Morgunblaðið - 15.12.1993, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993
Efnahags- og viðskiptanefnd afgreiðir skattafrumvarpið í dag
Fulltrúar ASÍ höfnuðu því
að fresta lækkun vsk á mat
INGI Björn Albertsson fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í éfnahags- og
viðskiptanefnd Alþingis vill að frestað verði fram á næsta ár að lækka
virðisaukaskatt á matvæli svo tóm gefist til að undirbúa þessa breyt-
ing^u betur. Steingrímur J. Sigfússon fulltrúi Alþýðubandalags í nefnd-
inni er sama sinnis. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins höfnuðu
fulltrúar Alþýðusambands íslands hugmyndum um frestun á fundi
með nefndinni í gær.
Búist er víð að efnahags- og við-
skiptanefnd Alþingis afgreiði í dag
frumvarp ríkisstjómarinnar um
skattabreytingar en í frumvarpinu
er m.a. lagt til að virðisaukaskattur
á matvæli lækki í 14% um áramót.
Talsverð gagnrýni hefur komið fram
á þessa breytingu undanfarið, þar á
meðal frá kaúpmönnum sem telja
meðal annars að allt of skammur
tími sé til stefnu.
Ingi Bjöm Albertsson, fulltrúi
Sjálfstæðisflokks í efnahags- og við-
skiptanefnd, sagði við Morgunblaðið
að hann styddi lækkun vsk á mat-
væli en teldi að fresta ætti fram-
kvæmd þessarar breytingar fram á
næsta ár til að undirbúa hana bet-
ur. Þessari skoðun hefði hann lýst
í þingræðu.
Aðrir fulltrúar stjórnarmeirihlut-
ans í nefndinni, sem Morgunblaðið
ræddi við, segjast muni styðja þær
tillögur sem komi frá ríkisstjórninni
í þessum efnum enda séu þær hluti
af samkomulagi við aðila vinnu-
markaðar og grundvöllur kjara-
samninga út næsta ár.
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu í gær leggjast fulltrúar Fram-
Hermann kvaddur
HERMANN — ein vinsælasta teiknimyndasaga allra tíma í
Morgunblaðinu — hverfur nú af síðum blaðsins — í bili að
minnsta kosti.
Höfundur Hermanns hefur átt
við vanheilsu að stríða og í fyrra
var honum gert að ráði lækna
að taka sér leyfi frá störfum.
Morgunblaðið átti þá nokkrar
birgðir af Hermanni sem dugað
hafa fram á þennan dag en nú
er því miður svo komið að Her-
mann er uppurinn. Útgáfufyr-
irtæki Hermanns í Bandaríkj-
unum leggur hins vegar unnend-
um Hermanns til staðgengil sem
þar vestra nefnist Farcus og öðl-
ast hefur mikla hylli. Hefur þessi
myndasaga göngu sína hér í
blaðinu næstu daga — undir ís-
lensku heiti að sjálfsögðu — en
þangað til hleypur Cosper, góð-
vinur lesenda Morgunblaðsins til
margra ára, í skarðið.
í dag
Byltir EES áfengissölu?
Núverandi fyrirkomulag áfengis-
sölumála stríðir gegn ákvæðum um
frelsi í smásöluverslun 22
NATO haldi vöku sinni
Nú kveður við nýjan tón í afstöðu
Vesturlanda í garð Rússa vegna
kosningasigurs þjóðernissinna 24
Safnað fyrir harnaspítala
Maraþonlíkamsræktarkeppni til
styrktar barnaspítala Hringsins
verður 17. desember nk. 26
Leiðari________________________
Akkilesarhæll Steingríms 26
Úr verinu
► Góð þorskveiði í haust - Sparn-
aður með notkun brennsluhvata
- Engin vandræði vegna hval-
veiða þjá Norðmönnum - Stýri-
mannaskólinn hriplekur
sóknarflokks og Kvennalista í nefnd-
inni gegn lækkun vsk á matvæli en
standa þess í stað að breytingartil-
lögum, m.a. um að almenna vsk-
þrepið lækki í 23%. Þessar tillögur
voru kynntar fulltrúum ASÍ í gær
og samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins lýstu þeir afdráttarlaust
þeirri skoðun að tillögurnar væru
gegn þeim forsendum sem kjara-
samningarnir byggðu á.
