Morgunblaðið - 15.12.1993, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993
51
Launíboðiá
við heilt lið?
Laun á við allt Hácken-liðið?
ARNÓR Guðjohnsen á fleygiferð með knöttinn í landsleik fyrr á árinu. Framkvæmdastjóri Hácken
segir Örebro bjóða honum jafnhá laun og allir leikmenn Hácken hafi samanlagt.
Frá Grétari
Eyþórssyni
i Svíþjóð
Agreiningur er kominn upp á milli Hácken, liðs-*'-
ins sem Arnór Guðjohnsen lék með í Svíþjóð
í fyrra, og Örebro, sem hann er í viðræðum við
þessa dagana. Framkvæmdastjóri
Hácken, Reine Almqvist, fullyrðir í
sænska blaðinu Aftonbladet að taki
Arnór tilboði Örebro yrði hann launa-
hæsti knattspymumaður í Svíþjóð;
honum væri boðið jafn mikið í laun og allir leik-
menn Hácken fá samanlagt, segir Almqvist.
Framkvæmdastjóri Örebro segir þetta hins vegar
hina mestu fjarstæðu. Ekki hefur verið gert opin-
bert hvað Örebro býður Arnóri en „það er til athug-
unar að gera það opinbert til að sýna hve fáránlegt
þetta er sem forráðamenn Hácken halda fram,“
sagði framkvæmdastjóri hjá Örebro.
I samningi Arnórs við Hácken var ákvæði um
að félagið geti ekki farið fram á nema 400.000^
sænskar krónur hyggist Arnór fara frá því að aflo-
knu keppnistímabilinu. Þetta var sett inn til að
auðvelda Arnóri að komast til annarra landa í Evr-
ópu sýndu einhver félög honum áhuga. í Aftonblad-
et segir framkvæmdatjóri Hácken hins vegar að til
að þetta ákvæði gilti hefði Arnór þurft að segja
samningi sínum lausum fyrir 1. desember. Það hafi
hann ekki gert.
Sænska blaðið segir að raunhæft verð fýrir leik-
mann eins og Arnór sem skipti milli sænskra félaga
sé um þijár milljónir sænskra króna eða tæpar 26
milljónir íslenskra króna.
ÚRSLIT
Ágreiningur milli Hácken og Örebro vegna félagaskipta Arnórs
Páll spáir KA og
Selfossi sigri
„ÞAÐ verður boðið upp á tvo mjög tvísýna leiki í bikarkeppn-
inni, sem ómögulegt er að spá um — en það segir mér svo
hugur að KA og Selfoss komist í undanúrslitin á kostnað Vals
og Aftureldingar,11 sagði Páll Ólafsson, leikmaður með Haukum,
þegar Morgunblaðið fékk hann til að spá um leikina sem verða
í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar í kvöld.
Páll sagði að leikur KA og bikar-
meistara Vals á Akureyri yrði
án efa mikill baráttuleikur. „Síðast
þegar félögin léku að Hlíðarenda
skildu þau jöfn, 15:15. Ég hef trú á
því að heimavöllurinn komi til með
að ráða úrslitum og spái KA-mönn-
um sigri eftir framlengdan leik,“
sagði Páll. „Eins verður leikur Aftur-
■ eldingar og Selfoss tvísýnn. Leik-
menn Aftureldingar hafa ekki enn
tapað heima, en þar sem Selfyssing-
ar eru með mikið bikarlið spái ég
þeim sigri.“
„FH-ingar eiga ekki að vera í
neinum vandræðum með Gróttu-
menn á Seltjarnamesi og þá spái
ég a-liði Eyjamanna sigri í leik gegn
b-liði ÍBV,“ sagði Páll.
Ef spá Páls gengur eftir verða
það lið KR, Selfoss, FH og ÍBV, sem
komast í undanúrslit.
Tottenham
ekki á eftir
Þorvaldi
Enska úrvalsdeildarliðið
Tottenham Hotspur hefur
ekki áhuga á að kaupa Þor-
vald Örlygsson, leikmann 1.
deildarliðs Stoke skv. upplýs-
ingum Morgunblaðsins frá
Englandi í gær.
