Morgunblaðið - 15.12.1993, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993
KAMMERSVEIT
REYKJAVÍKUR
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Kammersveit Reykjavíkur stóð
fyrir tónleikum í Áskirkju sl. sunnu-
dag. Á efnisskránni voru verk eftir
Johann Sebastian Bach. Marta
Halldórsdóttir söng í brúðkaups-
kantötunni BWV 202 en einleikarar
voru Joseph Ognibene, Berhard
Wilkinson, Daði Kolbeinsson, Helga
Ingólfsdóttir, Unnur María Ingólfs-
dóttir og konsertmeistarinn Rut
Ingólfsdóttir.
Tónleikarnir hófust á Branden-
borgarkonsert nr. 2 og það var fróð-
legt að heyra Ognibene leika F-
trompetröddina á horn, sem hann
gerði með glæsibrag. Miðkaflinn er
undrafagur og saminn fyrir flautu
(Bemhard), óbó (Daði) og fiðlu
(Unnur María), þríraddaður tón-
vefnaður með continuo-rödd. Margt
var fallega gert í þessum kafla en
continuo-röddin var allt of sterk.
í síðasta kaflann vantaði nokkuð
á að tónstaðan væri nógu samvirk,
Freyjugata. 2ja herb. íb. á
1. hæð ca 45 fm í tvíbhúsi. Góð
lán áhv. frá Byggsj. 2,2 millj.
Verð 3.950 þús.
Gaukshólar. 2ja herb. fb.
á 1. haeð 56 fm. Suðursv. Falleg
samelgn. Verð 4,5 mlllj. Laus.
Eyjabakki. 3ja herb. góð íb.
á 3. hæð 78 fm. Þvherb. í íb.
Áhv. góð lán frá Byggsj. 2,4
millj. 2 geymslur í sameign, sem
er öll nýuppg. Verð 6,5 millj.
Ásendi. 3ja herb. falleg íb. á
1. hæð 80 fm. Mikið endurn.
Nýl. parket á gótfum. Bflskréttur,
Verð 7,5 millj. Laus.
Spóahólar. 4ra herb. íb. á
3. hæö 95 fm í þriggja hæða
húsi. Þvherb. í íb. Verð 7,5 millj.
Frostafold. 6-6 herb.
glæsíí. íb. á 3. hæð 138 fm. 8ÍI-
skýli. Góð ián áhv. V. 11,5 m.
Hraunbær. 5 herb. falleg
endaíb. á 3. hæð 138 fm. Áhv.
húsbrlán ca 4,0 millj. Parket.
Suðursv. Þvherb. i íb.
FÉLAG HfASTEIGNASALA
Gunnar Gunnarsson,
lögg. fasteignasali, hs. 77410.
þrátt fyrir frábæran leik einstakra
flytjenda og kaflinn í heild var auk
þess of mikið leikinn beint af aug-
um.
Marta G. Halldórsdóttir söng
brúðkaupskantötuna Weichet nur,
betrubte Schatten af öryggi og var
Gavottan, síðasta arían, mjög
skemmtilega flutt, enda er hún frá-
bær tónsmíð. Tvíkonsertinn i d-
moll er meðal bestu verka meistar-
ans og er þá mikið sagt og líklega
er largo-þátturinn (nr. 2) meðal
þess fegursta sem fest hefur verið
á nótnapappír. Verkið var að mörgu
leyti vel leikið af Unni Maríu og
Rut en þó hefði mátt dvelja við á
einstaka stað í largo-kaflanum og
„syngja." hann ögn hægar og særa
hendingaskilin hér og þar, með fín-
legu og vart merkjanlegu „rúbató".
Lokaviðfangsefnið var fimmti
Brandenborgar-konsertinn, og þar
sá Helga Ingólfsdóttir um sembal-
leikinn og var „sembalfantasían“ á
1. þættinum glæsilega leikin af
henni. í hæga þættinum, sem er
„tríósónata“, ritar Bach bæði fyrir
sembalaóið sem continuo-rödd og
sem sjálfstætt samleikshljóðfæri og
var þessi fallegi kafli mjög vel flutt-
ur, en með Helgu léku Bernhard
og Rut. Lokakaflinn var hressilega
og skemmtilega leikinn, með ekta
„concerto grosso" stemmningu,
sem var góður endir á ágætum tón-
leikum Kammersveitar Reylq'avík-
ur.
