Morgunblaðið - 15.12.1993, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993
45
HX
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.15
ATH.: í myndinni er hraöbroutaratriðið umtalaöa, sem bannað
var í Bandaríkjunum.
Pressure
surrounds ttiem.
FULLKOMIN
ÁÆTI IIM
Competrtion
divides them.
THE
Talent
unites tjhem.
„The Program" f jallar um ástir, kynlíf, kröfur, heiður, svik, sigra,
ósigra, eiturlyf. Svona er lífiö í háskólanum.
BÍÓMYNDIR & MYNDBÖND
Gerist áskrifendur að góðu blaði. Áskriftarsfmi 91 -81 12 80.
Tímarit áhugafólks um kvikmyndir
Saga Addamsættar-
innar - 2. hluti
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabió - Saga bíó:
Addams-fjölskyldugildin
- Addams Family Values
Leiksljóri Barry Sonnen-
feld. Handrit Paul
Rudnick. Aðalleikendur
Anjelica Huston, Raul
Julia, Christopher Lloyd,
Joan Cusack, Peter
MacNicol, Christina
Ricci, Carol Kane. Banda-
rísk. Paramount 1993.
Framhaldsmyndir verða
að vera gæddar end-
urnýjuðum krafti og hug-
myndum til að geta staðið
sjálfstæðar og eiga tilveru-
rétt. Þessu er sjaldnar
þannig farið en hér hefur
tekist betur til en endra-
nær. Addams-fjölskyldu-
gildin er mikið betri
skemmtun en forverinn, þó
það segi ekki mikið.
Handritshöfundur kemur
með nýtt blóð í slektið í
orðsins fyllstu merkingu,
strax á upphafsmínútun-
um, er húsmóðurinni
Morticiu (Anjelica Huston)
og Gomez (Raul Julia),
höfði þessa furðuslektis,
fæðist sonur. í þökk allra
nema eldri systkinanna
tveggja. Þau byrja strax á
að byrla litla bró banaráð,
enda afbrigðilegur hugsun-
arháttur eitt af gildum ætt-
arinnar. Svo þeim er komið
fyrir í sumarbúðum fyrir
forréttindaböm. Barnapíur
koma og fara uns Debbí
(Joan Cusack) kemur til
sögunnar, hún lætur sér
ekki allt fyrir btjósti
brenna, margfaldur mann-
drápari með Addamsauðinn
i huga og karlfuglinn Fest-
er (Christopher Lloyd) í
sigtinu.
Það er léttara yfir fram-
haldinu en frummyndinni.
Bæði er húmorinn ekki al-
veg jafn nístingsdökkur og
eins er búið að færa sögu-
sviðið talsvert útfyrir kast-
alann, hinn skuggalega
ívemstað Addamsanna, og
kirkjugarðsatriðum fer
fækkandi. Langbesti hluti
myndarinnar gerist í
sumarbúðunum og til efs
að nokkru sinni hafi verið
gert jafn „óforskammað"
grín að þessum hornsteini
amerísks barnauppeldis.
Addamsgrislingamir passa
vitaskuld hroðalega inn í
þann hóp bama góðborgar-
anna sem þar er að finna
og samsafnast með smæl-
ingjunum (negra-, indjána-
og gyðingabörnum). Gefa
snobbi, kynþáttahatri,
uppaflónum og ýmsum öðr-
um meinsemdum í banda-
rískum samtíma langt nef
í makalausu lokaatriði þar
í búðunum.
Annars þarf maður að
stilla sig svolítið sérstak-
lega inná skopskynið sem
ræður hér ríkjum. Myndirn-
ar, eins og teiknimyndasag-
an og síðar sjónvarpsþætt-
irnir, státa af einhveiju bil-
aðasta og kaldhæðnisleg-
asta skopskyni sem hugsast
getur innan ramma vel-
sæmisins, höfundunum er
nánast ekkert heilagt. Fyrri
myndin var of mikið þessu
marki brennd, dimm og
drungaleg, virkaði frá-
hrindandi á marga þá sem
lítið þekktu til þessarar
kímnigáfu. Hér er grág-
lettninni heldur í hóf stillt,
Addams-fjölskyldugildin er
alltaf háðsk, stundum bráð-
skémmtileg og gott innlegg
í jólamyndaflóruna. Allir
leikamir fá vitaskuld svarta
rós í hnappagatið þó sýnu
stærsta þau Cusack sem
drápskvendið og MacNicol,
sem er yndislegur í hlut-
verki mannlera í skátabún-
ingi. Svisðmyndin er fag-
mannleg og frumleg sem í
fyrri myndinni og fyrst hún
sló í gegn þá hlýtur þessi
að gera það enn betur. Við
getum því fastlega vænst
þriðja kafla.
PRINSAR í LA
LAUN-
RÁÐ
Frábær grín- og ævintýra-
mynd
Sýnd kl. 5 og 7.
Frönsk spennu-
og grínmynd.
Sýnd kl. 8.55 og11.
B. i. 16 ára.
James Caan
Halle Berry
Omar Epps
Craíg Sheffer
Kristy Swanson
R m £ B ©G! \ím ■MBai
SÍMI: 19000
TVO DAGA í VIÐBÓT í A-SAL
PÍANÓ
Sigurvegari Cannes-hátíðarinnar 1993
„Píanó, fimm stjömur af fjórum mögulegum."
