Morgunblaðið - 15.12.1993, Side 50

Morgunblaðið - 15.12.1993, Side 50
50 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1993 KORFUKNATTLEIKUR Huriey þungt haldinn eftir umferðarslys Góður tími til að prófa - segir Falur Flarðarson sem fer í KR Bobby Hurley, leikmaður NBA- liðsins Sacramento Kings, liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Kalifomíu eftir umferðarslys á sunnudagskvöld. Hann er mikið slasaður, bæði lungun féllu saman og mörg rifbein brotnuðu. Hann var í 8 kiukkustundir á skurðar- borðinu. Læknar sögðu í gær að hann væri enn í lífshættu. Hurley, sem er 22 ára, gekk til liðs við Kings fyrir þetta keppn- istímabil — kom frá Duke háskól- anum og þótti einn besti leikmað- ur háskóladeildarinnar í fyrra. Hann var á heimleið í bíl sínum eftir leik Sacramento gegn Los Angeles Clippers á sunnudags- kvöld er hann lenti í árekstri nokkrum mflum frá Arco Arena, þar sem Kings-liðið leikur. Hur- ley, sem var ekki með bílbelti, kastaðist út úr bílnum við árekst- urinn og lenti í skurði utan vegar. Til KR FALUR Harðarson, sem hefur alla tíð leikið með ÍBK, hefur ákveðið að breyta til og leika með KR í janúar. Falur Harðarson körfuknattleiks- maður ákvað í gær að ganga til liðs við KR-inga og leika með Vesturbæjarliðinu í janúar, en Falur hefur undanfarin ár verið við nám í Bandaríkjunum en ætlar að nota jólafríið til að taka þátt í íslands- mótinu með KR-ingum. Áður en Falur hélt til Bandaríkjanna hafði hann alla tíð leikið með Keflvíking- um í körfuknattleik og lék sinn fyrsta meistaraflokksleik þegar hann var 16 ára gamall. Alls hefur hann leikið um 200 leiki með meist- arafiokki ÍBK og 38 sinnum hefur hann klæðst landsliðspeysu íslands. Falur sagðist. í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöldi hafa hugsað málið vel og vandlega. „Ég er ákveðinn í að leika með KR-ingum. Ég kem heim á laugardaginn og síðan eru spennandi leikir framund- an í janúar og baráttan er mikil í riðlinum. Ég veit auðvitað ekki hvað framtíðin ber í skauti sér en þó ég fari í KR núna þá segir það ekkert um að ég verði þar þegar ég kem alkominn heim,“ sagði Falur. Falur hefur verið við nám í tölv- unarfræði í Bandaríkjunum undan- farin ár og lýkur námi í vor og komi þá alkominn heim. „Ég held að þetta sé góður tími fyrir mig til að prófa eitthvað nýtt. Það voru í rauninni bara Keflavík og KR sem komu til greina hjá mér og ég ákvað að prófa KR,“ sagði Falur. Friðrik einnig í KR Hinn ungi og hávaxni ungiinga- landsliðsmaður úr Vestmanneyjum, Friðrik Stefánsson, hefur einnig ákveðið að ganga til liðs við KR og kemur til liðsins eftir áramótin. Friðrik hóf körfuknattleiksferil sinn á dálítið sérkennilegan hátt, nefni- lega í landsliði undir stjórn Axels Nikulássonar, og hefur hann nær eingöngu leikið með landsliðum til þessa, ekki félagsliðum. ÚRSLIT Stefán hættur að þjálfa KR-stúlkur Stefán Arnarson þjálfari meistaraflokks kvenna hjá KR hefur skrifað meistaraflokksráði félagsins bréf þar sem hann óskar eftir að láta af störfum. Þegar Morgunblaðið spurði hann í gærkvöldi hvort hann væri hættur að þjálfa KR stelpurnar, sagði hann: „Já, eiginlega en ætli sé ekki best að þú talir við stjórnina hjá KR.