Fram kom í enskri sjón-
varpsstöð um helgina að fé-
lagið væri á höttunum eftir
íslenska landsíiðsmanninum
og væri tilbúið að greiða 1,5
milljónir punda fyrir hann.
Morgunblaðið náði ekki í Os-
valdo Ardiles, stjóra Totten-
ham í gær, en einn aðstoðar-
manna hans sagði fréttina
ranga. Félagið hefði ekki boð-
ið í Þorvald og það stæði ekki
til.
Valdimar Grímsson og félagar í
KA mæta Valsniönnum í kvöld, í ann-
að skipti á fjórum dögum.
Valsmenn verða með hópferð til
Akureyrar og verður farið með
fokkervél Flugleiða frá Reykjavík
kl. 17.30 og til baka verður komið
um kl. 23. Flugfarið kostar kr.
6.500. Þeir sem hafa hug á að fara
norður geta tilkynnt þátttöku í síma
12187.
KORFUKNATTLEIKUR
Frægasta lið Rússlands
á jólamót í Borgamesi
BORGNESINGAR ætla ekki að sitja auðum höndum um hátfð-
irnar þó svo hlé verði gert á úrvalsdeildinni í körfuknattleik.
í Borgarnesi verður haldið jólamót og þangað hefur hið gríðar-
lega sterka rússneska lið Spartak Leningrad boðað komu sína.
^iðið kemur frá Pétursborg og varð liðið í öðru sæti í Rússlandi
er eitt af frægustu félögum
Rússalnds. Árið 1958 vann það sig
upp í efstu deild í Sovétríkjunum
og hefur leikið á toppnum allar
götur síðan með glæsilegum
árangri. Liðið varð meðal annars
Evrópumeistari 1973 og 1975 auk
þess að sigra í sovésku deildinni
níu ár i röð, 1978-1987. í fyrra
en árið áður, 1992, varð það rúss-
neskur meistari.
Vladimir Kondrashin, þjálfari
liðsins, er einn sigursælasti þjálfari
fynnim Sovétríkjanna. Hann lék
með liðinu á árum áður en snéri
sér síðan að þjálfun og var meðal
annars þjálfari sovéska landsliðsins
á árunum 1970 til 1976 en þá tap-
aði liðið aðeins fjórum leikjum.
„Þetta er nú fyrst og fremst til-
komið vegna persónulegra tengsla
þjálfara þeirra og Alexanders Er-
molinskijs. Við erum búnir að fá
staðafestingu á að Spartak Len-
ingrad kemur og síðan er eitt
danskt lið enn inni í myndinni, en
það skýrist í dag hvort það kemur
eða ekki,“ sagði Bjami Steinarsson,
varaformaður körfuknattleiksdeild-
ar Skallagríms, við Morgunblaðið í
gærkvöldi.
„Við erum líka búnir að bjóða
Haukum, KR og Tindastóli að vera
með en viljum að sjálfsögðu ekki
bjóða liðunum sem eru með okkur
í riðli nema við þurfum á því að
halda,“ sagði Bjarni.
Mótið verður líklegast fjögurra
liða mót en þó er hugsanlegt að
liðin verði fímm. Það er Hótel Borg-
arens sem sér um rússneska liðið
en önnur lið verða að greiða kostn-
að vegna gistingar sjálf. Mótið
verður 28. til 30. desember en Rúss-
amir fara heim 2. janúar.
KNATTSPYRNA
í kvöld
Handknattleikur
Bikarkeppni karla:
KA-húsið: KA-Valur kl. 20
Seltj’nes: Grótta - FH .kl. 20
Varmá: UMFA-Selfoss .kl. 20
Vestm’eyjar: ÍBV-b - ÍBV kl. 20
Bikarkeppni kvenna:
Garðabær: Stjaman - Fylkir.... •kl. 20
Höllin: Fram-ÍBV kl. 19.30
Valsheimili: Valur-Grótta ■kl. 18
Víkin: Víkingur-Haukar ,kl. 20
HANDKNATTLEIKUR / BIKARKEPPNI
Körfuknattleikur
Promotion Cup kvenna
Mót á Kýpun
ísland - írland...............48:66
Gangur leiksins: 13:17, 15:26, 18:30,
38:48, 48:66.
