSAKLETTUR sem var við Stóru-Selsvör hefur verið fluttur á jand
og komið fyrir á hingtorginu þar sem saman koma Hringbraut, Ana-
naust og Eiðisgrandi. Það voru nokkrir gamlir Vesturbæingar sem
fóru /ram á að.klettinum yrði bjargað en mikill Ijöldi eldri Vesturbæ-
inga eiga minningar tengdar Ufsakletti. í bókinni Reykjavík - Sögu-
staður við Sund, segir að hann hafi tengst manndómsvígslu stráka í
Vesturbænum, þar sem enginn þótti maður með mönnum nema hann
hefði veitt á Ufsakletti.
SVR hf. aðili að Vinnuveitendasambandinu
ASÍ átelur framgöngu
Starfsmannafélagsins
Borgarsljóri segir starfsmenn halda áunnum rétti
ALÞÝÐUSAMBAND íslands telur að með framgöngu sinni hafi Starfs-
mannafélag Reykjavíkurborgar gengið gegn þeirri samstöðu og sam-
starfi sem skapast hafi miili 'félagsins og ASÍ og skorar á starfsmanna-
félagið að snúa frá þeirri óheillabraut sem það virðist vera á með
málefni Strætisvagna Reykjavíkur hf. Þá segir í bréfi stjórnar SVR
hf. til starfsmannafélagsins að fyrirtækið sé aðili að Vinnuveitendasam-
bandi íslands og því bundið af samningum sem þar gilda. f svari borg-
arstjóra við fyrirspurn borgarfulltrúa minnihlutans í borgarráði um
málefni starfsmanna SVR hf. er tekið fram að allir starfsmenn haldi
áunnum réttindum við ráðningu til SVR hf. en þar sem kjarasamning-
ur og lög og reglur um starfsmenn borgarinnar gilda ekki um nýja
fyrirtækið komi þeir ekki til með að taka kjör samkvæmt þeim samningi.
kjarasamninga við þá. Með því væri
komið í veg fyrir að samið væri við
marga óskylda aðila um kaup og
kjör fyrir sama starf.
Forgangsréttarákvæði
í bréfi Benedikts Davíðssonar, for-
seta ASf, til Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar er rakinn aðdrag-
andi að samkomulagi milli ASÍ,
starfsmannafélagsins og BSRB um
nána samvinnu vegna breytinga á
rekstri SVR. Af hálfu borgarinnar
VEÐUR
/ DAG kl. 12.00
Heimild: Veðurslofa íslands
(Byggt á veðurepá kl. 16.15 í gær)
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tfma htti veður Akureyri +1 snjókoma Reykjevik +2 snjóél á s. klst
Bergen 0 skýjað
Hetelnki +3 snjókoma
Kaupmannahöin 0 léttskýjað
Narssarssuaq -í-9 heiðskirt
Nuuk +9 snjókoma
Osló +12 alskýjað
Stokkhólmur +7 léttskýjað
Þórshöfn 3 rigning
Algarve 14 léttskýjað
Amsterdam 4 léttskýjað
Barcelona vantar
Berlín 2 súld
Chicago 4 rigning
Feneyjar 8 þokumóða
Frankfurt 7 rigning
Glasgow 3 rignlng
Hamborg 1 skýjað
London 4 skýjað
LosAngeles 8 þokumóða
Lúxemborg 1 snjókoma
Madríd vantar
Malaga vantar
Mallorca vantar
Montreal vantar
NewYork 4 skýjað
Oríando 16 léttskýjað
París vantar
Madelra 16 skýjað
Róm 20 skýjað
Vín 3 alskýjað
Washington 3 skýjað
Winnipeg +10 alskýjað
hafí legið fyrir að ekki var ætlunin
að láta kjarasamninga starfsfólks
gilda áfram óbreytta hjá nýja fyrir-
tækinu þó að síðan hafi fylgt með
að starfsmenn SVR myndu halda
störfum sínum og laun og réttindi
þeirra yrðu þau sömu fyrir og eftir
breytingar. Ljóst var að sérstaklega
yrði skoðað hvaða stéttarfélag eða
félög yrðu viðsemjendur fyrir hönd
starfsmanna sem voru í Starfs-
mannafélaginu.
Bendir Benedikt á að forgangs-
réttarákvæðið gildi um störf sem
unnin eru hjá SVR hf. og að félagið
geti ekki ráðið aðra starfsmenn til
vinnu en þá sem eru í aðildarfélögum
ASÍ. Þá segir: „Með því að hundsa
frekara samstarf við aðildarfélög
ASÍ um málið og hefja þess í stað
undirbúning undir og óska eftir að
vera viðurkenndur sem fullgildur
samningsaðili á samningssviði Al-
þýðusambandsfélaga hefur St.Rv.
stigið skref sem erfitt er að sjá hvern-
ig hægt er að bæta fyrir. Með aðgerð-
um sínum ræðst félagið gegn einu
helsta vígi launafólks á vinnumark-
aðinum í nafni félagafrelsis. Slík
getur Alþýðusambandið ekki látið
óátalið."
