Morgunblaðið - 15.12.1993, Síða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993
PÁLL BANINE • SÖNGVARI
Fór ekki í Tónabæ
og átti ekki kærustu
/*
^ g var náttúmlega voðalega þægt
Eog gott barn, allavega við mömmu.
Kannski var ég alger bestía útáv-
ið. Maður gerði náttúralega allan
fjandann af sér, en þar sem Bubbleflies er
nú búin að 'fá á sig það orð að vera frekar
óuppeldisvæn hljómsveit
borgar sig ekki að segja
of mikið.
Hálfgert „virdó“
Fékk áhuga á tónlist
Ég flutti til Hafnarfjarðar þegar ég var
16 ára og fór í Flensborg. Ég held að mennta-
málaráðuneytið ætti að endurskipuleggja
þann skóla frá grunni. Þetta er ferlega leiðin-
legur skóli. Flestir vinir mínir fóra hinsvegar
í MH og ég fór að hanga þar í Norðurkjallar-
anum. Eg komst nú aldrei lengra inn í þann
skóla en bara í félagslífið. En þá fór ég að
hafa meiri áhuga á tón-
list og fór að stunda tón-
leika með hljómsveitum
eins og Svarthvítum
draumi, Ham og Mússol-
íni. Ég hlustaði helst á
svona „neðanjarðarrokk" eins og það hefur
stundum verið kallað.
I hljómsveit
Þegar ég var fyrst beðin að syngja með
þessari hljómsveit fannst mér þetta frekar
leiðinleg hugmynd og sagði nei. Ég veit ekki
hvar þeir fengu þá flugu í hausinn að ég
væri einhver söngvari. Það má eiginlega
segja að ég sé í þessu fyrir tilviljun. Á endan-
um lét ég til leiðast og við gerðum eitt lag
sem kom út á Núll og nix-disknum. Svo fíluð-
um við þetta bara og ég var ekkert annað
að gera og fannst fínt að prófa eitthvað
nýtt. Síðan leiddi bara eitt af öðru. Kiddi í
Hljómalind sá okkur á útgáfutónleikum fyrir
Núllið og spurði okkur hvort við vildum ekki
gefa út plötu og við vorum alveg til í það.
Þá þurftum við að fara að spila á tónleikum
og koma fram fyrir fólk.
Nýtt og spennandi
Þetta var alveg nýtt fyrir mér og fyrst
fannst mér alveg' hræðilegt að koma fram.
Ég var svo sem ekkert
sérlega feiminn, en það
var samt ferlega asna-
legt- að standa frammi
fyrir fullt af fólki og
syngja, það er eiginlega
svolítið skrítið. Eins þegar við vorum í
Hemma Gunn um daginn. Það voru bara
örfáar hræður á staðnum, en þú vissir að
það voru fleiri þúsund manns sem sátu heima
og horfðu á þig. Það virkaði afar einkenni-
lega. En það gerir þetta líka svolítið spenn-
andi að maður er alltaf að lenda í einhveiju
sem er alveg nýtt og maður verður bara að
bjarga sér út úr því. Ég lenti í því um dag-
inn að þurfa að gefa eiginhandaráritanir og
það var eiginlega ferlega vandræðalegt, en
samt... það var eitthvað kikk í því. Mér
væri svo sem alveg sama þó ég hefði aldrei
þurft að skrifa eina einustu áritun, en þetta
var ferlega furðuleg reynsla. Eða það að
sitja hér og tala við bláókunnuga manneskju
um æsku mína, vita það að þetta verður birt
í einhverju blaði en gera það samt.
TJ RNUR O
TÓR ISKA
Fyrri hluta unglingsáranna eyddi ég í að
horfa út um gluggann í tímum og lesa bæk-
ur með vinum mínum. Ég var ferlegur bóka-
ormur, hafði rosalega gaman af að teikna
en hafði t.d. engan áhuga á að stunda
Tónabæ. Ég var mikið með eldri strákum
sem voru ekki í neinni svöna toppbaráttu
um töffarasætið. Eiginlega var ég hálfgert
„virdó“ í skólanum; fór ekki í Tónabæ og
átti ekki kærustu. Ég var mjög heppinn að
því leyti að ég þurfti aldrei að hafa neina
komplexa yfír neinu ákveðnu. Ég var ekki
í íþróttum og þurfti því ekki að vera neitt
góður þar og ég þurfti heldur ekki að vera
neinn æðislegur töffari því mér fannst það
ekki vera neins virði. Þeir sem vildu endilega
vera ofsalegir töffarar en höfðu það ekki af
urðu auðvitað rosalega komplexeraðir. Ég
held að það sé mjög algengt meðal unglinga.
