Morgunblaðið - 19.01.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.01.1994, Blaðsíða 1
56 SIÐURB/C 14. tbl. 82. árg. MIÐVIKUDAGUR19. JANÚAR1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Deilan um Gólanhæðir Undrast yiðbrögð Israela Jerúsalem. Reuter. YITZAK Rabin, forsætisráðherra Israels, féllst i gær með semingi á að yfirlýsingar Hafez al-Assad, forseta Sýrlands, um frið, yrðu grundvöllur að áframhaldandi við- ræðum. Hann sagði þó, að hugsan- legan friðarsamning yrði að bera undir þjóðaratkvæði. Rabin kvaðst í gær hafa átt von á meiri árangri af friðarviðræðum Assads og Bills Clintons Bandaríkja- forseta í Genf á sunnudag. Sagðist hann þó vera reiðubúinn að sætta sig við það sem sagt var á fundinum en í lok hans sagði Assad að Sýrlending- ar gætu átt eðlileg og friðsamleg samskipti við ísraela. Rabin samþykkti í gær tillögu að- stoðarvarnarmálaráðherra ísraels frá því á mánudag, um að þjóðarat- kvæðagreiðsla yrði haldin, gæfu ísra- elar eftir Gólan-hæðir en Farouq al- Shara, utanríkisráðherra Sýrlands, kvaðst undrandi á viðbrögðunum og sagðist efast um, að ísraelar vildu í raun semja um frið. Herða tök- ináKrím Reuter 15.000 manns heimilislaus Los Angeles. Reuter. VIÐURSTYGGÐ eyðiieggingarinnar blasti hvarvetna við í Los Angeles í gær, daginn eftir að mesti jarð- skjálfti í tvo áratugi reið yfír borgina og nágrenni. Vitað var um 34 menn látna, þúsundir, sem hafa slas- ast eða hlotið einhver meiðsl, og um 15.000 manns misstu heimili sín. Síðan stóri skjálftinn reið yfir á mánudag hafa komið meira en 200 eftirskjálftar og tveir þeir öflugustu mældust 4,7 og 5,5 á Richter. Mesta manntjónið varð þegar fyrsta hæðin í þriggja hæða Qölbýlishúsi í Northridge lagðist saman en þar létu 16 manns lífið. Bandarískir jarðvísindamenn sögðu í gær, að skjálftarnir hefðu átt upptök sín í Oakridge- sprungunni en þar hefurengin jarðskjálftavirkni verið í 200 ár. Jóhanna Lewis, formaður íslendingafélagsins í Los Angeles, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að hún vissi ekki annað en íslendingar í borginni hefðu sloppið^ ómeiddir og án þess að verða fyrir verulegu tjóni. Á myndinni eru konur, sem misstu allt sitt í hamförunum. Sjá „Einn stærsti skjálfti ...“ á bls. 20. Inman dregur sig í hlé Washington. Reuter. BOBBY Inman aðmíráll, sem Bili Clinton Bandaríkjaforseti hafði til- nefnt til að taka við af Les Aspen sem varnarmálaráðherra, til- kynnti í gær, að hann gæfi ekki kost á sér í embættið. Kvað hann ástæðuna þá, að hann vildi hlífa sér og fjölskyldu sinni við þeim árásum og umtali, sem jafnan fylgdu útnefningarferlinu. „Ég og ij'ölskylda mín getum ekki sætt okkur við, að ferill minn og æra séu næstum því dagiega dregin niður í svaðið," sagði Inman í bréfí, sem hann sendi Hvíta húsinu. „Ég hef unnið í meira en þrjátíu ár í þágu föðurlandsins en nú tel ég hins vegar rétt að láta skylduna við fjölskylduna ganga fyrir.“ Inman nefndi sérstaklega fréttir, sem hann kvaðst hafa fengið um áramótin, þess efnis, að Bob Dole, þingflokksformaður repúblikana í öldungadeildinni, ætlaði að beita sér fyrir andstöðu repúblikana gegn sér. Sagði Inman, að nyti hann ekki trausts beggja flokka á þingi hefði hann ekkert að gera í embættið. Hvíta húsið birti einnig í gær bréf frá Clinton þar sem hann harmar en fellst á ákvörðun Inmans. Kozyrev vill halda hluta russneska hersins í fyrrum sovétlýðveldum Segir brottflutmng geta valdið öryggistómarúmi Kíev. Reuter. LEONÍD Kravtsjúk, forseti Úkra- ínu, brást í gær við sigri rússnesks þjóðemissinna í forsetakosningun- um á Krím á sunnudag með því að boða breytingar á úkraínsku stjórnarskránni. Eiga þær að gefa honum vald til að hafa ákvarðanir Krímsljórnar að engu. Fréttastofan Interfax sagði, að forseti úkraínska þingsins, ívan Ply- útsjtsj, hefði lofað að koma stjórnar- skrárbreytingunni fljótt í