Sérálit
Steingrímur J. Sigfússon, fulltrúi
Alþýðubandalags, í efnahags- og
viðskiptanefnd mun leggja fram
sérálit. Hann sagðist í samtali við
Morgunblaðið styðja grundvallar-
ákvörðunina um að lækka virðis-
aukaskatt á matvæli þótt hann lýsti
ábyrgð á undirbúningi og fram-
kvæmd málsins á hendur ríkis-
stjórnarinnar. Hann sagðist einnig
myndu flytja breytingartillögur við
skattafrumvarp ríkisstjórnarinnar
sem miðuðu að því að lækkun vsk
á matvæli nýttist betur sem tekju-
jafnandi aðgerð.
Tillögur Steingríms ganga út á
að tekjuskattur fyrirtækja lækki
ekki, hátekjuskattUr verði hækkaður
og persónufrádráttur einnig. Þá mun
Steingrímur væntanlega leggja til
að gildistöku breytinganna á virðis-
aukaskattinum yrði frestað til 1.
mars til að undirbúa framkvæmdina
betur en búvörur yrðu greiddar niður
á meðan. Loks leggur hann til að
virðisaukaskattur á fólksflutninga,
ferðaþjónustu og bækur verði felldur
niður. Steingrímur sagði að þessar
tillögur hefðu í för með sér um 1.300
milljóna króna útgjöld en útgjalda-
sparnaður á móti væri um 1.100
milljónir.
Lítil veiði á
loðnumiðum
LÍTIL loðnuveiði hefur verið
undanfarinn sólarhring
vegna brælu á miðunum. Um
20 skip fóru á miðin eftir að
fréttist af loðnugöngu út af
Norð-Austurlandi um helgina
en illa hefur viðrað á miðun-
um.
Að sögn Ómars Ólafssonar,
stýrimanns á Albert GK, haml-
aði veður veiðum á miðunum á
þriðjudagsnótt og leituðu flestir
bátanna vars í gær. Ómar sagði
að töluvert virtist af loðnu á
þessum slóðum og gæti afíast
vel ef sæmilega viðraði. Spáð
er áframhaldandi brælu á þess-
um slóðum.
Sjávarútvegsfrumvörpin lögð fram á Aþingi
Kvóti Hagræðingar-
sjóðs án endurgjalds
ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra hefur lagt fram þrjú
stjómarfrumvörp um sjávarútvegsmál á Alþingi. Sem kunnugt er
af fréttum hafa miklar deilur staðið um frumvarpið um breytingu
á stjórn fiskveiða, einkum hlut smábáta í því. í frumvarpinu sem
Iagt hefur verið fram er gert ráð fyrir að smábátar geti verið áfram
á krókaleyfi en með fjölgun banndaga eins og greint hefur verið frá
í Morgunblaðinu. Hin tvö frumvörpin eru annars vegar um Þróunar-
sjóð sjávarútvegsins og hinsvegar um ráðstöfun á aflaheimildum
Hagræðingarsjóðs en í því frumvarpi er gert ráð fyrir að kvóta sjóðs-
ins verði úthlutað án endurgjalds til þeirra sem orðið hafa fyrir
mestri skerðingu á kvótum sínum.
Frumvarpið um breytingar á
stjóm fiskveiða er að mestu óbreytt
frá því að það kom upphaflega fram
að undanskildum veiðum smábáta.
