Morgunblaðið - 19.01.1994, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANUAR 1994
FAGOR
ÞVOTTAVÉLAR FES4 & FE83
Magn af þvotti 5 kg
Þvottakerfi 17
Hitar síðasta skolvatn
Sér hitastillir 0-9CPC
Ryðfrí tromla og belgur
Hraðþvottakerfi
Áfangaþeytivinda
Sjálfvirkt vatnsmagn
Hæg vatnskæling
Sþarneytin
Hljóölát
Kynningarfundur
Gijót
o g land
Myndlist___________
Bragi Asgeirsson
í myndhorni Sævars Karls Óla-
sonar sýnir ívar Brynjólfsson
nokkrar svarthvítar ljósmyndir og
stendur sýningin til 2. febrúar.
Sýningin hefur hlotið heitið
„Landslag og jarðrask“ sem hittir
alveg í mark, því að hér er um að
ræða myndir sem ívar hefur tekið
af uppfyllingargijóti meðfram
strandlengjunni í höfuðborginni, og
þá einkum björgunum í Skúlagötu.
Sjónhringinn að baki notar ívar svo
óspart til að magna fram áhrifarík-
ar andstæður, annars vegar mann-
anna verk sem óvægin harka ein-
kennir, og hins vegar óspillta nátt-
úruna sem býr yfir mjúkum blíðum
línum og lífrænni stígandi.
Þessi athafnasemi með gtjótið
hefur á tíðum skapað mjög mynd-
ræn sjónarhorn og næsta eðlilegt
að einhver listamaðurinn uppgötv-
aði þau, en hins vegar er lítill feg-
urðarávinningur af því að missa
fjörurnar umhverfis borgina undir
samgönguæðar.
Bifreiðin er miskunnarlaus hús-
bóndi og mannskepnan er full fljót-
fær, undirgefín og þýlynd gagnvart
því mengandi valdi.
Þótt björgin úr gijótnáminu séu
sem fyrirferð hans er, og náttúran
verður alltaf mesti bygging-
armeistarinn. Myndhöggvarar hafa
leitað í formanir fjörugijótsins og
er hinn nafnkenndi Hans Arp
Eitt verka ívars Brynjólfssonar.
að hluta til mannanna verk, halda
þau áfram að vera afkvæmi náttúr-
unnar og þannig séð nær upp-
runanum en bifreiðin. Frumform
jarðar er alltaf í steininum hver svo
Innritun og upplýsingar í síma:
812411
STJORNUNARSKOUNN
Konráó Adolphsson. Einkaumbod fyrir Dale Carnegie* námskeiðin.
DALE
CARNEGIE*
Þjálfun
Fimmtudagskvöld kl.
20.30 að Sogavegi 69
Konráð Adolphsson
D.C. kennari
Hi Eykur hæfni og árangur einstaklingsins
Hi Byggir upp leiðtogahæfnina
Hi Bæf/rminni þitt og einbeitingarkraftinn
-■ Skapar sjálfstraust og þor
■ Árangursríkari tjáning
-■ Beislarstreitu og óþarfa áhyggjur
-M Eykur eldmóðinn og gerir þig hæfari í
daglegu lífi
tónleika í Lauderdale House í Lund-
únum og einnig í Art Center í
Essex. Kvartettinn er skipaður
þeim Eyþóri Gunnarssyni, Sig-
urði Flosasyni, Tómasi R. Ein-
arssyni og Einari Val Scheving,
en sérstakur gestaspilari.á tónleik-
um kvartettsins var hinn þekkti
breski trompetleikari Guy Barker
sem ásamt þeim félögum flutti ís-
lenska og bandaríska jasstónlist. í
kjölfar tónleikanna í Lundúnum var
Jasskvartett Reylgavíkur boðið
að leika í hinum heimsþekkta jass-
klúbbi Ronnie Scott’s dagana
7.-14. febrúar næstkomandi.
íjóðlagahópurinn Islandica,
skipaður þeim Inga Gunnari Jó-
hannssyni, Guðmundi Benedikts-
syni ásamt Jóni Ingólfssyni, lék
einnig í Lauderdale House og Art
Center í Essex og samanstóð dag-
skrá hans af gömlum og nýjum
þjóðlögum í nýstárlegum útsetn-
ingum.
