Morgunblaðið - 19.01.1994, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 19.01.1994, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1994 Ivni- vagnar UMBOÐS OG HBLDVBRSLUN BiLDSHOFÐA 16 SJM672444 Rússarnir koma Það gera Debet kortin líka Ódýrustu passamyndirnar á landinu aðeins kr. 800 LjósmyndastofaH Myad súni: 6542 07 LjósrayndasL Barsa og fjjnyndir sími: (77 (44 Ljósmyndastofa Kópavogs $ími: 4 30 20 3 Ódýrastir VZterkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiöill! fgforgtttiMit&i& Fulltrúar kaupenda ÖRN Lrlingsson útgcrðarmaður, Benedikt Sveinsson hri. og Jón- as Aðalsteinsson hrl. á Siglufirði. Fjölmenni Á SIGLUFIRÐI var góð mæting, tæplega 40 manns, starfsmenn og sveitarstjómarmenn. Fundir kaupenda með starfsmönnum SR-mjöls og sveitarsljórnum Almennur áhugi á hlutafi árkaupum ÁNÆGJA og almennur áhugi á hlutaijárkaupum einkcnndi fundi fulltrúa kaupenda SR-mjöls með starfsmönnum verksmiðjanna og sveitarstjórnarmönnum á Sigiufírði, Raufarhöfn, Seyðisfírði og Reyðarfírði á sunnudag. FuUtrúamir upplýstu að vilyrði og staðfest- ingar fyrir 100,38% hlutafjár í fyrirtækinu hefðu þegar borisL Engu að síður var lögð áhersla á að sem flestir starfsmenn eignuð- ust hlut í fyrirtækinu og yrðu gefín loford aðlöguð væntanlegu hlutafé frá þeim. Starfsmennimir, sem hafa forgang að hlutaljár- kaupum til 19. janúar, vildu fá að vita hvort þeir gætu fest kaup á hlutafé fyrir iægrí upphæð en 50.000 kr. eins og gert hafði ver- ið ráð fyrír og þótti ekkert því til fyrirstöðu. Oll sveitarfélögin festa kaup á hlutafé í fyrirtækinu. Að þvi er stefnt að enginn einn aðili eigi meira en 10% af hlutafé fyrirtækisins og hafa tveir aðil- ar þegar lýst yfír áhuga á að eignast þann hluL Um er að ræða Lífeyrissjóð Austuriands og einn fjárfesta. Jónas Aðalsteinsson hrl., sem hefur ásamt Benedikti Sveinssyni hri. undirbúið kaupin, var frum- mælandi á fundunum. Hann rifjaði upp að gert væri ráð fyrir að kaup- endur yrðu um 20 útgerðarmenn, viðskipta- og þjónustuaðilar verk- smiðjanna, starfsmenn, sveitarfé- lög og nokkrir íjárfestar, td. Draupnissjóður, Lífeyrissjóður Austuriands og Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn. Hlutafjárskipting yrði væntanlega á þann veg að útgerðarmenn eignuðust einn þriðja, viðskipta- og þjónustuaðilar, starfsmenn og sveitarfélög svipað- an hlut og fjárfestarnir hið sama. Hann fór yfir kaupsamning frá 29. desember og kom þar m.a. fram að nafnverð hlutabréfa væri 650 milljónir og kaupverð 725 mílljón- ir. Af því kæmu 125 milljónir til greiðslu 1. febrúar, 100 milljónir 15. mars, 100 rmUjónir 1. septem- ber, 200 milljónir 20. desember og sama upphæð ári síðar. Áætlað væri að efiit yrði tU hluthafafundar 1. febrúar, kosið í stjóm og farið yfir samþykktir. Tvíþætt markmið Hvað markmið kaupanna varð- aði sagði Jónas að þau væru eink- um tvíþætt; að stuðla að því að fyrirtækið yrði áfram rekið af sama myndugleika og áður og forða því frá erlendum aðilum. Hann sagði að fúUtrúum eigandanna hefði ver- ið tekið vel í Landsbanka og vænt- anlega yrði gengið frá lausn sem Landsbankinn gæti vel sætt sig við á næstu dögum. Jónas minnti á að Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Andra hf., hefði stefnt sjávarút- vegsráðherra til að ógilda gerðan kaupsamning. Hann sagðist vera þeirrar skoðunar að málshöfðunin væri tfl þess gerð að hræða fjár- festa og trufla hlutafjársöfnun. Hins vegar sagði hann í svari til starfsmanna að þeir starfsmenn sem gerðust hluthafar í félaginu mætti eiga von á stefnu frá Har- aldi og myndu þeir Benedikt að- stoða hluthafa við að fá lögfræð- inga til vamar ef hluthafamir ósk- uð eftir þvL Yfir 15% arður Hlynur Amdal hagfræðingur fór yfir áætlun um afkomu fyrirtækis- ins til næstu 10 ára. Hann sagði að í stað 230.000 lonna meðalafla síðustu ár væri gert ráð fyrir um 200.000 tonna afia á tímabilinu. Góðar vertíðir yrðu í ár og á næsta ári en síðan væri gert ráð fyrir fjög- urra ára lægð