Morgunblaðið - 15.12.1993, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993
23
Starfsmenn Slippstöðvarinnar-Odda fjölmenntu á fund bæjarstjómar Akureyrar
Pólitísk íhlut-
mi eina leiðin
STARFSMENN Slippstöðvarinnar-Odda fjölmenntu á fund bæjar-
stjórnar Akureyrar síðdegis í gær og skoruðu á bæjarfulltrúa að
beita áhrifum sínum til að eðlilegur starfsgrundvöllur fyrir skipa-
smíðaiðnaðinn skapaðist í landinu og að tryggja megi áframhald-
andi starfsemi fyrirtækisins. A fundi bæjarsljórnar var samþykkt
ályktun þar sem skorað er á Alþingi og ríkissljórn að-grípa nú þeg-
ar til aðgerða til styrktar íslenskum skipasmiðaiðnaði.
í bréfi sem starfsmenn Slipp-
stöðvarinnar-Odda afhentu Sigríði
Stefánsdóttur forseta bæjarstjórnar
Akureyrar segir m.a. að erlendar
niðurgreiðslur og undirboð til skipa-
smíða og viðgerða hafi leikið ís-
lenskan skipasmíðaiðnað grátt á
undanförnum árum, störfum hafi
fækkað um meira en helming, nær
öll skipasmíða- og þjónustufyrir-
tæki riða á barmi gjaldþrots og nú
sé fyrirsjáanlegt algjört hrun þessa
iðnaðar og þeirrar mikilvægu þjón-
ustu er hann veiti.
Pólitísk íhlutun
„Hér verður blaðinu vart snúið
við nema með pólitískri íhlutun
stjórnvalda til jöfnunar á sam-
keppnisforsendum, svo og með
samstilltu átaki starfsmanna og
stjómenda fyrirtækjanna fyrir
auknum afköstum og hagkvæmni
í rekstri," segir í bréfi starfsmannna
sem afhent var forseta bæjarstjórn-
ar til að minna á hið alvarlega
ástand sem lokun fyrirtækisins
hefði á atvinnuástand í bæjarfélag-
inu, svo og þær afleiðingar sem það
hefði á þjónustu viðt fiskiskipaflot-
ann.
í ályktun sem samþykkt var sam-
hljóða í bæjarstjórn er bent á að
björgunaraðgerðir gagnvart ein-
stökum fyrirtækjum dugi skammt
í samkeppni við niðurgreiddar er-
lendar skipasmíðar. „Til þess að
verkkunnátta í þessari atvinnugrein
og mikilvæg þjónusta við íslenskan
sj’ávarútveg haldist í landinu verður
að grípa til aðgerða til að jafna
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Gengið á fund bæjarstjórnar
STARFSMENN Slippstöðvarinnar-Odda gengu fylktu liði frá vinnu-
stað sínum á fund bæjarsljórnar Akureyrar til að benda á það alvar-
lega atvinnuástand sem lokun fyrirtækisins hefði í för með sér á
atvinnuástand i bænum.
Fjölmenni á bæjarsljórnarfundi
SIGRÍÐUR Stefánsdóttir forseti bæjarstjórnar Akureyrar flutti
ásamt fulltrúum annarra flokka tillögu sem samþykkt var þar sem
skorað var á Alþingi og ríkisstjórn að grípa þegar til aðgerða til
að styrkja íslenskan skipasmíðaiðnað.
samkeppnisstöðu skipasmíðaiðnað-
arins. Bæjarstjórn leggur áherslu á
mikilvægi þessa máls fyrir atvinnu-
líf á Akureyri þar sem Slippstöðin-
Oddi sem verið hefur einn af burð-
arásunum í iðnaði í bænum á nú í
miklum erfiðleikum og fjöldi starfa
er í hættu,“ segir í ályktun bæjar-
stjórnar Akureyrar.
Of mikið talað
Þórarinn E. Sveinsson, Fram-
sóknarflokki, sagði að alltof lengi
hefði verið talað um vanda skipa-
smíðaiðnaðarins en alltof lítið gert.
Nú yrði að verða breyting þar á og
ræða þyrfti við stjórnvöld þar að
lútandi, vonlaust væri fyrir Akur-
eyrarbæ einan að gera nokkuð þó
svo að fullur hugur væri innan
bæjarstjórnar að gera það sem í
hennar valdi stæði til að endurreisa
mætti skipasmíðaiðnaðinn.
Björn Jósef Arnviðarson, Sjálf-
stæðisflokki, sagði að sí og æ væri
verið að berjast við ríkisvaldið varð-
andi þetta mál og skemmst væri
að minnast að fyrir um einu ári
hefði sú staða verið uppi á teningn-
um að ríkið hefði ekki viljað leggja
fé í fyrirtækið en ætlast til að bær-
inn gerði það.
Gísli Bragi Hjartarson, Alþýðu-
flokki, sagði það ríkisstjórnarinnar
og Alþingis að taka á málinu og
vænti hann þess að það yrði gert.