“ Þorvaldur Karl Helgason er formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá KR og þegar hann var spurður hvort Stefán væri hættur með kvennalið félagsins játti hann því „Hann segir það. Annars hafði hann samband í hádeginu í dag [í gærj og vildi fá að hugsa sig aðeins um. Stefán er mjög metnaðarfullur þjálfari og hefur sett fram ákveðnar óskir um hluti sem hann teiur að verði að breyta. Við erum ánægð með starf hans, ég vona að þetta sé bara jólaþreyta hjá honum.“ Reuter Alberto Tomba í fyrri ferð svigsins á Ítalíu í gær, er hann náði lang besta tímanum. Sigur hans í gær var sá fimmti í Sestriere í heimsbikarkeppninni, en þar vann hann fyrsta sigurinn á heimsbikarmóti fyrir fimm árum. „Sprengjan" kann vel sigí ÍTALSKA „sprengjan" Alberto Tomba eða „La bomba“ einsog hann er kallaður í heimalandinu, fagnaði sigri í svigi heimsbikars- ins fyrir framan þúsundir ítalskra aðdáenda á heimavelli, í Sestri- ere í gær. Þetta var 31. sigur hans íheimsbikarnum og ífimmta FOLK ■ ROLAND Nilsson, sænski landsliðsbakvörðurinn hjá Sheffi- eld Wednesday hefur samþykkt að vera áfram hjá félaginu til vors, en hann hafði áður ákveðið að rifta samningi sínum við félagið og fara heim fyrir jól. ■ NILSSON hefur samið þannig við forráðamenn Wednesday að hann fái að fara í vor án þess að greiðsla komi fyrir hann, með því skilyrði reyndar að hann leiki með liði heimabæjar hans, Helsingborg, og engu öðru. M NILSSON er fastamaður í —sænska landsliðinu, sem tekur þátt í úrslitakeppni HM á næsta ári. Fyrst hann leikur til vors verður hann með í Bandaríkjunum, en hefði hann hætt um jól voru engar iíkur taldar á því. ■ LINFORD Christie, breski ólympíumeistarinn í 100 m hlaupi, útilokar ekki að hann reyni að veija titil sinn á leikunum í Atlanta 1996. Christie verður 36 ára þegar leik- arnir fara fram, en telur að hann hafi ekki náð hátindi ferilsins; hann verði betri með hveiju árinu sem líður. ■ IAN Wright, enski landslið- smiðherjinn hjá Arsenal, hefur ver- _ ið valinn leikmaður ársins hjá félag- inu af stuðningsmönnum þess. Val- ið tekur ekki til hvers keppnistíma- bils heidur ársins. Wright fékk nærri helming af þeim 4.000 at- kvæðum sem send voru inn. ■ BOBBY Robson, fyrrum landsliðsþjálfari Englands, sem hætti sem þjálfari Sporting í Port- úgal á dögunum, hefur lýst yfír áhuga á að taka við þjálfun Ever- ton. Hann er orðinn 61 árs, en seg- ist enn vilja freista þess að ná meist- aratitli sem þjálfari. ■ STEVE Coppeil, fyrrum „stjóri" CrystaJ Palace, var sterk- lega orðaður við starfíð hjá Ever- ton sem losnaði eftir að Howard Kendall sagði upp. Coppell hefur nú verið ráðinn framkvæmdastjóri Samt.aka framkvæmdastjóra í ensku deildarkeppninni, þannig að starfíð hjá Everton er úr sögunni. Bobby Robson þykir því líklegastur til að hreppa hnossið. sinn sem hann sigrar i Sestriere. Tomba, sem verður 27 ára á sunnudaginn, á góðar minn- ingar frá Sestriere því þar sigraði hann í fyrsta sinn á heimsbikar- móti 1987, vann þá bæði svig og stórsvig. Eftir að hafa náð aðeins 17. sæti í stórsvigi í Val d’Isere á mánudag var hann gagnrýndur mjög í ítölskum fjölmiðlum. En hann sannaði það í gær að hann er enn einn besti skíðamaður heims í svigi. „Ég hafði sett markmiðið að sigra í Sestriere og sýna og sanna að ítalskir skíðamenn eru í fremstu röð,“ sagði Tomba, sem hafði ekki unnið mót á Ítalíu í tvö ár. Hann var með besta tímann í fyrri umferð og var 0,75 sekúndum á undan Thomasi Stangassinger frá Austurríki, sem hefur forystu í sam- anlagðri svigkeppni. Norðmaðurinn Ole-Christian Furuseth, sem