með veiði niður í 50.000 tonn. Hann sagði að lægðin væri sett inn í áætlunina með til- liti til sveiflna í veiði, eins og reynslan hefði sýnt fram á, en ýmsum þætti of langt farið niður á við. Sömuleiðis væri gert ráð fyrir að söluverð yrði undir meðal- lagi. Engu að síður sagði hann að ef tekið væri mið af áætluninni yrði arðsemi fyrirtækisins 15,35%. Sú arðsemi uppfylllti kröfur fjár- festa. Iflynur tók fram að hann teldi áætlun sína varfæmislega gerða. Jákvæðar móttökur Erindi fiflltrúa kaupendanna, sem vom auk Jónasar, Benedikts og Hlyns, Öm Erlingsson útgerðar- maður og Þórður Jónsson hjá Sfld- arverksmiðjunum, var afar vel tek- ið þar sem komið var. Fundarmenn lýstu yfir ánægju sinni með að gengið hefði verið frá kaupunum og stuðningi við væntanlega eig- endur. Á Siglufirði vfldu menn vita hvort heimild væri fyrir að auka hlutafé í fyrirtækinu og svaraði Benedikt Sveinsson því játandi. Hann lagði hins vegar áherslu á að ný stjóm hefði ekki verið kosin og yrði væntanlega á valdi hennar að taka ákvörðun um hvort heim- fldin yrði nýtt með hliðsjón af veið- um og verðþróun. Einn fundar- manna vfldi fá að vita hvað gera ætti við 580 milljón króna fram- kvæmdaíé í áætlun og var því svar- að að féð hefði ekki verið eyma- merkt. Fundarmenn á Siglufirði og á Raufarhöfii höfðu áhuga á að vita hvort ibúar á stöðunum gengu fyr- ir á sama hátt og starfsmenn og hvort kaupa mætli hlutabréf fyrir lægri upphæð en 50.000 kr. Fyrir hvoragu þótti fyrirstaða og höfðu fulltrúar kaupendanna orð á því að því fleiri sem hluthafamir væm því betra. Þeir gera ráð fyrir að hluthafar verði á annað hundrað. Jafnframt höfðu menn áhuga á að vita hvort eigendur Krossanes- verksmiðjunnar hefðu haft sam- band við kaupendur SR-mjöls. Neituð fulltrúamir því og sagðist Benedikt Sveinsson halda að eig- endumir hefðu haft áhuga á að kaupa SR-mjöl til að koma eigin verksmiðju á framfæri. Á Raufarhöfn kom fram að er- lendir viðskiptavinir SR-mjöls hefðu lýst yfír ánægju með nýja eigendur og a.m.k. tvö heillaóska- símbréf hefðu borist til þeirra. Jafnframt kom fram í svari við fyrirspum að ekki væri gert ráð fyrir breytingum á rekstri og að líkur bentu til að hægt yrði að halda fyrsta aðalfund nýs hlutafé- lags eftir að ársreikningar lægju fyrir í mars. Á Seyðisfirði vora undirtektir, eins og annars staðar, afer jákvæð- ar og hefur bæjarstjóm nú tekið ákvörðun um hlutaQárkaup. Ákveð- ið var að Hafnarsjóður festi kaup á hlutafé að verðmæti 130.000 kr. að nafnverðL Sigiuíjarðarbær hefur ákveðið að festa kaup á hlutafé sem nemur 90.000 kr. að nafnvirði, Reiðaríjörður að 100.000 kr. að nafnvirði og Raufarhöfn einni millj- ón að nafnverði. 50% kvóti að baki Á fundi með Reyðfirðingum á Egilsstöðum kom, eins og annars staðar, fram ánægja með hversu gott samband hefði verið haft við slarfsmenn fyrirtækisins. Vonast var til að svo yrði áfram enda væri farið að vilja seljendanna. Þá kom fram að um 50% af kvóta væm að baki kaupendanna og ef samstarf næðist við Norðfirðinga og Þórshafnarbúa færi hlutfallið yfir helming. Síldarvinnslan á Nes- kaupstað og Hraðfrystihúsið Þór- hafnar hafa staðfest hlutafjárkaup í fyrirtækinu. AGÓ. Hæffar konur til f orystu Guðrún Zoegn borgorfulltrúi í 3. sæfi í prófkjöri 30. og 31. janúar nk. Skrifstofa stuðningsmanna er í Síðumúla 8., 2. hæð. Opið kl. 16-22 virka daga og 13-18 um helgar. Símar 684490 og 684491. Þorrablót sjálfstæðis- félaganna HII) árlega þorrablót sjálfstæð- isfélaganna í Reykjavík verður haldið laugardaginn 22. janúar nk. í Valhöll. Húsið verður opn- að kl. 19 en borðhald hefst kl. 20. Á dagskránni er m.a. ávarp Friðriks Sophussonar, fjármála- Reykjavík ráðhenra, söngur og gamanmál með Áma Elvar píanóið. Heiðurs- gestur er Friðrik Sophusson og blótinu stýrir Geir H. Haarde, al- þingismaður. Miðasala og miðapantanir verða í Valhöll til föstudagsins 21. janú- ar milli 9 og 17. Miðaverð er 2.000 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.