Persónulegt augnablik
„EKKI músík sem hefur verið
hellt í form. Heldur óregluleg og
svolítið öðru vísi. Frek á athygli
vona ég. Bæði þeirra sem spila
og hlusta. Ég geng finnst mér
nærri laginu án þess að glata því
og geri ýmsa hluti sem ekki eru
alls kostar venjulegir. Tegundin,
nútima bíbopp eins og hér á þess-
um diski, fusion, frídjass eða dixie-
land, það skiptir þegar upp er
staðið ekki höfuðmáli. Hitt finnst
mér mikilvægast að tónlistin sé
persónuleg, að menn hafi í upp-
hafi eitthvað að segja og glutri
því ekki á leiðinni. I djassi er lag-
ið eins og vegvísir fyrir hljóm-
sveit en tónlistin sjálf verður til á
augnablikinu. Þegar menn spila.“
Sigurður Flosason höndlar svona
öðru vísi augnablik ásamt einval-
aliði hljóðfæraleikara á nýjum
geisladiski. Sá heitir Gengið á lag-
ið og hefur að geyma tónlist eftir
Sigurð. Djasstónlist auðvitað.
Sigurður er löngu landsþekktur
af leik á saxófón, fyrst með Swing-
bræðrum og Nýja kompaníinu og úr
því með öllum sem nöfnum tjáir að
nefna í íslenskum djassi og ýmsum
útlendum tónlistarmönnum. Hann
hefur verið seigur við spilamennsku
Gengið á lagið
heitir nýr geisla-
diskur með djass-
tónlist Signrðar
Flosasonar
á tónleikum heima og heiman og
blásið inn á talsvert af plötum. Fram-
haldsnám í tónlist stundaði hann í
Bandaríkjunum, við Bloomington-
háskóla í Indiana, og eftir það varði
hann vetri í New York. Síðan eru
fjögur ár og Sigurður rétt að segja
orðinn þrítugur.
Hann spennir greipar og ræskir
sig áður en hann svarar þessari ein-
földu spurningu: Hvað gerirðu núna?
Svo kveðst hann kenna á nokkrum
stöðum og spila á fleiri stöðum og
garfa í tónleikahaldi. Hann er yfir-
kennari Tónlistarskóla Félags ís-
lenskra hljómlistarmanna og kennari
bæði við Tónlistarskólar.n í Reykja-
vík og Keflavík. Spilamennskuna
stundar hann á leiksýningum, kon-
sertum og dansleikjum. Frá Sinfó-
níunni í Þjóðleikhúskjallarann með
viðkomu í djassi. „En það er alveg
ljóst hvað gengur fyrir. Ég valdi mér
línu fyrir löngu og legg mest upp
úr djassi þótt ég njóti þeirrar gæfu
að hafa gaman af vinnu minni við
kennsluna og í annars konar spila-
mennsku.
Annars lít ég svo á að allar tegund-
ir tónlistar séu jafn réttháar og geti
styrkt mann hver með annarri. Það
er meinhollt að bregða sér stundum
niður úr fílabeinstuminum - ekki síst
fyrir fólk í klassískri tónlist. En í
djassinum gildir þetta líka og ábyggi-
lega í öllum greinum tónlistar. D-
moll er jafnt d-moll í meðförum Bach,
Rolling Stones og Charlie Parker
þótt þeir nálgist hann býsna misjafn-
lega. Frumþættir þessara tegunda
tónlistar eru í senn ólíkir og furðu
líkir og með því að kynnast þeim
verklega ef svo má segja þéttist
skilningur á faginu sem heild.
Ég held til dæmis að það litla sem
ég hef spilað af rokki og poppi hafi
kennt mér ágæta lexíu. Þar er takt-
urinn sterkt element og hljómar ein-
faldir. Þó er ekkert einfalt að impró-
vísera í svona tónlist fyrir þann sem
er vanur öllum flækjum, kimum og
krókum djassins. Hann stendur uppi
strípaður í samhengi þríhljómsins.