Stig íslands: Guðbjörg Norðfjörð 11,
Hanna Kjartansdóttir 8, Linda Stefánsdótt-
ir 7, Anna María Sveinsdóttir 7, Svanhildur
Káradóttir 4, Anna Dís Sveinbjömsdóttir
4, Ásta Óskarsdóttir 3, Olga Færseth 2,
Björg Hafsteinsdóttir 2.
■írar náðu góðu forskoti í fyrri hálfleik.
Seinni hálfleikur var mun jafnari, íslensku
stúlkumar börðust vel í vöminni, en forskot-
ið sem írarnir höfðu náð fyrir hlé reyndist
einfaldlega of mikið.
Knattspyrna
Enski deildarbikarinn
4. umferð, aukaleikur:
Wimbledon - Liverpooi...........2:2
Dean Holdsworth, Robbie Earle — Neil
Ruddock, Hans Segers (sjálfsmark) 11.433.
BHollenski markvörðurinn Segers hjá
Wimbledon gerði slæm mistök á siðustu
sekúndum leiksins, er hann sló knöttinn í
eigið mark eftir fyrirgjöf og jafnaði þar
með metin fyrir Liverpool. En hann átti
sannarlega eftir að bæta fyrir mistökin;
varði vítaspymu frá John Barnes í fyrri
hálfleik framlengingar og síðan tvö víti í
vítaspymukeppni. Liðin stóðu sem sagt jöfn,
2:2, eftir framlengingu. Vítaspymukeppnin:
Neil Ruddock skoraði fyrir Liverpool, þá
Fashanu fyrir Wimbledon, Segers varði síð-
an frá Jamie Redknapp, Holdsworth skor-
aði fyrir Wimbledon, Bames fyrir Liver-
pool, Grobbelaar varði þvínæst frá Vinnie
Jones, Segers varði frá Mark Walters, Brian
McAllister skoraði fyrir Wimbledon, Robbie
Fowler fyrir Liverpool og loks Ardley fyrir
Wimbldon, og Lundúnaliðið komst þar með
áfram í keppninni.
UEFA-keppnin
Þrjú félög frá Þýskalandi og Italíu vom
I glerkúlunni, þegar dregið var í 8-liða úr-
slit UEFA-keppninnar í gær. Eftirtalin lið
mætast:
■Bomssia Dortmund (Þýskalandi) - Inter
Mílanó (Italíu)
BCagliari (Ítalíu) - Juventus (Ítalíu)
BFrankfurt (Þýskalandi) - Austria Salz-
burg (Austurríki)
R Boavista (Portúgal) - Karlsruhe (Þýska-
landi)
Fyrri leikir liðanna fara fram 2. og 3.
mars, en seinni leikimir 16. og 17. mars.
KORFUBOLTI
Kennslu-
myndband
komið út
Kvikmyndafélagið Nýja Bíó hf.
hefur í samvinnu við Körfu-
knattleikssambandið gefið út mynd-
bandið Meistarataktar. Það er Ingv-
ar Jónsson sem útskýrir ýmis
grundvallaratriði sóknarleiks í
körfuknattleik. Farið er yfir knatt-
rak, gabbhreyfingar og skottækni
auk þess sem sérstaklega er fjallað
um þátt stórra leikmanna og farið
yfir nokkrar æfingar fyrir þá. Einn-
ig eru sýndir nokkrir leikir sem
hægt er að fara í á planinu heima.
Ingvar er öllum hnútum kunnug-
ur í körfuknattleiknum. Hann er
íþróttakennari að mennt og hefur
um margra ára skeið þjálfað körfu-
knattleikslið. En var ekki erfitt að
velja það efni sem nota átti: „Jú, í
rauninni en ég lít á þetta sem fyrsta
skrefið og í kjölfarið komi fleiri
kennslubönd. Eg ákvað að taka
fyrir nokkur grunnatriði sem gætu
nýst þeim sem eru að byija og ég
held að þetta nýtist einnig lengra
komnum," sagði Ingvar.
Myndbandið er 40 mínútna langt
og kostar 2.480 krónur. Það verður
selt í bókaverslunum, bensínstöðv-
um ESSÓ, plötuverlsunum, í Hag-
kaup og í nokkrum sportvöruversl-
unum.