Morgunblaðið - 15.12.1993, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) fHfc
Þú færð góðar hugmyndir í
vinnunni í dag og ert á rétt-
um stað á réttum tíma. Ein-
hver gefur góð ráð varðandi
ij'ármálin.
Naut
(20. apríl - 20. maí) (0%
Sumir ákveða skyndilega að
fara í ferðalag. Þú færð
góða hugmynd við lestur
bókar eða blaðagreinar.
Samlyndi ríkir hjá ástvinum.
Tvíburar
(21. ma( - 20. júní)
Þú gengur'frá lausum end-
um í vinnunni og finnur
góða gjöf handa ástvini í
dag. Tilboð um fjárfestingu
þarfnast íhugunar.
Krabbi
(21. jún! - 22. júlí) H§8
Ástvinir sinna sameiginleg-
um hagsmunum í dag og
sumir fara út saman í kvöld.
Þú gætir fundið góða jóla-
gjöf í dag.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) <ef
Þótt þú verðir fyrir truflun-
um og eigir erfitt með að
einbeita þér miðar þér vel
að settu marki í vinnunni í
dag.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) Sfti
Ný tómstundaiðja heillar þig
í dag. Sumir fara á stefnu-
mót í kvöld og skemmta sér
vel. Aðrir sinna fjölskyldu-
málunum.
(23. sept. - 22. október)
Listrænir hæfileikar njóta
sín í dag hjá þeim sem vinna
við jólaskreytingar. Sköpun-
argleðin ar allsráðandi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember) ^10
Þú átt annríkt í dag og þú
færð fregnir af einhverjum
sem þú hefur ekki heyrt frá
lengi. Hugmyndir þínar fá
góðar undirtektir.
Bogmaður
(22. nóv. -21. desember) m
Þú kemur vel fyrir í dag og
átt auðvelt með að sýna
hvað í þér býr. Sumir eru
önnum kafnir við jólainn-
kaupin.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) m
Forustuhæfíleikar þínir eru
áberandi í dag og aðrir lað-
ast að þér. í kvöld ættir þú
að njóta samvista við góða
vini.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ð/K
Þú færð næði í dag til að
finna lausn á áríðandi verk-
efni og leggja drög að bættri
afkomu. Félagslífíð heillar í
kvöld.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) Liiit
Þú færð tækifæri til að
koma áhugamálum þínum á
framfæri hjá ráðamönnum
í dag. í kvöld áttu góðar
stundir í vinahópi.
Stjörnusþána á að lesa sem
dcegradvól. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DÝRAGLENS
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
.nuiniintmi;H»w;iiiiuiij
UÓSKA
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Millispilin í tígli gegna lykil-
hlutverki í vörninni gegn þremur
gröndum suðurs:
Vestur gefur; NS á hættu.
Vestur
♦ 9743
♦ 83
♦ KG108
♦ 762
Norður
♦ ÁK6
♦ 965
♦ Á4
♦ ÁDG93
llllll
Suður
♦ 1052
♦ DG2
♦ D752
♦ K104
Austur
♦ DG8
♦ ÁK1074
♦'963
♦ 85
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1 lauf 1 hjarta 1 grand
Pass 3 grönd Allir pass
Úspil: hjartaátta.
Austur sér um leið og blindur
kemur upp að sagnha.fi á níu
slagi ef hann fær einn á hjarta.
Eina vonin er því að fínna makk-
er feitan fýrir í tígli. Austur
drepur þess vegna á hjartakóng
og spilar nákvæmt tígulsexu.
Ekki níunni, því hana þarf að
nota síðar, og ekki þristinum til
að gefa makker ekki falskar
upplýsingar um litinn.
Suður lætur lítinn tígul heima
og nú er röðin komin að vestri
að spila tfglinum rétt. Hann
verður að láta tíuna! — ekki átt-
una, því hún á að fara undir
níuna sfðar.
Sagnhafi drepur á ásinn og
spilar hjarta. Austur drepur og
spilar nú tígulníu. Dúkki suður,
heldur austur innkomunni og
spilar aftur í gegnum drottning-
una.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Kínverska stúlkan Xie Jun
(2.470) varði heimsmeistaratitil
kvenna auðveldlega fyrir Nönu
Joseliani (2.470) frá Georgíu.
Einvíginu sem fór fram í Mónakó
í haust lyktaði 8V2—2*/2 þeirri kín-
versku í vil. Þessi staða kom upp
í sjöundu skákinni. Xie Jun hafði
svart og átti leik:
34. ... Hcl!! (Truflar vamar-
hrókinn á gl og er miklu sterkara
en 34. ... Dh4, 38. Hxg2 -
Dxh3+, 36. Hh2 - Hcl+, 37.
Bdl) 35. Hxcl - Dh4, 36. Bfl
- Dxh3+, 37. Kgl - Rel+, 38.
Kf2 - Dg3+, 39. Ke2 - Rxd3,
40. Kxd3 - Dxf3+, 41. Kc2 og
Joseliani gafst upp án þess að
tefla frekar. Hún kom á óvart er
hún sló elstu Polgarsysturina
Zsuzsu út úr áskorendakeppni
kvenna en rósturnar í Georgíu
höfðu slæm áhrif á undirbúning
hennar og taflmennsku. Hún fann
aldrei viðunandi svar við kóngind-
verskri vörn heimsmeistarans og
þessi skák var eitt dæmið um það.