★ ★ ★ ★ ★ G.Ó. Pressan
„Einn af gimsteinum kvikmyndasögunnar'*
★ ★ ★ ★ Ó.T. Rás 2
„Píanó er mögnuö mynd.“
★ ★ ★ ★ B.J. Alþýðublaðið.
Aðalhlutverk: Holly Hunter, Sam Neill og Harvey Keitel.
Sýnd kl. 4.45, 6.50,9 og 11.10.
SPILABORG
Áhrifamikil og sterk mynd
um undarlega atburði
sem fara í gang eftir
hroðalegt slys i fornum
rústum Maja.
Aðalhlutverk: Tommy Lee
Jones og KotMeen Tumer.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
ÁREITNI/The Crush
Vegna fjölda áskorana sýnum við
þessa spennumynd í tvo daga.
Sýnd kl. 5,7, 9 og 11.
Ripoux Contre Ripoux
Gamansöm sakamálamynd með
Philippe Noiret (Cinema Pardiso)
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Einstök íslensk mynd sem allir verða að sjá.
„Hrífandi, spennandi, erótísk.“ Alþýöublaöið.
„...hans besta mynd til þessa cf ekki besta íslenska kvikmynd sem
gerð hefur verið seinni árin.“ Morgunblaðið.
„Sagan er cinföld, skemmtiieg og góður húmor í henni.“ Tíminn.
★ ★★’/a„MÖST“ Pressan.
„Gunnlaugssons vág in i barndomslandet ár rakare án de flestas."
Elisabet Sörensen, Svenska dagbladet.
„Pojkdrömmar, ár en oerhört chármerande och kánslig film som jag
tycker ár váldigt bra.“ Nils Peter Sundgren, Gomorgon TV. ★ ★ ★ ★
Sýnd í B-sal kl. 5,7,9 og 11.
HIN HEIGUVÉ
Trúarleg tónlist - Lofsöngvar - Gospel
Sálmar á svörtum nótum
• • • •
Morgunblaðið/RAX
James Olsen er einn þeirra sem syngja á nýrri hljóm
plötu útgáfunnar Skálholts.
Hljómplötur
Guðni Einarsson
Trúarleg tónlist — Lof-
söngvar — Gospel er nafn
á hljómplötu frá útgáfufé-
lagi þjóðkirkjunnar, Skál-
holti.
Á plötunni eru tíu lög,
öll við íslenska texta.
Þeirra á meðal eru negra-
sálmamir Himnafarið
(Swing Low), Ó Guð, en
sá morgunn (Oh Lord,
What a Moming) auk
Amazing Grace, sem birt-
ist hér við frumsaminn
texta, Ég trúi á ljós. Rut
Reginalds hljóðritar hér
öðra sinni lagið í bljúgri
bæn, en fyrri útgáfa naut
fádæma vinsæla í óska-
Jagaþáttum. Þá er hér lag-
ið Gef mér samband (Op-
erator) sem varð þekkt í
flutningi Manhattan
Transfer. Jólasálmurinn
Heims um ból fylgir í lok-
in.
Sálmar í stíl banda-
rískra blökkumanna eru
burðarefni plötunnar. Ne-
grasálmar urðu til meðal
fólks sem rifið var upp
með rótum og flutt nauð-
ugt í þrældóm. Sálmamir
em sálartónlist, tilfínn-
ingaríkt sambland trega
og trúarfullvissu. Flutn-
ingur þeirra krefst tilfinn-
ingaríkrar innlifunar af
hálfu flytjenda.
Á þessari hljómplötu
eru margir góðir sprettir.
Að öðrum ólöstuðum
þykja mér Rut Reginalds
söngkona og Þórir Bald-
ursson Hammondorgan-
isti bera af og ljá flutn-
ingnum þá áþreifanlegu
tilfinningu sem tónlistin
krefst. Mér er næst að
halda að þau yrðu meðtek-
in sem „systir" og „bróðir"
í nær hvaða kirkju þel-
dökkra sem er. James Ol-
sen syngur einnig einsöng
og stendur sig með prýði.
Fimmtán manna kór
ágætra söngvara syngur
á plötunni og er auðheyrt
að með lengra samstarfi
og aukinni tilfinningasemi
gæti þetta orðið fyrirtaks
gospelkór á svörtum nót-
um.
Undirleik annast, auk
Þóris, Magnús Kjartans-
son, Finnbogi Kjartans-
son, Ásgeir Óskarsson,
Kristín Jóna Þorsteins-
dóttir og Rúnar Georgs-
son. Allt em þetta þaul-
vanir hljóðfæraleikarar og
leynir það sér ekki á plöt-
unni.
Umbúnaður plötunnar
er óþarflega rýr. Ekki
fylgja prentaðir textar og
er það bagalegt, því textar
trúarsöngva hljóta að
skipta máli. Hvorki er get-
ið höfunda laga né ljóða,
stjórnanda upptöku, né
hveijir komu að því verki,
hvað þá hönnuðar um-
búða. Magnús Kjartans-
son mun hafa borið hitann
og þungann af gerð þess-
arar plötu, þótt þess sé
hvergi getið. Magnús er
hér í hlutverki frumheij-
ans og ferst honum það
vel úr hendi, enda vanur
maður í guðspjallatónlist.
Vonandi verður þetta
framtak útgáfunnar Skál-
holts til að bæta nýjum
kafla í tónlistarlíf í kirkj-
um landsins. Víst er að
sálmasöngur að hætti
blökkumanna gleður
marga — og er það ekki
fagnaðarerindi sem verið
er að boða?