Fullur skilningur
í bréfínu segir að fljótlega hafi
komið í ljós að fulltrúar SVR hf. og
Vinnuveitendasambandsins hafí litið
svo á að skuldbindingar gagnvart
starfsmönnum tryggðu þau kjör og
réttindi sem þeir höfðu áunnið sér
fyrir 1. desember en frekari inn-
vinnsluréttindi tækju þeir ekki með
sér. Að mati ASÍ og Starfsmannafé-
lagsins var þetta óásættanleg niður-
staða. Skilningur þeirra á bréfí borg-
arstjóra væri sá að áunnin réttindi
fylgdu starfsmönnunum. Fullur
skilningur hafí verið milli ASÍ og
Starfsmannafélagsins að nauðsyn-
legt væri að standa fast á kröfunni
um að gengið yrði frá kjarasamningi.
Bent er á að tvennskonar samn-
inga- og réttindakerfí sé í gildi á
vinnumarkaðinum. Annað fyrir al-
mennan vinnumarkað og hitt fyrir
opinbera starfsmenn. Hvað varðar
formleg kjaraákvæði eru það einkum
lífeyris- og veikindaréttindi sem
skilja á milli opinberra starfsmanna
og almenna vinnumarkaðarins. Til
að tryggja réttarstöðu félagsmanna
ASÍ hefði aðildarfélögum tekist að
tryggja félagsmönnum sínum for-
gangsrétt til vinnu á viðkomandi
samningssviði og að skuldbinda at-
vinnurekendur til að gera eingöngu
Eiga val
í svari Markúsar Amar Antons-
sonar borgarstjóra við fyrirspum
minnihlutans segir meðal annars um
veikindaréttindin sérstaklega að
starfsmönnum sem áður störfuðu hjá
SVR samkvæmt kjömm starfs-
mannafélagsins sé gefinn kostur á
að velja um réttindi samkvæmt sömu
reglum, þar með talda réttindaá-
vinnslu, enda greiðist ekki iðgjald til
sjúkrasjóðs viðkomandi verkalýðsfé-
lags. Kjósi starfsmenn að njóta rétt-
ar í sjúkrasjóðum viðkomandi verka-
lýðsfélaga fer um veikindarétt eftir
ákvæðum laga og kjarasamninga
hlutaðeigandi félaga. Er starfsmönn-
um gefíð fullt vald til að velja milli
þessara tveggja leiða. Hvað orlofs-
rétt varðar þá munu starfsmenn sem
áunnið hafa sér fyllstu réttindi halda
þeim og aðrir starfsmenn með sama
hætti halda áunnum réttindum. Þá
segir: „SVR hf. hefur ákveðið að
tryggja þessum starfsmönnum þann
viðbótarávinning sem þeir kynnu að
hafa notið við áframhaldandi veru í
starfi hjá SVR og verður það stað-
fest í persónubundnum samningum.
Að öðru leyti fer um réttindamyndun
samkvæmt hlutaðeigandi kjara-
samningum hveiju sinni.“
Fundur sjávarútvegsnefndar Alþýðuflokksíns
Frestað að beiðni for-
ystumanna í flokknum
FUNDI milliþinganefndar Al-
þýðuflokks um sjávarútvegsmál
sem halda átti í gærkvöldi var
frestað eftir að beiðni forysty-
manna í flokknum þar að lútandi
bárust nefndarmönnum um há-
degi í gær, að sögn Magnúsar
Jónssonar, formanns nefndar-
innar. Greint var frá því í Morg-
unblaðinu í gær að hluti nefndar-
innar hefði rætt þann möguleika
að segja af sér á fundinum vegna
samkomulags um þau frumvörp
um sjávarútvegsmál sem stjórn-
arflokkarnir hafa komið sér sam-
an um að leggja fram á Alþingi.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Magnús að fundinum hefði
verið frestað til sunnudags. „Við
ætlum að ræða málin áður en
lengra er haldið, um okkur stöðu
fyrst og fremst og er það að ósk
ráðherra sem þetta er gert,“ sagði
Magnús.
Hann sagði að ummæli þau sem
höfð voru eftir Jóni Baldvini
Hannibalssyni, utanríkisráðherra
og formanni Alþýðuflokksins, í
Morgunblaðinu í gær, hafi verið
þess eðlis að þær gefí ástæðu til
umræðna áður en endanleg
ákvörðun verði tekin í þessum
málum. Magnús vildi í gærkvöldi
ekki tjá sig um hvaða efnisatriði
í máli Jóns sé að ræða.
Landinn á
röngu landi
GREINT var frá því í Morgun-
blaðinu í gær að fundist hefðu
1.400 lítrar af bruggi í gróður-
húsahverfi við Lambhaga.
Vilja landeigendur þar koma því
á framfæri að landinn hafi ekki
fundist innan landamerkja Lamb-
haga, heldur á landi Þrístiklu þar
við hliðina. Landeigendur á Þrí-
stiklu segja að landaeigéndurnir séu
þeim óviðkomandi.
P
1
I
I
1
1
I