hefur ekki átt miklu velgengni að fagna í vetur, átti frábæra síðari umferð og vann sig úr 12. sæti upp í það þriðja. Þrír af fimm fyrstu eftir fyrri umferð féllu í síðari umferð og hættu keppni. Þeir voru Svíinn Thomas Fogdö, sem var með næst besta tímann, Thomas Sykora frá Austurríki, sem var með þriðja tím- ann og heimsbikarhafinn Marc Griardelli, sem var fímmti eftir fyrri umferð. Illa hefur gengið hjá Girar- delli að undanförnu og talið ólíklegt að hann veiji titilinn. Kjetil-Andre Aamodt frá Noregi heldur áfram að safna stigum og tryggði enn frekar efsta sætið í stigakeppninni með því að ná sjö- unda sæti í gær. Hann hefur nú 357 stig, en Gúnther Mader frá Austurríki er næstur með 342 og Tomba í þriðja sæti með 294 stig. Skíði Heimsbikarinn Sestríere, Ítalíu: Svig karla (Fyrri brautin var 72 hlið og síðari 67 hlið, fallhæð 210 metrar). 1. Alberto Tomba (Italíu)......1:58.38 (57.75/1:00.63) 2. T. Stangassinger (Austurr.).1:59.13 (58.26/1:00.87) 3. Ole-Chr. Furuseth (Noregi)..1:59.56 (59.51/1:00.05) 4. Finn-Christian Jagge (Noregi) ...1:59.69 (59.05/1:00.64) 5. Bernhard Gstrein (Austurríki) ....2:00.08 (59.22/1:00.86) 6. Peter Roth (Þýskal.)........2:00.22 (59.51/1:00.71) 7. Kjetil-Andre Aamodt (Noregi) ....2:00.23 (58.88/1:01.35) 8. Jure Kosir (Slóveníu).......2:00.62 (59.40/1:01.22) 9. Michael Von Gruenigen (Sviss) ...2:00.67 (1:00.14/1:00.53) 10. Giinther Mader (Austurríki).2:00.79 (59.23/1:01.56) Körfuknattleikur NBA-deildin New Jersey — Miami..............110:105 ■Leikurinn var tvíframlengdur. Eftir fyrri framlengingu var staðan 95:95. Miami gerði fimm fyrstu stigin í síðari framlengingu, en Ne|s svaraði með sjö næstu og náði síð- an yfírhöndinni og tryggði sér sigur 110:105 og geta þakkað það þriggja stiga körfum frá Kevin Edwards og Chris Morris á loka- mínútunum. Kenny Anderson setti persónu- Iegt stigamet, gerði 32 stig, átti 11 stoð- sendingar og tók 10 fráköst. Þetta var í annað sinn í vetur sem hann nær „þrennu". Glen Rice var stigahæstur í liði gestanna með 39 stig og Rony Seikaly kom næstur með 27. Boston — Philadelphia...........112:107 ■Dee Brown gerði 35 stig fyrir Boston og er það stigamet hjá honum. Þetta var fyrsti sigur Boston í þremur leikjum, en liðið hef- ur haft tak á Philadelphiu í gegnum árin því þetta var 23. sigurinn í 26 leikjum. Phoenix — Milwaukee.......:.....112:104 ■Kevin Johnson gerði 32 stig fyrir Phoen- ix, en það var Dan Majerle sem gerði mikil- væga þriggja stiga körfu þegar 3 mín. voru eftir. Charles Barkley gerði 28 stig og tók 21 frákast, sem er met hjá honum í vetur. Þetta var sjötti sigur Phoenix í röð. Todd Day var stigahæstur í liði Milwaukee með 21 stig. Utah — San Antonio...............102:87 ■Karl Malone gerði 27 stig og var mikil- vægur í liði Utah sem vann sjöunda heima- leikinn í röð. John Stockton og Tom Cham- bers komu næstir með 16 stig. David Robin- son var bestur f liði gestanna með 23 stig. Golf Jólamót Púttklúbbs Ness Mótið haldið í Gólfheimum 14. desember. Úrslit voru sem hér segir: Konur Ingalngvarsdóttir......................70 Kristín Halldórsdóttir.................70 Þorbjörg Jónsdóttir....................70 Karlar Vilhjálmur Halldórsson................61 Karl Sölvason..........................63 Ágúst Friðþjófsson.....................67 ■23 keppendur tóku þátt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.