gegn en til hennar er gripið vegna sigurs rússn- eska þjóðernissinnans Júríjs Mes- hkovs í fyrri umferð forsetakosning- anna á Krím á sunnudag. í kosninga- baráttunni boðaði hann sameiningu Krímskaga og Rússlands en hefur að vísu dregið nokkuð í land með það. Moskvu. Reuter. ANDREJ Kozyrev, utanríkisráð- herra Rússlands, sagði í gær að óráðlegt væri að kalla rússneskar hersveitir með öllu heim frá fyrr- verandi sovétlýðveldum þar sem þau væru mjög mikilvæg hags- munum Rússa. Brottflutningur alls heraflans gæti haft í för með sér „öryggistómarúm", sem öfl, andstæð rússneskum hagsmunum, leituðust við að fylla. Þessi um- mæli þykja benda til breyttrar og harðari stefnu, einkum gagnvart Eystrasaltsríkjunum Eistlandi og Lettlandi. Kozyrev lét ummælin um herinn falla á fundi í Moskvu með sendiherr- um Rússlands í sovétlýðveldunum fyrrverandi. Hafði Itar-Tass-frétta- stofan eftir honum, að frá þessu svæði, sovétlýðveldunum fyrrver- andi, stafaði öiyggishagsmunum Rússa mest hætta. „Við eigum ekki að flytja allan her frá svæðum, sem hafa verið okkur svo mikilvæg um aldir,“ sagði hann. Embættismaður í eistneska utan- ríkisráðuneytinu vildi aðeins segja það um yfírlýsingar Kozyrevs, að verið væri að skoða þær. Að Eystrasaltsríkjunum undan- skildum hefur Rússland samið við nær öll aðildarríki Samveldis sjálf- stæðra ríkja um að halda hluta her- afla þess í löndunum. Rússar óttast óðaverðbólgu Rússar flykktust í gær í banka til að kaupa dollara eftir verulegt geng- isfall rúblunnar og vegna ótta við efnahagslega ringulreið í landinu ’eftir afsögn Jegors Gajdars úr stjórn- inni. Ein af ástæðum þessa kaupæð- is var ótti við óðaverðbólgu ef Borís Fjodorov fjármálaráðherra færi að dæmi Gajdars og segði af sér. Borís Jeltsín forseti Rússlands heldur áfram viðræðum um rnyndun nýn-ar stjórnar í dag. Skýrsla Lawrence Walsh, sérstaks saksóknara í íran-kontra málinu Reagan og Bush studdu báðir leynilega vopnasölu til Irans Washington. Rcuter. SÉRSTAKUR saksóknari í íran-kontra málinu svokallaða sagði í gær að Ronald Reagan, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, og Ge- orge Bush, varaforseti hans, hefðu báðir stutt vopnasölu til írans í því skyni að greiða fyrir því að bandarískir gíslar í Líbanon yrðu leystir úr haldi. Þeir hefðu síðan báðir reynt að hylma yfir hneyksl- ismálið þegar það komst í hámæli. Saksóknarinn, Lawrence Walsh, sagði einnig í lokaskýrslu sinni um rannsóknina að hvorki Reagan né Bush hefðu vitað að nota ætti ágóð- ann af vopnasölunni til að styrkja kontra-skæruliða í. Nicaragua. Hefðu þeir staðið fyrir slíkum stuðningi við skæruliðana, hefðu þeir gerst sekir um lögbrot, þar sem Bandaríkjaþing hafði bannað fjár- hagsaðstoð við þá. Walsh segir að þrátt fyrir þetta hafi Reagan og Bush „skapað þær aðstæður sem gerðu þennan glæp sem aðrir frömdu mögulegan". Bush hafði haldið því fram að hann hefði ekki vitað af vopnasöl- unni til írans og Reagan sagði að hann hefði aðeins haft óskýra vitn- eskju um málið. Walsh segir hins vegar að þeir hafí reglulega fengið „allnákvæmar upplýsingar" um framgang málsins. Þá segir hann að embættismenn Bandaríkjafor- seta hafi „af ásettu ráði blekkt þingið og almenning“ varðandi vitneskju Reagans og Bush um málið. Walsh kemst ennfremur að þeirri niðurstöðu að ekki sé raunhæft að sækja Reagan og Bush til saka, meðal annars vegna þess hversu seint honum hafí borist nauðsynleg gögn um málið. Rannsóknin stóð í sjö ár og kost- aði 35 milljónir dala, jafnvirði 2,5 milljarða króna. „Skýrsla Walsh er lítið annað en sjálfshól og tilhæfulausar ásak- anir sem hann gæti aldrei sannað fyrir rétti,“ sagði í skriflegri yfír- lýsingu frá Reagan í gær. Skýrsl- unni er þar vísað á bug sem „göml- um upplýsingum, óréttmætum ályktunum og ábyrgðarlausum vangaveltum".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.