Morgunblaðið - 15.12.1993, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993
Hlið himinsins og
leikur barnsins
Bækur
Pétur Pétursson
Karl Sigurbjömsson: Táknmál
trúarinnar. Leiðsögn um tákn og
myndmál kristinnar trúar og til-
beiðslu. Skálholtsútgáfan 1993,
168 bls.
Án tákna og ritúala væri mann-
lífið stutt og vart viðbjargandi.
Tákn og ritúöl eru forsenda þess
að við getum tjáð okkur og skynjað
verund okkar og umhverfi sem var-
anleg og merkingarbær fyrirbæri.
í hinum afhelgaða heimi mótmæl-
enda hafa margir menntamenn frá
því fyrir aldamót reynt að kgma sér
upp veruleika án tákna og helgi-
siða, en það hefur mistekist. Sam-
vitund byggist óhjákvæmilega á
þessu tvennu og samvitund er for-
senda hugtakamyndunar.
Hin endanlegu tákn eru trúræns
eðlis. Við lifum í táknheimi kristn-
innar hvort sem okkur líkar betur
eða verr. Kristin trú kemur okkur
í snertingu við mikið drama sem
sameinar bæði himin og jörð og
gefur okkur innsýn í sjálf okkur og
sögu okkar. Með þessari bók höfum
við fengið gott yfirlit, og ég vil
segja kennslubók í táknmáli trúar-
innar, sem ætti að vera skyldulesn-
ing fyrir alla sem starfa í kirkjunni
og einkum þá sem sitja í sóknar-
nefndum og aðstoða við guðsþjón-
ustuhald. Þeim vil ég einkum benda
á kaflana um kirkjuna, „Kirkja vors
Guðs er gamalt hús“, og um mess-
una, „Tómar serímoníur eða tjáning
trúar“. Kjarninn í þessum tákn-
heimi og hjartsláttur kristinnar trú-
ar er messan. Messan er, eins og
höfundur tekur fram, fremur leikur
en stirðnuð serímonía — eins og
leikur barnsins sem á hug þess
óskiptan.
Þessa bók mætti vel nota sem
inngangsbók í kristinni trúfræði
fyrir framhaldsskóla, en framhalds-
skólinn sem nú á að vera fyrir alla,
hefur algerlega sniðgengið kristin
fræði í áratugi þó að 99% þjóðarinn-
ar játi kristna trú — hvort sem það
er nú gert í hjartanu eða aðeins að
nafninu til. En nafnið út af fyrir
sig segir mikið og ef að er gáð þá
er það upphaf alls. Að kalla sig
kristinn og skíra bamið sitt er játn-
ing — játning sem felur í sér
ákveðna stefnu og ábyrgð.
Með þessari bók skipar séra Karl
Sigurbjömsson sér í fremstu röð
þeirra sem skrifa um kristinfræði
fyrir alþýðu nú um stundir og bæt-
ir hann þar úr brýnni þörf. Um
þessar mundir gefur Skálholtsút-
gáfan einnig út eftir hann bókina:
„Hvað tekur við þegar ég dey?“. í
fyrra kom út bænabók í samantekt
Karls.
SJOSLYS OG
MANNRAUNIR
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
Karl Sigurbjörnsson
Bókin sem hér um ræðir er prýdd
myndum til skýringa, bæði ljós-
myndum og teikningum sem sr.
Karl hefur einnig unnið. Ég sakna
þess að ljósmyndirnar era ekki í
lit. Myndin af altaristöflu Nínu
Tryggvadóttur í Skálholtskirkju
nýtur sín engan veginn í svart hvítu
og sama er að segja um myndirnar
af aitaristöflum Baltasars. Trúarleg
tákn höfða til alls litrófs mannlegr-
ar skynjunar og rúmlega það. Von-
andi verða myndirnar í lit í næstu
prentun bókarinnar sem ég spái að
ekki láti bíða lengi eftir sér.
Eiríkur St. Eiríksson: HEL-
NAUÐ. 176 bls. Fróði. 1993.
Höfundur ritar inngang fyrir
þessari bók sinni og hefst hann á
þessa lund:
»Sjóslys við íslandsstrendur
hafa því miður verið allt of algeng
í áranna rás.«
Aðfínnsluverð geta orð þessi
varla talist. En þau eru óþörf. Og
svo er um fleira í bók þessari.
