Morgunblaðið - 15.12.1993, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993
49
Ágætt að vera
maður sjálfur
Nafn: Jón Trausti Kárason.
Heima: Grafarvogi.
Aldur: 14 ára.
Skóli: Poldaskóli.
Sumarstarf: Ég var í unglingavinn-
unni. Við vorum að vinna við Pjölni-
svöll, eitthvað að tyrfa en aðallega að
hangsa.
Helstu áhugamðl: Tónlist og íþróttir,
aðallega knattspyma og körfubolti.
Uppáhalds hljómsvelt: Þær eru svo
margar að ég get varla svarað þessu.
Mér finnast Bubbleflies góðir og svo
held ég dálítið upp á U2 og breska dans-
hljómsveit sem heitir Future sound of
London.
Uppáhalds kvikmynd: Ég sá ágæta
mynd um daginn sem hét Menace to
society og svo er ég hrifin af myndum
sem gerast í fátækrahverfum Banda-
ríkjanna.
Besta bókin: Ég les voða lítið af bók-
um. Ég les frekar teiknimyndablöð.
Ekki Supermann eða svoleiðis blöð,
heldur öðruvísi hasarblöð með meiri
aksjón og ofbeldi. Ég held mest upp á
blöð sem heita Sandman.
Hver myndir þú vilja vera ef þú
værir ekki þú? Ég bara veit það ekki.
Það er ágætt að vera maður sjálfur.
Hvernig er aó vera unglingur í dag?
Það er dálítið erfitt eins og við er að
búast því unglingar eru svolítið misskild-
ir. í umræðu um unglinga er alltaf talað
um þessa unglinga sem eru niðri í
miðbæ, eru með ofbeldi og láta svo
mikið bera á sér. Svo eru allir ungling-
ar dæmdir þannig hjá fullorðnum. Ann-
ars er þetta bara ágætt. Félagsstarfið
í skólanum er t.d. ágætt og íþróttastarf-
ið.
Hverju myndir þú vllja breyta í
þjóðfélaginu? Það er þetta með úti-
vistartíma unglinga. Hann er mjög
asnalegur. Og svo er þetta sem hefur
mikið verið talað um að fá eina stóra
félagsmiðstöð staðsetta niðri í miðbæ
fyrir alla unglingana til að hittast á.
Og hafa hana þá opna aðeins lengur
en venjulegar félagsmiðstöðvarnar. Ég
myndi halda að það væri eðli-
legt að miða tímann við svona
tvö til þijú, en það fer auðvit-
að eftir því hvað foreldrarnir
eru tilbúnir að gefa mikið
eftir.
Hvað er það skemmtileg-
asta sem þú gerir? Spila
fótbolta og véra í plötusnúða-
búrinu í félagsmiðstöðinni.
Hvað er það leiðinleg-
asta sem þú gerir?
Læra heima og hlusta á
röflið í foreldrunum
stundum.
Hvað ætlar þú að
verða þegar þú
verður stór? Ég
er ekki búinn að
ákveða neitt en
ég mig hefur
langað til að
fara í leik-
listamám
og svo er
ég að hugsa
um að fara kannski út í
tónlist. Bara rétt svona til að grín-
ast með það í byijun og athuga svo
hvort það gengur eitthvað.
Hvað gengur þú með í vösunum?
Það er nú mest lítið. Lyklar, stundaskrá-
in mín og peningar þegar ég á þá.
Viltu segja eitthvað að lokum? Ég
bara veit það ekki. Kannski ég biðji
bara að heilsa öllum mínum vinum í
Foldaskóla og vona að þeim gangi vel
í vetrar-, vor- og samræmdum prófum.
Innkaupalisti
fyrir foreldra
Þráðlaus sími með tónvali og
einkanúmer svo hægt sé að
hanga í símanum eftir geð-
þótta. Foreldrar borga svo
símareikninginn ársfjórð-
ungslega.
*
Geisladiskar og tölvuleikir.
*
Role Play.
*
Hest.
Mongoos-fjallahjól með öllum
fylgihlutum.
*
Ferð án foreldra til útlanda.
Hvað er meira þroskandi fyrir
13 til 16 ára ungling en að
vera aleinn í Köben eða Amst-
erdam í lífsins skóla.
Fermingaföt foreldranna, líka
skóna.
Tattoo. Það margborgar sig,
þá er sama hvernig krakkinn
breytir sér það er alltaf hægt
að þekkja hann á húðflúrinu.