Fjöllistamennirnir Jón Laxdal,
Guðbrandur Sigurlaugsson og
Kristján Pétur frá Akureyri, sem
nefna sig Norðanpilta, fluttu eigin
ljóð og söngva jafnframt því sem
myndverk Jóns Laxdals voru á
tveimur samsýningum í báðum
borgum. Norðanpiltar létu ekki ein-
ungis að sér kveða á ljóðakvöldum,
tónleikum og myndlistarsýningum,
heldur komu þeir einnig fram í
barna- og háskólum í Lundúna-
borg.
íslensku söngkonurnar Ragn-
hildur Gísladóttir og Elísa (Kol-
rassa) Friðriksdóttir sem einnig
leikur á fiðlu, fluttu eigin tónsmíð-
ar í bland við íslenskar stemmur
við undirleik stórsveitar í Art Cent-
er j Colchester.
íslenski kórinn í Lundúnum
söng undir stjórn Aagot Óskars-
dóttur lög eftir íslenska höfunda
í Lauderdale House í Highgate.
Tómas Tómasson baritónsöngvari
flutti íslensk þjóðlög án undirleiks.
íslensk ljóðlist átti marga góða
Á FJÓRÐA tug íslenskra lista-
manna tók þátt í tveimur sam-
hliða listahátíðum sem haldnar
voru í Lundúnum og í Clochester
í Essex á Bretlandi og stóðu frá
4. nóvember til 16. desember síð-
astiiðinn. Lundúnahátíðin bar
yfirskriftina Winter Tales, en
hátíðin í Essex var helguð list
þeirra þjóða er byggja eyjarnar
i Norður-Atlantshafi og lögð sér-
stök áhersla á verk íslenskra
Iistamanna.
Tónskáldið og sellóleikarinn
Hafliði Hallgrimsson hélt tónleika
ásamt Kolbeini Bjarnasyni
flautuleikara í Town Hall í Colc-
hester, þar sem nær eingöngu voru
flutt verk Hafliða en hann var ge-
statónskáld Essex-hátíðarinnar og
dvaldi þar á meðan á henni stóð.
Þá kom Hafliði Hallgrímsson einnig
fram á tónleikum í St. Wilfrid’s
Hall í Lundúnum ásamt Kolbeini
Bjarnasyni, og á þeim tónleikum
einnig Auður Hafsteinsdóttir
fiðluleikari ásamt píanóleikaranum
Peter Maté og fluttu þau verk
eftir íslensk og erlend tónskáld.
Myndjistarmennirnir Tolli, Sig-
urður Örlygsson og Jón Axel
sýndu verk sín í Minories Galleries
Colchester, en verk þeirra hafa á
undanförnum mánuðum verið sýnd
víðs vegar um Bretland. Sigrún
Eldjárn sýndi einnig olíumálverk
á báðum hátíðum þar sem efnið
var íslenskt þjóðlíf og bar sýningin
yfirskriftina Fólk.
Ljósmyndarinn Inga Sólveig
hélt sýningar á svart/hvítum ljós-
myndum á báðum hátíðum undir
yfirskriftinni In Memoriam.
Fulltrúar jasstónlistar voru Jass-
kvartett Reykjavíkur sem hélt
Ljúffeng mcfiltfó á lágu verði
Pfta með buffi, frönskum og kók kr. £120/”
Hamborgarar með frönskum og kók kr. 420/“
Pítubrauðin eru nýbökuð og
laus við öll rotvarnarefni.
Grænmeti, kjöt og fiskur,
ferskt og bragðgott.
Pítan er því ekki bara
góð og saðsöm
máltíð, heldur
líka mjög holl.
F jölskyldupakki:
Tvær pítur m/buffi, tvær barna-
pítur (eSa barnahamborgarar)
m/ frönskum, sósu og tveggja
|«™ k°k kr. 1 .750
Fjárfesting í menntun skilar þér arði ævilangt.
Námskeiðið
Islenskt strandhögg
á Bretlandseyjum