Karlakór Reykjavíkur
_________Tónlist___________
Ragnar Björnsson
Söngvar á aðventu var yfirskrift
tónleika Karlakórsins í Hallgríms-
kirkju sl. sunnudga og mánudag
undir stjóm Friðriks S. Kristinssonar
og með aðstoð Harðar Áskelssonar
á orgelið, Signýjar Sæmundsdóttur,
sóprans, Guðlaugs Viktorssonar, te-
nórs, og Jóhanns Ara Lárussonar 11
ára. Tónleikamir skyldu hefjast kl.
20 á mánudagskvöldið, kl. 21 gátu
tónleikamir loks hafist, þennan
klukkutíma tóku starfsmenn Sjón-
varpsins sér til að stilla strengi sína
og að uppgötva að ein tökuvélin
væri óþæg, einhver nefndi að allt sem
vantaði væri rafhlaða, sem gleymst
hefði. Öllu er hægt að fá mann til
að trúa þegar um slík tækniundur
sem sjónvarpstökuvél er að ræða.
Maður hélt bara að tökumennimir
hugsuðu eins og skátarnir — alltaf
viðbúnir. Manni dettur í hug hvort
sjónvarpið hefði fengið Berlínarfíl-
harmoníuna til að bíða eftir sér í
klukkutíma eða hvort fílharmonían
hefði sagt, við byijum tónleikana kl.
20 og ef þið viljið taka þá upp þá
verið tilbúnir 15 mín. fyrir kl. 20.
Það eru atvinnumanna- (professi-
onal-) vinnubrögð, hitt ekki. Ekki er
auðvelt að ná upp stemmingu hjá
áheyrendum eftir þessa klukkutíma
bið, þó tókst kórnum það með einum
besta söng sem ég hef heyrt frá
honum. Að vísu er nær ómögulegt
að dæma nokkuð nákvæmt í langri
óman kirkjunnar, til þess þarf þurran
hljómburð þar sem ekki er hægt að
fela sig í þoku eftirhljómsins. En
kórinn virðist nú nokkuð vel skipaður
söngmönnum og sýndi oft fallegan
söng. Að vísu á tenórinn til að vera
dálítið sár og annar bassi hvarf nokk-
uð, sem kannske var hljómburðinum
að kenna. En fallegri stemmningu
náði kórinn e.t.v. best í þeim verkefn-
um þar sem einsöngvaramir komu
til sögunnar og þar skal fyrst nefna
Signýju sem skilaði sínum verkefnum
mjög fallega. En hversvegna að
syngja bjart-a-ri (en sólin)? Betra
er að nota úrfellingarmerkið og
syngja bjart-ar-(i’), laglínan verður
bundnari og heilli. Því nefni ég þetta
að mér finnst þessi árátta sé að verða
tíska hjá söngvurum. Guðlaugur
Viktorsson hefur athyglisverða rödd
sem fróðlegt verður að fylgjast með
og ekki var honum að kenna að
Faðirvorið vildi riðlast svolítið í lokin,
þar vantaði í slagtækni stjómand-
ans. Við slíkan stíganda sem er í lok
verksins verður stjórnandinn að hafa
þor til að slá „í gegn“, að bijóta slag-
ið um of upp býður hættunni heim.
Einstakt og mjög fallegt var að heyra
Jóhann Ara Lárusson, 11 ára, syngja
tandurhreint lag C. Fransks, Panis
Angelicus. Portamento og rubato eru
atriði í tónlistarflutningi sem eru við-
kvæm og vandmeðfarin og mér
fannst ekki nást fyllilega í meðförum
kórsins. Þetta kemur fyrst og fremst
fram í hægum lögum sem, ef þetta
næst eðlilega, gerir lögin óróleg
áheyrnar. Þrátt fyrir klukkutíma-for-
leikinn og smáaðfinnslur voru þetta
hátíðlegir og ánægjulegir tónleikar.
Herði tókst vitanlega að velja heppi-
legar raddir orgelsins síns til stuðn-
ings einsöngvumm og kór.
FRETTIR
FÉLAG eldri borgara í Hafnar-
firði verður með jólafund í dag
kl. 14 í nýju Skútunni. Jólahlað-
borð, skemmtiatriði o.fl.
ITC-deildin Korpa heldur jóla-
fund sinn í Hlégarði í kvöld ki.
20. Uppl. veitir Guðríður í s.
667797.