HVAR ERU ÞAU OG
HVAÐERUÞAUAÐGERA
Vala og Paul McCartney eftir tónleikana í Stokkhólmi.
Hitti Paul McCartney
og tók við hann viðtal
að er víða sem íslendingar koma
við sögu. Nýlega barst okkur frétt
af því að Valgerður Rós Sigurðar-
dóttir, sem er búsett í Floda í Svíþjóð, hefði
hitt poppgoðið Paul McCartney og konu
hans Lindu þegar þau voru á hljómleika-
ferðalagi um Svíþjóð. Hér á eftir fer útdrátt-
ur úr viðtali við Völu, eins og hún er köll-
uð, sem birtist í Göteborgs Posten.
Grænfriðungar í Svíþjóð era að taka upp
á þeirri nýbreytni að bjóða unglingum vítt
og breitt um landið að vera fréttaritara fyr-
ir samtökin. Ælunin er að átta ungmenni
um alla Svíþjóð fái að spreyta sig sem frétta-
menn. Kennari Völu hvatti hana til að sækja
um stöðuna og lét Vala til leiðast.
Það er skemmst frá því að segja að henni
var boðið að vera fyrsti unglingafréttaritari
grænfriðunga í Svíþjóð og hlaut að launum
ferð til Stokkhólms og tók sitt fyrsta viðtal
við heimsfræga poppstjörnu.
Vala hitti Paul og Lindu McCartney rétt
áður en tónleikar þeirra hófust í Globen í
Stokkhólmi. Það sem kom Völu hvað mest
á óvart var hve eðlilegur Paul var. Henni
voru úthlutaðar tíu mínútur til að taka viðtal-
ið, en vegna þess hvað þau höfðu mikið að
tala um varð sá tími nokkuð lengri. Bæði
spurði Vala Paul ýmissa spurninga og eins
sagði hann henni sína skoðun á umhverfis-
málum og beindi því sérstaklega til ungs
fólks að það ætti að vera gagnrýnið og
halda áfram að beijast fyrir betra um-
hverfí. Og það er einmitt það sem Vala
kemur til með að gera semaritari fyrir Græn-
friðunga.
SKÓLAKEPPIMI
TÓNABÆJAR
Félagsmiðstöðin Tónabær hélt skólakeppni í lok október milli sex skóla. Kepp-
endur voru frá Álftamýrarskóla, Austurbæjarskóla, Hlíðaskóla, Laugalækjar-
skóla, Tjarnarskóla og Æfingaskóla KHÍ.
Auk spumingakeppni var keppt í
fótbolta og félagsvist og voru
gefin stig fyrir hveija grein fyrir
sig. Úrslitin urðu þau að Hlíðaskóli bar sig-
ur úr býtum í félagsvistinni, Álftamýrar-
skóli vann fótboltakeppnina og eftir jafna
og tvísýna úrslitakeppni sigraði Laugalækj-
arskóli Hlíðaskóla í spurningakeppninni.
Þegar talin vora stig hvers skóla samanlögð
kom í ljós að Hlíðaskóli hafði hlotið flest
stig samanlögð. Þar með hafði lið Hlíða-
skóla sigrað keppnina og hlotið titilinn
Skólameistarar Tónabæjar 1993.
Skólakeppni Tónabæjar er orðin árlegur
viðburður í starfsemi Tónabæjar, en þetta
er í þriðja sinn sem hún er haldin. Markmið
keppninnar er að nemendur skólanna hitt-
ist, kynnist, takist á í drengilegri keppni og
hafi gaman af. Mikil spenna og áhugi var
hjá unglingunum fyrir keppninni og tókst
hún frábærlega vel. Skólakeppninni lauk
föstudagskvöldið 29. október með meiri
háttar balli, þar sem verðlaunaafhending fór
fram fyrir troðfullu húsi af unglingum.
'ð x©
• ipH
4-i
'©
U
CU