Morgunblaðið - 15.12.1993, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993
33
Sókn í stað samdrátt-
ar í skipaiðnaði
••
eftir Orn Friðriksson
Norðmenn og Pólverjar flytja
út atvinnuleysi. Þeir flytja það til
íslands, þar sem íslenskir út-
gerðarmenn eru áijáðir í að borga,
því þeir fá útlenska atvinnuleysið
á niðurgreiddu verði. Fyrir hveijar
100 kr. sem íslenska útgerðin
kaupir skipasmíðaendurbætur í
Noregi eða Póllandi, fær hún end-
urgreiddar 10 til 20 kr. frá norska
eða pólska ríkinu í formi ríkis-
styrkja.
Fyrir vikið streyma verkefni í
skipaiðnaði frá íslandi til útlanda.
Erlendis styðja ríkisstjómir við
skipaiðnað, því hann er grundvöll-
ur fyrir tækniþróun framtíðarinn-
ar, skapar mörgum atvinnu og
stuðlar að mikilli verðmætaaukn-
ingu fyrir þjóðarbúið. Ríkisstjórn-
irnar telja þennan iðnað svo mikil-
vægan og arðbæran, að þær greiða
styrki til að halda honum gang-
andi í heimskreppu og harðnandi
samkeppni.
Eftir sitja á íslandi 500 starfs-
„Nýafstaðinn lands-
fundur Sjálfstæðis-
flokksins ályktaði að
leggja bæri höfuð-
áherslu á jöfnun starfs-
skilyrða á milli inn-
lendra og erlendra at-
vinnugreina. Skipaiðn-
aðurinn var tilgreindur
sérstaklega sem dæmi
um slíkt.“
menn í málm- og skipaiðnaði sem
hafa misst vinnuna á síðastliðnum
5 árum vegna verkefnastreymis til
útlanda. Að auki eru aðrir 500 sem
enn hafa vinnu, en sjá fram á að
missa hana á næstu vikum og
mánuðum.
Stöndum við varnarlaus? Á
skipaiðnaðurinn að deyja drottni
sínum án þess að nokkuð sé gert
til varnar?
Það eru til leiðir út úr vandanum
og það er oft búið að benda stjórn-
völdum á þær. Enn hafast þau
samt ekki að og skipaiðnaðinum
er að blæða út.
Báðar þessar leiðir miða að því
að íslenskur skipaiðnaður standi
jafnfætis erlendum skipaiðnaði,
þannig að hann geti keppt á eðli-
legum grundvelli um verkefnin.
Skipaiðnaður á
j afnr éttisgrund velli
Annars vegar gæti ríkið styrkt
íslenskan skipaiðnað, líkt og önnur
ríki styrkja sinn iðnað. Það er
reyndar ekki talið fýsilegt hér, þó
allir útreikningar bendi til að
ávinningur hins opinbera yrði mun
meiri en.kostnaðurinn.
Hins vegar koma til greina jöfn-
unar- eða undirboðstollar. Það þýð-
ir að innflutningur (skipasmíði og
endurbætur erlendis) hækkar í
verði sem svarar niðurgreiðslum í
viðkomandi landi.
GATT-samningar um milliríkja-
Örn Friðriksson
viðskipti heimila þessa leið. Við
notum nú þegar jöfnunartolla til
að veija íslenska sælgætis-, kex-,
bjór- og smjörlíkisframleiðslu.
Rætt er um að setja allt að 600%
jöfnunartolla á innfluttar landbún-
aðarvörur.
í samkeppni um verkefni erlend-
is frá hefur íslenskur skipaiðnaður
yfírleitt verið með mjög hagstæð
tilboð, mun lægri en frá flestum
öðrum löndum. Norsku og pólsku
ríkisstyrkimir slá okkur hins vegar
út af laginu.
Þessar erlendur niðurgreiðslur
eru einfaldlega að drepa íslenskan
skipaiðnað. Fyrirtækin eru komin
á heljarþröm og eiga mörg hver
skammt eftir.
Jöfnunartollar eru því eðlileg
aðgerð í þessari stöðu.
Landsfundur styður
jöfnunartolla
Það er ánægjulegt til þess að
vita að þessum sjónarmiðum um
lausn vandans vex fylgi. Nýafstað-
inn landsfundur Sjálfstæðisflokks-
ins ályktaði að leggja bæri höfuð-
áhersíu á jöfnun starfsskilyrða á
milli innlendra og erlendra at-
vinnugreina. Skipaiðnaðurinn var
tilgreindur sérstaklega sem dæmi
um slíkt. Þá lagði landsfundurinn
einnig áherslu á að undirboðum á
erlendum iðnvarningi og þjónustu
skyldi mætt með viðeigandi að-
gerðum, svo sem tollum og jöfn-
unargjöldum.