„Það er ekki á okkur Akureyringa
bætandi ef hér yrði meira atvinnu-
leysi en þegar er, þá færi fyrst að
hrikta verulega í undirstöðunum,"
sagði Gísli Bragi.
Bókmennta-
kvöld í
Deiglunni
BÓKVAL og Café Karólína efna
til þriðja bókmenntakvöldsins í
Deiglunni fimmtudagskvöld 16.
desember og hefst dagskrá kl.
20.30.
Lesið verður upp úr eftirtöldum
bókum: Perlur og steinar eftir Jó-
hönnu Kristjánsdóttur, Falsarinn
eftir Björn Th. Björnsson, Spor í
myrkri eftir Þorgrím Þráinsson,
Ljóðlínudans eftir Sigurð Pálsson,
Fjórða hæðin eftir Kristján Krist-
jánsson, Nellikkur og dimmar næt-
ur eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur,
Barnið mitt barnið eftir Illuga Jök-
ulsson, Kría siglir um suðurhöf eft-
ir Unni Jökulsdóttur og Þorbjörn
Magnússon, Sjö níu þrettán eftir
Símon Jón Jóhannsson og Manga
með svartan vanga eftir Ómar
Ragnarsson.
Bókmenntakvöldið stendur í tvo
tíma og er aðgangur ókeypis.
(Fréttatilkynning)
-----»-■»--<--
Aðventu-
kvöld í
Svalbarðs-
kirkju
AÐVENTUSAMVERA verður í
Svalbarðskirkju annað kvöld,
fimmtudagskvöldið 16. desem-
ber, og hefst dagskrá kl. 20.30.
Kór Svalbarðs- og Laufáskirkju
syngur aðventu- og jólalög undir
stjórn organistans Hjartar Stein-
bergssonar. Aðventuljósin verða
tendruð og börn flytja helgileik um
atburðinn í Betlehem. Ungir hljóð-
færaleikarar úr Tónlistarskóla
Eyjafjarðar flytja jólalög og
unglingar sýna ljósahelgileik. Hug-
leiðingu kvöldsins flytur Ingibjörg
S. Siglaugsdóttir í Laufási.
Listasafnið
á Akureyri
opið fram
til áramóta
LISTASAFNIÐ á Akureyri verð-
ur opið fram til jóla og einnig
verður opið milli jóla og nýjárs.
Safnið er opið daglega frá kl.
14 til 18, en lokað er á mánudög-
um. Safnið verður lokað í janúar-
rnánuði.
Haraldur Ingi Haraldsson, for-
stöðumaður Listasafnsins á Akur-
eyri, sagði að ákveðið hefði verið
að hafa safnið opið í kringum jól og
áramót til að gefa því fólki sem
gjarnan kemur í heimsókn til Akur-
eyrar yfir hátíðirnar kost á að skoða
safnið og þá sýningu sem þar stend-
ur yfir. Á safninu er verið að sýna
úrval verka úr eigu Markúsar ívars-
sonar járnsmiðs eftir helstu stór-
meistara íslenskrar myndlistarsögu.
Fjöldi gesta
Listasafnið á Akureyri var opnað
í ágústlok og hafa viðtökur bæjarbúa
og gesta verið einkar góðar að sögn
Haraldar Inga. Á opnunarsýningu
safnsins komu vel á þriðja þúsund
gestir og um 900 manns hafa séð
þá sýningu sem nú stendur yfir.
Aðgangur að Listasafninu á Akur-
eyri er ókeypis.
STEINAR WAAGE
Tcg. 48906
Slærðin 3'/>-8'/2
Lilir; Svarlur og brúnn
Vcril kr. 11.995
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS • 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
Tökum vlð notuðum skúm III hanða bágslöððum
STEINAR WAAGE ^
SKOVERSLUN
SÍMI 18519 <
STEINAR WAAGE a
---------------
ODýR OG FALLEp
JOLATRE
Jafn, þéttur og barrheldinn normansþinur
Stærð í cm: Verð:
100-125 kr. 1.770,-
126-150 kr. 2.395,-
151-175 kr. 2.995,-
176-200 kr. 3.825,
201-250 ; kr. 4.795,-
&
iz II H ii ði tlá
þisia s s a a fl s
Fríkirkjusöfnuðurinn
í Reykjavík
___Slcr_________Ssr__________ctíc-____^r-_
œS-_ I
k „AVISUN“ KR. 100,-
i
k
Gegn framvísun þessa miða fær handhafi
100 kr. í afslátt þegar hann kaupir jólatré hjá
Fríkirkjusöfnuðinum í Reykjavík á
jólatréssölunni við Fríkirkjuna, Fríkirkjuvegi 5
(austanmegin við Tjörnina).
Aðeins ein „ávísun“ gildir fyrir hvert jólatré sem keypt er.
Gildir frá 16.12. til 23.12.1992 eða meðan birgðir endast.
~A>______~*^>