Morgunblaðið - 15.12.1993, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993
41
HÆFILEIKAR
Hætti í sundi og
sneri sér að leiklist
Greg Louganis segir að það hafi tekið sig 20 ár að ná verulegri leikm
í sundíþróttinni og að hann búist við hinu sama í leiklistinni.
Sundkappinn Greg Louganis
sem hlaut gullverðlaun á
Ólympíuleikunum 1984 og 1988
hefur nú snúið sér að leiklistinni.
Fær hann góða dóma fyrir leik
sinn sem Darius í leikritinu Jef-
frey, sem sýnt er í litlu leikhúsi á
Broadway. Leikritið fjallar um
samband samkynhneigðra karla,
eyðni og dauðann.
Greg hefur verið í tengslum við
eyðnisamtök undanfarin þijú ár
eða eftir að vinur hans, dreyra-
sjúklingurinn Ryan White, lést úr
eyðni árið 1990. Þá segir Greg að
leikritið hafa höfðað sérstaklega
til hans vegna þess hversu mikið
er fjallað um dauðann. Hann
kveðst reyndar ekki vera vanur að
íjalla um einkalíf sitt í viðtali, en
segist hafa kynnst dauðastríði náið
þegar faðir hans lést úr lungna-
krabba fyrir nokkrum árum.
„Hæfileikinn til að takast á við
dauðann er stór hluti af Jeffrey,"
sagði hann í viðtali við tímaritið
Sports Illustrated.
Greg þykir hafa náð
góðum tökum á túlk-
un Dariusar. Hér er
hann á æfingu.
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson
MANNLIF
Hæfileikastuðull 3,0 segir
fyrrverandi keppinautur
Vinur hans og keppinautur í
sundíþróttinni, Kent Ferguson,
segir í sama blaði að hann hafi
verið svo heppinn að vera staddur
í New York í viðskiptaerindum og
því farið á leikritið. „Sú staðreynd,
að Greg tekur áhættuna að leggja
nafn sitt við leikritið sem fjallar
um eins áríðandi efni og raun ber
vitni er í sjálfu sér áhrifamikið.
En það má ekki gleyma því að
Greg lék hlutverk sitt frábærlega
vel.“ Síðan klykkti hann út með:
„Hæfileikastuðull 3,0, beint stökk,
enginn gusugangur.“ — Það gæti
víst ekki verið betra!
Happdrætti
bókaútgefenda
Vinningsnúmer mánudagsins í
happdrætti bókaútgefenda er
3324, þriðjudagsins 70297 og
dagsins í dag 79904. Happ-
drættisnúmerin eru á baksíðu
íslenskra bókatíðinda. Vinn-
ingshafi getur vitjað vinnings
síns, bókaúttektar að andvirði
10 þúsund krónur, í næstu
bókabúð.
Litaglaðir pönkarar
Ljósmyndari Morgunblaðsins rakst á þessa þrjá pönkara í
Kringlunni, þar sem þeir sátu í rólegheitum og voru að
Iita jólamyndir í bækur sem þeim Röfðu verið gefnar. Er ekki
annað að sjá en vel hafi tekist til hjá þeim. F.v. Þorsteinn Þor-
steinsson, Helgi Sigurjónsson og Joseph George Adessa.
Jólahlaðborð
Hótel Borg
1590 í hádeginu. 2390 á kvöldin.
BORDAPANTANIR í SÍMUM 11440 OG 11247
nvr og glæsilegur ilniur frá París
First var fyrsti iimurmn frá
Á. Arpels og er sivinsæll