Morgunblaðið - 15.12.1993, Side 30

Morgunblaðið - 15.12.1993, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993 HRÆRIVÉLAR t KF-190C 5.980,-stsr, Léttur og meðfærilegur hand- þeytari, en jafnframt fullkomin hrærivél með standi og sjálf- drifinni skál. Þeytarar, hnoð- arar og blandari fylgja. 190W öflugur mótor með stiglausri elektrónískri hraðastillingu. Við höfum ótal gerðir af hand- þeyturum, safapressum, hræri- vélum og matvinnsluvélum. Komdu og kíktu. /FOnix HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI (91)24420 -elna SPOR í RÉTTA ÁTT Fullkomin saumavél á frábæru jólatilboði, aðeins 19.990 stgr. ATH! Hjá okkur er námskeið og kennsla innifalið í verði. Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SlMI 69 15 00 Grindavík Fjölmenni við jólatré Gnndavik. GRINDVÍKINGAR fjölmenntn á sunnudag þegar tendrað var á ljós- um jólatrés sem er árleg gjöf frá vinabæ Grindvíkinga í Danmörku, Hirtshals á Jótlandi. Jón Gunnar Stefánsson bæjar- stjóri veitti trénu viðtöku eftir að blásarasveit Tónlistarskólans hafði leikið og blandaður kór kirkjunnar söng. Þá talaði sóknarpresturinn, Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, og minnti fólk á hvers virði jólin eru börnunum og það ætti fólk að hafa í huga og haga undirbúningi jólanna þannig að þau færu ekki varhluta af þeim undirbúningi. Tilhlökkun smáfólksins var þó mest eftir því að Giljagaur kæmi til byggða því það hafði heyrst að hann hefði flýtt för sinni til þess að geta sungið með því við tréð. Þegar hann svo loksins birtist ásamt tveimur bræðrum sínum fögnuðu börnin mjög og umkringdu hann. Þau tóku því einnig fagnandi þegar hann dró sætindi upp úr poka- skjatta sem hann var með á baki og útdeildi til þeirra. FÓ Morgunblaðið/Frímann Ólafsson Giljagaur var vel fagnað þegar hann kom til byggða. 15.000 bækur lánaðar Höfn. GJÖRBYLTING hefur orðið á útlánum hjá Héraðsbókasafni Austur- Skaftfellinga á Höfn eftir að safnið flutti í nýtt húsnæði á síðasta ári og opnunartimi þess var lengdur verulega. Þannig voru rúmlega 13.000-bækur Iánaðar út í fyrra, en í dag kom viðskiptavinur eftir 15.000. bókinni það sem af er ári. Nú stendur yfir tölvuvæðing það fræðslumyndir og bamamyndir safnsins og á næsta ári verður not- en einnig eitthvað af skemmtiefni. endaskrá tekin í gagnið. Safnið á Yfirbókavörður er Gísli Sverrir nú tæplega 100 myndbandstitla Amason. sem njóta einnig vinsælda. Mest eru - JGG. Morgunblaðið/Jón Gunnar Gunnarsson Guðný Svavarsdóttir, bókavörður, afhendir Dagnýju Rögnvaldsdótt- ur smáglaðning en hún fékk 15.000. bókina lánaða í ár. Atriði úr myndinni Skyttunum þremur. Sambíóin sýna mynd- ina Skyttumar þijár SAMBÍÓIN sýna um þessar mundir myndina Skytturnar þijár eða „The Three Musketeers“ frá Walt Disney sem byggist á hinu sígilda ævintýri. Með aðalhlutverk fara og Chris O’DonnelI. Sagan segir af ljúflingnum D’Artagnan sem kemur til Parísar í þeirri von að uppfýlla ævilangan draum sinn um að verða skytta í hirð konungs. Hann er hins vegar ekki fyrr kominn til borgarinnar en hann verður yfir sig ástfanginn af hinni fögra mey Milady de Winter og uppgötvar að ráðgjafi konungs, Richelieu kardínáli, hefur gert skytturnar útlægar. Skytturnar Kiefer Sutherland, Charlie Sheen þijár, Aramis, Porthos og Athos, hrífast að skylmingafærni hins unga D’Artagnan og bjóða honum að slást í förina með þeim. Þeir hafa komist að því að til standi að steypa konungi af stóli og em stað- ráðnir í að koma í veg fyrir það. Það verður því heldur betur uppi fótur og fit þegar skytturnar gera innreið sína í París. Hafþór Hreiðarsson t.v. og Ríkharður Ríkharðsson við eitt verkanna sem sýnt var á sýningu í nóvember sl. í Safnhúsinu á Húsavík en þar voru 64 myndir sýndar eftir 13 ljósmyndara. Sýningin var vel sótt og mátti sjá þar mörg viðfangsefni. Félag áhugaljósmynd- ara á Húsavík stofnað Húsavík. Áhugaljósmyndarar á Húsavík stofnuðu með sér félag á þessu ári og hafa starfað ötullega síðan og haldið tvær sýningar sem vakið hafa athygli. Félagið hefur hafið útgáfu blaðs Stjórn félagsins skipa Ríkharður sem það nefnir Ljósopið og hafa Ríkharðsson, formaður, Baldey S. þegar komið út þijú tölublöð með Pétursdóttir og Hafþór Hreiðars- fréttum og leiðbeiningum fyrir son. áhugaljósmyndara. / £ O 05 n Loksins er hún komin, bókin sem allir skátar og aðrir unnendur útivistar og sjálfstæðra tómstundastarfa hafa svo lengi beðið eftir Áferð Hnútar og trönubyggingar Eldur og matur Hjálp í viðlögum Leiklist Vertu sjálfbjarga í útilegu Þjóðfélagið Skátasérkenni Tjáskipti Handlagni Kort og áttavití Fötlun, sjúkdómar og heilsa ^ Hnífúr, öxi, sög og kaðlar .. og fleiri kaflar Fjöldi glæsilegra teikninga og mynda prýða bókina Fæst í Skátahúsinu, Skátabúðinni og fjölda bókabúða. Pöntunarsímar 91 -621390 og 91 -23190

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.