Höfundur skrifar ekki ólipurlega
þegar hann hefur eftir öðrum. En
þegar hann fjölyrðir um sjálfsagða
hluti skyldi hann fara eftir orðum
Tómasar sem ráðlagði vinum sín-
um í Fjölni »að varast að taka
mjög dauflega til orða, annars er
hætt við, að nytsamasta efni verði
vanrækt og fyrirlitið af góðfúsum
lesara.«
Níu era þættirnir í Helnauð,
allir um sjóslys eða hrakninga á
sjó, björgun úr sjávarháska og svo
framvegis. Fátt kemur þar fram
sem nýtt getur kallast. í sjóslysa-
sögu Steinars J. Lúðvíkssonar er
greint frá nánast hverju einasta
óhappi sem varð við íslandsstrend-
ur á öldinni, að minnsta kosti til
ársins 1974, einnig þeim sem Ei-
& 6RVLO<b6M6H>
©
- f>eirr> til undrunar veréa.
r hLutim'ir /arljótir
Eiríkur St. Eiríksson
ríkur segir hér frá. Steinar aflaði
allra fáanlegra heimilda, bæði
munnlegra og skriflegra, og gerði
atviki hveiju ýtarleg skil. Ein-
hverju kann Eiríkur að hafa aukið
við. En það getur varla verið mikið.
Auðvitað kann að vera gagnlegt
að taka sama efni upp aftur ef
það er þá skoðað frá nýju sjónar-
horni. Einnig er hægt að draga
út tiltekna þætti og rannsaka sér-
staklega, t.d. raunverulegar or-
sakir sjóslysa, félagslegar afleið-
ingar sjóslysa, veðurfar og sjóslys
og þar fram eftir götunum. Orsak-
ir sjóslysa - eins og reyndar ann-
arra umferðarslysa - eru ótelj-
andi. Fyrir kemur að erfítt reynist
að komast að raun um hið rétta.
Oftar en ekki veldur »röð tilviljana
og óhappa« eins og Eiríkur orðar
það varðandi strand belgíska tog-
arans Pelagusar við Heimaey. Sjó-
próf era haldin yfir þeim sem af
komast. En þau eru enginn saka-
dómur og skýringar skipbrots-
manna og björgunarliðs ógjarna
rengdar í þeim tilgangi að benda
á sökudólg, enda tíðast um hrein
óhöpp að ræða.
Persónulegar og félagslegar af-
leiðingar sjóslysa hljóta og að vera
margvíslegar. Enginn mun þó hafa
tekið sér fyrir hendur að rannsaka
slíkt hingað til. Væri það þó verð-
ugt rannsóknarefni. Engan þeirra
þátta, sem hér hafa verið nefndir,
tekur höfundur sérstaklega fyrir,
rekur aðeins sögu, segir frá, og
fer þar gengna slóð.
Hver getur þá verið tilgangur-
inn með samantekt og útgáfu
þátta þessara? Safna í bók læsi-
legu efni sem höfðar til fjölmenns
hóps lesenda? Benda má á að bar-
áttan við náttúruöflin er lesendum
jafnan hugleikin. Hvort tveggja:
slys og hetjudáðir við björgun -
snertir dýpstu tilfínningar. Þó sjó-
menn séu tiltölulega fámenn stétt
nú orðið er þjóðin öll sjónum tengd
í flestum skilningi. Hvaðeina, sem
sjósókn varðar, vekur því almenn-
an áhuga. Allt er efni það merki-
legra en svo að við hæfí sé að
gefa það út sem neins konar af-
þreyingarefni.
Allmargar myndir eru í bók-
inni, misjafnar að gæðum, sumar
að því er virðist teknar upp úr
gömlum dagblöðum og lítil bókar-
prýði.
Þættirnir í Helnauð eru allir
stuttir. Því virðist í fullmikið lagt
að láta sérstaka titilsíðu fara fyrir
hveijum þeirra. Það getur naum-
ast þjónað öðram tilgangi en að
lengja bókina um fáeinar síður.
Þú svalar lestraiþörf dagsins
á síðum Moggans!
i
i
I
i
I
l)
i
I
I
I
f