Auk þess að geta verið áfram á
krókaleyfi gefst eigendum bátanna
kostur á að vera á kvóta frá 1.
september 1994 og skal miða við
veiðireynslu þeirra tímabilið 1. sept:
ember 1991 til 31. ágúst 1993. í
ákvæði til bráðabirgða í frumvarp-
inu um þetta atriði kemur m.a. fram
að við mat á þeirri aflareynslu skuli
aðeins tekið tillit til afla en ekki
frátafa eða annarra atvika. Fiski-
stofa skal birta útgerðum einstakra
báta bréflega hver úthlutaður kvóti
þeirra hefði orðið á fískveiðiárinu
1. september 1993 til 31. ágúst
1994 ásamt forsendum fyrir þeirri
úthlutun. Útgerðir skulu tilkynna
Fiskistofu fyrir 1. júlí 1994 um val
Myndasögur
► Jólaföndur - Verðlaunasmá-
saga - Merkimiðar - Krakkar að
teikna í Svíþjóð - Hemmi Gunn
og Rúnni Júll syngja fyrir bömin
- Hvað tákna íþróttamerkin
sitt en berist slíkar tilkynningar
ekki í tæka tíð skal úthluta kvóta
til viðkomandi báts.
Hagræðingarsjóður og
Þróunarsj óður
í frumvarpinu um ráðstöfun á
kvóta Hagræðingarsjóðs kemur
fram að við gildistöku laganna skuli
honum úthlutað endurgjaldslaust til
þeirra fiskiskipa sem orðið hafa
fyrir mestri skerðingu við úthlutun
kvóta á yfirstandandi fískveiðiári.
Skal Fiskistofa úthluta aflaheimild-
um til þeirra skipa sem orðið hafa
fyrir meiri en 9,8% skerðingu á
kvóta í þorskígildum talið milli síð-
asta fiskveiðiárs og þess sem nú
stendur yfir þannig að skerðing
umfram framangreint mark sé að
fullu bætt.
Frumvarp um Þróunarsjóð sjáv-
arútvegsins er óbreytt frá því það
var kynnt í ríkisstjóm í haust. í því
er gert ráð fyrir að þróúnarsjóðs-
gjald á hvert úthlutað þíg.tonn nemi
1.000 krónum, að eigendur fiski-
skipa stærri en 10 tonn skuli greiða
750 kr. gjald af hveiju tonni en þó
aldrei hærri upphæð en 285.000
krónur fyrir hvert skip og eigendur
fasteigna sem nýttar eru til fisk-
vinnslu skulu greiða sérstakt gjald
til sjóðsins.
Alþjóðleg sjónvarpsauglýsingakeppni
Kjami málsins
komst í úrslitin
SJÓNVARPSAUGLÝSINGIN Kjarni málsins, sem gerð var fyr-
ir Morgunblaðið á síðasta ári, er komin í úrslit í flokki prent-
miðlaauglýsinga í alþjóðlegri keppni sjónvarps- og bíóauglýs-
inga sem heitir The New York Festivals og er nú haldin í 36.
skipti.
Að sögn Halls A. Baldursson-
ar, framkvæmdastjóra auglýs-
ingastofunnar Yddu, sem fram-
leiðir auglýsinguna, vom inn-
sendingar í keppnina að þessu
sinni rúmlega 4.100 í mörgum
flokkum en þeir eru skilgreindir
eftir vömnni sem verið er að aug-
lýsa.
Hallur segir keppnina hafa fest
sig vel í sessi og í dómnefndinni
sé fagfólk úr auglýsingabransan-
um víðs vegar um heim. Innsend-
ingar í keppnina koma nú frá 45
löndum. Hallur segir að auglýs-
ingar frá Yddu hafi nokkrum
sinnum verið sendar í keppnina
en þetta sé í fyrsta skipti sem
íslensk auglýsing komist í úrslit,
eftir því sem hann best viti. „Það
er gaman að þessu. Þetta sýnir
að við erum að gera hluti sem
geta gengið hvar sem er,“ sagði
Hallur.
í hveijum flokki er keppt um
gull-, silfur- og bronsverðlaun en
síðan keppa gullverðlaunahafar
úr öllum flokkum um sérstök alls-
heijarverðlaun.
Frostfilm sá um kvikmyndun
auglýsingarinnar, Kristján Frið-
nksson var leikstjóri og Karl
Óskarsson kvikmyndatökumaður.