Morgunblaðið - 19.01.1994, Side 5

Morgunblaðið - 19.01.1994, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANUAR 1994 5 Umfangsmiklar símanúmerabreyt- ingar á næsta ári UMFANGSMIKLAR breytingar verða á íslenskum símanúmerum á miðju næsta ári þegar núverandi svæðisnúmer verða aflögð og öll síma- númer verða sjö stafa. Þessar breytingar eru nauðsynlegar til þess að samræma númerakerfi þeim reglum sem gilda eiga innan Evrópska efnahagssvæðisins. Gömlu svæðisnúmerin frá 91 upp í 98 verða lögð niður þannig að þeg- ar númer er valið þarf ekki lengur að vita hvar á landinu það er tengt. Þeir sem hringja til íslands frá út- löndum þurfa þá einungis að slá inn landsnúmerið sem er 354 og því næst hið eiginlega símanúmer en engum stöfum er bætt inn í eða sleppt úr. núverandi númer. Við þessa breytingu verða nokkur númer samræmd á Islandi og hinum EES- og EB-löndunum t.d. talsam- band við útlönd sem verður þá í síma 115, upplýsingar úr símaskrá 118 og klukkan 155 og búið er að ákveða að neyðarnúmer í öllum löndunum eigi að vera 112. mblMorgunblaðið/Sverrir Þorrinn að ganga í garð BÓNDADAGUR er á föstudaginn og þá gengur þorrinn í garð. Mathákar landsins hafa beðið þessa dags með eftirvæntingu og víst er að svokallaður þorramatur verður á borð- um flestra landsmanna næsta mánuðinn. Undan- farin 32 ár hafa kokkar Múlakaffís boðið upp á slíkan mat og hófst verkun hans í september s.l. Kokk- arnir Þórarinn Guðmunds- son, Jóhannes Stefánsson og Guðjón Harðarson voru búnir að fylla trogin þegar ljósmyndari leit inn í Múla- kaffi í gær. Breytingin verður framkvæmd þannig að þegar ný símaskrá tekur gildi 1995 mun talan 5 bætast við fyrir framan sex stafa númer en 55 mun koma fyrir framan fimm stafa númer á höfuðborgarsvæðinu. Ann- ars staðar á landinu, nema á númera- svæði 94, mun talan fjórir koma í stað tölunnar níu í gamla svæðis- númerinu en hinn stafur svæðisnúm- ersins mun halda sér. Númer Pósts og síma á Akureyri sem er í dag 96-30 600 verður því 46 30 600. A sama hátt mun 43 bætast fyrir fram- an númer á Vesturlandi 47 fyrir framan númer á Austurlandi o.s.frv. Þar sem númer á 94-svæðinu eru í dag fjögurra stafa munu þau breyt- ast meira og fá 456 fyrir framan Seðlabanki áfrýjar SEÐLABANKI íslands hefur ákveðið að áfrýja til Hæstaréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur i máli því sem einn þeirra 1.100 aðila sem áttu innistæður hjá Ávöxtun hf. höfðaði gegn bank- anum. „Rökin fyrir ákvörðun bankans eru þau að málið gæti haft fordæm- isgildi um réttarstöðu eftirlitsaðila með fjármagnsmarkaði og því nauð- synlegt að um það sé íjallað og í því gangi dómur á æðsta dómstigi," seg- ir í fréttatilkynningu frá Seðlabanka íslands. -----»-♦■-♦--- Vígslubiskup biðst lausnar SÉRA Jónas Gíslason vígslubiskup í Skálholtsstifti, hefur, með bréfi til biskups íslands, beðist lausnar frá embætti sínu frá og með 1. júní næstkomandi, af heilsufars- ástæðum. Séra Jónas var kjörinn vígslubisk- up árið 1989, en áður gegndi hann starfi prófessors í kirkjusögu við guðfræðideild Háskóla íslands. -----» ....... Heimsókn O’Connors kardínála Messar tvisv- ar í Landa- kotskirkju O’CONNOR kardínáli í New Vork sem hingað kemur í vináttuheim- sókn miðvikudaginn 26. janúar messar tvisvar á meðan á dvöl hans hér á landi stendur. Einnig heldur kardínálinn tvo fyrirlestra. Báðar messurnar verða í Landa- kotskirkju, sú fyrri miðvikudaginn 26. janúar kl. 18 og sú síðari fimmtu- daginn 27. janúar kl. 18. Á eftir messunum verður boðið upp á kaffi. Kardínálinn heldur tvo fyrirlestra fimmtudaginn 27. janúar, þann fyrri hjá Guðfræðideild Háskóla íslands kl. 10.15 en sá síðari verður fyrir leikmenn í Safnaðarheimilinu Há- vallagötu 16 og hefst hann kl. 20.30. Taktu markvissa stefhu íspamabi 1994 < '' V'' Islandsbanki kynnir nýjar, einfaldar og órangursríkar Sparileibir Nýir möguleikar í sparnabi á Sparfleiöum íslandsbanka. Meginmarkmiöiö meö nýjum Sparileiöum er aö bjóöa spari- fjáreigendum fjölbreyttari valkosti og betri ávöxtun af sparnaöi sínum, eftir því sem spariféö stendur lengur óhreyft. ^Sparileib 12 Verötryggö Sparileiö 12 hentar vei fyrir sparnaö sem getur staöiö óhreyföur í aö minnsta kosti 12 mánuöi. «► Sparileib 24 Verötryggö Sparileiö 24 er sniöin fyrir sparnaö í minnst 24 mánuöi. +Sparileib 48 Verötryggö Sparileiö 48 hentar vel fyrir sparnaö í 48 mánuöi eöa lengur. "► Óbundnar Sparileibír Fyrir þá sem ekki vilja binda fé sitt bjóöast einnig óbundnar Sparileiöir, en íslandsbanki var elnmitt meö bestu ávöxtunina á óbundnum reikningi áriö 1993. Fleiri möguleikar meb reglubundnum sparnabi Nú opnast nýir möguleikar fyrir þá sem vilja spara reglubundiö og taka allt spariféö út í lok sparnaöartímans. Efþú gerir samning um reglubundinn sparnaö á Sparileiöum 12, 24 eöa 48, þá er öll sparnaöarupphœöin laus aö loknum umsömdum binditíma reikningsins og öll upphœöin nýtur verbtryggingar, óháö því hvab hvert innlegg hefur stabiö lengi á reikningnum. Ánœgjuleg „útgjöld" Þaö ánœgjulega vib reglubundinn sparnab er ab jafnvel smáar upphœbir eru fljótar ab vaxa efþœr eru lagbar reglulega til hlibar. Þab hefur þvíreynst mörgum vel ab gera sparnabinn ab föstum, ófrávíkjanlegum hluta af „útgjöldum" hvers mánabar. Þaö er aubveldara en þú heldur. Nú er réttl tímlnn til ab taka markvissa stefnu í sparnabi. ÍSLANDSBANKI YDDA F26.186 / SfA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.