Morgunblaðið - 19.01.1994, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1994
15
nefndarskipan samgönguráðherra
vegna athugunar á samruna Vita-
og hafnarmálastofnunar og Sigl-
ingamálastofnunar en í þessari
nefnd eiga sæti vita- og hafnarmála-
stjóri, siglingamálastjóri, fyrrver-
andi aðstoðarvegamálastjóri, nú
ráðuneytisstjóri í samgönguráðu-
neytinu, Benedikt Jóhannesson
stærðfræðingur og Guðjón Guð-
mundsson alþm. sem er formaður
nefndarinnar.
Þeir tveir síðastnefndu standa
utan við þær athugasemdir sem ég
vil koma á framfæri. Það er lenska
í íslenskum stjórnmálum að panta
niðurstöðu fyrirfram þá skipaðar eru
nefndir til þess starfa sem getið er
hér að framan. Ekki það að ég ætli
þessum þrem embættismönnum
hugsunarleysi heldur eru auðsýnileg
hagsmunatengsl sem eru truflandi
og verða fyrir þegar til ákvörðunar
og niðurstöðu kemur.
En endanleg ákvörðun í þessu
máli, ef af verður, hlýtur að liggja
hjá Alþingi.
Það verður hinsvegar athyglisvert
að fylgjast með meðhöndlun sam-
gönguráðherra á fundarsamþykkt
31. landsfundar Sjálfstæðisflokks-
ins, einkum þá setningu sem sérstök
atkvæðagreiðsla fór fram um og
samþykkt var með yfirgnæfandi
meirihluta og hljóðar þannig:
Rekstur vita verði færður til Land-
helgisgæslunnar.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Prófkjör Alþýðuflokksins í Reykjavík
Sex hafa tilkynnt
þátttöku í kjörinu
SEX alþýðuflokksmenn hafa þeg-
ar tilkynnt þátttöku sína í próf-
kjöri Alþýðuflokksins vegna sam-
eiginlegs framboðs minnihlu-
taflokkanna til borgarsljórnar í
vor. Alþýðuflokkurinn fær 4. og
9. sæti á framboðslistanum og fer
lokað prófkjör fram meðal flokks-
bundinna alþýðuflokksmanna í
Reykjavík dagana 5. og 6. febrúar.
Þeir sem hafa þegar lýst yfir að
þeir gefí kost á sér eru Þorlákur
Helgason, formaður Alþýðuflokks-
félagsins í Reykjavík, sem býður sig
í 4. sætið, Bolli Valgarðsson, varafor-
maður Sambands ungra jafnaðar-
manna, sem gefur kost á sér í 9.
sætið, Gunnar Ingi Gunnarsson
læknir, sem sækist eftir 4. sæti,
Gylfí Þ. Gíslason yngri, sem sækist
eftir 4. eða 9. sæti á listanum, Skjöld-
ur Þorgrímsson sjómaður og Gunnar
Gissurarson framkvæmdastjóri.
Framboðsfrestur rennur út 25.
janúar. Meðal annarra alþýðuflokks-
manna sem nefndir hafa verið sem
hugsanlegir þátttakendur í próf-
kjörsbaráttunni um 4. og 9. sæti
Alþýðuflokksins á sameiginlega
framboðslistanum eru Bragi Guð-
brandsson, aðstoðarmaður félags-
málaráðherra, Arnór Benónýs^on og
Hlín Daníelsdóttir.
Skákþing Reykjavíkur
Sævar hefur
unnið allar
skákir sínar
SÆVAR Bjarnason er efstur á
Skákþingi Reykjavíkur með fimm
vinninga eftir fimm umferðir. I
2.-3. sæti eru Áskell Örn Kárason
og Haraldur Baldursson með 4
vinninga, en síðan koma Bragi
Þorfinnsson, Magnús Örn Ulfars-
son og Ólafur B. Þórsson með 3,5
vinninga og frestaða skák.
Sjötta umferðin verður tefld í
dag, miðvikudag, og hefst klukkan
19.30. 62 keppendur taka þátt í
aðalkeppni mótsins.
• Sjálfstyrking •
Námskeið þar sem á 30 stundum er unnið markvisst
með nemendum að eftirtöldum markmiðum:
• Kynnast betur eigin styrk og kostum
• Koma sjálfum sér og eigin hugmyndum á framfæri
• Læra að þola mótlæti og taka gagnrýni
• Standa á rétti sínum og bregðast við yfirgangi
• Laða það besta fram í sjálfum sér og öðrum
• Læra að gefa af sér og gera eðlilegar kröfur
• Móta eigin lífsstfl og persónuieika
Leiðbeinandi er:
Sœmundur Hafsteinsson
sálfræðingur
Stiórntækniskóli íslands
sími 67 14 66 • opið til kl. 22
Forystusveit Sjálfstædisflokksins í
borgarstjórn Reykjavíkur er
samstilltur hópur einstaklinga sem
koma úr mörgum áttum og vinna með
hag borgarbúa að leiðarljósi
Jóna Gróa
Sigurðardóttir er
einn þessara
einstaklinga
Uppbygging, jafnvægi og festa hafa einkennt störf borgarstjómar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Sem
fonnaður atvinnumálanefndar borgarinnar hefur Jóna Gróa Sigurðardóttir tekist á við gjörbreyttar að-
stæður á fáum árum. Aðgerðir borgarinnar hafa miðað að því að efla atvinnulíf, standa að atvinnuskapandi
átaksverkefnum og styrkja vinnumiðlun. Við getum stuðlað að framhaldi samstilltrar borgarstjómar með því
að velja Jónu Gróu í 3. sætið í prófkjöri sjálfstæðismanna.
Skrifstofa stuðningsmanna Jónu Gróu er að Suðurlandsbraut 22, símar 880812, 880813, 880814 og 880815