ITC-deildin Fífa, Kópavogi
heldur jólafund sinn í kvöld kl.
20.15 á Digranesvegi 12 og er
hann öllum opinn. Uppl. gefa
Hrönn s. 42991 og Guðlaug s.
41858.
GJÁBAKKI, félagsheimili eldri
borgara, Kópavogi. í dag er
opið hús frá kl. 13. Sönghópur
kemur í heimsókn.
SILFURLÍNAN - sími 616262.
Síma- og viðvikaþjónusta fyrir
eldri borgara alla virka daga milli
kl. 16 og 18.
BÓKSALA Félags kaþólskra
leikmanna er opin á Hávallagötu
14 kl. 17-18.
BÚSTAÐASÓKN. Félagsstarf
aldraðra í dag kl. 13.
NESSÓKN. Kvenfélagið er með
opið hús í dag kl. 13-17 í safnað-
arheimilinu. Fótsnyrting og hár-
greiðsla á sama tíma. Kóræfing
litla kórsins í dag kl. 16.15.
GRENSÁSSÓKN. Jólahádegis-
verðarfundur aldraðra kl. 11.
Helgistund, erindi og skugga-
myndasýning, hádegisverður.
KIRKJUSTARF
ÁSKIRKJA. Samverustund fyrir
foreldra ungra barna í dag kl.
10-12. 10-12 ára starf í safnað-
arheimili í dag kl. 17.
DÓMKIRKJAN: Hádegisbænir
kl. 12.10. Orgelleikur frá kl. 12.
Léttur hádegisverður á kirkjulofti
á eftir. Opið hús í safnaðarheimili
í dag kl. 13.30-16.30.
HALLGRÍMSKIRKJA: Opið hús
fyrir foreldra á morgun fimmtu-
dag kl. 10-12.
HÁTEIGSKIRKJA: Kvöld- og
fyrirbænir í dag kl. 18.
LANGHOLTSKIRKJA: For-
eldramorgunn í dag kl. 10. Aftan-
söngur kl. 18.
NESKIRKJA: Orgelleikur í há-
deginu k. 12.15-12.45 alla virka
daga til 23. desember. Bæna-
messa kl. 18.20. Sr. Frank M.
Halldórsson.
SELTJ ARN ARNESKIRK J A:
Kyrrðarstund kl. 12. Söngur, alt-
arisganga, fyrirbænir. Léttur há-
degisverður í safnaðarheimili.
Opið hús kl. 17-18 til kyrrðar og
íhugunar við kertaljós.
ÁRBÆJARKIRKJA: Opið Hus í
dag kl. 13.30. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 16. Starf fyrir 10-12
ára TTT í dag kl. 17. Mömmu-
morgunn í fyrramálið kl. 10-12.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Kyrrð-
arstund kl. 12 á hádegi. Tónlist,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimili eftir
stundina. Unglingastarf (Ten-
Sing) í kvöld kl. 20.
HJALLAKIRKJA: Opið hús fyrir
eldra sóknarfólk kl. 14-17.
KÁRSNESPRESTAKALL:
Mömmumorgunn í dag kl.
9.30-12 í safnaðarheimilinu
Borgum.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Kyrrðarstund kl. 12 á hádegi og
léttur hádegisverður í safnaðarat-
hvarfinu, Suðurgötu 11, að stund-
inni lokinni.
VEGURINN, kristið samfélag,
Smiðjuvegi 5, Kópavogi: Biblíu-
lestur sr. Halldórs S. Gröndal í
dag kl. 18.
SKIPIN
REYKJAVÍKURHÖFN: í fyrra-
dag fóru Kyndill, Europe Feder
og Stapafell. Danski togarinn
Ocean Tiger kom til viðgerða. í
gær komu Laxfoss og Uranus
að utan og Guðbjartur, Sólborg
og Jón Baldvinsson komu til
löndunar. Þá var áætlað að
Reykjafoss og Engey færu út í
gær._____________
H AFN ARFJ ARÐ ARHÖFN: í
gærkvöld fór Hofsjökull á strönd-
ina. Þá kemur Lagarfoss til
Straumsvíkur fyrir hádegi í dag
og danska flutningaskipið Helga-
fell er væntanlegt til Ilafnarfjarð-
ar í dag.