*
Beinharða peninga til eigin
neyslu. Ef lítið er um lausafé
á heimilinu er hægt að gefa
barninu auka debet- og kred-
it-kort á reikninga foreldr-
anna.
*
Hatta og húfur af öllu tagi.
Vettlinga og trefla, ekkert
endilega í stíl. Bæði er þetta
í tísku um þessar mundir og
einstaklega hentugt í kuldan-
um.
ÞAÐ S E M UWGLINGAR
ILJA EKKI FA I JOLAGJOF
Listi yfir það sem
foreldrar ættu að
varast í innkaupum
Heklaðir dúkar.
Monopoly - Það er alls ekki
fyrir unglinga heldur aðeins
fyrir þá sem eru yngri eða
eldri.
*
Glæný föt úr Hagkaup. Ekki
nema einhveijum takist að
grafa upp Hagkaupssloppana
sem gerðu það gott fyrir nok-
kurum áratugum og væru
hátískuvara væru þeir á boð-
stólum í dag.
Snyrtivörur og nærföt. Geta
verslað það sjálf, smekkur
allra yfir 16 vonlaus að þeirra
mati.
*
Ferð með allri íjölskyldunni
til Færeyja næsta sumar.
Skiljið þau frekar eftir heima,
nógu er ástandið slæmt í
Færeyjum. ,
* '
Sparibauk og verðbréf.
*
Luxor-lampa.
*
Bækur um kynlíf. Það er fátt
eins hallærislegt og að gefa
í skyn að bráðum verði þau
fullorðin og megi...
•
Segulbandstæki. Löngu úrelt,
annaðhvort gefa þeim al-
mennilegar græjur eða sleppa
þessu alveg.
*
Unglingabækur. Unglingar
gera kröfu um að fá allt jóla-
bókaflóðið eins og það kemuc___
fyrir yfir sig, en ekki bara
örfáa titla.
Tyggigúmmí
Þessi frábæra bandaríska hug-
mynd er eitthundrað ára gömul
Fyrir hundrað árum datt
William Wrigley Jr.
niður á einhveija
gróðavænlegustu hugmynd allra
tíma - tyggigúmmíið. Heimurinn
væri ekki samur án þess.
Það er kannski ekki rétt að
segja að William Wrigley Jr.
hafí fundið týggigúmmíið upp.
Það hefur fundist í hellum með
fullkomnum tannförum eftir
dreng frá steinöld svo það hefur
verið notað í einhverri mynd frá
örófi. Tyggigúmmí hefur verið
notað til að leysa morðgátur,
stoppa í göt á loftbelgjum og
jafnvel sem lausnargjald.
Wrigley’s-fyrirtækið sem Will-
iam stofnaði fyrir eitthundrað
árum er ennþá langstærsti fram-
leiðandi og seljandi tyggigúmmís
og ræður yfir um það bil helm-
ingi heimsmarkaðarinns. Áætlað
er að Wrigley’s framleiði eitt-
hundrað milljón tyggjóplötur á
dag, plús eða mínus nokkur þús-
und.
í byijun var tyggjó búið til
úr tijákvoðu og vaxi en það hef-
ur breyst í áranna rás og nú eru
notuð mun fleiri efni til að ná
fram réttu bragði og áferð.
Tyggjóframleiðendur halda upp-
skriftum sínum vandlega leynd-
um og eru alltaf að leita nýrra
aðferða til að gera tyggjó bragð-
betra og bragðið endingarbetra.
Wrigley-fyrirtækið notar flókinn
öryggisbúnað, varðmenn og háa
gaddavírsgirðingu til að veija
formúlurnar sem notaðar eru til
að gera þetta vinsæla tyggi-
gúmmí.
Þrátt fyrír hylli tyggjós um
allan heim eru til staðir á jörð-
inni þar sem það er bannað með
öllu. Frelsisstyttan í New York
er einn af þessum stöðum og í
Singapore er bannið svo strangt
að ein tyggjóplata í vasa getur
kostað fólk eitt ár í fangelsi.
Stóra vandamálið með tyggi-
gúmmí er að þó fólk elski að
tyggja það þá geta fæstir hugsað
sér að gleypa það. Þess vegna
er tyggigúmmí stórt heilbrigðis-
vandamál um allan heim. Því
fólk hefur tilhneigingu til að
henda því eða klína því hvar sem
er og víða eru risa tyggjóklessur
sem bæði er dýrt og erfítt að
þrífa burt.
EP Þýtt og endui sagt úr „The
Sun“.