Þetta mál er nú til meðferðar
hjá fjármálaráðherra. Það er ein-
læg von mín að hann skilji mikil-
vægi málsins og taki undir með
ályktunum landsfundar eigin
flokks.
En tíminn er naumur.
Höfundur er formadur Félags
jámiðnaðarmanna og
varaformaður Samiðnar —
sambands iðnfélaga.
ÁRIMAÐ HEILLA
Ljósm. Oddgeir Karlsson
HJÓNABAND. Gefin voru saman
hinn 11. september sl. í kapellunni
í Vatnaskógi af sr. Ólafi Jóhanns-
syni, Bylgja Dís Gunnarsdóttir og
Henning Emil Magnússon. Heimili
þeirra er á Grundarvegi 11, Njarð-
vík.
Ljósmyndarinn - Jóhannes Long
HJÓNABAND. Gefín voru saman
hinn 16. október sl. í Fella- og
Hólakirkju af sr. Pálma Matthías-
syni, Bryndís Gunnlaugsdóttir og
Olafur Stefánsson. Heimili þeirra
er í Spóahólum 2, Reykjavík.
Ajgreitt i
skemm tuegu m
gjafaöskjum
VEL
VALIN
GJÖF
Glæsibæ
Líttu á verðið!!
SEVERIN raftækin eru v-þýsk gæðavara á verði, sem á sér vart hliðstæðu hérlendis. SEVERIN raftækin hafa verið seld hér í fast að 50 ár og tryggir
frábær reynsla gæðin. Hagstæð magninnkaup okkar tryggja lægsta mögulegt verð og getum við nú boðið yfir 60 gerðir af þessum gæðatækjum!
Vöfflujárn frá kr. 3.790. Gufustraujárn frá kr. 2.841. Hárblásarar frá kr. 1.416.
Brauðristar frá kr. 2.175.
Djúpsteikingarpottar
frá kr. 6.603.
Ávaxtapressur frá kr. 3.990.
Hraðsuðukönnur frá kr. 2.841. Handþeytarar frá kr. 2.366.
Kaffivél,
sem sýður
vatnið sjálf,
kr. 12.255.
Aðrar
kaffikönnur
frákr. 1.710.
Dósaopnarar frá kr. 1.796.
(Allt verð er með 5% staðgreiðsluafslætti).
WWfm Einar
MmW FarestveÉt&Co.hf.
Borgartúni 28 "S 622901 og 622900
Komið í verslun okkar í Borgartúni 28 eða til einhvers umboðsmanna okkar og skoðið úrvalið af SEVERIN raftækjunum!
Rafbúöin, Álfaskeiði 31, Hafnarf.
Miðvangur, Hafnarfirði.
SUÐURNES:
Stapafell hf., Keflavík.
Samkaup, Keflavík.
VESTURLAND:
Rafþjónusta Sigurdórs, Akranesi.
Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi.
Blómsturvellir, Hellissandi.
Versl. Hamar, Grundarfirði.
Versl. E. Stefánssonar, Búðardal.
VESTFIRÐIR:
Kf. Króksfjarðar, Króksfjarðarnesi.
Vélsmiðja Tálknafjarðar.
Versl. G. Sigurðssonar, Þingeyri.
Rafsjá, Bolungarvík.
Straumur hf„ ísafirði.
Kf. Steingrímsfjarðar, Hólmavík.
N0RÐURLAND:
Kf. Hrútfirðinga, Borðeyri.
Versl. Sel, Skútustöðum.
Kf. V-Húnvetninga, Hvammstanga.
Kf. Húnvetninga, Blönduósi.
Kf. Skagfirðinga, Sauðárkróki.
KEA, Akureyri, og útibú á Norðurlandi.
Kf. Þingeyinga, Húsavik.
AUSTURLAND:
Kf. Vopnfirðinga, Vopnafirði.
Kf. Héraðsbúa, Seyðisfirði.
Kf. Héraðsbúa, Egilsstöðum.
Rafalda, Neskaupstað.
Kf. Hérðasbúa, Reyðarfirði.
Kf. Fáskrúðsfjarðar.
Kf. A-Skaftfellinga, Djúpavogi.
Kf. A-Skaftfellinga, Höfn.
SUÐURLAND:
Kf. Rangæinga, Hvolsvelli.
Kf. Rangæinga, Rauðaiæk.
Reynistaður, Vestmannaeyjum.
Kf. Árnesinga, Selfossi.